Morgunblaðið - 15.04.1989, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 15.04.1989, Blaðsíða 39
MORGÚNBLAÐIÐ LAt’GARDAGUR 15. APRÍL 1989 Lýðræðið fótum troðið eftirBjörn og Odd Björnssyni Að gefnu tilefni, vegna fyrir- hugaðs aðalfundar Frikirkjunnar í Reykjavík nk. laugardag í Há- skólabíói, viljum við undirritaðir rifja upp eftirfarandi: 12. septem- ber 1988 var haldinn í Gamla bíói einhver fjölmennasti safnaðarfund- ur á íslandi sem sögur fara af. Þessi fundur var boðaður vegna áskorana u.þ.b. 70 safnaðarbama í Fríkirkjunni í Reykjavík vegna brottrekstrar safnaðarprestsins, sr. Gunnars Björnssonar. Rétt er að geta þess að í fundarboði fyrir umræddan fund var einnig auglýst tillaga stjórnar að dagskrá, svo- hljóðandi: „Kjósa skal kjörstjóm vegna væntanlegra prestskosn- inga.“ Á fundinn í Gamla bíói 12. september 1988 mættu u.þ.b. 700 manns. Þar gerðist þetta: Stuðn- ingsmenn sr. Gunnars Björnsson- ar lögðu fram tillögu um breyt- ingu á auglýstri dagskrá og var hún þegar samþykkt með miklum meirihluta atkvæða fundargesta. Þá lögðu þeir fram tillögu sem afturkallaði brottrekstur sr. Gunnars, hún hlaut samþykki mikils meirihluta fundarmanna. Þá var gengið til atkvæða um tillögu stjómar um að kjósa kjör- stjórn vegna væntanlegra prests- kosninga. Tillagan sú var felld. í kjölfarið fylgdi svo tillaga um vantraust á stjórn Fríkirlgusa&- aðarins. Hún var samþykkt. Lýðræðislegt var, í kjölfar þessa fundar, að eðlilegt safnaðarstarf hæfíst á ný. Ljóst var að vilji fund- arins var að sr. Gunnar Björnsson þjónaði áfram í Fríkirkjunni í Reykjavík. En nú tóku mál aðra stefnu en búast hefði mátt við í lýðræðislegu þjóðfélagi. Margsnu- pruð stjómin kaus að hafa vilja meirihluti safnaðarfundarins í Gamla bíói 12. september 1988 að engu. Og er okkur, þeim sem höfum tekið að okkur að bera kyndil lýð- ræðisins til komandi kynslóða, frek- lega misboðið og er niðurlæging okkar algjör. Nú hefur okkur enn verið misboðið. Aðalfundur fyrir árið 1988 hefur verið boðaður með auglýsingu í ijölmiðlum um atriði sem á fundinum 12. september fengur fullnaðarafgreiðslu. Það er einlæg ósk okkar að allir þeir sem fjölmenntu á fundinn í Gamla bíói þann 12. september og létu vilja sinn ótvírætt í ljós hafi nú ekki gefist upp gegn slíkri vald- níðslu og þvílíku ofbeldi sem hér hefur verið lýst, heldur fjölmenni á aðalfund Fríkirkjusafnaðarins í Háskólabíói laugardaginn 15. apríl nk. kl. 13.30 og ítreki ósk sína um að sr. Gunnar Bjömsson fái óáreitt- ur að sinna störfum sínum í þágu safnaðarbarna Fríkirkjunnar. Höfunchir eru tónlistarmenn að atvinnu. STORVIÐBURÐUR 6 bestu haglabyssu- .. menn landsins keppa til úrslita fyrir Evrópuleika smáþjóða í SKEET á skot.velli Skotfé- lagsins í Hafnarfirði í dag kl. 9.00-15.00. Komið og kynnist skotfimi sem íþrótt. Góðir vegvísar frá Krísurvíkurvegi. meiri háttar TILB0Ð í nokkra daga á ca. 1 kg stykkjum af brauðostinum góða Verð áður: Tombóla í Tívolí JC VÍK verður með sína árlegu tombólu, sunnudaginn 16. apríl.í Tívolí í Hveragerði. s Þar munu veglegir vinningar 1 verða í boði, ódýrir miðar og engin núll. Sem dæmi má nefna mikið úrval af leikföngum, snyrtivömr, 1 búsáhöldum og margs konar vam- ingi í bíla, útilegubúnaður og margt margt fleira. (Fréttatilkynning) Lúðrasveit verkalýðsins held- ur kökubasar í dag, laugardag, í versluninni Blómavali við Sigt- ún. Kökubasarinn hefst klukkan 11 og stendur fram eftir degi. Fjöl- breytt úrval verður af tertum. Einn- ig verða til sölu kleinur og smákök- ur. verkalýðsins The Bards á Hótel Selfossi Selfossi. ÍRSKA hljómsveitin The Bards heldur hljómleika á Hótel Sel- fossi laugardagskvöldið 15. apríl klukkan 22.00. Þessi hljómsveit sló fyrst í gegn á írlandi 1980. Hljómsveitin hefur verið tíður gestur í sjónvarpi á írlandi og í Bretlandi og hefur farið í hljóm- leikaferðir til Bandaríkjanna, Bret- lands og Kanada._ Einnig hafa þeir haldið tónleika í írak og Portúgal. Hljómsveitin heldur fimm tón- leika hérlendis, fjóra á veitingahús- um Ólafs Laufdals og eina á Hótel Selfossi. — Sig. Jóns. Kökubasar Lúðrasveitar S/Wjö^ kr. 505/kílóið Tilboðsverð: kr.50 1 y x kílóið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.