Morgunblaðið - 31.05.1989, Blaðsíða 41
^QRGU i)iBLAWfi i í WAh 3P0E
Ingibjörg Guðmunds-
dóttir - Minning
Fædd 20. nóvember 1904
Dáin 25. maí 1989
Ingibjörg var fædd og uppalin á
Fjalli á Skeiðum. Hún var elst sex
barna Guðmundar Lýðssonar og
Ingibjargar Jónsdóttur. Á árunum
1931-’33 stundaði Ingibjörg nám
við Samvinnuskólann í Reykjavík
og það var einmitt þar, sem ævilöng
vinátta upphófst milli Ingibjargar
og móður minnar Helgu Pálsdóttur,
sem einnig var við nám í Sam-
vinnuskólanum á þessum árum.
Ingibjörg vann á skrifstofu Lands-
pítalans og skrifstofu ríkisspítal-
anna frá 1933 til ársloka 1941.
Síðan vann hún allan sinn starfsald-
ur, í þrjátíu og þrjú ár, sem bókari
hjá ríkisbókhaldinu, frá ársbyrjun
1942 til ársins 1975.
Eg minnist þess sem barn að
aldri, hversu merkileg mér þótti
störf Ingibjargar hjár ríkisbókhald-
inu. Hún vissi alltaf nákvæmléga
hvar öll skjöl var að finna. Það var
sama hvort skjalið var stórt eða
smátt, innan um endalausar raðir
af möppum, alltaf gat Ingibjörg
gengið beint að því. Minni hennar
á þessu sviði mætti líkja við tölvu-
minni í dag.
Varla leið svo dagur, er ég var
barn, að ekki kæmi Ingibjörg í
heimsókn. Hún bjó alla tíð nærri
Minning
fjölskyldu minni og í nokkur ár bjó
hún á heimilinu með okkur. Ingi-
björg skipaði sérstakan sess meðal
okkar. Hún átti sterk ítök í okkur
öllum og var alltaf talin með sem
ein úr ijölskyldunni.
Einstök tryggð og traust Ingi-
bjargar færði henni vini sem urðu
trúir vinir hennar til æviloka, vil
ég þar sérstaklega nefna Kristínu
Þorláksdóttur, fyrrverandi bókara
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Þær ferðuðust saman í mörg ár,
vítt og breitt um margar heimsálf-
ur. En þegar heilsu Ingibjargar
hrakaði og hún varð að láta af
ferðalögum, hélt Kristín áfram sinni
tryggu vináttu við Ingibjörgu, alltaf
tilbúin til aðstoðar og hjálpar. Um
margra ára skeið átti Ingibjörg því
láni að fagna að eiga góða sambýlis-
konu, Sigríði Kristjánsdóttur, sem
einnig var alltaf reiðubúin að rétta
Ingibjörgu hjálparhö.id. Það var
Ingibjörg alltaf gleðiefni þegar
systkini hennar frá Fjalli komu í
heimsókn og einnig þegar systur-
dóttir hennar og nafna kom úr
Kópavogi til hennar ásamt börnum
sínum, sérstaklega var sonur henn-
ar, Gunnar, Ingibjörgu hjálpsamur.
Ingibjörg var einstaklega vel skapi
farin. Hún var hæglát, blíðlynd og
sérlega barngóð — og þess nutum
við í ríkum mæli, fyrst ég sem bam
og síðan sonur minn, Magnús
Snorri. Umhyggja hennar og ástúð
verður.okkur alltáf minnisstæð.
Síðastliðin tæp sex ár þurfti Ingi-
björg að berjast við ólæknandi sjúk-
dóm. Þennan kross bar hún með
mikilli stillingu og hógværð. Þótt
líkamlegt þrek þessarar grann-
vöxnu og fíngerðu konu hrakaði
verulega, þá hélt hún andlegu þreki,
las góðar bókmenntir og var alltaf
tilbúin að ræða heimsmálin.
Eftir að ég giftist og stofnaði
heimili, má segja að Ingibjörg hafi
verið okkur besti heimilisvinur. Svo
til daglega lagði hún leið sína til
okkar og á helgidögum og sunnu-
dagskvöldum sat hún að jafnaði
með okkur við kvöldverðarborðið.
Nú situr hún ekki lengur meðal
okkar, en minningin mun aldrei
verða frá okkur tekin.
Við Halldór, sonur okkar, Magn-
ús Snorri og móðir mín, Helga Páls-
dóttir, vottum ættingjum og vinum
Ingibjargar samúð okkar. Guð
blessi þessa góðu konu, sem hefur
alla tíð verið okkar tryggi förunaut-
ur.
Kristín Guðbjartsdóttir Magnús
Ingibjörg, eða Beggý, eins og ég
kallaði hana, var alltaf svo nærtæk
og hlýlynd, að í mínum augum var
hún fjölskyldumeðlimur, svona
óskilgreind frænka eins og í góðu
ævintýri.
Sumar fyrstu minningar mínar
af henni eru frá því þegar hún sýndi
mér myndir frá ferðum sínum til
fjarlægra landa. Það var eins og
ævintýri fýrir lítinn strák og hún
þreyttist aldrei á að sýna mér mynd-
irnar þó að ég kæmi oft í heim-
sókn. Þegar heilsu hennar fór að
hraka og áratuga löng barátta við
Parkinsonveiki hófst, gat Beggý
ekki ferðast eins og áður, en ég var
þá orðinn nógu gamall til að ferð-
ast með foreldrum mínum til út-
landa. Þá var komið að mér að
sýna myndir frá ævintýralegum
stöðum og Beggý var alltaf besti
áhorfandinn. Hún vildi helst sjá al' ■
ar myndir mörgum sinnum og heyra
allt af mér og mínum ferðum. Það
á líka við um margar aðrar minn-
ingar mínar með henni hvað hún
var jafnan glaðlynd og kom mér
oft í gott skap, bara með nærveru
sinni og hlýju. Hún var mér mjög
sérstök og minningar mínar af
henni verða mér ávallt dýrmætar.
Magnús S. Halldórsson
Norwalk, Connecticut,
Bandaríkjunum.
ái
Viðey
Veitingarekst-
ur frá 1. júní
Á NEÐRI hæð Viðeyjarstofú
er rekinn ahnennur veitinga-
staður. Þar eru 5 samliggj-
andi herbergi, sem rúma 74
gesti.
Stuðlað er að því að veitinga-
staðurinn sé einsetinn til þess
að tækifæri gefist til að gera
sem best við gesti íemat, drykk
og þjónustu.
Staðurinn er tilvalinn fyrir
smærri hópa, 10-20 manns,
sem vilja vera út af fyrir sig.
Viðskiptafundir yfír kvöldverði
og boð fyrir erlenda gesti hafa
notið mikilla vinsælda.
Frá 1. júní til 30. september
er veitingastaðurinn opinn fyrir
kvöldverðargesti frá fimmtu-
degi til sunnudags frá klukkan
18 til klukkan 23.30. Hafsteinn
Sveinsson fer fastar áætlunar-
ferðir frá Klettsvör í Sunda-
höfn, vestan við Sundakaffi, og
út að bryggju í Bæjarvör í Við-
ey. Ferðin tekur 5 mínútur.
Hótel Oðinsvé annast veitinga-
rekstur í Viðey.
(Fréttatilkynning)
Margrét Sæmunds-
dóttir frá Ólafsfírði
Fædd 8. nóvember 1904
Dáin 2. mai 1989
Minn Jesú, andlátsorðið þitt
í mínu hjarta ég geymi
sé það og lika síðast mitt
þá sofna ég burt úr heimi.
(H.P. 45. passiusálmur, 22; vers)
Margrét langamma okkar hefur
kvatt þennan heim. Hún hefur lokið
löngum starfsdegi og var hvíldin
henni því kærkomin, er hún lést á
Elliheimilinu Grund hinn 2. maí sl.
Okkur langar að minnast hennar
með örfáum orðum.
Langamma fæddist í Ólafsfírði og
sleit þar barnsskónum í.stórum hópi
systkina. Hún var dóttir hjónanna
Guðrúnar Jóhannsdóttur og Sæ-
mundar Jónssonar.
Árið 1934 giftist langamma Mar-
teini Elí Ingimarssyni, en hann lést
langt fyrir aldur fram, árið 1939.
Eina dóttur eignaðist langamma
og er það Gunnhildur amma okkar;
hún fæddist í Ólafsfirði. Langömmu
var alltaf tekið opnum örmum á
heimili dóttur sinnar og tengdason-
ar, Geirs Þorvaldssonar, og fimm
barna þeirra.
Okkur er margt í huga á þeim
tímamótum sem kveðjustund er.
Sennilega ber þó hæst í minning-
unni, er langamma fór í sína fyrstu
utanlandsferð árið 1977. Þá ferð
lagði hún í, til þess að heimsækja
okkur og foreldra okkar, en þá
bjuggum við í útlöndum. Ánægjan
og gleðin sem skein úr andliti henn-
ar allan tímann sem hún dvaldi hjá
okkur gleymist aldrei.
Áður en Magga amma, eins og
við kölluðum hana jafnan, fluttist á
Elliheimilið Grund, fyrir um það bil
3 árum, bjó hún á Norðurbrún 1 í
Reykjavík. Þar áttum við systkinin
margar ánægjustundir og gistinæt-
ur. A þeim stundum var hún óþreyt-
andi að leggja okkur lífsreglurnar
og segja okkur sögur úr æsku sinni.
Þessar og aðrar minningar lifa.
Að leiðarlokum er okkur þakklæti
efst í huga til Möggu ömmu. Við
kveðjum góða konu og biðjum Guð
að blessa minningu hennar.
Hvíli hún í friði.
Margrét, Pétur Hafliði og íris
Dögg Marteinsbörn
HEILDSÖLU-RYMINGARSALA
FATNAÐUR
Barnaúlpur kr. 1.410,-
Dömupeysur kr. 1.700,-
Jogginggallar kr. 950,-
LEIKFÖNG
Boltar kr. 170,-
Taflsett kr. 430,-
Dúkkur kr. 200,-
Trúðar kr. 370,-
Bangsar kr. 350,-
Töskur kr. 70,-
DÚKAR
Heklaðirdúkar kr. 715,-
Orkeraðardúllur kr. 50,-
Borðmottur kr. 170,-
Brauðservíettur kr. 130,-
Damaskdúkar160x200 kr. 1.690,-
Damaskservíettur kr. 105,-
Damaskefni Straufríirdúkar kr. 375,-
stærðir 90x90 verð frá kr. 375,-
stærðir 110x110 verð frá kr. 505,-
stærðir 140x140 verð frá kr. 785,-
stærðir 140x180 verð frá kr. 1.060,-
stærðir 180x230 verð frá kr. 1.420,-
stærðir 180x270 verð frá kr. 1.745,-
NA TTFA TNAÐUR
Barnanáttföt kr. 460,-
Barnasloppar kr. 460,-
Dömunáttföt kr. 760,-
Dömunáttkjólar kr. 760,-
Dömusloppar kr. 780,-
Herranáttföt kr.' 710,-
Kvöldjakkar kr. 1.190,-
ÝMISLEGT
Handklæði, lítil kr. 120,-
Handklæði, stór kr. 295,-
Koddaver kr. 270,-
Axlabönd kr. 305,-
Blævængir kr. 60,-
Svuntur kr. 390,-
Servettur kr. 45,-
Buddur kr. 130,-
Dömubelti kr. 209,-
Herrabelti kr. 498,-
Undirbuxur kr. 110,-
Opið frá kl. 10-18 virka daga
og frá kl. 10-16 laugardaga
Sendum í póstkröfu
KÍNAVÖRUR - SJÓNVAL
Grensásvegi 5, sími 39800.
VORHAPPDRÆTTI KRABBAMEINSFÉLAGSINS
AÐALVINNINGAR: SAMEIGINLEGUR VINNINGUR:
• Toyota Corolla 4WD. • Öflugri krabbameinsvarnir!
VINNINGAR MEÐ VALI:
• Thailandsferð, tölvubúnaður eða byggingavörur
fyrir 270 þús. kr.
• Sólarlandaferð, myndbands-upptökuvél eða byggingavörur
fyrir 125 þús. kr.
• Ferðalag, hljómflutningstæki eða byggingavörur fyrir 50 þús. kr.
STUÐNINGUR YKKAR ER OKKAR VOPN
Krabbameinsfélagið
-