Morgunblaðið - 15.04.1989, Blaðsíða 45
I ')é (l-'IAO’JAJ. (IlOAJaM JJWOM
MORGtJNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. APRIL 1989
Brellur skelfíngarlausar
Kvikitiyndir
Amaldur Indriðason
Hryllingsnótt II („Fright
Night II“). Sýnd í
Stjörnubíói. Leikstjóri:
Tommy Lee Wal’ace.
Kæri Christopher Lee.
Langt síðan við höfum
sést... ehemm . . . þú sést.
Langaði til að senda þér línu
og segja þér frá nýjustu blóð-
sugumyndunum.
Þær koma í hópum og
heita t.d. Hryllingsnótt I-II,
Martröð á Almstræti I-IV
(Freddi fingralangi er sér-
stök útgáfa af blóðsugu, sem
þér líkar örugglega) og ger-
ast á meðal unglinga og eru
fullar af unglingafyndni og
unglingamóral — afsakaðu
slettuna.
Tæknibrellurnar eru af-
bragð en löngu hættar að
koma á óvart og skelfa.
Gömlu þrumurnar og elding-
arnar og marrið í kistulok-
inu, þú verður að afsaka, en
það er aigert miðaldahallæri
samanborið við rennilegu
sirkussýningamar í dag. Og
föðrunin. Allt tipptopp.
En veistu Lee, það er ekk-
ert á bak við þetta. Tökum
„Fright Night“. Hún skelfir
mann jafnmikið og gömul
Bítlaplata og er poppuð í
gamansömum, gufu- og
reykmettuðum tónlistar-
myndbandastíl þaðan sem
hún fær smarta áferð en
ekkert innihald. Blóðsugan
er æði Lee, ekki beint eins
og Drakúla vinur okkar held-
ur líkari miðopnunni í Play-
boy.
Þinn að eilífu.
P.s. Ef þú missir af henni
í bíó Lee, nærðu henni ör-
ugglega á spólu einhverja
nóttina. Bið að heilsa Peter
og Vincent.
Girnd og græðgi
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Regnboginn:
Og _ svo kom regnið —
„L’Eté en pente douce“.
Leikstjóri Gérard Krawc-
zyk. Handrit Krawczyk og
Jean-Poul Lilienfeld. Jac-
ques Villeret, Pauline La-
font, Jean-Pierre Bacri,
Guy Marchand. Frönsk.
Solus prod. 1988.
Það er skemmtileg til-
breyting að hvíla eyrun á
amerískunni og eiga kvöld-
stund með hráum, óhefluð-
um Frarismönnum sem láta
stjómast fyrst og fremst af
girnd og græðgi. Og svo kom
regnið gerist í sveitaþorpi í
Suður-Frakklandi. Fane hef-
ur erft hús móður sinnar og
snýr aftur til þorpsins úr
borginni ásamt lausgyrtri
vinkonu sinni, Lilas, sem
hann er nýbúinn að kaupa
af vinnufélaga, fyrir ham-
fletta kanínu. Fyrir í húsinu
býr Mo, vangefinn bróðir
hans. Lilas hleypir há-
spennustraumi á karlpening-
inn er hún sprangar um
þorpsgöturnar „frí og fijáls“,
í þunnum baðmullarkjól og
ábyggilega engu innanund-
ir . . .
Nokkuð smellnar karakt-
erlýsingar á nokkmm Suð-
ur-Frökkum í brennandi sól-
skini, þetta er ómenntað al-
þýðufólk sem lifir fyrir
líðandi stund. Persónurnar
em skýrar og gmnnar. Lilas
er sú sem ræður ferðinni með
eggjandi kynþokka, besta
stelpa, sem veitir m.a. aum-
ingjanum, mági sínum af
ofgnótt óstýrilátra hvata
sinna! Villaret er broslegur
sem hinn vankaði stóri bróð-
ir og sú er víst meiningin og
Bacri dregur upp skemmti-
lega mynd af ráðalausri
landeyðu. Vonandi getur
Krawczyk betur, en hann er
sagður í auglýsingunni einn
af hinum efnilegu, ungu leik-
stjómm Frakka. Því þegar
upp er staðið er Og svo kom
regnið svona rösklega meðal-
mynd, einkum fyrir brosleg-
ar kynlífssenur og skemmti-
lega persónusköpun.
HVió^sveivn W
dansu
'JerÞ a»9 opnar
/iVmViViVmVh 111IIMIIIIMIM
..........'liiiiiimmmimmimiii
liiiiiiiiiiliiiiiiiMMiMMimimmm
iliMiiilliiMiiiiiiiiiiiMiiimmmm
WiV/w^WiViViViViViVi i V *
• o hað á hsettu að 0°d-
Ef Þ° vilt e'?eqa - k°mdu ^órm á besta
cKRlfStoí A
’íKSSavIkvw
i
.....
■iiV—.11 • i m m 111 iVm ii ii ii i ii ii mííííiYiYiYiYiVmVmiViVm
iVi hhYi /i i ii ii ii ii i ii 11 m i m 11 m 1111 iVi m mViViViViViV
HREYFILSHUSIÐ
Félag harmonikuunnenda verður með dans-
leik í kvöld sem hefst kl. 21.00. Hljómsveit
harmonikuunnenda leikur fyrir dansi ásamt
Hjördísi Geirs.
Allir velkomnir.
Skemmtinefndin.
BORGIN VERÐURIÐANDIAF
LÍFIUM HELGINA
íkvöld opnumviókl. 22
fcSSS***
Ekkert
glimmer
ekkert plast
bara þaói
sem
koma skal
CCCADWAr
RISAEÐLAN
í BÍÓKJAUARANUM
SKÖLLÓTT MÚS
Aðgangseyrir kr. 700,-
TUNGLIÐ
UM HELGINA
Húsiðopnað kl.22
Hljómleikarfrá kl. 23.00-24.30 stundvíslega
DISKÓTEK TIL KL. 03
SNIGLABANDIÐ
BINGO!
Hefst kl. 13.30
Aðalvinningur að verðmæti
________100 þús. kr._______
Heildarverðmæti vinninqa um
__________300 þús. kr._______
ít
TEMPLARAHOLLIN
Eiríksgötu 5 — S. 20010