Morgunblaðið - 15.04.1989, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 15.04.1989, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1989 -2* í I t „ I star-Fss/dirLunni þínni stendur ojS þá hA-Pir ver\& llárí menntoskóla,". Ást er... TM Reg. U.S. Pat Off.—all rigí\i$ reserved • 19«9 Los Angetes Times Sýndicate ___til þess að minnast. Hún systir mín kemur að liðinni lengstu mínútunni í lífí þínu. Ef þú heldur áfram að gnlsta tönnum í hvert skipti sem mér gengur iila að skipta, verða tanngarð- arnir orðnir ónýtir áður en gírkassinn fer... HÖGNI HREKKVÍSI „ SfADU þg-NNAN UTLA, HEI/VIS»0\ BJALFA-• HVAP GBRlR /MAÐUR V\D SVONA EfNFELDN/NG?í" „SPÖRKDM HONUAt UPP STIGANN.1 " Stígvélum stolið Þessir hringdu ... Hjálpsemi í ófærðinni Guðlaug Nikódemusdóttir hringdi. Mig langar til að koma á fram- færi kveðju og þakklæti til allra þeirra sem reynst hafa mér hjálp- legir í ófærðinni sem verið hefur allt frá 25. janúar. Ég er orðin gömul og bý á Langholtsvegi 27. Oskukarlamir hafa ekki talið það eftir sér að skríða eftir sköflunum til að ná í tunnumar sem lokaðar vom upp við hús. Þeir tilkynntu mér meira að segja einn daginn að ég þyrfti ekki að hafa áhyggj- ur af þeim tilmælum til fólks að það kæmi tunnunum út á stétt. Mokstursmenn borgarinnar hafa ekki síður verið liðlegir og einnig vil ég senda bílstjórum á strætis- vögnum númer 5, 8 og 9 hjartans kveðjur. Alltaf fundu þeir smugu til að taka mig með og flytja mig til læknisins. Vagnstjóramir höfðu líka alltaf eitthvað hressi- legt að segja til að létta manni lund. Að lokum_ vil ég geta þess að vísan, sem Ámi Helgason vitnar í, er eftir minni bestu hyggju eft- ir Bólu Hjálmar eins og hann seg- ir. Um viðskipti Signrðar Breið^örð við bróður sinn Kristín hringdi. Vísan sú sem ýmist er eignuð Bólu Hjálmari eða Sigurði Breið- flörð er örugglega eftir hinn síðar- nefnda. í ævisögu Sigurðar Breið- flörð eftir Gísla Konráðsson, sem kom út árið 1948, segir á bls. 110 frá viðskiptum þeirra bræðra Sig- urðar og Stefáns Eiríkssonar. Sig- urður kastaði fram þessari vísu (sem birtist að nýju vegna misrit- unar í fímmtudagsblaðinu): Það er dauði og djöfuls nauð, að dyggðasnauðir fantar, safna auð með augun rauð, en aðra brauðið vantar. Stefán svaraði með annarri vísu og hún er svona: Þó Breiðfjörð mikið berist á og biðji kvenna hrönnum, undir mígur seggur sá samt hjá tignarmönnum. Lausnin á vanda alþingis Bergur Haraldsson hringdi. Alþingismenn kvarta núna undan húsnæðisleysi. Við kunningjamir emm sammála um lausnina á þeim vanda. Fækka ber þingmönnum í svona 30. Það gæti líka verið spamaður í því að fækka ráðherrum í 3-5 og segja öllum aðstoðaráðhemun upp. Held ég að allur þorri almennings styðji þessa tillögu. Lyklakippa I Maríubakka Lyklakippa fannst við Maríubakka 1. apríl. Upplýsingar f síma 74039 og 612111. Frakki hvarf af Gauknum Friðrika hringdi. Sunnudagskvöldið annan apríl tók einhver hermannagrænan frakka í misgripum á Gauki á Stöng. Viti einhver um afdrif frakkans er sá hinn sami beðinn um að hringja í síma 18620 eða skila honum á Gaukinn. Alma hringdi. Stígvélum var stolið frá dóttur minni í fímleikadeild Armanns í Sigtúni. Þetta em ný svört Víkingsstígvél númer 35 merkt Sirrý AG. Ef einhveijir hafa orðið stígvélanna varir eru þeir beðnir að hringja í síma 30608. Of rúmur heimsóknartími Guðfinna hringdi. Ég er nýkomin heim af sjúkrahúsi og langar til að kvarta yfír því hversu ónæðissamt var vegna heimsókna til þeirra sem lágu með mér á stofu. Ég mælist til þess að fólk komi bara á auglýstum heimsóknartímum, a.m.k. ef fleiri en einn eru í herbergi. Peningarmr ófundnir Oryrki hringdi. Enn eru krónumar 16.400 ekki komnar fram sem ég týndi 29. eða 30. mars í plasthulstri í Hagkaup, á Barónsstíg eða í Borgarbókasafninu Þingholtsstræti. Ég væri ekki að gera veður út af þessu nema vegna þess hve illa missirinn kemur við mig. Skilvfs fínnandi getur haft samband í síma 38185 eða 23245. Víkvéiji skrifar Við íslendingar virðumst orðnir flestum þjóðum iðnari við að beija saman og gefa út reglugerðir allskonar sem við síðan keppumst við láta sem séu ekki til og njótum til þess dyggrar aðstoðar ríkisvalds- ins. Það lætur með öðrum orðum ósjaldan líka sem það hafi ekki hugmynd um þessar leikreglur, sem það hefur samt eins og nærri má geta langoftast átt frumkvæðið að. Það er engu líkara en að allir kæri sig kollótta, var inntakið í andvarpi mannsins sem vék að þess- ari vitleysu í fréttatíma ríkissjón- varpsins ekki alls fyrir löngu. XXX Furðulegast fannst Víkveija samt að frétta að reglan sem bannar verslunarrekstur án tilskil- ins leyfís er þverbrotin æ ofan í æ. Það sýnist nefnilega næsta al- gengt að menn dubbi sig upp í kaupmenn hér heima og taki til við að höndla af lífí og sál án þess að láta sér koma til hugar að afla sér tilskilins leyfís yfírvalda. Það er eins og enginn hjá því opinbera telji sig eiga að hafa um- sjón með þessu, var inntakið í næsta andvarpi mannsins sem fyrr er get- ið. Kannski ekki að undra þótt leik- manninum hafí fundist verslunar- stéttin æði skrautleg á pörturri nú síðustu misserin. En meðal annarra orða: Þótt embættismennimir sofi á verðinum þurfa forsvarsmenn verslunar- manna varla að gera það líka. Fer ekki að verða tímabært að þeir taki sér tak og fordæmi opinberlega þessa forkastanlegu óstjóm? XXX Fréttamenn sjónvarpsstöðv- anna, sumir hveijir að minnsta kosti, halda ótrauðir áfram að sjá það sem ótíndir kollegar þeirra á blöðunum heyra hinsvegar bara. „Nú skulum við sjá kafla úr ræðu þingmannsins," er viðkvæðið hjá þessum bræðrum okkar. Það var vikið að þessu uppátæki hér í dálkunum fýrir skemmstu og brýnt fyrir sjónvarpsmönnum að láta miðilinn ekki firra sig allri hugsun. Víkveiji hefur aldrei á sinni lífsfæddri ævi mætt á fund til þess að horfa á ræðu þó að hann hafí illu heilli starfs síns vegna að vísu mátt hlusta á þær æði margar. Víkveiji hefur semsagt hveiju sinni meðtekið vísdóminn í gegnum eyr- un fremur en augun. Hvað fínnst eftirlitsmanninum á ríkissjónvarpinu eftir-á að hyggja, hinum ágæta málvísindamanni sem er þama með annan fótinn til þess að vaka yfír íslensku fréttamann- anna? Er hann sáttur við þetta til- tæki þeirra að beina sjónvarpsvél- unum inní þingsalina svo að við getum séð ræður blessaðra pólitík- usanna? Raunar uppgötvaði Víkveiji á dögunum að þeir eru ekki einir um þessar „sýnir", sjónvarpshaukamir. Haft var eftir tónlistarmanni í einu dagblaðanna að hann hefði ekki „séð“ tiltekin lög. En í myndbands- heimi poppsins eða hvað það nú heitir virðist líka ljósagangurinn og hamagangurinn almennt skipta síst minna máli en músíkin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.