Morgunblaðið - 12.05.1989, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1989
Neðri deild Alþingis:
Húsbréfin samþykkt
með helming atkvæða
Húsbréfefrumvarpið var sam-
þykkt í neðri deild Alþingis í gær
með helmingi atkvæða. Helming-
ur þingmanna greiddi atkvæði
gegn frumvarpinu eða sat hjá
við atkvæðagreiðsluna. Frum-
varpið hefúr nú verið sent til
efri deildar en ríkisstjórnin legg-
ur áherslu á að það verði sam-
þykkt fyrir þinglausnir í vor.
Marks og Spencer:
Iliuga kaup
á góðgætis-
pakkanum
BREZKA stórmarkaðskeðjan
Marks og Spencer hefúr sýnt
áhuga á kaupum á fiski héð-
an, sem pakkað er í neytenda-
umbúðir. Um er að ræða „góð-
gætispakkann" frá Hafnar-
bergi hf í Þorlákshöfti, sem
er ný fiskréttaverksmiðja.
Karl Sigmar Karlsson segir
nær öruggt að samningar um
sölu til Marks og Spencer ná-
ist, en enn eigi eftir að reka
endahnútinn á þá. Frakkar og
Sovétmenn hafe lýst áhuga á
kaupum á nýrri sjávarrétta-
böku frá fyrirtækinu. Frost-
mar hf. stendur í samninga-
viðræðum við Finna um sölu
á tilbúnum fiskréttum og
Humall hf á sömuleiðis í samn-
ingaviðræðum við erlenda
kaupendur um sölu á fiskrétt-
um i miklnni mæli.
Fulltrúar Marks og Spencer
hafa verið hér í tengslum við
matvælasýninguna Icefood ’89.
Þeir hafa meðal annars skoðað
fiskréttaverksmiðju Hafnar-
bergs og sagt hana standast all-
ar kröfur þeirra um hreinlæti
og gæði og lýst miklum áhuga
á kaupum á fiski pökkuðum í
henni. Karl Sigmar segir að
áhugi Bretanna sé mikil viður-
kenning fyrir fyrirtækið svo og
það, sem önnur íslenzk fyrirtæki
séu að gera á þessu sviðL „Það
er ekki enn Ijóst hvað þeir vilja
að við vinnum fyrir þá. Kannski
eru þeir líka að biðja um meira
en við getum framleitt," sagði
Karl Sigmar.
Jón Ragn-
arsson kaup-
ir Hótel Örk
I gær tókust samningar milli
Framkvæmdasjóðs íslands og
Jóns Ó. Ragnarssonar, veit-
ingamanns, um kaup hins
síðarneftida á Hótel Örk í
Hveragerði. Kaupverðið nem-
ur 265 miiyónum króna, og
að sögn Jóns greiðir hann það
með húseign sinni að Hverfis-
götu 54, en þar rekur hann
kvikmyndahúsið Regnbogann.
Jón Ó. Ragnarsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að
hann tæki við rekstri Hótels
Arkar um næstu mánaðamót,
en þegar yrði hafist handa við
ýmsar lagfæringar á húsnæðinu,
og meðal annars yrði gistirýmið
aukið um helming. Jón rekur
einnig Hótel Valhöll á Þingvöll-,
um, og sagði hann að sameigin-
legur rekstur hótelanna í fram-
tíðinni myndi stuðla að aukinni
hagræðingu og hagkvæmni í
rekstri þeirra beggja. Hann
sagði að viðræður, sem hann
hefði á sínum tíma átt við ríkið
um kaup þess á Hótel Valhöll,
hefðu fljótlega farið út um þúfur.
Við þriðju umræðu um málið í
neðri. deild lögðu sjálfstæðismenn
fram tillögu um að vísa málinu til
ríkisstjórnarinnar. Kom fram í máli
Þorsteins Pálssonar og Geirs H.
Haarde, að þeir teldu frumvarpið
hafa breyst mjög til hins verra frá
því milliþinganefnd skilaði því frá
sér á síðasta hausti og sagði Þor-
steinn að eiginlegt húsbréfakerfi
kæmist ekki á með þessum hætti.
Þessi frávísunartillaga var felld
með atkvæðum stjómarþingmanna
og Kvennalista en þingmenn Sjálf-
stæðisflokks, Borgaraflokks og
Frjálslyndra hægrimanna greiddu
atkvæði með henni ásamt þeim
Stefáni Valgeirssyni (SJF/Ne),
Ólafi Þ. Þórðarsyni (F/Vf) og Alex-
ander Stefánssyni (F/Nv).
Frumvarpið var síðan borið undir
atkvæði deildarinnar og var það
samþykkt með 21 atkvæði. Helm-
ingur þingmanna greiddi atkvæði
gegn því eða sat hjá við atkvæða-
greiðsluna. Efri deild hefur frum-
varpið nú til meðferðar og leggur
ríkisstjórnin áherslu á að það verði
afgreitt fyrir þinglausnir í vor.
Morgunblaðið/Bj.Bl.
Bfilinn, sem valt út af Reylganesbraut við Grindavíkurafleggjara með þeim afleiðingum að ökumað-
ur lést, er gjörónýtur eins og sést á myndinni sem tekin var á geymslusvæði í Keflavík í gær.
Lést í umferðarslysi
MAÐURINN, sem lést í umferðarslysi á Reyjanes-
braut við Grindavíkurafleggjara um hádegisbil á
miðvikudag, hét Eggert Jónsson, til heimilis að Álfa-
skeiði 96 í Hafnarfirði.
Eggert var 27 ára gamall, fæddur 27. október
1961. Hann var ókvæntur og bamlaus.
Áverkar mannsins, sem var farþegi í bílnum sem
Eggert heitinn ók, reyndust ekki jafnmiklir og ótt-
ast var í fyrstu og er hann ekki í lífshættu, að sögn
rannsóknarlögreglu í Keflavík.
Háskólaráð fi*estar ákvörðun um innritun:
Hátt í þrjú þúsund nemar
eru enn í óvissu um útskrift
Á FUNDI háskólaráðs í gær var ákveðið að fresta afgreiðslu tillögu
rektors um innritun stúdentsefiia. Voru háskólaráðsmenn sammála
um að bíða og sjá hvort verkfall BHMR leystist. Næsti fúndur ráðs-
ins verður fimmtudaginn 25. maí, og þá á að afgreiða málið. Venju-
lega hefst skráning nýstúdenta í Háskólann 1. júní.
Tillaga rektors gerir ráð fyrir að
þeir verði innritaðir, sem hafi áunn-
ið sér rétt til að þreyta stúdents-
próf í vor en hafi vegna verkfalla
ekki náð að þreyta próf fyrir 16.
júní næstkomandi. Nemandi yrði
þá við skrásetningu að framvísa
staðfestingu um námsframvindu
frá viðkomandi skóla.
Hjá Karli Kristjánssyni, deildar-
sérfræðingi í framhaldsskóladeild
menntamálaráðuneytisins, var mik-
ið um fyrirspumir framhaldsskóla-
nema hjá upplýsingaskrifstofunni,
Framfærsluvísitalan
mælir 27% verðbólgu
VÍSITALA framfærslukostnaðar
samkvæmt útreikningi í byijun
þessa mánaðar var 122,3 stig, 2%
hærri en í byijun apríl. Samsvar-
ar þessi hækkun tæplega 27%
verðbólgu á tólf mánaða tímabili
en hækkun vísitölunnar síðustu
þijá mánuði mælir 31,5% verð-
bólgu. Hækkunin síðustu 6 og 12
mánuði samsvarar rúmlega 22%
verðbólgu.
Af 2% hækkun vísitölunnar í
maíbyijun stafa um 0,6% af hækk-
un tryggingaiðgjalda bifreiða og
0,1% af hækkun bensínverðs. 0,3%
ísagörður:
Athuga kaup
á útíbúi Út-
vegsbankans
NEFND sem bæjarstjórn ísa-
fjarðar kaus til að athuga stofn-
un sparisjóðs á ísafirði sam-
þykkti nýlega að athuga með
kaup á útibúi Útvegsbankans á
Isafirði. Á bæjarstjórnarfúndi í
gærkvöldi kom það fram að fiill-
trúar nefndarinnar ætla að óska
efltir viðræðum við Jón Sigurðs-
son viðskiptaráðherra um málið.
stafa af hækkun matvöru, 0,2% af
hækkun húsnæðisliðs og 0,8% af
verðhækkun ýmissa annarra vöru-
og þjónustuliða.
sem ráðuneytið opnaði í gær.
Karl sagði að það væri erfitt að
telja nákvæmlega saman á hversu
mörgum framhaldsskólanemum
verkfallið bitnaði, í iðnskólum
fengju til dæmis sumir fulla kennslu
en aðrir enga, vegna þess að kenn-
arar væru í mismunandi stéttarfé-
lögum. Karl sagði að stúdentsefni
í mennta- og Qölbrautaskólum væru
um 1.400. Búast mætti við að út-
skriftamemar úr iðnskólum og sér-
skólum væru álíka margir.
í gærmorgun var haldinn fundur
í nefndinni, sem menntamálaráð-
herra skipaði til þess að ræða lausn-
ir á vanda framhaldsskólanema,
sem ekki hafa getað tekið próf
vegna verkfalls HIK. Fundinn sátu
fulltrúar nemenda, skólameistara
og menntamálaráðuneytis. Þátt-
töku kennara var einnig óskað, en
þeir sendu engan fulltrúa og hafa
sagt að þeir séu ekki til viðræðu
um tilhögun útskriftar fyrr en verk-
fallið leysist. Fulltrúar mennta-
málaráðuneytisins lögðu fram á
fundinum drög að lausnum á vand-
anum, og gefa þau tilefni til að
ætla að óvissunni um útskrift verði
létt af nemendum, að sögn Þóris
Auðólfssonar, inspectors scholae í
Menntaskólanum í Reykjavík og
annars fulltrúa nemenda í nefnd-
inni. Ríkisstjómin mun í dag fjalla
um drögin.
í gær hafði ekki verið beðið um
nýjan samningafund í deilu BHMR
og ríkisins og stendur slíkt enn
ekki til af hálfu ríkisins, að sögn
Indriða H. Þorlákssonar, formanns
samninganefndar ríkisins.
Veiting dómkirkjuprestakalls:
Séra Hjálmar Jónsson hefiu-
dregið umsókn sína til baka
SÉRA Hjálmar Jónsson, sóknar-
prestur á Sauðárkróki og prófast-
ur Skagfirðinga, hefúr dregið til
baka umsókn sína um starf dóm-
kirkjuprests. Hann segir í bréfi
til biskups að ástæðan sé sú, að
hann sé ekki reiðubúinn til að
hverfe úr héraði sínu og þeim
verkahring sem sé honum kær^
en einnig hafi fjölmargir úr
prestakalli hans og prófastsdæmi
óskað eindregið eftir því að hann
hætti við áform um að hverfe á
brott. Þá hafi sóknarneftid Sauð-
árkrókskirkju skorað á hann að
endurskoða ákvörðun sína um
nýjan starfsvettvang.
Séra Hjálmar sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann mæti mikils
þann stuðning og þá viðurkenningu,
sem fólgin væri í þeim áskorunum
sem hann hefði fengið um að hætta
við umsóknina. „Úrslitaatriðið er þó
að ég taldi mig ekki reiðubúinn sjálf-
an að kveðja hér fólk og hérað, en
verkahringurinn hér er mikill og mér
ákaflega kær.“
Séra Ólafur Skúlason dómpró-
fastur, sem stjóma mun fundi kjör-
manna við kjör dómkirkjuprests
þann 19. þessa mánaðar, hefur sent
kirkjumálaráðuneytinu fyrirspumir
um túlkun á nokkrum atriðum
ákvæði laga um veitinga presta-
kalla.
Aðallega þykir óljóst hversu oft
megi endurtaka kosningu til að ná
fram þeim úrslitum að einn um-
sækjandi fái helming atkvæða.
Slíks er þörf til að kirkjumálaráð-
herra sé bundinn af kosningu kjör-
manna við veitingu embættis. Nú
em níu umsækjendur um embætti
dómkirkjuprests. Kjörmenn eru 14.
Þorleifur Pálsson deildarstjóri í
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu
sagði í samtali við Morgunblaðið
að fyrirspurnum dómprófasts yrði
svarað eftir helgi en hér væri um
sérstakt tilfelli að ræða vegna þess
hve umsækjendur væru margir.
Sáttasemjari:
Fundir með
banka- og
flugmönnum
Ríkissáttasemjari hefúr
boðað flugmenn, bankamenn
og viðsenyendur þeirra á
fúndi til sin. Fundurinn með
flugmönnunum hefst klukkan
10 fyrir hádegi í dag en fúnd-
urinn með bankamönnunum
er boðaður á þriðjudagskvöld
kl.20.30.
I deilu flugmanna strandar
allt á kröfu þeirra um 7% hækk-
un til allra flugmanna vegna
þess að fækkað hefur um einn
í áhöfnum á nýju þotunum.
Vegna þess stóð Aldís, nýja þota
Flugleiða á Keflavíkurflugvelli í
gær.
I deilu bankamanna strandar
á kröfu þeirra um að fæðingaror-
lof, sem bankamir greiða, verði
aukið úr 3 mánuðum í 6 mánuði
eins og gerist með ríkisstarfs-
menn almennt.
Guðlaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemjari segir, hvað banka-
mennina varðar, að hann verði
að kveða til 2 menn með sér í
sáttanefnd. Slíkt fyrirkomulag
var í gildi hvað opinbera starfs-
menn varðaði þar til lögum var
breytt 1976. Það er hinsvegar
áfram í lögum hvað bankamenn
varðar, eins það að Guðlaugur
verður að leggja fram sáttatil-
lögu fari bankamenn í verkfall.