Morgunblaðið - 15.04.1989, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.04.1989, Blaðsíða 23
MÖRGUNBLAÐIÐ' LÁUGÁRDÁGÚR í'ð.' ÁPRÍL Í989 23 hmm ||i ‘m ' f \\vBMm jf' Mm l/ilr I íá$$' ’ M Tvær konur. Kjarvalstaðir: Einar Hákonarson sýnir EINAR Hákonarson, myndlistar- maður, opnar í dag sýningu á emeléruðum myndverkum í aust- ursal Kjarvalsstaða. Verkin vann Einar í Svíþjóð í vetur. Aðferðin, sem Einar notar, hefur orðið mjög vinsæl í Evrópu til skreytinga utan á hús, sem og inn- an, vegna þess hve veðurþolin hún er og gengur út á það að unnið er á málmplötur, sem grunnaðar eru með fínmöluðu gleri, blönduðu með vatni. Platan er síðan hituð í sér- stökum ofni í 860 gráður. Mismun- andi efnasambönd mynda litina og er aðallega um að ræða ýmis oxí- ðefni. Sýning Einars stendur til 8. maí. Sjá ennfremur viðtal við lista- manninn í B-blaði. * Isafiörður; Kapella sjúkra- hússms vígð Prýdd steindu gleri eftir Sigríði Ásgeirs- dóttur sem nú sýnir í Norræna húsinu ísafirði. NÝLEGA var vígð kapella í nýja fjórðungssj úkrahúsinu á ísafirði. Arkitekt hússins, Jes Einar Þorsteinsson, teiknaði innréttingar og flesta gripi í kapelluna en hann og listráðunautur byggingarinnar, Jón Sigurpálsson, fólu ungri glerlistakonu, Sigríði Asgeirsdóttur, að vinna steinda glugga í kapelluna. Sigríður opnar í dag, laugar- dag, klukkan 15 sýningu á verkum sínum í Norræna húsinu í Reykjavík. Að sögn Jóns Sigurpáls- sonar var sú stefna mörkuð við listskreytingu hússins að leita eingöngu til ungra íslenskra listamanna sem getið hefðu sér gott orð og jafnframt að hafa nokkra breidd í verkefnavali. Að athuguðu máli höfðu þeir samband við Sigríði og báðu hana um tillögu að glerskreytingu í glugga kapellunnar. Þeim leist vel á tillögurnar og nú hefur gluggunum verið komið fyrir. Gluggamir hafa vak- ið athygli og þykja bæði óvenjulegir og fallegir. Jafnhliða uppsetningunni á steindu gluggunum hefur verkum eftir Hrein Frið- finnsson verið komið fyrir á fyrstu hæð sjúkrahússins en þar hefur einnig verið komið fyrir glerlistaverki V eftir Ingunni Benedikts- dóttur en sú mynd er gjöf frá Vetsfjarðadeild Hjúk- runarfélags íslands. Úlfar r.'.V.' ■'>: ,. ' >.v; MorRunblaðið/Úlfar Einn steindu glugganna eftir Sigríði Ásgeirsdóttur í sjúkrahússkapellunni Athugasemd: Framkvæmdirnar við kirkjugarðinn í Viðey NOKKUR umræða hefur farið fram í flölmiðlum á undanförnum vikum um opinbert mál, sem ríkis- saksóknari hefur höfðað gegn blaðamanni, vegna skrifa hans um séra Þóri Stephensen, staðar- haldara í Viðey. Tilefni ákærunnar var það að blaðamaðurinn ritaði grein um framkvæmdir, sem stóðu yfir við kirkjugarðinn í Viðey og réðst með svívirðingum og skömmum að séra Þóri, sem blaðamaður taldi að stæði fyrir framkvæmd- unum. Séra Þórir tók við starfi staðar- haldara 1. maí 1988 eða' löngu eftir að framkvæmdin var ákveð- in. Starfssvið staðarhaldara er að veita upplýsingar um Viðey, sögu hennar og minjar. Framkvæmdir við endurbyggingu Viðeyjarstofu, Viðeyjarkirkju og umhverfis var á vegum sérstakrar Viðeyjar- nefndar og hefur séra Þórir þar ekki nærri komið. Þar eð ýmsir sem hafa tjáð sig um mál þetta virðast enn vera þeirrar skoðunar að framkvæmdir hafi verið ákveðnar af séra Þóri er þessari leiðréttingu aftur komið á framfæri. Hjörleifur B. Kvaran, formaður Viðeyjarnefiidar. Leiðrétting MISHERMT var í blaðinu í gær að eigendaskipti hafi orðið að fyrir- tækinu Sólningu hér í bænum. Vinnustofan í Skeifunni 11 hefur verið leigð þeim félögum Ómari Jóhannssyni og Bjama Magnús- syni. Þetta leiðréttist hér með. SMIÐJUVEGI38 Frábært verð á Craftsmankynningu í dag frá kl. 10-16 Eitt glæsilegasta úrval landsins af verkfæraskápum, kistum og öllum verkfærum með lífstíðarábyrgð frá Sears og Roebuck. SÉRSTAKT TILBOÐ: Verkfæraskápur með 77 lyklum og topplykla- setti á aðeins kr. 11.900,- Einstakt tækifæri fyrir fagmenn og leikmenn að láta verk- færadrauminn rætast. Bandarísk hágæðavara á hagstæðu verði. Smiðjuvegi 38, símar 670288 og 67055S.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.