Morgunblaðið - 31.05.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 31.05.1989, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1989 35 Aimæliskveðja: Eyj ólfiir Elíasson frá Reyðarfírði Mér fínnst ég skulda honum Ey- l,J"" jólfi örlitla afmæliskveðju. Ég skulda honum raunar heiimikið meira og mikið er það fjarri hans hógláta huga að hyggja að þessari litlu skuld- greiðslu og lítill fögnuður í fleipri mínu, enda skal farið að öllu með fullri gát. En ég bara má til að blað- færa hér fáeinar línur. Ljúfmennskan og prúðmennskan hans Eyjólfs eru engu líkar og þar sem hann hefur bundist vinarbönd- um, raknar hvorki né rofnar af hans völdum. Lipurðin í öllum gerðum, hagleikshöndin góða og alúðin ein- læga hafa einnig fylgt þessum far- sæla vini ævina alla. Ég man hann fyrst, þegar ég var agnarlítill snáði og gat ekki almennilega sagt nafnið hans og enn áður, þegar ég sat á hné hans var mér sagt að ég hefði nefnt hann A-lú-lú-lú og aldrei hafði hann brosað blíðar en þá. Svo var hann svo fljótur að galdra fram gripi handa gullasjúkum hnokka, sem ekki óð í liné í leikfangaheimi nútímans. Og honum lá aldrei á, hafði alltaf tíma til að hlusta, tíma til að spjalla og svara spumingum, mögulegum sem ómögulegum, aðallega ómögu- legum. Ég kynntist því síðar að koma í heimsóknir á hans góða heimili, þar sem Sveinbjörg og hann kepptust við að taka sem bezt á móti manni, sem mektaraðili væri á ferð — og líklega er samlíkingin út í bláinn, því fyrir þeim voru allir blessunarlega jafnir. Brynjar sonur þeirra varð einlæg- ur vinur þó miklu yngri væri en ég, enda var hann oft hjá föðursystur sinni, Gunnu minni blessaðri, þeirri dýrðarkonu, sem mér þótti svo undur vænt um, en alltof fljótt hvarf af þessum heimi. Ég ætlaði ekki að fara í neina ævisögu hér um þennan iðjumann alúðarfullra verka, þennan heiðarlega og hreinskiptna dreng, þennan áttræða öðling, sem ber með sér mildinnar blæ og ylhlýjan hug til allra er honum eru samferða. Bók eftir Doris Lessing Bókaútgáfan Forlagið hefiir endurútgefið í kiljuformi skáld- söguna Dagbók góðrar grannkonu eftir Doris Lessing. Þuríður Baxt- er þýddi söguna. Bók þessi kom út um síðustu jól og seldist þá upp samkvæmt frétta- tilkynningu frá Forlaginu sem hefur áður gefið út skáldsöguna Grasið syngur eftir sama höfund. í frétt Forlagsins segir m.a.: „Dag- bók góðrar grannkonu vitnar um djúpan mannskilning og tilfinninga- hita mikils rithöfundar. Dagbók góðrar grannkonu er 304 blaðsíður, prentuð í Danmörku. Hann hefur sínar einörðu skoðanir og þeim skyldi enginn hagga með orðaskvaldri einu. Fylginautar hans, greindin góða og glöggt auga fyrir iðju hverrri, hafa ásamt lundeminu ljúfa skilað honum vel á veg alltaf og ævinlega. Þetta áttu að vera fá- ein, fátækleg þakkarorð með örlítilli afmæliskveðju. Eyjólfur er Reyðfirð- ingur og þar lágu spor hans fram eftir allri ævi, er hingað suður var haldið og hér unað upp frá því. Foreldrar nans Guðrún Þorbjarn- ardóttir og Elías Eyjólfsson bjuggu þar eystra, og ættstofnar góðir stóðu að þeim hjónum báðum, þar sem athugul greind og viðkvæmt lund- erni, en umfram allt einlægni hjart- ans vörðuðu leiðina. Lífsgæfa Eyjólfs mest og bezt var hans bjartláta og lífsglaða greindar- kona, er hann átti að lífsförunaut, þó of skjótt hafi þar sól brugðið sumri. Sveinbjörg heitin Einarsdóttir var mikil atorkukona og ekki síður góð kona, góð húsmóðir og móðir. Óvenju kærleiksrík var samfylgd þeirra hjóna og samheldnin sterk um allt sem máli skipti svo ólík sem þau annars voru um margt. Böm þeirra þijú, Brynjar Elías vélstjóri í Reykjavík, Guðrún húsfreyja í Reykjavík og Jarþrúður búsett í Svíþjóð, eru hið ágætasta fólk og margar góðar minningar tengdar hinu myndarlega heimili eystra þyrp- ast að. Og nú er ljúflingurinn hugumþýði og hjartaglaði orðinn áttræður og ber aldurinn vel og enn var um dag- inn handtakið hans heitt og styrkt og nú er að finna sama hlýja hand- takið í dag og árna honum farsællar fylgdar allra góðra gæfudísa. Megi auðna hans ávallt verða sem allra mest svo sem hann á skilið og alúðarþakkir frá mér og mínum. Lifðu heill hollvinur góður. Helgi Seljan Þessi afmæliskveðja birtist í blaðinu á sunnudag en vegna þess hve fyrirsögnin brenglaðist í vinnslu birtist hún hér á nýjan leik. Vönduð heildarútgáfa AB á Ijóðum Tómasar Guð- mundssonar — óskaskálds Reykjavíkur. Glœsilega innbundið með kápuskreytingu eftir listamanninn Torfa Jónsson. Kristján Karlsson skrifar afar glöggan og skarpsýnan formálasem gefur okkur ómetanlega innsýn í hugar- heim skáldsins. Kvœði Tómasar skipa veglegan sess I hugum fslend- inga og œttu að vera sjálfsögð á hverju heimili. Stúdentagjöf sem njóta má um aldur og œvi. Kannt þú nýja símanúmerið? ^/3x67 Steindór Sendibílar FERÐATILBOÐ SUMARSINS 12.670 1-3 VIKNA EVRÓPUFERÐIR FRÁ KR. Nánari upplýsingar hjá söluskrifstofum Arnarflugs, umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. SÖLVÍ «w»‘ ARNARFLUG HF. si«n»r* ^3060 Lágmúla 7 og Austurstræti 22 *Staðgreiðsluverð fyrir 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára og bíl í A-flokki í viku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.