Morgunblaðið - 03.06.1989, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ Í989
Fyrirlestur í
boði lagadeildar
DR. JUR. Hans-Heinrich Jesch-
eck, fyrrura prófessor við Háskól-
ann í Freiburg í Þýskalandi, og
forstöðumaður Max-Planck-
stofiiunarinnar í alþjóðlegum
refsirétti í Freiburg, heldur fyrir-
lestur í boði lagadeildar Háskóla
íslands, þriðjudaginn 6. júní
klukkan 17.15 í stofu 308 i Lög-
bergi.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og ber yfirskriftina „Criminal
Politics in a Comparative View“.
Dr. Jescheck er þekktur fræðimað-
ur og fyrirlesari víða um heim á
sviði refsiréttar og samanburðar-
lögfræði og er því mikill fengur að
því að fá hann hingað til lands.
Hann hefur ritað margar fræðibæk-
ur á sínu sviði og haft mikil áhrif
á mótun refsilöggjafar í Vestur-
Þýskalandi síðustu áratugina.
(Fréttatilkynning)
21150 -21370
LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjori
KRISTIMM SIGURJÓNSSOM, HRL. logg. fasteignas.
I sölu er að koma auk annarra eigna:
Við Rofabæ með góðum lánum
3ja herb. íb. á 3. hæð 86,4 fm nettó. Nýl. eldhúsinnr. Góð sameign.
Laus í sept. nk. Sanngjarnt verð.
Úrvalseign við Fljótsel
Endaraðhús allt eins og nýtt. 6 herb.ib. á tveimur hæðum. Á jarðhæð
má gera litla séríb. Sérbyggður góöur bílsk. Eignaskipti mögul.
3ja herb. - lausar strax
V/Vesturberg í suðurenda á 1. hæð 92 fm. Vel með farin. Sérþvottaað-
staða. Skuldlaus. Gott verð.
V/Sólvallagötu mjög góð kjíb. öll á móti suðri. Trjágarður. Gott lán.
Skammt frá Háskólanum
járklætt timburhús hæð og ris á steyptum kj. 151,4 fm nettó. Mikið
endurn. Bílskréttur. Góð lóð. Laus 1. sept. nk.
Skammt frá Heilsuverndarstöðinni
4ra herb. á 3. hæð tæpir 100 fm. Nýtt gler og póstar. Sólsvalir. Nýl.
eldhinnr. Bflsk. m/hita, rafm. og snyrtingu. Góð lán.
Með nýrri eldhúsinnr. og nýju gleri
4ra herb. mjög góð íb. við Hraunbæ tæpir 100 fm nettó. Ágæt sam-
eign. Sólsvalir. Hentar þeim sem hafa lánsloforð.
Þurfum að útvega:
Litla íbúð í Kópavogi 1-2ja herbergja.
4ra herb. íb. í lyftuhúsi m/útsýni og bflsk. Skipti mögul. á glæsil. einb-
húsi m/aukaíb. á jarðh. 1
Sérhæð miðsvæðis í borginni.
Einbýlishús á einni hæð í Árbæjarhverfi.
Lítið einbýlishús í Mosfellsbæ.
Fjöldi fjársterkra kaupenda. Margir bjóða útborgun fyrir rétta eign.
Opiftídag kl. 10-16.
Til sölu glæsilegar
3ja og 4ra herb. íb.
íbyggingu.
ALMENNA
FASTEIGHASAIAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
________________________________fetansfeil ináD
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 489. þáttur
Appolon var einna mestur
fyrir sér grískra guða, sonur
Seifs. Hann fæddist á eynni
Delos. Hún hafði fram að því
verið á reiki, en festist nú. App-
ollon hafði auknefnið Delius eft-
ir uppruna sínum. Tvíburasystir
hans var Artemis veiðigyðja og
hafði auknefnið Delia (= frá
Delos). Artemis nefndist og
Cynþia eftir Qalli einu á Delos,
og enn Diana og Phoebe.
Hjarðmær í kvæðum róm-
verska skáldsins Virgils heitir
Delia, en það nafn barst út um
heim og var gert að eiginnafni
kvenna, sem og önnur Artemis-
heiti. Þegar fram í sótti, gat
Delia breyst í Dilia.
Víkur nú sögunni til íslands.
Svo hafa sannorðir menn sagt,
að hér væri umboðsmaður á
Amarstapa 1595-601 útlending-
ur að naftii Castian Bock, talinn
enskur. Þjóðemið er þó ekki ör-
uggt, enda ætla sumir að nafnið
Castian sé ummyndun úr
Christian. Látum það vera, en
dóttur átti umboðsmaðurinn sem
Dilia hét. Því breyttu íslending-
ar með tíð og tíma í Diljá, og
er fræg sú Di|já sem Halldór
frá Laxnesi skóp í Vefaranum
mikla frá Kasmír.
Nú verða hér ekki taldar allar
Diljár á íslandi, en nafnið var
fyrst haft á íslenskum konum
vestanlands og síðan helst í
Gullbringu- og Kjósarsýslu. Það
hélst stopult, og er t.d. engin
Di(já í manntalinu 1703. í
manntalinu 1845 era greindar
Diljá Þorsteinsdóttir, 82 ára í
Engey á Kollafirði, og Diljá
Þórðardóttir í Lykkju á Kjalar-
nesi, 31 árs. Árið 1910 em Diy-
ár 6; skírðar þessu nafni árin
1921-50 einnig sex. í Þjóðskrá
1982 heita Diljá einu eða fyrra
nafni tíu konur. Skírðar 1982
fimm og 1985 þijár. Nafnið er
því í greinilegri sókn.
★
Árið 1703 hétu engir íslend-
ingar nema einu nafni, ef frá
eru skilin systkinin Axel Friðrik
Jónsson, bóndi á Hömram í
Grímsnesi, og Sessejja Kristín,
„umboðsstúlka“ í Saurbæ á
Kjalarnesi. Þau áttu danska
móður og hafa að líkindum
fæðst í Danmörku, segir próf.
Ólafur Lárusson.
Tvínefnasiðurinn barst hingað
frá Danmörku. Þangað til á 17.
öld var hann þó óþekktur þar í
landi, en er Kristján konungur
fjórði hafði skírt böm sín af
öðru hjónabandi, tíu talsins, öll
saman tveimur nöfnum, breidd-
ist siðurinn ört út í Danmörku
og síðan hjálendum hennar.
Færeyingar tóku með meiri
greiðskap við þessari nýbreytni
en íslendingar. Þó var farið að
skíra hér tveimur nöfnum eitt
og eitt barn, er leið á 18. öld,
en um 1830 má segja að það
fari að verða títt norðanlands
og austan. Á Suðúrlandi og í
Skaftafellssýslum voru menn
lengur tregir til þessarar til-
breytni.
Árið 1855 var svo komið, að
hlutfallstala tvínefndra í Ámes-,
Rangárvalla- og Skaftafellssýsl-
um var enn innan við 1%, og
síðan er hér talið nákvæmlega
eftir ritgerð Sigurðar Hansens í
1. bindi Skýrslna um landshagi
á íslandi: Vestmannaeyjar
(3.16), Gullbringu- og Kjósar-
sýsla (2.68), Reykjavíkurkaup-
staður (8.70), Borgarfjarðar-
sýsla (2.25), Mýra- og Hnappa-
dalssýsla (2.94), Snæfellsnes-
sýsla (4.37), Dalasýsla (3.59),
Barðastrandarsýsla (3.17), ísa-
Ijarðarsýsla (3.38), Stranda-
sýsla (3.39), Húnavatnssýsla
(8.96), Skagaijarðarsýsla
(7.81), Eyjaíjarðarsýsla með
Akureyri (11.97), Þingeyjar-
sýsla (9.81), Norður-Múlasýsla
(10.03) og Suður-Múlasýsla
(4.04). Var þá meðaltalið í Suð-
uramtinu 1.71, Vesturamtinu
3.48 og Norður- og austuramt-
inu 8.94.
Árið 1910 vora fleimefni
karla á öllu landinu að meðal-
tali 22,1% og kvenna 26%. Þetta
hlutfall var enn langlægst í
Skaftafells- og Rangárvallasýsl-
um, en hæst í kaupstöðunum,
allt upp í 46,3% meðal kvenna
á ísafírði.
Árin 1921-50 voru einnefnd
börn örlitlu fleiri en hin, en nú
er hlutfall tvínefndra komið
nokkuð yfir 60 af hundraði.
Þegar svo er komið, verður
sú krafa enn ríkari en nokkru
sinni fyrr, að fólk beygi skilvís-
lega bæði nöfn tvínefndra, ef
bæði nöfnin eru á annað borð
notuð. Því miður vill stundum
fara svo, vegna hirðuleysis eða
vankunnáttu, að síðara nafn
(oftar en hitt) er haft óbeygt,
og er óþolandi. Dæmi: í blaða-
grein stóð ekki fyrir löngu:
.... vpru einkunnarorð Hólm-
fríðar Ýr Gunnlaugsdóttur". Þar
átti auðvitað að standa Hólm-
fríðar Ýrar Gunnlaugsdóttur.
Ýr (kvenkyn úruxans) var í
fomu máli Ýrr, en hreint pjatt
að halda báðum r-unum til skila
á okkar dögum. Kvenmannsnaf-
nið beygist eins og Þórdís: Ýr,
um Ýri, frá Ýri, til Ýrar.
★
„Vöndun málsins sjálfs verður
að vera komin undir alúð og
kunnáttu hvers einstaks manns,
og ást þeirri sem þeir ala í bijósti
sér til móðurmáls síns, fóstur-
jarðar og þjóðemis. Það verður
að vera undir mönnum sjálfum
komið, hvort þeir vilja heldur
vera svo ambáttarlega lyndir,
að bíða í þessu átekta með allar
lagfæringar, þar til Danir skipa
þeim það eða kenna, eða þeir
vilja vera svo fijálslundaðir, að
taka það upp hjá sjálfum sér.“
(Jón Guðmundsson í 11. árg.
Nýrra félagsrita.)
★
Nikulás norðan kvað:
Heldur en sulla í mig saltblandi
þú sðtrast í neyð minni skalt, landi.
En það verður annað
(og þá skal fátt bannað)
er við lendum í Leirvík á Hjaltlandi.
•k
Auk þess legg ég til að leik-
ur, sem nefnist squash á ensku,
heiti hjá okkur eitt af þrennu:
skvass (beygist eins og hlass),
skvoss (beygist eins og hross)
eða vegg (eins og egg, hvor-
ugk.)
SEM HAFA SLEGID i GEGN
Gerið
verðsamanburð.
Hitamælir.
Gasmælir.
Seliast á meðan
birgðir endast.
KOMA EKKI AFTUR
Opid 10-19.
ARMULA 16 - SIMI: 686204 & 686337
Blá-korn og
Friðnk leika
í „Heita
pottinum“
BLÁ-kom og Friðrik Karlsson
leika í „Heita pottinum" á morg-
un, sunnudag.
Blá-kom skipa; Richard Kom
bassaleikari, Reynir Sigurðsson
víbrafónleikari og Maarten van der
Valk trommuleikari. Þeir félagar
hefla tónleikana klukkan 21.30.
Friðrik Karlsson gítarleikari
verður sérstakur gestur Blá-koms,
að þessu sinni við flutning nokkura
verka píanóleikarans og tónskálds-
ins Chick Corea. (Fréttatilkynning)
♦ ♦ ♦---
Hreinsunar-
vikaí
Hafiiarfirði
VIKUNA 4.-10. júní fer fram hin
árleera hreinsunarvika í Hafnar-
firði.
Þá gefst bæjarbúum kostur á að
hreinsa til á lóðum sínum og í næsta
nágrenni og láta Vinnuskóla Hafn-
arijarðar síðan koma og fjarlægja
ruslið. Það verður gert íbúunum að
kostnaðarlausu.
Takmarkið er hreinn bær fyrir
17. júní. Bæjarbúar era hvattir til
að taka tii hendinni og gera um-
hverfíð snyrtilegt.