Morgunblaðið - 30.03.1989, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.03.1989, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1989 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Smáskammta- lœkningar Orðið smáskammtalækningar er þýðing á erlenda orðinu homeopathy. Homeo þýðir það sama eða líka og pathy þýðir sjúkdómar eða veikindi, sem lýsir í hnotskum eðli smáskammtalækninga. Sjúk- dómar eru læknaðir með því að nota efni sem er skylt sjúk- dómnum. Kenningin er sú að með því að nota útþynnta upplausn af efni sem veldur td. ákveðinni tegund af hita- sótt sé stuðlað að lækningu þeirrar sömu hitasóttar. Hin útþynnta upplausn örvar líkamann til að mynda mót- efni gegn hitasóttinni. Líkam- inn sér síðan sjálfur um lækn- inguna, því það er kenning smáskammtalækninga að við sjálf séum besti læknirinn. Bólusetningar Hin hefðbundnu læknavísindi eru líkust smáskammtalækn- ingum þegar bólusetningar eru annars vegar, en þá er veik blanda sóttkveikjunnar sprautuð í einstaklinginn til að hann myndi mótefni gegn mögulegum sjúkdómi. Vantrú Hér áður fyrr (og reyndar sums staðar enn í dag) var hlegið að smáskammtalækn- um og þeir taldir kuklarar. Það er hins vegar ekki lengra en rúmt ár sfðan vísindaritið Nature birti niðurstöður rann- sókna franska vísindamanns- ins L. Morgunblaðið birti frétt um þessa rannsókn, en það var sýnt fram á að þó lausnir væru þynntar tíþúsundfalt hefðu þær eigi að síður áhrif á lfkamsstarfsemina. Þessi rannsókn styður kenningar smáskammtalækna. Grein í Morgun- blaðinu Gunnar Thoroddsen fyrrver- andi forsætisráðherra sagði í riti sínu um ræðumennsku að gott væri að safna saman at- hyglisverðum greinum og styfijast við þær í ræðu og riti. Þetta fannst mér á sínum tíma heillaráð. Því miður fer ég ekki alltaf eftir því. Það þýðir að ég man ekki ná- kvæmlega nafn L. vísinda- manns og ekki man ég heldur hvenær fréttin um þessa rannsókn birtist í Morgun- blaðinu. Það er vissulega óvís- indalegt af mér, en breytir því ekki að rannsóknin var framkvæmd eða því hverjar niðurstöður hennar voru. Hugur, líkami ogsál Önnur grunnkenning smá- skammtalækninga er sú að maðurinn eigi sér huga og sál ekki síður en líkama. Þegar allir þesi þættir eru f lagi, er maðurinn heilbrigður. Þegar einn þessara þátta fer úr jafn- vægi þá veikist maðurinn. Það þýðir að við getum veikst Iöngu áður en vefír (líkamans) veikjast. Því fínnst smá- skammtalækninum það yfir- borðslegt að fást einungis við hinn sjúka líkama. Fjögurplön Kenningar smáskammta- lækna ganga einnig út á það að hver maður eigi sér tilveru á fjórum plönum samtfmis: á líkamlegu, huglægu, tilfinn- ingalegu og andlegu plani. Til að lækna sjúkdóma verður að huga að öllum þessum þáttum. Velferð hvers manns og heilbrigði, eða fyrirbyggj- andi aðgerðir, er ekki síður háð því að hann rækti alla þessa þætti. Við þurfum því að huga að sál, huga og til- finningum ekki síður en því líkamlega. Samkvæmt því er jafnvægi sálar og líkama, til- fínninga og hugar það sem skiptir máli og ætti að vera keppikefli allra sem þrá heil- brigt líf. GARPUR V/(.TO , j HAFOU BKJO jHY<S£7-] HJfiLfíA Oe,GXHt>l/lö, ÞÓ , " t GBTUH T£Eysr/HEK' STUNÞU SÍ£>A/e~. | \ ' HVEfZNlS STENOUfi 'A Þv!/t& ! HVEHTSKIPT/ SeM EG LEITA AE> MaNKJ! £-fí HANN HOPriNU. HEFUPÞU SÉÐSAPPg VAPAOU Þ‘G!þu sfír\ l'SKOTL /NU TÖFPA I ^ AA/tJNA! / GRETTIR BRENDA STARR AÐ TJalúa&ak/ ÍÞætt/ BABp- WALLERS - //EFuepu UAB /' AAANLEV x P/NGAAAUN ÖQ BLABAFULL- . tbúa aansZ o o Q I VATNSMYRINNI FERDINAND Ci PIB copenhagen W"f!!'!!!!!!l!'!!l!!!M!H!!!!!!!!!!!!!!M!!!!!!!!!!!!!!'!!!!!l!!!H!!!!!!H!!! SMAFOLK JELLV P0U6HKIUT5 MAKE VOU FEEL G00P ALLOVER. UUHEN NOTHING 15 GOOP FOR YOU, YOU HAVE TO PRETENP THAT EVEKYTHING 15 GOOP FOR YOUÍ --------- Þetta er besti kleinuhringxir með sultu sem ég hefi bragðað! Manni líður vel af kleinuhringjum með sultu___ Þegar ekkert er manni hollt verð- ur maður að láta sem allt sé manni hollt! BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson „Eins og klippt út úr Mollo- bók,“ sögðu menn um sex spaða slemmuna í 6. umferð íslands- mótsins, þar sem 17 IMPar ultu á útspili vesturs. í reynd vinnst slemman aðeins ef út kemur hjarta, eins og gerðist á nokkr- um borðum, en lítið tromp út gefur sagnhafa færi á mjög skemmtilegri vinningsleið. Suður gefur; allir á hættu. Vestur Norður ♦ 42 ♦ ÁD862 ♦ Á10653 JLÁ Austur ♦ G103 „„„ ♦ ? VK954 ♦ G1073 ♦ KG94 ♦ D82 + G6 ♦ KD852 Suður ♦ ÁKD9865 ♦ - ♦ 7 ♦ 109743 Á flestum borðum opnaði suð- ur á íjórum spöðum og norður stökk í sex. Mjög lokaðar sagn- ir, sem gera vestri erfítt um vik að spila út. Hjartaútskot gefur fria svíningu og þar með 12. slaginn. Þeir sagnhafar sem fengu út tromp reyndu að fella hjartakónginn þriðja með tromp- un. Þegar það gekk ekki fóru þeir heiðarlega einn niður. En það er til vinningur í spil- inu ef vestur velur að spila út trompþristinum, frekar en gosa eða tíu. Sagnhafi byijar strax á því að verka tígulinn. Hann á nákvæmlega nægar innkomur til að fríspila litinn, en þarf hjálp varnarinnar til að komast inn á borðið. Og það gerir hann með því að skilja hjartaásinn eftir og spila vestri inn á tromp! Umsjón Margeir Pétursson Á alþjóðlega mótinu í Hastings í Englandi um áramótin kom þessi staða upp í skák danska stórmeist- arans Bents Larsens og enska alþjóðameistarans Tonys Kost- ens , sem hafði svart og átti leik. Hvítur lék síðast 41. d4-d5? 41. — Hg5! (Nú tapar hvítur drottningunni, því 42. fxg5 er auðvitað svarað með 42. — Del+) 42. Dxg5 — Bxg5 43. d6 — Bh4 44. Hg2 - KÍ7 45. d7 - Hg6 og hvítur gafst upp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.