Morgunblaðið - 15.04.1989, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 15.04.1989, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1989 Á námskeiði blásarasveitar Sinfóníuhljómsveitar íslands, leiðbein- andi þar er breski homleikarinn Ifor James. Tónleikar í nýjum hljómleikasal FÍH I DAG, laugardaginn 15.apríl, heldur málmblásarasveit Sinfóníuhljóm- sveitar Islands tónleika klukkan 12 á hádegi. Þessir tónleikar verða haldnir í Félagsheimili FÍH í Rauðagerði 27, sem var áður sýningar- skáli Ingvars Helgasonar. Stjómandi og einleikari á þessum tónleikum verður Ifor James sem var einleikari á áskriftartónleikum sinfóníu- hljómsveitarinnar sl. fimmtudag. Á efnisskrá verða verk eftir Britt- en. Strauss, Byrel, Grieg ofl. Þetta eru fyrstu tóneleikarnir haldnir í þessari nýju bækistöð FÍH, en í framtíðinni er meiningin að nota sýningarskálann fyrrverandi til tón- leikahalds. Einnig verður í húsinu skrifstofa FÍH auk þess sem þar verður Tón- listarskóli FÍH. Á meðan Ifor James dvaldi hér til að undirbúa áskriftar- tónleika sinfóníuhljómsveitarinnar notaði hann tækifærið og hélt nám- skeið fyrir blásarasveit hljómsveitar- innar. Slíkt námskeið er gagnlegt fyrir hljóðfæraleikarana ekki síst þegar það er haft í huga að Ifor James hefur áratugalanga reynslu af að leika í hinum ýmsu blásara- sveitum. Auk þess hefur hann leikið með öllum helstu sinfóníuhljómsveit- um Englands. f 4 i Fiskibátar 9,9 til 40 tonn Henta jafnt á h'nu og net sem rækju og skel. Afhendast á öllum byggingarstigum. Möguleiki að taka bát upp í nýsmíði. Aðstoðum við fjármögnun. /□ □ □ ■ ^— — — — 1 / j / 1 ! 1 \ L«t> | Wamjm J lúhar ^ -Í^ LÍllJ Bátarnir bjóðast einnig með yfirbyggingu sem taka má af eða setja upp aftur á fljótlegan hátt. Byggjum einnig yfir tré- og stálbáta. Þetta eru bátar sem byggðir eru fyrir íslenskar aðstæður. Við verstu skilyrði er GM bátsins 0,4 m og uppréttuvægi 4,7 tm þó báturinn leggist 60° undan sjó og vindi. Hafið samband og ræðlð mállð. Sýningarbátur á staðmun. TJ m Trefié Trefjaplast hf. Efstubraut 2 540 Blönduósi, sími 95-4254. ■r-r:—r Gæsaveið- arbannaðar SKOTVEIÐIFÉLAG íslands vill að gefiiu tilefiii beina þeirri áskorun til allra skotveiðimanna að virða óskráðar siðareglur og islensk lög, sem banna dráp gæsa á vorin. í fréttatilkynningu frá Skotveiði- félaginu er vakin athygli á því að að nú séu farfuglar á leið til varp- staða og sumarheimkynna hér á landi eða með viðkomu á Ieið sinni til ennþá norðlægari slóða. Sérstak- lega er vakin athygli á helsingjum, sem hafa viðkomu hér á landi á leið sinni til Grænlands, en rannsóknir sýni að helsingjastofninn megi ekki við frekari afföllum en orðið er. Vill Skotveiðifélag íslands vekja athygli veiðimanna á því að það sé í þeirra eigin þágu að virða gildandi lög og rétt. Verðlaunagripir Bjarna Þórðarsonar. Verðlaun fyrir rennda vasa Heimilisiðnaðarfélag Islands efiidi til samkeppni um handunna muni sl. haust. Skilafrestur rann út 1. mars sl. 19 höfimdar sendu inn muni. Urskurður dómnefndar var sá að verðlaun krónur 50.000.00 hlyti Bjami Þórðarson, Löngumýri 15, Garðabæ, fyrir rennda vasa úr íslensku birki af ýmsum formum og gerðum. Samkeppnismunimir verða til sýnis í glugga verslunarinnar, ís- lenskur heimilisiðnaður, Hafnar- stræti 3, næstu daga. Verðlauna- gripimir verða sendir á sýningu norrænu heimilisiðnaðarsamtak- anna í sumar. Jón Gunnars- son sýnir í Hafharborg JÓN Gunnarsson listmálari opnar málverkasýningu í Hafiiarborg, Námskeið fyrir hársnyrtifólk UM HELGINA fara fram nám- skeið fyrir hársnyrtifólk en þá verður staddur hér á landi Anth- ony Maldonaldi, félagi í „The Se- bastian Artistic Team“. En það er sýninga- og frseðsluhópur fag- manna víðs vegar að úr heimin- um. Maldonaldi er hingað kominn til að kynna íslenskum fagmönnum nýjustu klippilínumar fyrir sumarið, en hann hefur ferðast víða til sýn- inga og fræðslu á vegum hópsins. Hann var t.d. annar tveggja sýnenda hópsins í heimsmeistarakeppninni í hárgreiðslu og hárskurði er fram fór í Ðiisseldorf á sl. hausti. Námskeiðin verða tvö. Það fyrra hefst kl. 14 í dag, laugardaginn 15. apríl og hið síðara sunnudaginn 16. apríl kl. 11. Þau fara fram í sal á 3. hæð í Kringlunni og em opin öllu hársnyrtifólki. Það er hársnyrtistof- an Krista í Kringlunni er stendur fyrir komu Maldonaldis hingað. (Fréttatilkynning) Barokk-tón- leikar í Há- teigskirkju menningar- og listastofiiun Hafii- arfjarðar, laugardaginn 15. apríl klukkan 15. Jón stundaði nám í Handíða- og myndlistarskólanum 1947—1949. Hann hefur haldið margar einkasýn- ingar, m.a. á Kjarvalsstöðum, í Norr- æna húsinu og Háholti í Hafnar- firði. Einnig hefur hann tekið þátt í samsýningum, bæði hér heima og erlendis. Á þessari sýningu Jóns em bæði olíu- og vatnslitamyndir flestar mál- aðar á síðustu þremur ámm. Mynd- efnið sækir hann að stómm hluta til sjávarsíðunnar en einnig í náttúm landsins og em á sýningunni mynd- ir hvaðanæva af landinu. Sýningin er opin frá klukkan 14—19 alla daga nema þriðjudaga. SUNNUDAGINN 16. aprfl verða haldnir barokk-tónleikar í Há- teigskirkju klukkan 17. Flutt- verða verkefni eftir Bach, Monte- verdi, Scarlatti, Purcell og fleiri. Ennfremur verður flutt „Cantate Domino" eftir Buxtehude. Tíu söngvarar koma fram á tón- leikum þessum, en það em þau: Anna Sigríður Helgadóttir, Dóra Reyndal, Elísabet Waage, Halldór Vilhelmsson, John Speight, Július Vífill Ingvarsson, Kristín Sædal Sig- tryggsdóttir, Sigríður Gröndal, Sigr- ún V. Gestsdóttir og Tristin Terges- en. Undirleikur verður eingöngu á sembal og selló. Semballeikari er Robyn Koh og mun hún einnig leika einleik á sembal. Sellóleikari er Haukur Hannesson. Jón Gunnarsson við eitt verka sinna. Ljóðalestur und- ir pilsfaldinum SUNNUDAGINN 16. apríl klukk- an 16 lesa fimm skáld ljóð fyrir gesti I sýningarsalnum Undir pils- faldinum (Hlaðvarpanum), Vest- urgötu 3, þar sem Sigurlaugur Elíasson sýnir grafíkmyndir. Þeir sem lesa úr verkum sínum em Geirlaugur Magnússon, Sigur- laugur Elíasson, Óskar Ámi Óskars- son, Gyrðir Elíasson og ísak Harðar- son. Tónleikar harm- onikuunnenda á Vesturlandi Félag harmonikuunnenda á Vest- urlandi á 10 ára afmæli um þessar mundir. Að því tilefni mun hljóm- sveit félagsins halda tónleika í Hótel Borgarnesi, í kvöld klukkan 21.30. Ráðsfundir ITC FJÓRÐI og síðasti fiindur starfe- árs annars ráðs á íslandi verður haldinn í dag, laugardaginn 15. apríl, í Hlégarði, Mos/ellsbæ. Stef fúndarins verður: „Ég vil — ég skal — ég get“. 19. ráðsfundur þriðja ráðs ITC á íslandi verður haldinn á Hótel Stykk- ishólmi í dag, laugardaginn 15. apríl. Stef fundarins verður: „Hvort sem þú leggur lof eða last, láttu það vera í hófi.“ 20. ráðsfundur þriðja ráðs ITC á íslandi verður haldinn á Hótel Stykk- ishólmi sunnudaginn 16. apríl. Stef fundarins verðun „Apríl flytur oss von og ver vermandi sól, og kjark og þor.“ Leikfélag’ Hafiiaxflarðar: Leikför til Selfoss Leikfélag Hafnarfj arðar legg- ur upp i leikför til Selfoss í dag, laugardag 15. apríl, með gaman- leikrit Williams Shakespeares ALLT í MISGRIPUM. Fyrirhug- aðar eru tvær sýningar í dag, sú fyrri klukkan 17 og sú síðari klukkan 20.30. Leikfélag Hafnaifjarðar fram- sýndi Allt í misgripum þann 14. jan- úar sl. og hafa sýningar staðið yfir í Bæjarbíói nær óslitið síðan, en um miðjan febrúar lagði leikfélagið lykkju á leið sína og hélt til Indlands með sýninguna á leiklistarhátíð með góðum árangri. Nú hyggst leikfélag- ið ljúka sýningum á Állt í misgripum með þessari leikferð og vonast auð- vitað til að Selfyssingar og aðrir Sunnlendingar bregðist vel við þessu framtaki og fjölmenni á þennan ærslafulla gleðileik. Leikendur í sýningunni em íjórtán og í helstu hlutverkum em þau Björk Jakobsdóttir, Steinunn Knútsdóttir, Karl Hólm Karlsson, Láras Vil- hjálmsson, Davíð þór Jónsson og Halldór Magnússon. Höfundur tón- listar er Hróðmar Sigurbjömsson og er flutningur í höndum Petreu Óskarsdóttur þverflautuleikara. Ljó- sameistari er Egill Ingibergsson og leikstjóri sýningarinnar er Hávar Sigurjónsson. Kennarar álykta um kjara- og skólamál FJÖLDI kennarafélaga innan KÍ hefur undanfarna daga ályktað um stöðu í samningamálum stétt- arinnar við ríkisvaldið. í ályktun- unum er meðal annars hörmuð tregða ríkisvaldsins til að ganga tfl samninga við kennara, bent á ófremdarástand i skólamálum og þýðingu bættra kjara kennara fyrir eflingu skólastarfe í landinu og lýst stuðningi við verkfall og kröfiir félaga í HÍK.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.