Morgunblaðið - 27.04.1989, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1989
29
Knattspymufélagið Valur:
Eignir umfram skuld-
ir eru 150 milljónir
Erfið greiðslustaða stafar af óupp-
gerðum styrkjum ríkis og borgar
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi yfirlýsing frá Knatt-
spyrnufélaginu Val vegna frétta
af fjárhag félagsins og 20 miltjóna
króna láni Reykjavíkurborgar:
„Erfið greiðslustaða félagsins á
undanfömum misserum á rætur í
óuppgerðum styrkjum vegna fram-
kvæmda við byggingu nýs íþrótta-
húss við Hlíðarenda. Húsið er byggt
með samþykki borgarráðs Reykja-
víkur og Iþróttasjóðs ríkisins. Bygg-
ing hússins hófst 1981 og er að
mestu lokið nú 8 árum síðar.
íþróttamannvirki njóta styrkja
ríkisins skv. lögum og bæjarfélaga
skv. samþykktum þeirra. Framlag
ríkisins er allt að 40% af byggingar-
kostnaði og Reykjavíkurborgar 40%.
Skoðunarferð
út í Lundey
Náttúruverndarfélag Suðvest-
urlands stendur í kvöld, fimmtu-
dag, fyrir skoðunarferð út í
Lundey. Farið verður frá Gróf-
arbryggju neðan við Hafiiar-
húsið kl. 19.00.
Hugað verður að fyörulífi, fuglum
og gróðri í Lundey. Á henni verpa
milli þijú og fjögur þúsund pör af
lunda auk teistu, æðarfugls og
sflamáfs.
Fólk verður flutt að eyjunni í
farþegabátnum Hafrúnu og björg-
unarsveitin Ingólfur sér um flutning
á fólki á milli Hafrúnar og lands.
Áætlað er að koma til baka milli
kl. 21.00 og 22.00.
(Fréttatilkynning)
Valur á sjálfur að greiða 20% kostn-
aðar, og er sá hlutur að fullu greidd-
ur. Styrkir koma ekki til útborgunar
fyrr en viðkomandi íþróttafélag hefur
lagt út fyrir þeim byggingarkostn-
aði, sem sótt er um styrk fyrir.
Heildarkostnaður vegna nýja
íþrótta- og vallarhússins við Hlíðar-
enda var í árslok 1988 kr.
72.767.741,00 og er þá ekki tekið
tillit til þeirrar verðbólgu sem hér
hefur verið á byggingartímanum.
Áætlaður kostnaður við sambærilegt
hús er í dag 200 til 250 milljónir
króna.
íþróttasjóður ríkisins hafði við sl.
áramót greitt í styrki vegna hússins
kr. 10.296.000,00 eða 14,5% af
byggingarkostnaði. Reykjavfkurborg
hafði á sama tíma greitt kr.
5.936.327,00 eða 8,16% byggingar-
kostnaðar. Mismunurinn, kr.
56.535.414,00, hefur Valur orðið að
leggja fram með lánsfé, eigin fé og
framlögum félagsmanna.
Vegna lagningar nýs Bústaðaveg-
ar hefur Valur nú látið af hendi til
Reykjavíkurborgar land úr erfða-
festu sinni. Það lán sem Valur hefur
nú fengið hjá Reykjavíkurborg er í
tengslum við samkomulag Vals og
Reykjavíkurborgar vegna þess máls.
Stjóm félagsins harmar að ijár7
hagsmálefni þess skuli hafa komið
til opinberrar umræðu með jafn röng-
um og villandi hætti og raun ber
vitni. Það má því öllum vera ljóst
að umrætt lán borgarsjóðs, kr.
20.000.000,00, er innan við þá §ár-
hæð sem ógreidd er af lögboðnum
styrk Reykjavíkurborgar til Knatt-
spymufélagsins Vals vegna fram-
kvæmda við byggingu nýs íþrótta-
og vallarhúss við Hlíðarenda.
Skv. ársreikningum félagsins um
síðustu áramót vom eignir félagsins
umfram skuldir kr. 150.000.000,00.“
FiskverA á uppboðsmörkudum 26. apríi.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 50,00 30,00 47,65 34,140 1.626.848
Þorskurósl. 45,50 42,40 44,24 1,111 49.154
Ýsa ósl. 50,00 50,00 50,00 0,296 14.800
Ufsi 28,50 20,00 27,10 29,705 805.101
Ýsa 48,00 40,00 47,71 2,838 135.422
Karfi 25,50 19,00 25,17 27,932 703.226
Steinbítur 15,00 15,00 15,00 0,658 9.878
Keila 14,00 14,00 14,00 0,452 6.328
Langa 25,00 20,00 23,45 2,322 54.447
Lúða 390,00 115,00 262,67 0,527 138.561
Grálúða 25,00 25,00 25,00 0,034 863
Koli 35,00 25,00 28,77 1,054 30.320
Hrogn 70,00 70,00 70,00 0,090 6.356
Steinb. ósl. 15,00 13,00 13,50 0,390 5.264
Samtals 35,31 101,552 3.586.568
Selt var úr Núpi ÞH, Gjafari VE, Óskari Halldórssyni RE og
bátum. í dag verður selt úr bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskursl. 45,00 40,00 44,11 2,551 112.525
Þorskurósl. 44,00 44,00 44,00 1,139 50.116
I.bl.
Ýsa sl. 35,00 31,00 32,31 0,640 20.680
Ýsa ósl. 61,00 55,00 55,71 3,928 218.848
Karfi smár 17,00 10,00 14,08 51,346 722.956
Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,078 1.170
Steinbítur og 15,00 7,00 9,08 0,300 2.724
hlýri
Keila 12,00 12,00 12,00 0,125 1.500
Langa 21,00 21,00 21,00 0,266 5.586
Lúða stór 225,00 225,00 225,00 0,026 5.850
Skarkoli 30,00 30,00 30,00 0,030 900
Grálúða 40,00 36,00 38,29 73,212 2.803.277
Hrogn 90,00 90,00 90,00 0,152 13.680
Samtals 29,60 133,793 3.959.802
Selt var úr Framnesi (S, Jóni Baldvinssyni RE, Má SH og bátum.
I dag verður selt úr Bergey VE og bátum, þorskur 60 t., ýsa 28
t., ufsi 10 t., karfi 40 t., langa 2 t., hrogn 2,5 t. og lúða.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur ósl. 43,00 38,00 41 ,85 16,017 670.331
Ýsa sl. smá 47,00 10,00 15,83 5,605 88.739
Ýsa ósl. 55,00 35,00 43,50 29,716 1.292.768
Ufsi sl. 24,50 12,00 22,89 30,020 687.290
Karfi 25,00 21,00 22,26 5,565 123.903
Steinbítur og 10,00 10,00 10,00 1,035 10.350
hlýri
Steinbítur 5,00 5,00 5,00 0,500 2.500
Sólkoli 75,00 75,00 75,00 0,650 48.750
Skarkoli 60,00 35,00 48,61 0,464 22.555
Samtals 32,96 89,707 2.957.078
Selt var aðallega úr Hvalsnesi GK, Þuríði Halldórsdóttur GK,
Matta KE og Guðrúnu Björgu ÞH. I dag verðu selt úr Má GK
óákveöið magn af þorski, karfa og ufsa, Eldeyjarboöa GK 15
t. aðallega þorskur, ýsa og langa, einnig úr dagróðrabátum.
Eirík Smith stendur nú yfir í
Gallerí Borg.
Aðsóknar-
met í Gall-
erí Borg
EIRÍKUR Smith opnaði sýn-
ingu á vatnslitamyndum á sum-
ardaginn fyrsta. Er skemmst
frá því að segja að sýning
Eiríks hefiir slegið öll fyrri
aðsóknarmet, um það bil þijú
þúsund manns lögðu leið sína í
Gallerí Borg á fyrstu Qórum
dögum sýningarinnar.
Eiríkur sýnir nú 22 vatnslita-
myndir og em nokkrar þeirra all-
stórar, en Eiríkur hefur ekki áður
sýnt svo stórar vatnslitamyndir.
Allar myndimar em málaðar á
undanfömum mánuðum og sýna
vetrarríkið sem ríkt hefur undan-
farið. Flestallar myndimar em
þegar seldar.
Næsta helgi er seinni sýningar-
helgi sýningarinnar en henni lýk-
ur þriðjudaginn 2. maí. Á laugar-
dögum og sunnudögum er opið
frá kl. tvö til sex. Aðgangur er
ókeypis og allir em velkomnir.
(Fréttatilkynning)
Pétur Gunnars-
son spjallar-
um Þórberg
DAGSKRÁ í tileftii aldaraf-
mælis Þórbergs Þórðarsonar
nú á þessu ári verður á vegum
Borgarbókasafiis Reykjavíkur
laugardaginn 29. apríl nk.
Pétur Gunnarsson rithöfundur
flytur erindi um Þórberg og fjallar
þar um verk hans með sérstöku
tilliti til síðari bóka höfundar.
Lesið verður úr þessum verkum.
Þessi dagskrá um Þórberg
verður flutt í húsakynnum Borg-
arbókasafnsins í Gerðubergi og
hefst hún kl. 15.00. Dagskráin
er öllum opin.
(Fréttatilkynning)
Leiðrétting
I frétt um hugmyndasamkeppni
um breytingar á Fossvogskirkju,
sem birtist á blaðsíðu 18 í Morg-
unblaðinu síðastliðinn laugardag,
misritaðist nafn höfundar einnar
tillögunnar sem dómnefnd ákvað
að kaupa. Höfundurinn heitir
Ólafur Tr. Mathiesen en ekki
Magnússon. Morgunblaðið biðst
afsökunar á mistökunum.
Krabbameinsfélagið;
Skemmtun
fyrir aldraða
SKEMMTIKVÖLD, fyrir aldr-
aðra verður haldið á Hótel
Sögu, súlnasal, fimmtudaginn
4. maí. Skemmtunin er til
styrktar heimahlynningu
Krabbameinsfélags íslands.
Leikin verður létt tónlist, kór
SVR syngur, Gunnar Eyjólfsson
les upp, sýndur verður dans, Ing-
veldur Hjaltested syngur og Félag
harmonikku-unnenda heldur uppi
flöri. Þá verður fjöldasöngur o.fl.
Skemmtunin hefst klukkan
19.30 og lýkur laust eftir mið-
nætti. Aðgöngumiðar eru seldir í
húsi Krabbameinsfélags íslands,
Skógarhlíð 8 á skrifstofunni frá
klukkan 13-16 og eru borð tekin
frá þar.
Söngtónleikar
í Stykkishólmi
Snæfellinga-
kórinn í
Reykjavík held-
ur tónleika
laugardaginn
29. apríl kl.
16.30 í Félags-
heimili Stykkis-
hólms. Söngv-
ararnir Theo-
dóra Þorsteins-
dóttir sópran
og Friðrik S.
Kristinsson ten-
ór syngja ein-
söng og dúetta
úr óperettunni
Leðurblökunni
eftir Johann
Strauss.
Á efnis-
skránni eru lög
eftir bæði inn-
lend og erlend
tónskáld, m.a.
Mozart, A.
Bruckner, Evert
Taube, Jón Ás-
geírsson, Friðrik
Bjamason o.fl.
Píanóleikari á
tónleikunum er
Ingibjörg Þorsteinsdóttir. Söng-
stjóri Snæfellingakórsins er Frið-
rik Sæm. Kristinsson.
Sunnudaginn 30. apríl ætlar
kórinn að heimsælqa St. Frans-
iskusspítalann og syngja fyrir
sjúklingana.
Ófeigur sýnir í
Gallerí grjóti
ÓFEIGUR Björnsson, gullsmið-
ur og myndlistarmaður, opnar
sýningu á skúlptúrverkum í
Gallerí gijóti við Skólavörðu-
stíg 4 fóstudaginn 28. apríl.
Þetta er ijórða einkasýning
Ófeigs, sú þriðja í Reykjavík, en
einnig hefur hann sýnt í Helsinki
í Finnlandi. Þá hefur hann tekið
þátt í fjölda samsýninga hér
heima og erlendis. Mörg verka
hans eru í eigu opinberra aðila.
Sýningin verður opin frá kl.
12.00—18.00 virka daga og
14.00—18.00 um helgar, en henni
lýkur mánudaginn 15. maí, annan
dag hvítasunnu.
(Fréttatilkynning)
Kvennadeildin
á heiðurinn
í framhaldi af frétt varðandi
samþykkt um tóbaksmál sem gerð
var á aðalfundi Krabbameinsfé-
lags Reykjavíkur fyrir skemmstu,
skal það áréttað að það er
Kvennadeild Rauða krossins sem
rekur verslanimar á spítölunum
og tók þá ákvörðun að hætta að
selja tóbak frá og með síðustu
mánaðamótum. Félagið ítrekar að
það fagnar þessari ákvörðun og
metur hana mikils.
(Frá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur)
Fyrirlestur
um misþroska
SVEINN Már Gunnarsson
bamalæknir heldur fyrirlestur
sem nefiiist „Misþroski frá
mörgum hliðum“ i dag, fimmtu-
daginn 27. apríl.
Foreldrafélag misþroska bama
gengst fyrir flutningi fyrirlesturs-
ins í Æfingadeild Kennaraháskóla
íslands á mótum Bólstaðarhlíðar,
Háteigsvegar og Skipholts, geng-
ið inn frá Bólstaðarhlíð.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30
og er aðgangur ókeypis. Félags-
menn og annað áhugafólk er hvatt
til að koma.
(Fréttatilkynning)
Ingibjörg
Söngskemmtun Mosfellskórsins
Mosfellsbæ.
Mosfellskórinn heldur sína
fyrstu sjálfstæðu söngskemmt-
un í Hlégarði þann 28. apríl.
Kórinn var stolhaður fyrir
rúmu ári og hefiir sungið á
sjúkrahúsum, dvalarheimilum,
bókmenntakynningu og á ýms-
um skemmtunum og nú síðast
í Stykkishólmi.
Efnisskrá tónleikanna verður
að mestu af léttara taginu og skip-
ar því hljóðfæraleikur verulegan
sess við flutning söngefnis svo sem
verið hefur. Einleikari á flautu er
Kristjana Helgadóttir, og Þorvald-
ur Halldórsson syngur einsöng í
nokkrum lögum. Söngstjóri er
Páll Helgason.
- J.M.S.