Morgunblaðið - 03.06.1989, Page 51

Morgunblaðið - 03.06.1989, Page 51
MORGUNBLABŒ) ÍÞROTTIR LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1989 51 ÞRIÞRAUT Ágúsl keppir íParís Agúst Þorsteinsson, ftjálsí- þróttamaður, mun keppa á alþjóðlegu móti í þríþraut í París um helgina. Þríþraut er saman- stendur af 10 km hlaupi, 1.500 m sundi og 40 km hjólreiðakeppni. Ágúst var boðið að taka þátt í mótinu þar sem hann sigraði á eina mótinu í þríþraut sem farið hefur fram á íslandi. Mótið í París er mjög sterkt og 200 bestu þríþrautarkappar Frakka mæta þar til leiks, auk 50 útlend- inga sem boðið var sérstaklega. Þríþraut á vaxandi fylgi að fagna og hefur m.a. komið til tals að keppa í þessari grein á Ólympíuleik- unum í Barcelona 1992. Fyrsta mótið hér á landi var haldið í fyrra á Akureyri og ákveðið hefur verið að halda annað mót á Akureyri 16. júh nk. íþróttir helgarinnar Knattspyma Laugardagun 1. deild lA—Víkingur...........14 1. deild Þ6r—KA................14 1. d. kv Stjaman—Þór...........14 2. deild Selfoss—ÍBV...........14 2. deild Völsungur—Stjaman.....14 2. deild Tindastóll—Einheiji...14 2. deild ÍR—Breiðablik.........14 2. deild Leiftur—Vtðir.........17 3. d. B. Huginn—Magni........14 3. d. B. Valur Rf.—Dalvík....14 4. d. A. Skotf. Rvk.—Ægir....17 4. d. A. Njarðvík—Stokkseyri.14 4. d. A. Augnablik—Ögri......14 4. d. B. Emir—Geislinn.......17 4. d. B. Fjölnir—Snæfell.....14 4. d. D. TBA-HSÞb............14 4. d. D. Efling—SM...........14 4. d. D. Hvðt-UMSEb..........14 4. d. E. Leiknir F.—Sindri...14 Sunnudagun 1. deild FH-Valur..............20 1. deild Fram—ÍBK..............20 1. d. kv ÍA-KA................14 3. d. B. Austri E.—Þróttur N.20 4. d. C. Léttir—Víkingur Ól..14 4. d. C. Árvakur—Armann.......17 Mánudagur: 1. deild KR—Fylkir..........20 3. d. A. ÍK-Bl................20 3. d. A. Grindavík—Leiknir R..20 3. d. A. Hveragerði—Víkveiji..20 3. d. A. Þróttur R.—Grótta....20 3. d. A. Aftureld.—Reynir S...20 Golf Stigamót verður hjá Golfklúbbi Reykjavtkur í dag og morgun. Keppt verður t meistaraflokki karla og kvenna og unglingaflokki (forgjöf 12 og lægra). Leiknar verða 36 holur. Keppni hefst í dag kl. 8 og á morgun kl. 10. Golfklúbbur Selfoss verður með opið punktamót t dag. Golfklúbbur Suðumesja verður með opið unglingamót t Leirunni á morgun. Keppni hefst kl. 10. Læknamótið í golfi verður haldið á Hvaleyrarvelli á mánudaginn kl. 15. Landsamtök eldri kylfína efiia til móts 1 dag á Hólmsvelli 1 Leim. Keppni hefst kl. 9. Frjðlsar íþróttir Fyrsti hluti meistaramóts íslands fer fram á Valbjamarvelli í dag og á morg- un. Keppnin hefst báða dagan kl. 10.00 og veður m.a. keppt i tugþraut karla og sjöþraut kvenna. Kappamót öldunga verður haldið t dag á Valbjamarvelli. Keppt er t öllum flokkum, karlar 35 ára og eldri og kon- ur 30 ára og eldri. Keppni hefst kl. 10 og hægt er að skrá sig á staðnum. íþróttir fatlaðra Norðuriandamót fatlaðra t sundi hófst ( Vestmannaeyjum t gær. Alls taka 80 sundmenn þátt í mótinu, þar af 20 frá íslandi. Mótið heldur áfram i dag frá kl. 10-12 og 15-18. Á morgun hefst keppni kl. 10 ogstendurtil kl. 14. Keppt er I sundlauginni ! Vestmannaeyjum. Fimleikar Vorsýning Gerplu verður haldin á morgun t iþróttahúsinu í Digranesi kl. 14. Leikmönnum fagnað við heimkomuna Islenska landsliðið í knattspymu, sem gerði jafntefli 1:1 við Sovétríkin, kom heim frá Moskvu í gær. Ellert B. Schram, formaður KSI og Gylfi Þórðarson, formaður landsliðsnefndar KSÍ, tóku á móti leikmönnum í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Ellert hélt þar stutta ræðu og þakkaði leikmönnum fyrir góða frammistöðu í Moskvu. Hann færði fyrirliðanum, Atla Eðvaldssyni, síðan tvo blómvendi, annan frá KSÍ og hinn frá Svavari Gestssyni, menntamálaráðherra. BADMINTON / HM Frost og Aiping úr leik Broddi og Þórdís töpuðu í 3. umferð DANiNN Morten Frost tapaði fyrir Ardy Wiranata frá Indo- nesíu i'4. umferð íeinliðaleik karla á heimsmeistaramótinu í badminton sem nú stendur yfir í Jakarta ílndónsfu. Heims- meistarinn í kvennaflokki, Han Aiping frá Kína, féll einnig út í sömu umferð. órdís Edwald og Broddi Kristj- ánsson komust í þriðju umferð í tvenndarleik. Þar töpuðu þau fyr- ir kínversku pari, 5:15 og 4:15 og höfnuðu í 17. til 32. sæti af 123 liðum. Morten Frost, sem fjórum sinn- um hefur unnið opna breska meist- aramótið, náði sér ekki á strik gegn hinum unga og efnilega Ardy Wir- anata frá Indoneslíu sem varð heimsmeitari unglinga 1987. Wir- anata vann Frost, 15:11 og 15:2 og er kominn í undanúrslit ásamt löndum sínum Icuk Sjgiarto, Eddy Kumiawan og Hermawan Susanto. „Ég var ny'ög slök í þessum leik og er nú að hugsa alvarlega um að hætta að keppa," sagði Han Aiping frá Kína eftir að hún tapaði fyrir Eline Coene frá Hollandi, 11:2, 1:11 og 11:8. Aiping, sem er 27 ára, hefur tvívegis orðið heims- meistari í einliða leik kvenna, 1985 og 1987. KNATTSPYRNA Hafþór lagði upp sexmörk - ogskoraðiþaö sjöunda sjálfur Hafþór Kolbeinsson átti þátt í öllum sjö mörkum KS- inga gegn Kormáki ( B-riðli 3. deildar á Siglufirði í gærkvöldi. Staðan í leikhléi var 4:0 og yfir- burðir heimanna miklir eins og tölumar gefa til kynna. „Þetta hefði alveg eins getað endað með tveggja stafa tölu. Leikur- inn fór allur fram á vallarhelm- ingi þeirra,“ sagði Mark Duffi- eld sem skoraði þrennu fyrir KS. Óli Agnarsson settu tvö og Hlynur Eiríksson og Hafþór Kolbeinsson eitt mark hvor. Tveir leikir fóru fram í 4. deild í gærkvöldi. í C-riðli sigr- aði Skallagrímur Hafnir, 2:3, í Keflavík og Æskan sigraði Neista, 0:3, í D-riðli á Hofsósi. SNOKER / HM UNGLINGA Atli Már stal senunni - vann einn efnilegasta snókerspilara Englands Mm FOLK ■ CORA Barker, landsliðskona í körfuknattleik úr KR, er á leið til Bandaríkjanna þar sem hún hyggst setjast að. Cora hefur einn- ig leikið knattspymu með Val með rum árangri. GUÐNI Bergsson, sem leikur með Tottenham, kom með íslenska landsliðinu til landsins í gær. Hann ætlar að æfa með gömlu félögum sínum í Val fram að landsleiknum við Austurriki 14. júní. ■ TÉKKAR hafa sótt í sig veð- * rið á sviði borðtennisíþróttarinnar. Karlalandslið þeirra sló heimsmeist- arana frá Svíþjóð út af laginu í undanúrslitum heimsmeistara- keppninnar sem fram fór í Japan. Síðan gerði liðið sér lítið fyrir í gær og sigraði lið Japana 3:1. Tomas Janci sigraði Kiyoshi Saito 15:21, 21:18 og 21:16. í undanúrslitunum höfðu Japanir sigrað Kínveija 3:0. Kínveijar urðu hins vegar heims- meistarar í kvennaflokki eftir 3:0 sigur á Suður-Kóreu. ■ GEORG Kessler fyrrverandi þjálfara Antwerpen var boðin staða þjálfara hjá Fayenoord og boðinn alveg sérstaklega hagstæð- ur samningur. Kessler, sem orðinn er 57 ára gamall sagði hins vegar „nei takk“. Hann tók við liði Ant- werpen þegar það vermdi botnsæti deildarinnar og náði að tryggja því UEFA-sæti áður en yfir lauk. ■ PETER Shilton, hinn 39 ára gamli markvörður Englands, spilar sinn 108. landsleik í dag gegn Pól- verjum og þar með nær hann að jafna met Bobby Moore, landsliðs- fyrirliðans, sem leiddi sína menn til sigurs í heimsmeistarakeppninni árið 1966. Shilton lék sinn fyrsta' landsleik árið 1969 og er allt útlit fyrir að hann muni taka þátt í sinni fjórðu heimsmeistarakeppni á ft- alíu næsta sumar. GETRAUNIR Lokað kl. 13.25 Idag, laugardag, Iokar fyrir sölu getrauna kl. 13.25. Það er vegna þess að leikimir í Vestur-Þýska- landi hefjast kl. 13.30. Sjö tipparar höfðu 12 leiki rétta í síðustu viku og fékk hver um sig 34.457 kr. sem þykir ekki mikið í fyrsta vinning. Ástæðan er sú að lokunartími á sölu var á föstudags- kvöld og virðist það ekki henta íslenskum tippurum. ATLI Már Bjarnason stóð sig frábærlega á heimsmeistara- móti unglinga í snóker í gær, en mótið fer fram í íþróttahús- inu í Haf narfirði. Atli sigraði einn besta ungling Englend- inga og hefur því unnið tvo fyrstu leiki sína í keppninni. Keppt er í fjórum riðlum og era 10 unglingar í hveijum og leika allir við alla. Fjórir efstu menn í hveijum riðli komast síðan í 16- manna úrslit sem fram fara í næstu viku. Atli Már hefur stolið senunni, í fyrrakvöld lagði hann Preilly frá Astralíu 4:3 og í gærkvöldi gerði hann enn betur með því að vinna Lee Grant frá Englandi, 4:2. Grant er eitt mesta efni Englendinga og vora bundnar við hann miklar von- ir. Hann hefur yfir 500 sinnum náð meira 100 í einu stuði og hæst hefur hann komist í 147, sem verð- ur að teljast mjög gott. Önnur úrslit í gær urðu þessi: A-riðill: P. Erdon, Engl.—Gunnar Örn Hreiðarsson ..4:1 J. Bagiey, Engl.—Wim Andries, Belgtu.4:1 S.A. Atta, Egypt.—Kristján Þ. Tómasson ...4:3 S. Lynskey, Engl.—Ragnar Ómarsson 4:0 B-riðill: Atli Már Bjarnason —Lee Grant, Engl..4:2 D. Kristianson, Belg,—Gunnar A. Ingason ..4:0 Morgunblaðið/Ámi Sæberg Atll Már Bjarnason Garry Hill, Engl.—PeterCines, Engl...1:4 Jóhannes Jóhannesson—Gunnar A. Ingason4:l C-riðffl: B.S. Karin, Frakkl.—Guðjón H. Gunnarsson4:0 Amar Ríkharðsson—Fjölnir Þorkelsson 4:2 D-riðiIl: J. Ferguson, Engl.— Van der Linden, Belg. .4:3 J. Reed, Engl.—Charles Brawn, Kanada 4:0 Keppnin heldur áfram í dag og á morgun kl. 10.00 og stendur langt fram á kvöld. Spilað er á sjö borðum samtímis. .ekkj Laugardagur kl. 13:25 22. LEIKVIKA- 3. júní 1989 1 X 12! Leikur 1 Akranes - Víkingur ',c* Leikur 2 F.H. - Valur1d Leikur 3 Fram - Keflavík1 d Leikur 4 Selfoss - Í.B.V. Leikur 5 Völsunqur - StiarnanZ d Leikur 6 Tindastóll - EinherjiZd Leikur 7 Í.R. - BreiðabiikZd Leikur 8 Leiftur - Víðirzd Leikur 9 W. Bremen - Frankfurt Leikur 10 B.Leverkusen - Stuttgart LeikurH Bayern M. - Uerdingen Leikur 12 H.S.V. - Kaiserslautern Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og ^-84464. Ath. breyttan lokunartíma ! GETRAUNIR í ALLT SUMAR !

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.