Morgunblaðið - 10.01.1989, Page 25
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1089
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1989
25
Þrjátíu og nmm mál
afgreidd á síðasta ári
JltagiiaMafrife
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
BjörnJóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
MagnúsFinnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
BaldvinJónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Mikilvægasta
verkefiiið 1989
Umboðsmaður Alþingis:
UMBOÐSMAÐUR Alþingis fjallaði um 70 mál á árinu 1988, en þar
af voru 67 kvartanir frá einstaklingum eða samtökum og 3 mál sem
umboðsmaður tók upp að eigin frumkvæði. Við síðustu áramót höfðu
35 mál verið afgreidd, og lauk 5 þeirra með því að umboðsmaður
lét uppi álit sitt um hvort tiltekin athöfn stjórnvalds bryti í bága
við lög eða góða stjórnsýsluhætti. í lok júlímánaðar á liðnu ári
höfðu umboðsmanni Alþingis borist 24 mál, en frá byrjun ágúst og
til ársloka bárust 46 mál, og þar af 15 í desember. Til skrifstofu
umboðsmanns bárust einnig Qölmargar fyrirspurnir, sem leyst var
úr með leiðbeiningum til viðkomandi aðÚa.
Atvinnuleyfissviptingar vegna
hámarksaldurs leignbifreiðastj óra:
Akvörðun ráðuneyt-
isins er óviðunandi
Atæplega 45 árum íslenzks
lýðveldis hafa setið fímmt-
án ríkisstjómir í landinu. Þar
af átta fjölflokkastjómir að nú-
verandi ríkisstjóm meðtalinni.
Engin Qolflokkastjóm hefur
lifað heilt kjörtímabil. Meðalald-
ur þeirra hefur reynzt um það
bil tvö ár. Þeim hefur ekki enzt
aldur til að fylgja fram stefnu-
málum.
Þar ofan í kaupið hafa fjöl-
flokkastjómir átt í erfíðleikum
með að móta heildstæða stjóm-
arstefnu. Stuttur starfsaldur
þeirra hefur einkennst af sam-
felldum „stjómarmyndunarvið-
ræðum" fremur en framkvæmd
markvissrar stjómarstefnu.
Þau vandamál, sem við er að
etja í íslenzkum ríkis- og þjóðar-
búskap á líðandi stundu, eiga
ekki sízt rætur í ómarkvissri
stefnumörkun og ómarkvissum
starfsháttum Alþingis og ríkis-
stjóma lengi undanfarið.
Ástæðan er fyrst og fremst sú
að stjómmálaflokkar í landinu
em of margir, of smáir og of
veikir.
Smáflokkagerið hefur veikt
lýðræði og þingræði í landinu.
Það dregur verulega úr mögu-
leikum kjósenda til þess að hafa
— með atkvæði sínu — áhrif á
sljómarmyndun eða stjómar-
stefnu eftir kosningar. Stjómar-
myndanir ráðast fremur í
„hrossakaupum“ eftir kosning-
ar en við kjörborðið. Og það
gerir nánast ómögulegt að
mynda stefnufastar og sterkar
ríkisstjómir í landinu.
Sú ríkisstjóm sem nú situr
„skartar" öllum annmörkum
fjölflokkastjóma. Öxull hennar
er sá einn að stórauka bæði
beina og óbeina skattheimtu,
færa fleiri og fleiri milljarða
króna frá fólki og fyrirtækjum
til ríkissjóðs, á sama tíma og
kaupmáttur verkafólks innan
ASI lækkar að meðaltali um
2,3%, samkvæmt Fréttabréfí
Kjararannsóknamefndar (frá
þriðja ársQórðungi 1987 til
þriðja ársfjórðungs 1988). Síðan
á að beija í brestina með þvi
innbyrða fjórða stjómarflokk-
inn, ef um semst í viðræðum
sem hefjast í vikulokin. En þjóð-
kjörið þing er sent í frí fram í
næsta mánuð.
Undir þessum kringumstæð-
um leggja tveir fyrrverandi
frambjóðendur Samtaka frjáls-
j lyndra og vinstri manna — Olaf-
; ur Ragnar Grímsson formaður
’í Alþýðubandalagsins og Jón
* Baldvin Hannibalsson formaður
Alþýðuflokksins — upp í funda-
herferð um landið. Herferðin
ber yfírskriftina „á rauðu ljósi“.
Alþýðublaðið lætur að því liggja
í forsíðufrétt að þetta sé ekki
ferð án fyrirheits, heldur „upp-
haf sameiningar A-flokkanna“.
En „sameining vinstri manna“
var einmitt höfuðmarkmið
þeirra samtaka, sem formenn
A-flokkanna gerðu stuttan
stanz í á öndverðum pólitískum
ferli sínum.
Af þessu tilefni segir Þor-
steinn Pálsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins í grein í Morg-
unblaðinu síðastliðinn laugar-
dag:
„Engum vafa er undirorpið
að borgaraleg frjálslynd öfl eru
í miklum meirihluta á íslandi.
Þau eru ekki einungis að finna
í Sjálfstæðisflokknum og Borg-
araflokknum, heldur einnig í
Framsóknarflokknum og meðal
stuðningsmanna Alþýðuflokks-
ins og jafnvel Kvennalistans.
Ef hér á að byggja upp ftjáls-
lynt þjóðfélag og koma í veg
fyrir að þau vinstri viðhorf, sem
nú ráða ríkjum, verði allsráð-
andi, er nauðsynlegt fyrir borg-
araöflin að hefja aukið samstarf
sín á milli. Þó að mikill vandi
steðji að íslenzkum atvinnuveg-
um, búa íslendingar við mjög
góð ytri skilyrði um þessar
mundir og hafa því alla mögu-
leika á að vinna sig út úr erfíð-
leikunum og hefja nýja fram-
farasókn.
Alþýðubandalagið og Al-
þýðuflokkurinn hafa með dygg-
um stuðningi Framsóknar-
flokksins komið fram ýmsum
grundvallarstefnumálum Al-
þýðubandalagsins í efnahags-
og atvinnumálum. Það er hinn
eðlilegi undanfari aukinnar
samvinnu og síðar samruna
A-flokkanna. Borgaraöflin
verða nú að snúast gegn þess-
ari þróun með aukinni samvinnu
sín á milli á pólitíska sviðinu.
Það er tvímælalaust mikilvæg-
asta pólitíska verkefnið sem við
blasir í byijun þessa árs.“
Undir þessi orð skal tekið.
Oft var þörf en nú er nauðsyn
að styrkja breiðfylkingu borg-
aralegra afla í landinu. Sá var
höfuðtilgangur Sjálfstæðis-
flokksins þegar hann var stofn-
aður Nmeð samruna íhalds-
flokksins og Fijálslynda flokks-
ins 1929. Sá er höfuðtilgangur
hans enn í dag. Þannig má á
nýjan leik stuðla að nauðsyn-
legri festu í íslenzkum stjórn-
málum.
í 11 af þeim málum sem lokið
var um síðustu áramót kom ekki
til frekari afskipta umboðsmanns,
þar sem aðilar höfðu vísað málum
til dómstóla eða máli hafði ekki
verið skotið til æðra stjómvalds
áður en kvörtun var borin fram,
en það er skilyrði eigi umboðsmað-
ur að fjalla um málið. í 6 tilvikum
lauk máli vegna þess að þeir sem
höfðu borið fram kvörtun féllu frá
henni. í öðrum tilvikum voru mál-
in tekin til frumathugunar, en að
henni lokinni var ekki talin ástæða
til nánari umfjöllunar, og í sumum
tilvikum höfðu þeir sem báru fram
kvörtun fengið leiðréttingu sinna
mála eftir að umboðsmaður hafði
beint fyrirspum til hlutaðeigandi
stjómvalds um það efni sem kvart-
að var yfir.
Þær kvartanir sem borist hafa
til umboðsmanns hafa lotið að
ýmsum þáttum í stjómsýslunni,
en af einstökum málaflokkum hafa
flest mál lotið að framkvæmd
skattamála, eða 11 talsins. I 8 til-
vikum var kvartað vegna frávikn-
ingar opinberra starfsmanna eða
annarra málefna opinberra starfs-
manna og 6 mál fjalla um meðferð
stjómvalda á forræðismálum
bama. Af öðrum málaflokkum má
nefna ákvarðanir um sviptingu
atvinnuréttinda, framkvæmd
byggingarmálefna og bótagreiðsl-
ur almannatrygginga.
Af þeim 35 málum sem ekki
höfðu hlotið endanlega afgreiðslu
um síðustu áramót var í 6 tilvikum
beðið eftir umsögnum eða upplýs-
ingum frá stjómvöldum, í 6 málum
var beðið eftir umsögnum frá þeim
sem höfðu borið fram kvörtun, 21
mál var til frumathugunar og tvö
mál voru til lokaafgreiðslu hjá
umboðsmanni.
AF 5 málum sem umboðsmaður
Alþingis hefúr sent frá sér álit
um varða 3 mál kvartanir sem
honum bárust vegna brottvikn-
inga leigubílstjóra úr starfi
vegna aldurs. Komst umboðs-
maður að þeirri niðurstöðu í
fyrsta áliti sem hann sendi frá
sér i október s.l., að reglugerð-
arákvæði varðandi hámarksald-
ur leigubílstjóra ætti sér ekki
lagastoð. í svari Samgöngu-
ráðuneytisins til umboðsmanns
Alþingis við því áliti segir að
ráðuneytið muni ekki hlutast til
um að þeim leigubílstjórum sem
gert hefúr verið að leggja inn
atvinnuleyfi sín vegna aldurs
verði veitt atvinnuleyfi á ný.
Telur umboðsmaður þessa
ákvörðun ráðuneytisins óviðun-
andi, þar sem hann telur að lög
hafi verið brotin á viðkomandi
leigubílstjórum.
Umboðsmaður Alþingis telur að
ákvæði í reglugerðum sem hafa í
för með sér takmarkanir eða missi
atvinnuréttinda verði að eiga sér
ótvíræða stoð í lögum, og stranga
kröfu verði að gera um að slík
lagaheimild sé tvímælalaus ef í
hlut eiga afdrifarík ákvæði svo
sem um réttindamissi. Lög um
leigubifreiðar hafi frá upphafi
geymt fyrst og fremst ákvæði
varðandi heimild til takmörkunar
á fjölda leigubifreiða, um skyldu
til að stunda leiguakstur frá stöð
og um ráðstöfun leyfa til leigubif-
reiðaaksturs. Þar hafi ekki verið
til að dreifa reglum um það, hvaða
skilyrðum menn þurfi að fullnægja
til að fá slík leyfí eða hvaða atvik
leiða til brottfalls þessara réttinda.
Samkvæmt gildandi lögum sé
óheimilt að skerða atvinnuréttindi
manna sem á lögmætan hátt
stunda akstur leigubifreiða og séu
fullgildir félagar í hlutaðeigandi
stéttarfélagi þegar takmörkun á
fjölda leigubifreiða er ákveðin með
reglugerð. Telur umboðsmaður
Alþingis að reglugerðarákvæði frá
1985 um hámarksaldur leigubif-
reiðastjóra eigi sér ekki viðhlítandi
lagastoð, þannig að því verði ekki
beitt gegn leyfíshöfum sem höfðu
leyfí við gildistöku nefnds ákvæð-
is, en bílstjóramir þrír sem um
ræðir eru allir meðal þeirra.
í bréfi samgönguráðuneytis-
ins frá 23. nóvember til umboðs-
manns Alþingis kemur fram að
verið sé að endurskoða lög um
leigubifreiðar, og í væntanlegu
frumvarpi verði að öllum líkindum
lagt til að atvinnuleyfí til leigubif-
reiðaaksturs falli niður þegar leyf-
ishafí verður 75 ára. Einnig segir
í bréfi ráðuneytisins að ráðuneytið
muni ekki hlutast til um að þeir
leyfishafar sem gert var að leggja
inn atvinnuleyfí sín fyrir 1. júlí
1988 fái atvinnuleyfi sín á ný.
Telur umboðsmaður Alþingis að
þessi ákvörðun ráðuneytisins sé
óviðunandi þar sem hann telur að
lög hafí verið brotin á viðkomandi
leigubifreiðastjórum.
Jón Baldvin Hannibalsson
herra í Brussel, Haraldur Kröyer,
sendiherra í París og Magnús
Gunnarsson, stjórnarformaður Út-
flutningsráðs.
Tekjutrygging örorkulífeyrisþega vegna tekna maka:
Skerðing á sér lagastoð en
reglumar ætti að endurskoða
ÁKVÆÐI reglugerðar sem kveða á um skerðingu á tekjutryggingu
örorkulífeyrisþega vegna tekna maka eiga sér stoð i lögum sam-
kvæmt áliti umboðsmanns Alþingis. Hann telur að þar sem deila
megi um hvort viðkomandi ákvæði séu réttlát eigi að taka viðkom-
andi reglur til athugunar, og i lögum eigi að afinarka nánar en nú
er gert hvaða skilyrði megi setja i reglugerð fyrir því að menn
njóti umræddrar tekjutryggingar.
Umboðsmanni Alþingis barst
kvörtun frá einstaklingi um að
viðkomandi hefði ekki notið tekju-
tryggingar sem örorkulífeyrisþegi,
samkvæmt lögum um almanna-
tryggingar, vegna fyrirmæla í
reglugerð um tekjutryggingu,
heimilisuppbót og heimildarhækk-
anir, en reglugerðin er sett með
stoð í lögunum um almannatrygg-
ingar. í reglugerðinni segir að njóti
annað hjóna elli- eða örorkulífeyr-
is, en hitt ekki, þá skuli helmingur
samanlagðra tekna þeirra teljast
tekjur lífeyrisþegans. Fari þessar
tekjur hans ekki fram úr ákveð-
inni hámarksupphæð skuli greiða
ákveðna uppbót (tekjutryggingu)
á lífeyri hans. Hafí bótaþeginn
hins vegar tekjur umfram hám-
arksupphæðina skuli skerða upp-
bótina um sem svarar 55% þeirra
tekna sem umfram eru. Telur við-
komandi einstaklingur að með
útgáfu og framkvæmd reglugerð-
arinnar taki framkvæmdavaldið til
baka þau réttindi af ákveðnum
hópi fólks sem löggjafarvaldið
ákvað með lögunum.
í áliti umboðsmanns Alþingis
segir að hann telji að skerðingará-
kvæði reglugerðarinnar eigi sér
nægilega lagastoð. Hafi hann í
niðurstöðu sinni tekið tillit til þess
að nefnd skerðingarákvæði geta
ekki talist fara í bága við nein
meginsjónarmið þeirra almanna-
tryggingalaga, sem fram til þessa
hafa gilt. Þrátt fyrir þessa niður-
stöðu segir umboðsmaður Alþingis
að honum sé ljóst að deila megi
um hvort umrædd skerðingará-
kvæði geti talist réttlát eða heppi-
leg. Þaað sé því skoðun hans að
ástæða sé til að taka þessar reglur
til athugunar og taka á ný afstöðu
til þess hvort þær eigi að haldast
óbreyttar. Þá telur hann eðlilegt
að í lögum sé afmarkað nánar en
nú er gert hvaða skilyrði megi
setja í reglugerð fyrir því að menn
njóti umræddrar tekjutryggingar.
Utanríkisráðherra ræðir við erlenda starfsbræður sína:
Breyttar forsendur vegna aukins
útflutnings tfl Evrópubandalagsins
Viðskipti íslands og EB ekki fyllilega gagnkvæm
París. Fri Kristófer M. Krutinssyni, fréttaritara Morgunbladsins.
JÓN Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra átti í gær fúndi
með starfsbræðrum sínum frá
Spáni, Portúgal og Frakklandi
en alíir taka þeir þátt i ráð-
stefiiu um efiiavopn sem fram
fer þessa dagana í París. Jón
Baldvin kvaðst hafa gert ut-
anríkisráðherrunum grein fyrir
yfirgnæfandi mikilvægi sjávar-
afúrða fyrir íslenskt efiia-
hagslíf. Þá hefði hann og bent
á að töluvert vantaði upp á að
viðskipti íslands og aðildarríkja
Evrópubandalagsins (EB) gætu
talist gagnkvæm.
Jón Baldvin kvaðst hafa lagt á
það áherslu að forsendur íslend-
inga í viðskiptum við EB hefðu
að ýmsu leyti breyst vegna stór-
aukins útflutnings til aðildarríkja
bandalagsins. Bent hefði verið á
að þau viðskipti væru ekki fyllilega
gapkvæm þar eð ríki EB hefðu
óhindraðan aðgang að íslenskum
markaði fyrir iðnaðarvörur sínar
á meðan hluti sjávarafurða íslend-
inga, sem eru 75 til 80 prósent
af útflutningi þjóðarinnar, sætti
innflutningshömlum. „Við höfum
fyllilega staðið við okkar hlut og
við getum ekki sætt okkur við að
fyrir aðgang okkar að mörkuðum
EB komi réttur aðildarríkjarina til
að nýta auðlindir íslendinga,"
sagði Jón Baldvin Hannibajsson.
„Við erum að sjálfsögðu ekki að
deila við Evrópubandalagið um
grundvallarreglur sem það setúr
sér. Við erum einungis að fara
fram á skilning á sérstöðu íslend-
inga,“ bætti hann við. .
Utanríkisráðherra kvað undir-
tektirnar hafa verið mjög vinsam-
legan Utanríkisráðherra Spánar,
Francisco Femandez Ordonez,
sem væntanlegur er til íslands í
fylgdarliði Jóhanns Karls Spánar-
konungs næsta sumar, hefði lýst
sig reiðubúinn til að ræða sam-
skipti íslands og EB við Manuel
Marin, nýskipaðan framkvæmda-
stjóra fiskimála í höfuðstöðvum
bandalagsins í Brussel en hann
var tilnefndur af Spánveijum. í
máli Ordonez hefði einnig komið
fram að hann hefði í hyggju að
boða til fundar utanríkisráðherra
EB og Fríverslunarbandalags Evr-
ópu, EFTA, til að ræða hugsanlega
stjómmálasamvinnu aðildarríkj-
anna.
Fundina sátu auk utanríkisráð-
herra Einar Bendiktsson, sendi-
AF ERLENDUM VETTVANGI
Mannaskipti í Washington:
••
Oryggisráðgjafinn kýs herinn
þrátt fyrir gylliboð annarra
Economist
BRÁTT kemur að því að mannaskipti verða í lykilembættum
í Washington, þegar Ronald Reagan kveður og George
Bush tekur við sem forseti Bandaríkjanna. Flestir þeirra
sem þá láta af störfúm hjá hinu opinbera ætla að reyna
fyrir sér á almennum vinnumarkaði. Sá í hópi nánustu sam-
starfsmanna forsetans, sem lengst hefur starfað hjá ríkinu,
ætlar að halda því áfram. Þar fer Colin Powell, öryggisráð-
gjafí forsetans, sem hefúr stöðu undir-hershöfðingja í land-
her Bandaríkjanna en verður nú Qögurra-stjörnu hers-
höfðingi og tekur við yfirstjórn milljón manna herafla, er
hefur það hlutverk að verja meginland Ameríku.
jóðhollusta Colins Powells
er aðdáunarverð í ljósi þess,
hve mikilla tekna hann gæti afl-
að sér, ef hann kysi að leita fyr-
ir sér á almennum vinnumark-
aði. Starfsbræður hans stór-
hækka í launum við að hverfa
úr opinberri þjónustu en grunn-
laun Powells hækka ekki einu
sinni, en þau eru 6.041 dollari á
mánuði eða 295 þúsund krónur.
Flestir telja, að hann gæti að
minnsta kosti tífaldað laun sín>-
með því að hverfa af launaskrá
ríkisins.
Vikumar í kringum forseta-
skipti í Bandaríkjunum einkenn-
ast meðal annars af því að menn
væla undan þeim fómum sem
þeir færa með því að ráðast til
opinberra starfa. Þeir fóma alls
ekki mestu, sem taka við háum
embættum innan ríkisstjómar-
innar. Hinir fómfúsu em þeir,
sem halda áfram að gegna
slíkum störfum í stað þess að
hverfa að öðru. Stússið í kringum
frægt fólk í Ameríku færist nú
æ meira til Washington og þeirra
sem hafíst hafa til æðstu met-
orða þar. Þetta fræga fólk er
alltaf að fá fleiri tækifæri til að
láta á sér bera, svo framarlega
sem það er farið úr embættun-
um, sem gerði það frægt.
Alinn upp í Harlem
Colin Powell ólst upp í Harlem
og Suður-Bronx í New York,
tveimur fátækustu borgarhlutum
Bandaríkjanna. Foreldrar hans
vom innflytjendur frá Jamaica.
í þijátíu ár hefur Powell starfað
í þágu bandaríska ríkisins. Hann
hefur gegnt mikilvægum embætt-
um fyrir þijár ríkisstjórnir og
sinnt störfúm sem herforingi í
Bandaríkjunum, Kóreu og Vest-
ur-Þýskalandi. Powell er blökku-
maður — valdamesti blökkumað-
urinn í stjóm Reagans og líklegá
sá sem almennt hefur komist til
æðstu metorða hjá Bandaríkjafor-
seta. Þegar litið er á dýrkunina á
fræga fólkinu, er þessi staðreynd
ekki til þess að minnka athyglina
á Powell.
í ljósi hinna vinsamlegu reglna
sem gilda um eftirlaun í Banda-
ríkjaher, er í sjálfu sér undruna-
refni að nokkur foringi vilji starfa
lengi innan hans. Powell sem er
51 árs gæti farið úr hernum og
haldið 75% af núverandi launum
sínum. Hann fær 977 þús. kr.
hærri laun á ári með því að halda
áfram störfum.
Há laun í boði
Alexander Haig, sem var fyrsti
utanríkisráðherra Reagans og ör-
yggisráðgjafi Richards Nixons,
var orðinn fíögurra-stjömu hers-
höfðingi, þegar hann hvarf úr
opinberri þjónustu 1979. Þegar
Haig reyndi fyrir sér í prófkjöri
vegna forsetakosninganna á
Colin Powell fráfarandi örygg-
isráðgjafi Regans.
síðasta ári sagðist hann hafa 63,5
milljónir króna á ári í laun fyrir
ráðgjafarstörf. Brent Scowcroft,
sem var öryggisráðgjafí Geralds
Fords forseta og tekur við sama
starfí af Powell, nú hjá Bush,
yfírgaf flugherinn sem þriggja-
stjömu hershöfðingi. Hann er
varaforseti í fyrirtækinu Kissin-
ger Asscociates (Kissinger og fé-
lagar) sem er ábatasöm ráðgjafa-
þjónustu, sem Henry Kissinger
fyrrum öryggisráðgjafí og ut-
anríkisráðherra rekur. Kissinger
er helsta fyrirmynd þeirra sem
hafa hug á að hagnast vel á
frægðarferli í Washington.
Samkvæmt því sem heimildir
herma myndu mörg stórfyrirtæki
vera fús til að borga Colin Pow-
ell að minnsta kosti 25 milljónir
króna á ári fyrir að fá hann á
launaskrá sína. Væri fullt starf
of mikið gæti Powell sest í stjóm-
ir ýmissa fyrirtækja. Hann gæti
unnið sér inn 5 til 10 milljónir kr.
á ári með því einu að sitja í slíkum
stjómum. Kissinger fær meira en
20 milljónir kr. á ári fyrir að vera
bera titil forstjóra og ráðgjafa hjá
Amercian Express. Jafnvel hærri
fíárhæðir em í boði hjá fjármála-
fyrirtækjunum í Wall Street í New
York. David Stockman, sem var
fjarlagastjóri Reagans frá 1981
til 1985, sagði af sér til að taka
við starfi hjá Salomonon Brot-
hers, fjárfestingarbanka, þar sem
hann fær 50 milljónir króna í laun
á ári. (Stockman fékk tæpar 120
millj. kr. í eigin vasa fyrir að
skrifa bók um fjárlagahallann,
sem hann skildi eftir sig.)
Ræður gegn gjaldi
Oliver North, undirofursti,
hætti í landgönguliði flotans í maí
sl. og hóf að flytja ræður fyrir
25.000 dollara (1,2 milljónir kr.)
stykkið. Don Walker hjá skrifstof-
unni Harry Walker, sem sérhæfír
sig i umboðsmennsku fyrir ræðu-
menn leitaði hófanna hjá Powell
og segir að hann hefði orðið einn
vinsælasti ræðumaður í Banda-
ríkjunum og fengið allt að 1 millj-
ón kr. fyrir ræðuna. Ef Powell
. hefði valið þennan kost hefði hann
Oliver North fer 1,2. milljón
króna fyrir að flytja eina ræðu
slegist í hóp ineð ýmsum fyrrver-
andi samstarfsmönnum Reagans
eins og Caspar Weinberger, fyrrv.
varnarmálaráðherra, Howard Ba-
ker, skrifstofustjóra forsetans, og
Jeane Kirkpatrick, sem var sendi-
herra hjá Sameinuðu þjóðunum.
Þau hafa um 50 milljónir kr. i
árstekjur fyrir að flytja ræður á
fundum kaupsýslumanna, hjá
verkalýðsfélögum og í háskólum.
Bókaútgáfan Harper & Row
lenti í nokkrum vandræðum með
að standa undir þeim háu höfund-
arlaunum, sem hún greiddi David
Stockman á sínum tíma. Hefur
þetta orðið til þess að draga nokk-
uð úr áhuga útgefenda á bókum
fyrrverandi embættismanna, þar
sem þeir lýsa innviðum stjómkerf-
isins og þeim sem þar starfa. Þrátt
fyrir þetta hafa ýmsir slíkir
sagnamenn haft töluvert upp úr
krafsinu. Donald Regan, fýrrum
fjármálaráðherra og skrifstofu-
stjóri Reagans, græddi 50 milljón-
ir kr. á því að segja frá áhuga
forsetafrúarinnar á stjömuspám.
Weinberger hefur fengið 25 millj-
ónir kr. fyrir sína bók. Því miður
hafa útgefendur of miklar mætur
á Colin Powell til að verðleggja
endurminningar hans. „Þessar
bækur em því aðeins einhvers
virði, að höfundurinn vilji kjafta
frá öllu,“ segir Alice Mayhew
helsti útgáfustjóri hjá Simon og
Schuster. „Það háir honum að
hann er vandur að virðingu sinni.“