Morgunblaðið - 31.05.1989, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐE) IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1989
51
FOLX
■ ARNÓR Guðjohnsen, lands-
liðsmaður í knattspyrnu sem leikur
með belgíska liðinu Anderlecht,
gekkst undir uppskurð á sjúkrahúsi
í Leuwen í Belgíu í gær vegna
meiðsla sem hijáð hafa hann að
undanförnu. Hann verður frá knatt-
spymu í minnst þrjá mánuði.
■ KRISTRÚN Lilja DaðadóU-
ir, sem skoraði tvö mörk fyrir
Breiðablik gegn Þór í 1. deild
kvenna um helgina, var sögð heita
Kristín Lilja í frásögn okkar í blað-
inu í gær. Beðist er vilvirðingar á
þessum mistökum.
■ / ÍSLESNKA landsliðinu í
knattspymu, U-21 árs, eru þrír leik-
menn sem hafa getið sér gott orð
fyrir körfuknattleik. Það eru Ey-
jólfur Sverrisson, leikmaður
Tindastóls og einn stigahæstu leik-
maður úrvalsdeildarinnar, Ólafiir
Gottskálksson sem leikið hefur
með ÍBK og Steinar Adolfsson
sem leikið hefur með Víkingi Ól-
afsvík. Allir hafa þeir Ieikið með
drengja eða unglingalandsliðum.
■ ALAN Mclnallyog Murd
McLeod skomðu mörk Skota sem
sigmðu Chile-búa , 2:0, í gær í
Rous-bikamum í knattspymu. Það
vom þó Englendingar sem sigmðu
í innbyrðis keppni þessarra þriggja
þjóða. Englendingar sigmðu
Skota 2:0 og gerðu jafntefli við
Chile 0:0.
■ HEIMSMEISTARI kvenna í
spjótkasti, Fatima Whitebread,
Verður sennilega frá keppni út þetta
keppnistímabil vegna meiðsla sem
hún hlaut á hægri öxl. Whitebread
sem hlaut silfurverðlaun á síðustu
Ólympíuleikum, reif vöðva í öxl-
inni þegar hún tók þátt í litlu móti
í heimalandi sínu, Bretlandi.
FELAGSMAL
Aðalfundur
Aðalfundur handknattleiks-
deildar Víkings verður í fé-
lagsheimilinu við Hæðargarð í kvöld
kl. 20,30.
KNATTSPYRNA / U-21 ARS LANDSLIÐIÐ
Sentimetra frá sigri!
íslendingar nálægt sigri gegn Vestur-Þjóðverjum á Laugardalsvelli
ÍSLENSKA unglingalandsliðið,
skipað leikmönnum yngri en
21 árs, varð fyrsta liðið til að
taka stig af Vestur-Þjóðverjum
í undankeppni Evrópukeppn-
innar. Liðin gerðu jafntefli í
gær, 1:1, á Laugardalsvellin-
um. íslenska liðið var reyndar
aðeins sentimetra frá sigri, því
Steinar Adolfsson átti þrumu-
skot í þverslá skömmu fyrir
leikslok.
Þrátt fyrir að Vestur-Þjóðveijar
séu efstir í riðlinum, áttu ís-
lendingar síst minna í leiknum. Það
lá þó heldur meira á þeim framan
af, en undir lok fyrri
LogiB. hálfleiks náðu ís-
Eiðsson lendingar nokkrum
skrifar góðum sóknum. Á
síðustu sekúndum
fyrri hálfleiks fékk Eyj(5lfur Sverris-
son mjög gott færi, er hann komst
innfyrir vörnina, en Oliver Reck
varði skot hans.
Islendingar byijuðu vel í síðari
hálfleik og Baldur Bjamason fékk
tvö mjög góð færi sem hann náði
ekki að nýta. Vestur-Þjóðveijar
nýttu hinsvegar sín færi og Oliver
Bierhoff náði forystunni á 69.
mínútu er hann skoraði með skalla.
Sex mínútum síðar jöfnuðu ís-
lendingar. Haraldur Ingólfsson
smeygði sér í gegnum vöm Þjóð-
veijanna og sendi boltann á Eyjólf
Sverrisson sem skoraði af stuttu
færi.
íslendingar vom ekki langt frá
því að tryggja sér sigur ellefu
mínútum fyrir leikslok. Eftir þunga
sókn íslendinga, átti Steinar
Adolfsson þmmuskot í þverslá.
Boltinn barst út til Eyjólfs en skot
hans fór yfir.
íslenska liðið sýndi mikla baráttu
og lék af skynsemi. Steinar Adolfs-
son og Haraldur Ingólfsson áttu
góðan leik og Sævar Jónsson var
mjög traustur í vöminni. í markinu
var Ólafur Gottskálksson ömggur.
Morgunblaðið/Bjarni
Haraldur Ingólfsson (t.h.) á hér í höggi við Adrian Spyrka í leiknum í gær. Haraldur lék vel og lagði upp mark íslands.
ítölskáhrif?
Eitt var þó leiðinlegt að sjá í
leiknum í gær og það var að
íslenska leikmennirnir virðast hafa
tamið sér sið ítalskra knattspymu-
manna. Þegar dæmt var á íslenska
liðið var boltanum undantekningar-
laust sparkað sem lengst í burt og
skipti þá engu máli hvar brotið
var. Þetta er skiljanlegt þegar brot
er á hættulegum stað og liðið þarf
tíma til að stilla vöminni upp. En
þegar engin hætta steðjar að, er
þetta hvimleitt og ódrengilegt.
ísland—V-Þýskaland
1 : 1
Laugardalsvöllur, undankeppni Evrópukeppninnar U-21 árs, þriðjudaginn 30. maí 1989.
Mark íslands: Eyjólfur Sverrisson (75.)
Mark V-Þýskalands: Oliver Bierhoff (69.)
Dómari: Kim Milton Nielsen frá Danmörku. Leyfði of mikla hörku.
Gul spjöld: Alexander Högnason (19.), Adrian Spyrka (48.) og Stefan Effenberg (66.)
Áhoríendur: 197.
Lið íslands: ólafur Gottskálksson, Alexander Högnason, Helgi Bjarnason, Steinar
Adolfsson, Einar Páll Tómasson, Sævar Jónsson, Ólafur Kristjánsson, Kristinn Jónsson,
Baldur Bjarnason (Kjartan Einarsson 72.), Eyjólfur Sverrisson (Pétur Óskarsson 90.),
Haraldur Ingólfsson.
Lið Vestur-Þýskalands: Oliver Reck, Oliver Kreuzer, Nils Schmáler (Oliver Bierhoff
55.), Michael Klinkert, Adrian Spyrka, Jiirgen Luginer, Horst Steffen, Stefan Effen-
berg, Marcel Witeczek, Gerhard Poschner, Maurice Banach.
HANDKNATTLEIKUR
Stefán dæmir með Rögnvaldi
Stefán Amaldsson, hand-
knattleiksdómari frá Akur-
eyri, sem hefur dæmt með Ólafi
Haraldssyni í handboltanum und-
anfarin ár, mun dæma með Rögn-
valdi Erlingssyni næsta vetur.
'Eins og kom fram í Morgunblað-
inu í gær hefur Ólafur ákveðið
að flytjast til Noregs og dæmir
því ekki hér á landi næsta vetur.
Stefán og Ólafur hafa verið par
númer eitt hér á landi með al-
þjóðleg réttindi, en Stefán og
Rögnvaldur fá það sæti nú. „Það
leggst vel í rnig að dæma með
Rögnvaldi. Ég er ekki alveg
ókunnur honum því við dæmdum
saman einn vetur fyrir sex árum,“
sagði Stefón.
Fyrsta verkefni Stefáns og
Rögnvalds verður að dæma leiki
í úrslitakeppni HM U-21 árs sem
fram fer á Spáni í september.
Staðaní
4. riðli
Fjórði riðill í Evrópukeppni U-21
árs landsliða.
ísland—V-Þýskaland............1:1
Finnland—Holland..............1:1
Staðan:
V-Þýskaland Finnland 4 3 1 3 1 1
Holland 4 0 2
ísland 2 0 1
(Efsta liðið kemst í úrslit)
IÞROTTIR / STYRKIR
Valsmenn fengu
hálfa milljón
í GÆR var úthlutað úr styrktar-
og afrekssjóði Reykjavíkur fyrir
síðasta ár. Alls fengu 11 félög
viðurkenningu og styrk að upp-
hæð 200-500 þúsund krónur.
Handknattleiksdeild Vals fékk
hæsta styrkinn, hálfa milljón
króna, fyrir íslands- og bikar-
meistaratitil félagsins.
Knattspymudeild Fram fékk
400.000 kr. fyrir íslandsmeist-
aratitil í meistaraflokki karla og
knattspyrnudeild Vals 300.000 kr.
fyrir Islands- og bikarmeistaratitil
kvenna og sömu upphæð fyrir bik-
armeistaratitil karla.
Handknattleiksdeild Fram fékk
300.000 kr.. fyrir íslandsmeisfara í
meistaraflokki kvenna og Glímufé-
lagið Ármann kr. 250.000 fyrir
góðan árangur á íslandsmóti í fim-
leikum og frammistöðu Fjólu Ólafs-
dóttur á Norðurlandamótinu. Þá
fékk blakdeild Víkings 200.000 kr.
fyrir árangur meistaraflokks
kvenna í fyrra.
Fjögur félög fengu styrk vegna
íélags- og unglingastarfs, kr.
200.000 hvert félag. Það voru Tafl-
félag Reykjavíkur, Sundfélagið
Ægir, Fylkir og KR.
Gunnlaugur Þórðarson og Gísli
Halldórsson fengu viðurkenningur
fyrir iðkun almenningsíþrótta og
Jóhann Hjartarson fékk sérstök
verðlaun vegna glæsilegs árangurs
í fyrrai. j víj jj * ítíí’ *>.. U«.i
Morgunblaðið/Einar Falur
Þórður Sigurðsson, formaður handknattleiksdeildar Val§, tekur.við 500.0Q0
kr. ávisun’ úr hendi Júlíusar Hafsteins, .fpjmajm ÍBB, ... I ......
KNATTSPYRNA
Bikarkeppnin
l.umferð
ELLEFU leikir fóru f ram í fyrstu
umferð Bikarkeppninnar í gær-
kveldi og léku þá lið úr 2., 3.
og 4. deild. Ekki er hægt að ~
segja að úrslit hafi verið óvænt
en í tveimur ieikjum þurfti að
knýja fram úrslit með fram-
lengingu og vítaspyrnukeppni.
Úrslitin voru sem hér segir:
Ægir—Njarðvík.................0:2
— Guðjón Hilmarsson, Rúnar M. Jónsson.
Hafiiir—Alturelding...........3:1
Þórir Eiríksson, Heiðar Reynisson, Helgi —
Sigurbjömsson —.
Víðir—Snæfell.................5:4
— eftir vítaspymukeppni. Jafnt var eftir I
veryulegan leiktíma og framlengingu; 0:0.
Erair—Augnablik...............0:1
— Þorvaldur Jensen.
Skallagrímur—UBK.............1:2
Valdimar Sigurðsson — Sigurður Halldórs-
son, Jón Þórir Jónsson.
Völsungur—Magni..............1:0
Skúli Hallgrímsson.
KS-Dalvík....................5:1
Hlynur Eiríkssen 3, Hafþór Kolbeinsson 2
— Guðjón Antóníusson.
Leiftur—Reynir Á.............1:0
Hafsteinn Jakobsson.
Höttur—Valur Rf..............3:2^^.
Guttormur Pálsson 2, Jóhann Sigurðsson
— Aðalsteinn Aðalsteinsson, Lúðvík Vign-
isson.
Leiknir F—Sindri..............2:0
Helgi Ingason, Bergþór Friðriksson.
Huginn—Einhcrji...............8:7
Birgir Guðmundsson, Kári Hrafnkelsson —
Njáll Eiðsson, Hallgrímur Guðmundsson.
Eftir venjulegan leiktíma var staðan 1:1
og 2:2 eftir framlengingu.
Grótta—ÍBV....................1:5
Sighvafijr þjarnason — Tómas Ingi Tóm-
__asson 3, Sigjmjá’s^Þorfeifssón 2. ‘ i