Morgunblaðið - 15.04.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.04.1989, Blaðsíða 24
24 MOllGtJN4BlAÐID LAUGARDAGUR íV APRÍI. 1989 Aðstoðarforsætisráðherra Sovétríkjanna: Ovíst hvort hægt verði að ná kafbátnum af hafsbotni Ríkisstjórn íslands krefst ítarlegri upplýsinga Moskvu, Ósló. Reuter. Frá Rune Timberlid, fréttaritara Mor^unbladsins. IGOR Belousov, aðstoðarforsætísráðherra Sovétríkjanna, sagði á blaðamannafundi í Moskvu á fimmtudag, að tæknigeta sem þjóðir heims búa yfir nú á dögum dugi ekki til að lyfta af hafsbotni kjam- orkuknúna kafbátnum, sem sökk útí fyrir ströndum Norður-Noregs í síðustu viku. Belousov sagði á hinn bóginn að innan nokkurra mánuða mættí vænta ákvörðunar sovéskra stjórnvalda um hvort gerð yrði tilraun tíl að bjarga kafbátnum Bandaríkin: Wright ætlar að beij- ast þar til yfir lýkur Washington. Reuter. Reuter Þriggja ára gamall sonur Sergeis Zamogilníjs, sem fórst ásamt 41 sovéskum sjóliða þegar eldur varð laus í kafbátí þeirra og hann sökk útí fyrir ströndum Norður-Noregs, kveður föður sinn hinstu kveðjunni við sorgarathöfii í Murmansk á fimmtudag. JIM Wright, forsetí fúlltrúadeild- ar Bandarikjaþings, sagðist á fimmtudag ætla að „berjast þar tíl yfir lýkur“ tíl að veija heiður (jölskyldu sinnar, en hugsanlegt er að birt verði ákæra á hendur honum vegna brota á reglum þingsins um tekjur þingmanna. Wright, sem er demókrati, hélt Bretland: Hafimrverka- menn falla frá verkfalli Lundúnum. Reuter. Hafiiarverkamenn á Bretlandi hættu í gær við að efiia tíl at- kvæðagreiðslna um verkfall og féllust á viðræður við vinnuveit- endur um áform um að afhema lög sem tryggja þeim æviráðn- ingu. Forystumenn hafnarverkamann- anna höfðu hvatt til þess að efnt yrði til verkfalla þegar í stað, en féllust á að ræða við vinnuveitendur á þriðjudag í stað þess að ganga til atkvæða um verkfall. Stjóm Margaretar Thatcher kynnti í síðustu viku áform um að afnema lög sem tryggja 9.400 af 13.300 hafnarverkamönnum ævi- ráðningu. 30 mínútna ræðu á þinginu, þar sem hann féllst á að siðanefnd fulltrúa- deildarinnar úrskurðaði hvort hann hefði gerst brotlegur við reglur, sem takmarka tekjur þingmanna fyrir önnur störf en þingstörf. Er hann meðal annars sakaður um að hafa farið í kringum reglumar með því að selja hagsmunahópum ijölmörg eintök af sjálfsævisögu sinni. Boð- aður hefur verið fundur hjá nefnd- inni á mánudag. Nefndin hefur rannsakað ijármál Wrights undanfama tíu mánuði vegna ásakana Newts Gingrich, fulltrúadeildarþingmanns úr Georg- íuríki, sem er annar valdamesti leið- togi repúblikana. Wright kvaðst viss um að hann hefði aldrei á 34 ára þingmannsferli sínum gerst brotlegur við reglur þingsins. Hann vísaði ennfremur á bug ásökunum um að kona sín hefði þegið laun, sem líta mætti á sem gjafir, vegna viðskipta við íjölskyldu { Texas. Birti þingnefndin ákærur á hend- ur Wright jafngilti það málsókn. Wright fengi þá ákveðinn frest til að veija sig og síðan yrðu greidd atkvæði um hvernig bregðast skyldi við ákærunni. Öll fulltrúadeildin þyrfti að samþykkja vítur á forset- ann fyrir misferli. Á hann á hættu að verða vísað af þingi og yrði það í fyrsta sinn í 200 ára sögu þings- ins að forseti fulltrúadeildarinnar yrði víttur eða honum vísað af þingi. Sovéski sendiherrann á íslandi, Igor N. Krasavin, kom í íslenska utanríkisráðuneytið síðastliðinn fimmtudag að beiðni Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra og bar fram efnisleg svör sovéskra yfirvalda við gagnrýni íslenskra stjórnvalda, sem lýst hafa yfir óánægju með ófullnægjandi upplýs- ingar sem þeim hafa borist um sly- sið. í máli sendiherrans kom fram að tekist hefði að slökkva á kjama- ofni kafbátsins og að af honum staf- aði engin hætta. Sendiherrann sagði jafnframt að kjamorkuhleðsl- ur í tundurskeytum kafbátsins hefðu verið óvirkar og að engin hætta væri á að þær spryngju. í fréttatilkynningu frá utanríkis- ráðuneytinu segir að utanríkisráð- herra telji svör sendiherrans all- sendis ófullnægjandi og á ríkis- stjórnarfundi í gær var ákveðið að fela sendiherra íslands í Moskvu að afhenda sovéskum stjómvöldum með formlegum hætti kröfu íslenskra stjórnvalda um ítarlega upplýsingagjöf, þannig að íslenskir vísindamenn geti metið sjálfstætt Kínverskir leiðtogar viður- kenna að sú ráðstöfun að banna landsmönnum að eignast fleiri en eitt afkvæmi hafi að mestu leyti mnnið út í sandinn og segja jafn- framt að Kínverjar verði 2 millj- arðar á næstu öld verði ekki grip- ið til nýrra ráðstafana. í Dagblaði alþýðunnar sagði að kínverskum ráðamönnum þá hættu sem af slysinu kann að leiða. Jafnframt samþykkti ríkis- stjóm íslands á fundi sínum í gær- morgun að áskilja sér rétt til þess að krefja ríkisstjóm Sovétríkjanna um skaðabætur fyrir allt beint og óbeint tjón, sem af slysinu kann að leiða fyrir íslenskan sjávarútveg. Tass-fréttastofan sovéska greindi frá því í gær að danskur togari hefði fengið sovéska kaf- bátinn í net þegar togarinn var við veiðar í Eystrasalti, skammt austan hefðu orðið á alvarleg mistök þeg- ar þeir hundsuðu álit sérfróðra manna um fólksijölgun á sjötta áratugnum, en hvergi var minnst á þátt þáverandi leiðtoga Kína, Maó Tsetung. Á sjötta áratugnum sagði Maó að takmarkanir á bameignum væm „hreinlegt þjóðarmorð" sem óvinir Kína hefðu lagt á ráðin um við Bomholm. Atvikið átti sér stað 4. apríl síðastliðinn, aðeins þremur dögum áður en kafbáturinn fórst. Talsmaður Sovétstjómar hefur gert dönsku ríkisstjóminni grein fyrir því að ástæður atviksins megi rekja til rangrar siglingastefnu kaf- bátsins. Norskir vísindamenn hafa ekki orðið varir við geislavirkni á slys- stað en norsk stjómvöld segja að mælingar verði gerðar á hafsvæð- inu næstu árin. og gagnrýndi hann hagfræðing- inn Ma Yichu harkalega fyrir að mæla slíkum áformum bót. Það var ekki fyrr en á áttunda ára- tugnum sem lög um vlðtækar tak- markanir á bameignum öðluðust gildi. Tian Jiyun, aðstoðarforsætis- ráðherra Kína, sagði fyrir skemmstu að litlar horfur væm á efnahagsbata ef svo héldi sem fram horfði. Hin gríðarlega fólks- fjölgun hefði neikvæð áhrif á matvælaframleiðslu, heilbrigði- skerfið, samgöngur, húsnæðismál og atvinnumál. Tian gagnrýndi slælega frammistöðu ráðamanna í sveitum landsins varðandi eftir- lit með bameignum. Talið er að þakka megi barneignastefnu sljómvalda að tekist hafi að koma í veg fyrir um 200 milljón fæðing- ar í borgum en hún hefur algjör- lega bmgðist í sveitum landsins, þar sem þrír fjórðu hlutar þjóðar- innar búa. „Ég hef átt níu böm. Fmm- burðurinn var drengur en hann dó. Það var ekki fyrr en í níunda skipti sem almættinu þóknaðist að gefa mér son,“ sagði bónda- konan Zheng. „Stúlkur em einsk- is nýtar. Þær geta ekki erft eign- ir foreldranna. Tilgangur kvenna í lífínu er að geta af sér syni.“ Þetta sagði Zheng þegar bam- eignastefna kínverska stjómvalda stóð sem hæst á áttunda áratugn- um, óvinsælasta en jafnframt ein mikilvægasta ákvörðun ráða- manna. Nærri helmingur kvenna í Kína hefur bmgðist við á sama hátt þrátt fyrir fjársektir og aðrar refsingar. „Útburður stúlkubarna er al- varlegt vandamál í Fujian-héraði í Suður-Kína,“ sagði hin opinbera Fréttastofa Kína í síðasta mán- uði. „Á hvetju ári em yfir 100 böm skilin eftir á götuhornum og strætisvagnastöðvum. Sum þeirra em hirt og seld en önnur svelta eða verða úti.“ ▲\\ Meistarafélag húsasmiöa Viðgerðir og viðhald Húseigendur Með hækkandi sól fer í hönd tími viðhalds og viðgerða. Meistarafélag húsasmiða vill benda þeim sem hugsa til framkvæmda á nokkur góð ráð. Leitið til þeirra sem reynslu hafa og bera ábyrgð á sínu verki. Gerið skrif- legan samning um það sem vinna á og hvern- ig það á að greiðast. Varðandi kaupgreiðslur þá koma þrjár að- ferðir helst til greina. í fyrsta lagi tímavinna, þá þurfa aðilar að gera sér grein fyrir því hvað útseldur tími kostar. í öðru lagi þá er til mælingataxti sem hefur fast verð á flestu því sem kemur fyrir í viðgerðar- og viðhalds- vinnu. í þriðja lagi tilboðsvinna, þá þarf að tilgreina það vel og skrifa niður hvað vinna á. Meistarafélag húsasmiða veitir fúslega allar upplýsingar í síma 36977 frá mánudegi til föstudags á milli kl. 13 og 15. Meistarafélag húsasmióa. Reuter Dagleg sjón á götum Peking. Stjómvöld eru uggandi um framtíð landsins verði ekki sporaað gegn barneignum Kínverja. Að öllu óbreyttu verða Kínveijar 2 milljarðar á næstu öld. Kína: Vara við hörmungum vegna fólksflölgunar Peking. Reuter. Daily Telegraph. KÍNVERSK stjóravöld lýstu því yfir í gær að íbúar landsins væru orðnir 1,1 miljjarður og heföi þeim fjölgað um helming frá því á dögum byltingarinnar árið 1949, eða um rúmar 13 mil\jónir á ári að meðaltali. Stjóravöld vöruðu við því að ef ekki yrði grip- ið tíl nýrra ráðstafana tíl að sporaa gegn fólksfjölgun hefði það miklar hörmungar í för með sér fyrir þjóðina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.