Morgunblaðið - 24.02.1989, Side 20

Morgunblaðið - 24.02.1989, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 1989 Söngvar Satans: Útgefendur hyggjast gefa bókina út Reuter Yasser Arafat, leiðtogi PLO, ásamt Shevardnadze á fréttamanna- fundinum í gær. Á laugardag fer sovéski utanríkisráðherrann til írans og mun þá meðal annars ræða við Khomeini erkiklerk. Shevardnadze í Miðausturlandaferð: /í • j • * París, Nikosíu, Tókýó. Reuter. NOKKRAR bókaútgáfur og bóka- verslanir í Evrópu, sem frestað höfðu útgáfii og sölu á bókinni Söngvum Satans vegna dauðahót- ana gegn höfundi og útgefendum hennar, hafa ákveðið að koma henni á markaðinn bráðlega. Franskur bókaútgefandi, Christ- ian Bourgois, skýrði frá því að hann myndi gefa Söngva Satans út bráð- lega í samvinnu við nokkrar franskar bóka- og blaðaútgáfur. Bourgois sagðist hafa tekið þessa ákvörðun í samráði við aðra evrópska bókaút- gefendur, sem ættu við sama vanda að stríða og hefðu komist að sömu niðurstöðu og hann. Öfgamenn úr röðum múslima_ í Libanon, sem styðja stjómvöld í ír- an, lýstu því yfír að þeir myndu „hegna öllum þeim stofnunum og samtökum sem á einn eða annan hátt [vanvirtu] múhámeðstrúna eða spámanninn mikla". Þeir minntust ekki á þijá gísla, sem þeir hafa í haldi, en Rushdie-málið hefur valdið vaxandi áhyggjum út af öryggi allra vestrænu gíslanna 17 í Líbanon. Leiðtogar vestrænna ríkja, sem eru í Tókýó vegna útfarar Híróhítós, fyrrum Japanskeisara, hvöttu til sameinaðrar andstöðu gegn aðförinni að Rushdie. Afganskir skæruliðar: Samkomulag um stjóm Islamabad. Reuter. Afganskir skæruliðar kusu í gær hófsaman mann, Sibghatullah Mojaddidi, sem forseta bráðabirgðastjórnarinnar, sem þeir vilja, að taki við stjórnartaumunum í Kabúl þegar borgin er fallin. Pakistanska ríkissjónvarpið sagði, að íslamskur harðlínumaður, Abdurhab Rasul Sayyaf, hefði verið kjörinn forsætisráðherra á fundi skæruliða í Rawalpindi í Pakistan eftir að skæruliðaforingjamir höfðu komist að samkomulagi um kosn- ingareglur. Voru þær þannig, að atkvæði á bak við mann réðu því hvaða embætti hver hlyti og var forsetaembættinu skipað fremst, þá forsætisráðherraembættinu og síðan embætti fjármála-, vamar- mála-, innanríkismála-, utanríkis- mála- og endurreisnarmálaráð- herra. Bandaríkjasljórn ræð- ur ekkiein við vandann Sovétmenn bjóða Israelsstjórn fullt stjórnmálasamband fallist hún á alþjóðlega friðarráðstefnu ásamt PLO Kairó, Tókýó. Reuter. EDÚARD Shevardnadze, ut- anríkisráðherra Sovétríkjanna, sagði í gær f Kairó f Egypta- landi, að það væri ekki á færi Bandaríkj astj ómar einnar að fínna lausn á deilum araba og íraela. Þá kvaðst hann telja mikla hættu á styrjöld i Miðaust- urlöndum og hugsanlega kjarn- orkustyrjöld. James Baker, ut- anríkisráðherra Ban daríkjanna, sagði f Tókýó í gær, að Sovét- menn gætu lagt sitt af mörkum til friðar í Miðausturlöndum með þvi að taka upp fullt stjóm- málasamband við ísraela og Ingmar Bergman hlaut Soiming-verðlaunin Kaupmannahöfn. Reuter. SÆNSKI leikstjórinn Ingmar Bergman hlaut í gær Sonning- verðlaunin dönsku en þeim er úthlutað annað hvert ár til ein- hvers, sem lagt hefur mikið af mörkum til evrópskrar menning- ar. Bergman fékk verðlaunin, rúmar 3,5 milljónir ísl. kr., fyrir kvik- myndaleikstjóm, fyrir að hafa „mótað og eflt listræna tjáningu, sem túlkaði og stæði föstum fótum jafnt í norrænni sem evrópskri menningararfleifð". Bergman mun taka við verðlaununum við hátíð- lega athöfn í Kaupmannahöfn í október. Ingmar Bergman halda aftur af róttækum öflum. „Eins og nú er ástatt í Miðaust- urlöndum er mikil hætta á styijöld, sem orðið gæti að kjamorkustyijöld fyrr en varði," sagði Shevardnadze á fréttamannafundi í Kairó að lokn- um viðræðum við Moshe Arens, utanríkisráðherra ísraels, Yasser Arafat, leiðtoga PLO, Frelsisfylk- ingar Palestínumanna, og frammá- menn í arabaríkjunum. Sagði hann, að Sovéts'tjómin ætlaði að leggja sig alla fram við tilraunir til að koma á friði í Miðausturlöndum og lýsti yfír, að hún væri reiðubúin að taka upp fullt stjómmálasamband við ísraela féllust þeir á að taka þátt í alþjóðlegri friðarráðstefnu ásamt PLO. Á fundinum í fyrradag kvaðst Moshe Arens hins vegar ekki taka í mál beinar viðræður við PLO. Shevardnadze veik að George Bush Bandaríkjaforseta og sagði, að hann vildi takmarka afskipti Sovétmanna af málefnum Miðaust- urlanda. „Það er leitt því að hér er -það metingurinn, sem hefur mótað afstöðuna. Það væri fagnað- arefni gæti Bandaríkjastjóm ráðið ein fram úr öllum vandamálunum en svo er bara ekki. Það verða allir að taka höndum saman," sagði Shevardnadze. Reuter Voru lífverðimir að verki? 13 ára gömul stúlka var skotin til bana í Jóhannesarborg i Suður- Afriku í gær og telur lögreglan að stúlkan hafi verið myrt í hefiidarskyni vegna morðs á einum af lífvörðum Winnie Mand- ela, eiginkonu blökkumannaleiðtogans Nelsons Mandela. Árásar- mennimir vörpuðu einnig eldsprengjum á heimili stúlkunnar, sem er við sömu götu og morðið á lífverðinum var framið. Á mynd- inni er systir stúlkunnar, sem var myrt, jafiia sig á brunasárum sem hún fékk f árásinni. Tékkóslóvakía: Taka ekki mark á mótmælunum London, Búdapest, Prag. Reuter. BRESKA rikisstjórain mótmælti í gær formlega fangelsisdómin- um yfir tékkneska leikskáldinu Vaclav Havel og það sama gerði Kosið til fulltrúaþings Sovétríkjanna í næsta mánuði: Sajudis hugsar sér gott til glóðarinnar Vilnu. Reuter. KOMMÚNISTAFLOKKURINN I Sovétlýðveldinu Litháen býr sig nú undir kosningar sem eiga sér engin fordæmi til hins nýja fulltrúaþings Sovétríkjanna. í kosningunum, sem fram fara í næsta mánuði , má telja líklegt að leiðtogi flokksins, Algirdas Brazauskas, þurfi að beijast fyrir því að hljóta tilskilið fýlgi til að ná sæti á þinginu. Félagar í Qöldahreyfíngunni Sajudis ætla að bjóða fram á móti kommúnistum og sagði Vitautas Lands- bergis, formaður Sajudis, í viðtali við Reuters-fréttastofima að hann vænti þess að hreyfingin ynni 30 af 42 þingsætum Litháa á fidltrúaþinginu. Líkt og í öðrum Sovétlýðveldum er kommúnistaflokkurinn eini lög- mæti stjómmálaflokkurinn í Eystrasaltslöndunum þremur og umbótaáætlanir Míkhafls Gorb- atsjovs Sovétleiðtoga hafa í engu breytt „forystuhlutverki" því sem stjómarskrá Sovétríkjanna kveð- ur á um að flokkurinn gegni. En Sajudis og Þjóðfylkingin í Lettl- andi og Eistlandi, sem eru fjölda- hreyfíngar og beijast fyrir endur- heimt þess sjálfstæðis er var við lýði í ríkjunum þremur áður en þau voru innlimuð í sovéska ríkja- sambandið í stríðslok, njóta nú æ meiri stuðnings á kostnað komm- únistaflokksins. Félagar í þessum hreyfingum gripu tækifærið fegins hendi þeg- ar boðað var til fijálsra kosninga í fyrsta sinn í Sovétríkjunum í mars næstkomandi og mynduðu skipulagða stjómarandstöðu sem ekki á sinn lfka annars staðar í Sovétríkjunum. Sajudis hefur beitt sér fyrir vemdun menningu og tungu Lit- háa auk þess sem hreyfíngin hef- ur krafíst stjómmálalegs og eftia- hagslegs sjálfstæðis þjóðarinnar og hraðari framkvæmdar á um- bótaáætlunum Gorbatsjovs. Nú bjóða margir leiðtogar hreyfíng- arinnar sig fram í kosningum til fulltrúaþingsins í næsta mánuði, oft á móti forystumönnum komm- únistafíokksins. Landsbergis býð- ur sig til að mynda fram í bænum Pangevezhys í Norður-Litháen á móti bæjarstjóranum þar. Arvyd- as Juozaitis, heimspekikennari og félagi í Sajudis, býður sig fram í Vilnu á móti Brazauskas, leiðtoga Kommúnistaflokks Litháens. Líklegt má telja að grannt verði fylgst með kosningaúrslitum í höfuðborg landsins. „Aðeins 42 af 2.250 þingsætum á fulltrúaþinginu eru ætluð Lit- háum," sagði Landsbergis. Hann sagði ennfremur að margir hefðu haft það á orði við forystumenn Sajudis að skynsamlegra væri að einbeita sér að þingkosningum í lýðveldinu sem haldnar verða næsta haust. Sajudis verði að ná meirihluta á litháenska þinginu ef hreyfíngin ætli að koma á rót- tækum stjómarfarsbreytingum innan lýðveldisins. „Við ákváðum að bjóða fram í þessum kosningum því við teljum okkur geta dregið af því mikinn pólitískan lærdóm," sagði Lands- bergis. „Þá er einnig hugsanlegt að fulltrúar Sajudis á fulltrúa- þinginu í Moskvu hitti fyrir full- trua svipaðra hreyfínga í öðrum lýðveldum og að saman myndi þeir stjómmálalegt afl sem láti mikið að sér kveða. Þar á ég aðal- lega við fulltrúa frá Eistlandi og Lettlandi en einnig öðrum Sovét- lýðveldum þar sem andstöðuhópar hafa skotið rótum - í Kákasu- slöndunum Grúsíu og Armeníu og jafnvel Moldavíu." ungverskt verkalýðsfélag, eina óháða stéttarféiagið í Austur- Evrópu að undanskilinni Sam- stöðu i Póllandi. Stjóravöld í Tékkóslóvakíu hafa sakað vest- ræn ríki um afskipti af tékknesk- um innanrikismálum og segjast Éara eftir alþjóðlegum mannrétt- indasamþykktnm. Sendiherra Tékka í Bretlandi, Jan Fidler, vom í gær afhent form- leg mótmæli bresku stjómarinnar vegna dómsins yfír Havel og um leið var krafíst skýringa á ofsóknum tékkneskra stjómvalda á hendur andófsmönnum. Bretar hafa tekið mjög einarða afstöðu gegn mann- réttindabrotum í Austur-Evrópu og í fyrradag kröfðust þeir upplýsinga af Rúmeníustjóm um 23 andófs- menn þar í landi. „Við fordæmum aðgerðir lög- reglunnar og það, að mönnum skuli refsað fyrir skoðanir sínar," sagði í mótmælum Lýðræðislegs stéttar- félags raunvísindamanna í Ungveij- alandi, eina fijálsa verkalýðsfélags- ins í Austur-Evrópu, sem nú fær að starfa. Var það stofnað í maí í fyrra og hefur rúmlega 4.000 manns innan sinna vébanda. Tékknesk stjómvöld vísuðu í gær á bug gagnrýni margra ríkja og sögðu, að þau fylgdu í einu og öllu samþykktum um mannréttindamál. Þeir, sem héldu öðru fram, væru andsnúnir sósíalismanum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.