Morgunblaðið - 03.06.1989, Qupperneq 11
ÍSlfVSM MJGLtSIHCASTOFAN HF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1989
lúní er góður mánuður!
Sumarið verður skemmtitegt á Stöð 2. Áskrifendur stöðvarinnar
geta valið um fjölbreytt, fræðandi og skemmtilegt efni af öllum
stærðum, gerðum og lögun. Það verður hálfleiðinlegt að þurfa
sífellt að vera að hlaupa á milli húsa til að fá að kíkja á Stöð 2 í
sumar. Þeir framsýnu kaupa myndlykil - þeir sem eig’ann
sleppönum ekki. Gleðilegt sumar með Stöð 2.
Skemmtiþættir þar sem áskrifendur fá sín tækifæri til
að hafa hönd i bagga með Helga Pé og félögum.
Ekki má heldur gleyma þeim erlendu, sem eru
fjölmargir og feikna skemmtilegir; Ruglukollar,
Kæri Jón, Bjartasta vonin.
Kvikmyndir júnímánaðar eru frábærar. Nefnum
nokkrar: Lady sings the blues - þar sem Diana Ross
fer með hlutverk Billy Holiday; 40 karöt eitt
meistaraverka Katselas með Liv Ullmann í
aðalhlutverki og Fyrsta dauðasyndin með
Frank Sinatra og Faye Dunaway - já og miníserían
Hands of a stranger. Æsileg mynd.
Barnaefnið - mikill hluti þess er talsettur, þvi Stöð 2
þekkir þarfir ungra áhorfenda. Brakúta greifi, Selurinn
Snorri, Andabær, Elsku Hobo, Prekar og dýflissur,
Þrumukettir og Begga frænka.
Ferða- og bílaþættir. Lagt í 'ann eru ferðaþættir,
fjöibreyttir og fræðandi. Sigmundur Ernir og Guðjón
Arngrímsson kynna perlur náttúru og menningar
heima og heiman. Og Birgir Bragason stýrir bílaþætti
Stöðvar 2 af alkunnri snilld og þekkingu.
Framhaldsþættir eru margir: Bjargvætturinn, Fatcon
Crest, Fríða og dýrið, Santa Barbara, Bernskubrek,
Dagbók smalahunds - hollenskir þættir sem fara
sigurför um Evrópu. Spenna?
Stöð 2 sinnir vel þeim áhorfendum sem kunna að
meta spennumyndir, gæsahúð og ærfegan hroll.
Fréttir - innlendar sem eríendar fréttir ifðandi
stundar - ferskar af vettvangi.
Princess Daisy er i einu orði sagt stórfengleg
framhaldskvikmynd um magnþrungin örlög,
ótrúfegar leikfléttur lífsins - þar sem heimurinn ýmist
rís eða hrynur til grunna.
íþróttaþættir Stöðvar 2 eru löngu heimsfrægir á
íslandi enda engu gleymt i heimi þessa kappsfulla
kjarnafólks sem þar birtist. Golf, fótbolti, svif
og stökk, handbolti, sund og fimieikar.
Listinn er langur og vel gerður.
Fræðsluþættir, á borð við Dýraríkið (Wild kingdom)
eru Ifka á dagskrá okkar, einnig Framtíðarsýn,
Leyndardómar undirdjúpanna, Háskótinn fyrir þig
og Mannslíkaminn.
Tónlist - Islenskur dægurlagaþáttur, Ljáðu mér eyra,
á hverju föstudagskvöldi. Bylmingur, nýr
þungarokksþáttur á þriðjudögum. Lika Úháða rokkið.
Fimmtudagskvöldin líða með jazzþætti. Stuðmenn
koma fram i þætti sínum Listin að lifa - á 17. júní.