Morgunblaðið - 15.04.1989, Blaðsíða 15
________________________MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. APRÍL 1989
Opið bréf til Stein-
gríms Sigfussonar
eftirSvein
Guðmundsson
Bréf mitt mun fjalla um talningu
búfjár og fleira þess háttar. Reynd-
ar kom það mér ekki á óvart að
þú yrðir plataður til þess að fram-
kvæma einhveija vitleysu. Ef það
hefði verið skynsamlegt þá hefði
þér ekki verið ráðlegt að fram-
kvæma talningu búfjár með lög-
regjuvaldi.
Ég þykist vita að rökin fyrir þess-
ari framkvæmd sé sótt í smiðju
framsóknarmanna, sem alltaf þurfa
að vera að sýna vald sitt.
Ég ætla að sýna þér fram á, að
þessi hugmynd er tóm tjara svo
notað sé táningamál og nú skal ég
segja þér hvers vegna.
Tökum fyrst kýmar. Nú er eng-
inn gróði af því að eiga margar kýr
því að það er fullvirðisrétturinn sem
gildir. Sumir bændur eiga kýr sem
mjólka yfír 5.000 lítra af mjólk að
meðaltali og aðrir sem eiga kýr sem
mjólka helmingi minna. Maður sem
ekkert veit um búskap dregur þær
ályktanir að maðurinn sem á helm-
ingi fleiri kýr hljóti að vera stór-
þjófur og selji mjólk fram hjá kerf-
inu.
Annað dæmi. Bóndi sem á full-
-virðisrétt fyrir 200 fjár og þarf
ekki nema 150 til 160 ær til þess
að fylla út sinn fullvirðisrétt, vegna
þess að hann hefur góða sumar-
haga, hefur gott fé og fóðrar vel
og frjósemi mikil. Annar bóndi á
líka fullvirðisrétt fyrir 200 fjár, en
þarf að hafa 300 fjár á fóðrum
vegna þess að fé hans gengur á
lélegu Iandi þar sem hálfgrasagróð-
ur ræður ríkjum. Lömbin hans
hætta að þyngjast fyrrihlutann í
ágúst. Frjósemi er líka ekki mikil.
Nokkur hluti lamba hans mundi
sleppa í gegnum möskvana jafnvel
þó að pokinn sé fóðraður.
Talning búfjár ef hún ætti að
vera betri en hjá fóðureftirlitsmönn-
um yrði að fara fram í fyrsta lagi
til þess að kanna hvort ásetningur
væri réttur og hvort ásetnings-
mönnum væri treystandi.
í öðru lagi þyrftu lögreglumenn
áð fylgjast með því hver fijósemis-
prósentan væri og koma í réttimar
á haustin og fylgjast með endur-
heimtum og fylgjast vel með þunga
fjárins. Þá mætti finna út með frá-
vikum þó hver kjötframleiðslan
yrði.
Nú er það vitað að heimaslátrun
er víða. Hér er fylgt aldagamalli
hefð sem erfítt er að uppræta með
öllu. Að skjóta fé heima til þess að
þóknast einhveijum yfírvöldum og
MERKINGAR
„ ... en komi lögreglan
eöa þeir í lögreglufylgd
þá mun ég bjóða þeim
upp á kaffi en í útihús
fara þeir ekki nema aö
hafa til þess þjófaleitar-
heimild.“
grafa síðan er óhugsandi valdníðsla.
Ef til vill eru hrossin erfíðust
vegna þess að þau eru svo margra.
Úr því má bæta með því að skrá-
setja öll hross og væri sennilega
Sveinn Guðmundsson
hægt að nota sama kerfi og hjá
bíleigendum. Sé hestur ómerktur
má taka hann úr umferð eins og
óskráðan bíl. Svona einfalt er þetta.
Þegar lögreglan færi að telja fíð-
urfénað þá mætti selja aðgang að
þeirri athöfn. Um kanínur, refí og
minka kann ég engin ráð önnur en
þau að hafa búr og telja hvert dýr
fyrir sig.
Steingrímur, ég tel ástæðulaust
að vantreysta ásetningsmönnum.
Þeir sem ég þekki veit ég að eru
traustir og heiðarlegir menn. Að
sjálfsögðu eru þeir alltaf velkomnir
til eftirlitsstarfa, en komi lögreglan
eða þeir í lögreglufylgd þá mun ég
bjóða þeim upp á kaffí en í útihús
fara þeir ekki nema að hafa til
þess þjófaleitarheimild.
Nú veist þú eins vel og ég að
fullvirðisrétturinn er tilbúin, fölsk
eign, handa bændum. Jarðir eru
metnar eftir fullvirðisrétti, en ekki
15
eftir landgæðum og húsakosti.
Ég vona að þú sért búinn að
gera þér grein fyrir þeim ann-
mörkum sem eru á fullvirðisréttin-
um. Það eru ótrúlega margir bænd-
ur innan fátækramarka sumir
vegna kynslóðaskipta og aðrir
vegna þess að þeir trúðu ósönnum
áróðri kerfisins. Það þurfa fleiri að
lifa af búskap en stórbændur.
Því miður eru bændur hættir að
þora að andæfa vegna þess að þá
eru þeir stimplaðir óvinir stéttarinn-
ar. Húnvetningar hafa þó ekki látið
deigan síga enn sem komið er.
Nú fer þessu bréfí að ljúka. Ég
veit að margir smærri bændur binda
við þig þó nokkrar vonir. Reyndu
að vera þeim góður yfírmaður.
Þú veist að þeir eiga það skilið.
Höfundur er bóndi að Miðbúsum
í Reykhólabreppi.
STORSYNING A
GERVIHNATTADISKUM
^felsat 7
EutelsZ
o. f, S 1'Fó
Við k/nnum gervihnattadiska og móttökubúnaÖ fró
EchoStar ó stórsýningunni, laugardag kl. 10:00 til 16:00.
Nú sýnum viS móttöku fró yfir 20 sjónvarpsstöSvum
víSsvegar aö úr heiminum.
Otrúleg myndgæði ! Komið og sjóiS meS eigin augum.
Félagasamtök
Veitingahús
Fyrírtæki
Eigum ávallt á lager:
Glös, postulín
og hnífapör
HEILD!
MERKING
ÁGLER OG
POSTULfN
tEHOSm
VerS frá aSeins 74.510,-
eSa 69#980/"stgr.
Við útvegum leyfi og sjáum
um uppsetningu á diskunum.
greiðslukjör til allt að 12 mán.
ASTRA
EUROPfS 16 CHANNEL
TELCVISION SATUUTI
SKIPHOLT119
SÍMI29800