Morgunblaðið - 03.06.1989, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 03.06.1989, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1989 Stjörnu- Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson Helstu þættir sem móta per- sónuleika okkar eru upplag, uppeldi og umhverfi. Sam- kvæmt stjömuspekinni eru það Qögur til fimm stjömu- merki sem skipta mestu en auk þess eru afstöður pláneta mikilvægar. Ef við búum yfir nokkrum ólíkum þáttum er algengt að við veljum þá sem eru sterkari en afiieitum minnihlutaþætti sem eigi að síður er mikilvægur. Frávarp í sálfræði er til hugtak sem heitir frávarp. Það sem átt er við með því er að við höfúm tilhneigingu til að eigna öðrum eigin hvatir og tilfinningar og þá oft það sem við viljum ekki viðurkenna eða finnst óþægi- legt í eigin fari. Matarboö Frávarpið getur verið marg- víslegt: Jón er á gangi niður í bæ og hittir þar gamlan vin sem hann hefur ekki haft sam- band við lengi. Ástæðan fyrir því er sú að þeir eiga fátt sameiginlegt lengur. Af skyldurækni ákveður Jón að bjóða gamla vini sínum í mat. Þegar dregur nær boðinu fer hann að sjá eftir því, en vill samt sem áður ekki draga það til baka eða viðurkenna með sjálfum sér að hann langi í raun ekki tíl að halda þetta matarboð. Hlutverk eiginkonunnar Gamli vinurinn kemur í heim- sókn en Jón er taugatrekktur. Þegar hann kynnir vininn fyr- ir eiginkonunni, horfir hann stíft á konuna, líkt og hann sé að leita eftir því hvort henni mislíki á einhvern hátt við gestinn. Þar spm Jón er spenntur og hálfundarlegur um kvöldið líður konunni ekk- ert sérlega vel. Jón sér þetta og dregur hana afsíðis: „Hvað er þetta, líkar þér ekki við Kalla? Af hverju getur þú ekki verið almennileg við gamlan vin minn.“ Og þau byija að rifast. Jón sleppur Það sem í raun gerist í þessu máli er að Jón notar eiginkonu sína tíl að losa sig við frekari samskipti við hinn gamla vin sinn. Það er hún sem þolir hann ekki og því getur hann ekki boðið honum framar í heimsókn. Þar með sleppur hann við að viðurkenna með sjálfum sér að hann hafi af- neitað gömlum vini, en Jóni er illa við slíkt. Saklaust frávarp Þessi saga greinir ekki frá merkilegu dæmi um frávarp. Öllu verra er þegar mikilvæg- um hluta eigin persónuleika er varpað yfir á umhverfið. Ég hef séð nokkur dæmi um menn sem hafa Tunglið í íhaldssömu merki, t.d. Stein- geit eða Krabba og Venus í fijálslyndara merki eins og Bogmanni í afstöðu við Úran- us, plánetu frelsis, sjálfstæðis og óvæntra uppákomna. Aörirsvíkja mig í slíku tiiviki vill viðkomandi öryggi og varanleika í daglegu lífi, en þráir nýjungar, spennu og frelsi í ástalífí og samskipt- um. Hann viðurkennir annan þáttinn en varpar hinum yfir á maka, annaðhvort með því að laðast ómeðvitað að óstöð- ugu fólki sem kemur þá til með að „svíkja“ hann, eða með því að tortryggja aðra og ásaka um framhjáhald eða óstöðugleika og grafa á þann hátt undan sambandi sínu við annað fólk. Það hættulega við þetta er að viðkomandi verður fórnarlamb eigin orku í stað þess að vera herra hennar. Hann lætur hana í hendur annarra og þarf því að takast á við neikvæðari og óþrosk- aðri þætti hennar, enda erfitt að þroska það í fari sínu sem ekki er viðurkennt. GARPUR ■sjAðu Petta pAr.'. XANNSICI (p£T ÉG HJ4LP- AP> GAPdi I JX, pESSj TALCN-. „AÐ/NN- S/SíA ÞA£> SEM ER OPNA£>"~ pETT// E/NA UON (JAeps.i GRETTIR 'iSPÆNSfA RANnI Ó<NAI2RÉTnNUM BRENDA STARR ^HALS/V/EN BPJENDU ETR. l' /eAUN/NAJ/ SE&UL8AND. ... ^ ÉG- -É^C pAÐ ER. i LA<5/, GZAC/ZI SUOA/A . SPAC/E. ELU/S UAR UANURAB GEPA tHCUMMUGU/M aL/ESttCENJZlJR_. - þú 0E7UR. þóALL TAP &EF/£> KRA/CRA NOAJ 3L 6ET PAE>) pAD BESJASEAi þú . ekuci Jgetur gert pypjp pue ER.AD EARA- AiEB /UK3 T &ÖNGU- TÚR I VATNSMYRINNI ^ ^ —f [COflAPO pÉC OPP ÚR. ^ 1 ''/ATWINU, ópOKKlNM PlNM', /} ffS' )) C1908 Trlbun* Madia S*rvic«». Inc. ||A ÍÍÍÍlÍÍÍHÍÍHj! ÍHHHHHi!!!!!! FERDINAND I ^—- * xSw-vSV l I - , ,rTX ^ n -j SMAFOLK A Thanksgivínq Story “Youturkey!”she cried. “Who’s a turkey ? ” “You, you turkey!” “Listentowho’s talkinq, you meat loaf! ” “ I’d rather be a meat loaf thana turkey, you turkey! ” TMAMK56IVIN6 5TORIE5 ARE HARPTOLURITE. Þakkargjördarsaga. „Þú kalkúni!" æpti hún. „Hver er kalkúni?“ „Þú, kalkúninn þinn!“ „Heyr á endemi, kjöthleifurinn þinn!“ Eg vil fremur vera Igöthleif- ur en kalkúni, kalkúninn þinn!“ Það er erfitt að skrifa Þakkagjörð- arsögmr... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Vestur spilar út laufás, en skiptir svo yfir í hjartagosa gegn flórum spöðum suðurs: Suður gefur; NS á hættu. Norður ♦ Á64 ¥ ÁD3 ♦ K82 ♦ D1064 Suður ♦ G8732 ¥K4 ♦ D10974 ♦ 8 Vestur Norður Austur 1 hjarta Dobl Pass Pass 2 grönd Pass Pass 3 spaðar Pass Pass Pass Pass Suður Pass 2 spaðar 3 tíglar 4 spaðar Heldur mikið á spilin lagt, því svo virðist sem tveir slagir tap- ist á trompi til viðbótar við lág- litaásaria. Er einhver önnur von en sú að hjónin séu blönk í trompinu? Ef austur á tvö hjörtu og þrjá spaða þá er mjög líklegt að hægt sé að blekkja hann til að kasta frá sér trompslag. Sagn- hafi drepur hjartagosann með kóng og spilar hjartanu áfram, eins og honum liggi lífíð á að losna við laufhund heima. Aust- ur á virkilega bágt með þessi spil. Norður ♦ Á64 ¥ ÁD3 ♦ K82 ♦ D1064 Vestur ♦ D9 ¥ G108752 ♦ Á ♦ ÁK73 Austur ♦ K105 ¥96 ♦ G653 ♦ G952 Suður ♦ G8732 ¥ K4 ♦ D10974 ♦ 8 Ef hann stingur þriðja hjart- að, fækkar trompslögum vamar- innar um einn. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Á Evrópumeistaramótí ungl- inga um áramótin kom þessi staða upp í skák alþjóðlegu meistaranna Adams, Englandi, og Gelfand, Sovétríkjunum, sem hafði svart og átti leik. Hvítur lék síðast 19. Rb3-d2? 19. — Rxb2! (Rústar hvítu stöð- una, því 20. Kxb2 gengur ekki vegna 20. — Ba3+! 21. Kxa3 — Dc3+ sem endar með máti) 20. Bd3 - Rxd3 21. cxd3 - Rffi 22. Re4 — Rxd5 og hvítur gafst skömmu síðar upp. Gelfand varð Evrópumeistari unglinga um ára- mótin 1987/88, en varð síðast jafn landa sínum Aleksei Dreev, sem vann á stigum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.