Morgunblaðið - 27.04.1989, Qupperneq 41
286i Jbm .rs HJOAauTNtMn aiaAja/voHPM_______________________________________________...
'MÖRGUNBLÁÐÍÐ FÍMMTUDAGÚR 27. APRÍL 1989 41
Kristín L Haralds-
dóttir - Minning
Fædd 16. október 1941
Dáin 17. apríl 1989
Kveðja frá mágkonum
Ó, þú brostir svo blítt
og ég brosti með þér.
Eitthvað himneskt og hlýtt
kom við hjartað i mér.
(Stefán frá Hvitadal)
Þessar línu komu fram í hugann
er við ættingjar Kristínar fréttum
að hún hefði þá fyrr um daginn
látist skyndilega.
Það kom okkur ekki svo mjög á
óvart, þó svo að við séum ávallt
óviðbúin þegar dauðinn er annars
vegar.
Kristín fæddist 16. október 1941
á Akranesi, elsta barn foreldra
sinna, þeirra Ragnheiðar A. Ingólfs-
dóttur, er lést 1973, og Haraldar
Sigurðssonar framkvæmdastjóra.
Kristín bjó fyrstu æviár sín á
Akranesi en fluttist ung að árum
með foreldrum sínum, fyrst til
Njarðvíkur en síðan til Reykjavíkur
þar sem hún bjó lengst af.
Þann 29.12. 1969 giftist Kristín
eftirlifandi eiginmanni sínum, Bimi
Einarssyni, saman eignuðust, þau
dótturina Stefaníu f. 26.4. 1969,
en fyrir átti hún þijár dætur, Ingu
f. 26.12. 1958, Aslaugu f. 16.09.
1960 og Sigríði f. 25.10. 1964. Þær
sjá nú, ásamt bömum sínum, á eft-
__________Brids
Arnór
Ragnarsson
Bridsfélag Reylgavíkur
Þegar spilaðar höfðu verið 26 umferðir
og úögw hvöld af sex i aðaltvímennings-
keppni félagsins.var staða efstu para þessi:
Valur Sigurðsson —
Jónas P. Erlingsson 254
Hjaltí Eliasson —
Jón Ásbjömsson 194
Hrólfur Hjaltason —
Ásgeir Ásbjörnsson 190
Sigurður B. Þorsteinsson —
Gylfi Baldursson 168
Sævar Þorbjömsson —
Karl Sigurhjartarson 159
Bridsfélag Breiðfirðinga
Lokið er þremur kvöldum af fjómm í
Butlertvímenningskeppni félagsins, og er
keppni um fyrsta sætið mjög jöfn og spenn-
andi. Staða efstu para er þannig:
Bjöm Amórsson —
Ólafur Jóhannesson -122
Sigfús Sigurhjartarson —
Geirarður Geirarðsson 113
Jón Stefánsson —
Magnús Oddsson 110
Anton R. Gunnarsson —
Hjördís Eyþórsdóttir 104
Helgi Nielsen —
Hreinn Hreinsson 96
Hermann Sigurðsson —
Þorbergur Leifsson 88
Jón Viðar Jónmundsson —
ÁmiJónasson 71
Bridsdeild
Rangæingafélagsins
Daníel Halldórsson og Viktor Bjöms-
son sigruðu f 6 kvölda barómeterkeppni
sem nýlega er lokið lijá deildinni, en
þessi keppni var jafnframt sfðasta
keppni vetrarins.
Lokastaðan:
Daníel — Viktor 244
Sigurleifur Guðjónsson — Jón Sigtryggsson 182
Lilja Halldórsdóttir — Rúnar Guðmundsson 166
Bemharður Guðmundsson — Ingólfur Böðvarsson 134
Jón St. Ingólfsson — Helgi Skúlason 133
Helgi Straumfjöix) — Thorvald Imsland 130
Tuttugu pör tóku þátt f keppninni.
Keppnisstjóri var Siguijón Tryggvason.
Bridsdeildin sendir spilumm sumarkveðjur.
Hittumst á ný f haust.
íslandsmót í parakeppni
íslandsmót í parakeppni verður haldið í
Sigtúni 9 eftir helgina 6.-7. maf. Spilaður
verður barómeter, allir við alla, og fer spila-
fjöldinn eftir þátttökuíjölda. Spilamennska
hefst kl. 12.00 þann 6. maí og spilað verð-
ur fram eftir degi, og spilamennska hefst
svo aftur kl. 10.00 sunnudaginn 7. maí.
Skráning er hafin f þessa keppni, og er
skráð í síma Bridssambandsins, 689360.
Keppnisgjald er kr. 5.000 á parið.
ir elskulegri móður og ömmu, langt
um aldur fram.
Við mágkonur Kristínar vorum
báðar ungar að árum er við tengd-
umst fjölskyldunni. Hún tók okkur
ljúfmannlega og var ráðagóð er til
hennar var leitað og fundum við
aldrei að hún liti á okkur sem
krakka heldur fullorðið fólk með
ábyrgð og skyldur. Þegar svo okkar
eigin börn fæddust bar hún sömu
umhyggjuna fyrir þeim og sínum
bömum og barnabörnum.
Kristín var létt í lund en gat
verið föst fyrir ef henni fannst hall-
að á þá sem minna máttu sín.
Eflaust hefur lífið ekki alltaf verið
auðvelt hjá henni og vinnu sína
stundaði hún eins og hún framast
gat vegna sjúkleika síns, og mætti
þar góðvild og skilningi yfirmanna
sinna hjá Sjúkrasamlagi Reykjavík-
ur, en þar vann hún síðastliðin ár.
Við viljum að lokum þakka henni
fyrir samfylgdina og kveðjum hana
með þessum línum:
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem)
Samúðarkveðjur sendum við eig-
inmanni hennar, dætmih og föður
og biðjum almættið að styrkja þau
og styðja.
Guðrún Sigurðardóttir og
Oddný Einarsdóttir.
í dag er við kveðjum góðan sam-
starfsmann og vin er hóf störf hjá
Sjúkrasamlagi Reykjavíkur á árinu
1980, kemur upp í hugann mynd
af góðri konu, hæglátri, samvisku-
samri og snyrtilegri í allri vinnu og
umgengni.
Kristín gekk ekki heil til skógar
og var oft sárþjáð og þurfti einatt
að vera á sjúkrahúsum og undir
læknishendi. Hún stundaði vinnuna
oft frekar af vilja en mætti og
reyndi alltaf að láta sem ekkert
væri, svo mikil var samviskusemin.
Og á gleðistundum með samstarfs-
fólki sínu var hún oftast hrókur
alls fagnaðar svo menn áttu oft
erfitt með að trúa hversu veik hún
raunveralega var.
Oftast er það svo að þótt vitað
sé að einhver er mikið veikur þá
er enginn viðbúinn kallinu er það
kemur og menn standa eftir í þögn
og orðlausum söknuði og spyrja
almættið hvers vegna hún, á besta
aldri með stóra fjölskyldu, eigin-
mann, börn og barnaböm sem vora
henni allt til að lifa fyrir.
En aldrei fást svör. Og við getum
aðeins þakkað henni samverana og
samstarfið og vottað ástvinum
hennar okkar dýpstu samúð.
Og við viljum kveðja Kristínu
með þessum orðum:
Því hvað er það að deyja annað en standa
nakinn í blænum og hverfa inn í sólskinið.
Og hvað er að hætta að draga andann ann-
að en að frelsa hann frá friðlausum öldum
lífsins svo að hann geti risið upp í mætti
sínum og óptraður leitað á fund Guðs síns.
(K. Gibran.)
Starfsfólk Sjúkrasamlags
Reykjavíkur.
Með þessum fáu línum vil ég
kveðja góða konu, Kristínu Ing-
unni, sem fór frá okkur allt of fljótt,
aðeins 47 ára. Hún var systurdóttir
mannsins míns og góð vinkona mín,
frá því ég kynntist henni fyrst að-
eins 12 ára gamalli.
Stína var dóttir hjónanna Ragn-
heiðar A. Ingólfsdóttur og Haraldar
Sigurðssonar. Hún fæddist á Akra-
nesi, flutti ung til Njarðvíkur og svo
til Reykjavíkur með foreldram
sínum og þar hefur Stína búið síðan.
Stína var góður vinur, mjög trygg-
iynd. Hún var einkar hlý í viðmóti,
hafði góða kímnigáfu og gat skelli-
hlegið af litlu tilefni, þó gat hún
verið föst fyrir ef því var að skipta.
Hún var mjög smekkleg og mik-
il hannyrðakona. Þrátt fyrir margra
ára erfiðan sjúkdóm vann hún alltaf
utan heimilis, síðast hjá Sjúkrasam-
lagi Reykjavíkur. Heimili þeirra
Björns er með þeim fallegri sem ég
hef séð.
Hún var gift Birni Einarssyni,
starfsmanni Reykjavíkurborgar,
sem lifir konu sína. Kæri Bjöm,
Inga, Áslaug, Sirrý, Stefanía og
Halli minn, við Ingólfur sendum
ykkur og bræðranum innilegustu
samúðarkveðjur.
Við söknum vinar. Hvíli hún í friði.
Villa
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MAGNEA ÁGÚSTA ODDGEIRSDÓTTIR,
Langagerði 112,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 28. apríl kl. 10.30f.h.
Jarðsett verður í Lágafellskirkjugarði.
Jón Þór Ólafsson,
Sjöfn Ólafsdóttir,
Gunnar Ólafsson,
Svanberg Ólafsson,
Ómar Ólafsson,
Hildur Svavarsdóttir,
Tómas Rögnvaldsson,
Þórey Valdimarsdóttir,
Kristfn Erlendsdóttir,
Hrefna Snæhólm,
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR RÓSINKARSSON,
Lundarbrekku 10,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. apríl kl.
15.00.
Slgurlína Sigurðardóttir,
Hreinn Guðmundsson,
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, Aðalstelnn Már Ólafsson,
Sigurborg S. Guðmundsdóttir,
Auðunn Már Guðmundsson,
Guðmundur Freyr Aðalsteinsson.
t
Frændi minn,
GUÐMUNDUR JÓHANNSSON
frá Aðalbreið
Miðfirði,
verður jarðsunginn frá Melstaðarkirkju laugardaginn 29. apríl kl.
14.00. Bílferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 8.00.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Árný Kristófersdóttir. *
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
NJÁLA EGGERTSDÓTTIR,
Skúlagötu 66,
verður jarðsungin frá Frikirkjunni föstudaginn 28. apríl kl. 15.00.
Guðrún P. Eyfeld,
Benedikt E. Pálsson,
Margrót Pálsdóttir,
Guðlaugur L. Pálsson,
Njála Vfdalfn,
barnabörn
Pétur Eyfeld,
Svala Erneste,
Stefán Hjaltested,
Eyrún Magnúsdóttir,
Gfsli Ö. Ólafsson,
barnabarnabörn.
t
Þökkum innilegar samúðarkveðjur og vinarhug við andlát og jarð-
arför
JÓNASARHAGAN,
Húsavfk.
Sólveig, Sigurður, Lúðvík,
Steinunn, börn og barnabörn.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGURLÍNU STEFÁNSDÓTTUR,
Lindargötu 17,
Sauðárkróki.
Guð blessi ykkur öll.
Börn, tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.
t
Hjartanlegar þakkir til hinna fjölmörgu, sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andiát og útför eiginkonu minnar, móður, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
RANNVEIGAR INGIBJARGAR ÁRNADÓTTUR,
- Lambastekk 14,
Reykjavfk.
Jóhannes Einarsson,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
eiginmanns míns, stjúpföður og föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa.
HARALDAR HARÐAR HJÁLMARSSONAR
Víkurbraut 5, Grlndavfk.
Kristfn Sæmundsdóttir,
Gunnar Ólafsson, Ólfna Magnúsdóttir,
Hjálmar Haraldsson, Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Sæmundur Haraldsson, Vilborg Ásgeirsdóttir,
Marta Haraldsdóttir, Sæþór Þórðarson,
Unnur Haraldsdóttir, Jón Sæmundsson,
Önundur Haraldsson, Þorbjörg Halldórsdóttir,
Ágúst Haraldsson, Sólveig Oskarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar HÁKONAR BJARNASONAR, fyrrver-
andi skógræktarstjóra, verða skrifstofur Skógræktar
ríkisins og Skógræktarfélags íslands, Ránargötu 18,
lokaðar föstudaginn 28. apríl frá kl. 9-13.
Lokað
Vegna jarðarfarar KRISTÍNAR HARALDSDÓTTUR verða
skrifstofur okkar lokaðar frá kl. 13.00 fimmtudaginn 27.
apríl.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.