Morgunblaðið - 15.04.1989, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.04.1989, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1989 Norðurlandamót í ólympískum lyftingum: Viljum auka áhuga manna á þessari íþrótt — segir Birgir Þór Borgþórsson formaður lyftingasambandsins SPRÆKUSTU lyftingamenn Norðurlanda koma saman á Akureyri um helgina og lyfta lóðum af kappi, en á laugardag hefst Norður- landamótið i ólympískum lyftingum í íþróttahöllinni. Alls taka þátt í mótinu 33 lyftingamenn, flestir koma frá Svíþjóð og Noregi, 10 frá hvoru landi, 7 frá Islandi, 4 frá Danmörku og 2 frá Finnlandi. „Þetta er stórt og mikið mót og við vonum að í kjölfar þess aukist áhugi manna á lyftingum, en þær hafa því miður verið í nokkurri lægð undanfarið,“ sagði Birgir Þór Borgþórsson formaður Lyftinga- sambands íslands. Hann sagði að sambandið hefði ráðist í kaup á nýjum tækjabúnaði vegna mótsins og yrði hluti hans skilin eftir á Akureyri og önnur lyftingafélög fengju einnig að njóta góðs af tækjakaupunum. „Við ætlum að kynna þessa íþrótt betur á næstu vikum, fara af stað með námskeið víða og reyna að efla íþróttina á allan hátt. Við verð- um að setja dálítinn kraft í þetta hjá okkur,“ sagði Birgir. Hann sagðist vænta góðs árangurs okkar manna á Norðurlandamótinu og jafnvel að sett yrði Norðurlandamet í höllinni um helgina. Undirbúningur vegna mótsins hefur staðið í rúmt ár, en Norður- landamót í þessari íþróttagrein var síðast haldið á íslandi fyrir 6 árum og þá í Reykjavík. Birgir sagði að fram hefðu komið efasemdir útlend- inganna um mótsstaðinn, einkum hjá Finnunum, sem jafnvel hefðu spurt hvort til væru lyftingatæki á Akureyri! „Mér sýnist sem þetta verði gott mót og það hefur á allan hátt verið vel að því staðið, bæjarfé- lagið hefur stutt prýðilega við bak- ið á okkur varðandi undirbúning," sagði Birgir og vonaði að ávinning- ur mótsins yrði sá að örva ungviðið til að þátttöku í greininni. Mótið hefst kl. 14.00 á laugardag og því lýkur seinnipart sunnudags. Á sunnudagskvöld verður lokahóf og verðlaunaafhending á Hótel KEA. Fóstrur Fóstrur Dagheimilið Pálmholt, Akureyri, vantar fóstrur til starfa í heilar stöður frá 1. júlí 1989. Allar nánari upplýsingar hjá forstöðu- manni í síma 96-23941. Dagvistarfulltrúi. Fjölnýtikatlar til kyndingar með raf- magni, olíu eða timbri, margar gerðir. Mjög góð hitanýting og möguleiki á stýrikerfum, til að fá jafnara hitastig. C.T.C. Total er öflugur nýr ketill fyrir rafmagn, timbur og olíu með innbyggðu álagsstýrikerfi, sem nýtir vel rafmagnið fyrir þá sem kaupa árskílóvött. LJÓSGJAFINN HF. GRÁNUFÉLAGSGÖTU 49 • SÍMI23723 • 600 AKUREYRI FYRIRTÆKISNÚMER 6148-9843 m \0tí 11» co ih QO Blaðið sem þú vakrnr við! .lúlrg Oítov ijölort óevööla iölsri xi'nsrtöiniiikrfnhtl ni98 Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju Það hefur farið í vöxt á liðnum árum að listviðburðir af fjöl- breyttu tagi fari fram í kirkjum. Kirkjukór Akureyrar er einn þeirra kóra sem hafa verið að auka starf sitt að mun á undan- förnum árum og nú er svo komið að hann hefur tekið saman hönd- um við ýmis önnur menningarfé- lög á Akureyri um að halda kirlgu- listaviku í Akureyrarkirkju og hún stendur frá sunnudeginum 16. april til sunnudagsins 23. apríl. Bjöm Steinar Sólbergsson er org- anisti og stjómandi kórs Akureyrar- kirkju. Hugmyndin að kirkjulista- vikunni sagði hann að hefði kviknað hjá sér á haustdögum. „Mér fannst skipta miklu máli að fá sem flestar listgreinar á hátíðina, ekki eingöngu tónlist heldur miklu meiri vídd í list- um. Þetta gekk mjög vel. Það er raunar kirkjan, sóknamefndin og kórinn, sem standa opinberlega fyrir kirlq'ulistadögunum en aðstandend- umir eru margir og fyrirkomulagið þannig að hver aðili sér um sinn þátt. Við skipuleggjum þetta í sam- einingu og gefum meðal annars út sameiginlega efnisskrá fyrir alla vik- una.“ Bjöm var spurður hvort hann héldi að gæti ekki dregið úr aðsókn að hafa svona margt á dagskrá á stutt- um tíma og hvort betra hefði verið að dreifa þessu á lengri tíma. „A þessari kirkjulistaviku er dagskráin svo íjölbreytt og hér er verið að höfða til mjög stórs hóps, jafnvel stórra ólíkra hópa. Þess vegna er ég hand- viss um að það er hægt að fá góða aðsókn að svona listaviku þótt stutt sé milli atriða. Kirkjulistavika er nokkur nýjung í listastarfi hér á landi þó að þetta sé algengt víða í útlönd- um.“ En nú er þess skemmst að minn- ast að kirkjukórar voru fyrirferðar- litlir sönghópar sem sungu við mess- ur og aðra viðburði í kirkju. Hvers vegna eru þeir að þenja út starf sitt, jafnvel að standa fyrir stórviðburðum í listum annarra félaga? „Kórinn er vissulega fyrst og fremst kór kirkjunnar og hefur skyld- um að gegna gagnvart henni. En frá því ég kom hingað hef ég farið þá leið að efla starfið þannig að í kórn- um sé svo margt söngfóik að hægt sé að skipta því í hópa. Núna eru kórfélagar um fjörutíu talsins og við ✓ höfum fengið til liðs við okkur hörk- ugott, ungt söngfólk sem hefur lagt á sig mikla vinnu, bæði við undirbún- ing þessarar listaviku og ekki síður í reglulegu starfí kirkjunnar. Það er einmitt mjög mikilvægt í kirkjulegu starfi að leggja áherslu á hið félags- lega starf og þetta er skref í þá átt- ina. Svo er kirkjan okkar mjög gott hljómleikahús og hefur verið notuð mikið til tónleikahalds af öðrum en aðilum kirkjunnar sjálfum. Sumt af því sem er á dagskrá kirkjulistavi- kunnar er til dæmis af veraldlegu .iiinulínýrta tagi og sumt er öðrum þræði verald- legt og hinum kirkjulegt, eins og til dæmis Orgelkonsertinn eftir Pou- lenc, sem ég spila á tónleikum Kam- merhljómsveitarinnar. “ Málverk og íkonar í upphafi kirkjulistavikunnar verð- ur opnuð sýning í kapellu Akureyrar- kirkju. Þama verða sýnd fjögur stór málverk og sex íkonamyndir sem Kristín Gunnlaugsdóttir hefur gert. Kristín er við framhaldsnám í mynd- list hjá prófessor Giulietti við ríkis- listaakademíuna í Flórens á Ítalíu en var síðasta vetur í klaustri í Róma- borg og kynnti sér þar sérstaklega íkonamyndagerð. Íkonar eru hefð- bundnar helgimyndir, unnar með fomri tækni og hvert smáatriði myndarinnar hefur sitt tákn og merkingu. Bjöm Steinar sagði að það væri sérstakur fengur í að eiga ung- an akureyrskan listamann sem hefði náð framúrskarandi árangri í kirkju- legri list og sérstakur heiður að fá að sýna verk Kristínar á þessari lista- viku. Tónleikar Kammer- hljómsveitar Akureyrar Þennan sama dag, 16. apríl, verða tónleikar Kammerhljómsveitar Akur- eyrar í Akureyrarkirkju. Stjómandi er Roar Kvam, konsertmeistari Lilja Hjaltadóttir og á dagskránni er ein- göngu frönsk tónlist. Einsöngvari er Michael Jón Clarke og einleikarar Bjöm Steinar Sólbergsson á orgel og Helgi Svavarsson á hom. Á efnisskránni em Nautabana- marsinn úr Carmen eftir Bizet, Judex úr Dauða og lífí eftir Gounod, Pavane eftir Ravel, Síðdegi skógarpúkans eftir Debussy og vals úr Kópelíu eft- ir De Libes. Tónleikunum lýkur svo á hinum mikla og glæsilega orgel- konsert eftir Poulenc. Kammerhljóm- sveitina skipa um 40 manns, kennar- ar og nemendur Tónlistarskólans á Akureyri auk 6 liðsmanna frá Reykjavík. Tónleikar kirkjukórsins Þriðjudaginn 18. apríl klukkan 20.30 verða tónleikar Kirkjukórs Akureyrarkirkju. Stjómandi er Bjöm Steinar Sólbergsson, en hann leikur einnig á orgel ásamt Dorothu Manz- cyk. Einsöngvarar em Margrét Bóas- dóttir sópran og Þuríður Baldurs- dóttir alt. Efnisskráin er fjölbreytt, þetta er rómantískt konsertprógramm, eins og Bjöm Steinar orðaði það, en þar er að finna verk eftir Mendelssohn, Brahms, Fauré og Elgar auk sál- malaga eftir Jakob Tryggvason, fyrr- um söngstjóra kórsins, og feðgana Áskel Jónsson og Jón Hlöðver Áskelsson. Meðal tónverka á þessum tónleikum má nefna Ave vemm eftir Elgar og Orgelsónötu í d-moll eftir Mendelssohn. Björn Steinar Sólbergsson kór- stjóri og organisti Akureyrar- kirly'u. Leiklestur í kirkjunni Miðvikudaginn 19. apríl klukkan 20.30 verður í kirkjunni dagskrá Leikfélags Akureyrar undir stjóm Ragnheiðar Tryggvadóttur leikara. Að sögn Björns Steinars er hér um að ræða leiklestur úr verkum Kaj Munks. Meðal annars em hér þættir úr Munk-sýningu þeirri sem var flutt í Hallgrímskirkju á síðasta ári, en auk þess fleiri dæmi úr verkum skáldsins. Sinnhofer-kvartettinn Fimmtudaginn 20. apríl verða í kirkjunni strengjatónleikar, en þar kemur fram á vegum Tónlistarfélags Akureyrar hinn víðkunni og viður- kenndi Sinnhofer-kvartett frá Munc- hen í Þýskalandi. Þessi kvartett hef- ur komið fram víðs vegar um veröld- ina allt austan frá Japan og Kóreu vestur til Bandaríkjanna og Kanada. Hér á landi hefur kvartettinn komið nokkmm sinnum fram á tónleikum í Reykjavík en kemur nú fyrsta sinni til Akureyrar. Á efnisskrá Sinnhof- er-kvartettsins era Strengjakvartett númer 1 eftir Janacek, Strengja- kvartett í As-dúr eftir Dvorák og Strengjakvartett opus 95 í f-moll eftir Beethoven. Hátíðarmessa í Akureyrarkirkju Kirkjulistavikunni lýkur með há- tíðarmessu í kirkjunni sunnudaginn 23. apríl og hún hefst klukkan 14.00. í þessari hátíðarmessu flytur Kirkju- kórinn Litlu orgelmessuna, Missa brevis st. Joannis de Deo, eftir Jos- eph Haydn. Stjómandi er Bjöm Steinar Sólbergsson, einsöngvari Margrét Bóasdóttir sópran og hljóð- færaleikarar Lilja Hjaltadóttir, fiðla, Rut Ingólfsdóttir, fíðla, Richard Kom, bassi, og Dorotha Manzcyk, orgel. Á þessu má sjá að listalíf í Akur- eyrarkirkju verður íjölskrúðugt þá viku sem kirkjulistavikan stendur. Hér gefst færi á að njóta fjölbreyttr- ar listar og að sögn Bjöms Steinars Sólbergssonar organista og söng- stjóra gengur dæmið upp ef aðsókn verður góð og hann vonaðist til að kirkjulistavika gæti orðið reglulegur viðburður í starfí Akureyrarkirkju annaðhvert ár. 8iiiaudin5öi(J b6i{ -C>in -go 8í Kirkjukór Akureyrarkirlgu. Morgunblaðið/Rúnar Þór
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.