Morgunblaðið - 12.07.1989, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.07.1989, Blaðsíða 3
3 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JIJLÍ 1989 Ummæli þýska sjávarútvegsráðherrans: Askorun til okkar um að gera betur - segir Kristján Ragnarsson hjá LÍÚ Sjavarutvegsraðherra Vestur-Þýskalands lét þess getið meðan á heimsókn hans hingað til lands stóð, að íslendingar þyrftu að huga að gæðum þeirra fersku flaka sem þeir flyttu út til V-Þýskalands. Krislján Ragnarsson formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna sagði í samtali við Morgunblaðið að útvegsmenn tækju áminn- mgu ráðherrans sem áskorun um Kristján tók skýrt fram, að ráð- herrann hafi eingöngu átt við fersk flök með orðum sínum, og ekki frystar afurðir. Hann sagði að nokkuð hefði borið á að fersk flök léleg að gæðum hefðu borist á markaði í Cuxhafen og Bremer- hafen, og hefði þessi fiskur í raun virkað sem undirboð á mörkuðun- um. Einnig hefði ríkt mikill óáreið- að gera betur. anleiki í afhendingu þessara flaka, og hefðu þýsku sendimennirnir lýst yfir óánægju áinni með þennan út- flutning, jafnvel þó um lítið magn hafi verið að ræða. Kristján sagði ennfremur, að LÍÚ hefði haft áhyggjur af þessum flökum, og fundist óeðlilegt gegn hversu lágu verði þessi fiskur hefði verið seldur á þýskum fiskmörkuðum. Sorphreinsun í Reykjavík: 5.000 nýjar sorp- tunnur á þessu ári BORGARRÁÐ hefur samþykkt að taka tilboði Flutningatækni sf. í sorptunnur fyrir borgarbúa. Flutningatækni sf. mun flytja inn 5.000 plasttunnur frá Vestur-Þýskalandi á þessu ári. Að sögn Pét- urs Hannessonar, deildarstjóra hjá hreinsunardeildinni, uppfyllir plastið í sorptunnunum sem Flutningatækni flytur inn kröfur Bruna- málastofiiunar um eldþol sorptunna. sorptunnur borgarbúa verði úr plasti innan fárra ára. Kókaínmálið; Einn fangi enn í gæzlu- varðhaldi Hinum sleppt fyrir skömmu EINN fangi er nú eftir i Siðu- múlafangelsinu af þeim, sem voru í gæzluvarðhaldi vegna rannsóknar umfangsmikils kóka- ínsmáls. Hinum tveimur, sem sátu inni, var sleppt 31. júní og 5. júlí. Gæzluvarðhaldsvist fangans rennur út klukkan þrjú í dag, en þess hefur verið krafizt að varð- haldið verði framlengt til 1. ágúst. Sakadómur í ávana- og fíkniefna- málum fellir væntanlega úrskurð í dag. Að sögn Arnars Jenssonar, yfir- manns fíkniefnadeildar lögreglunn- ar, er rannsókn málsins langt kom- in, en þó er enn í mörg horn að líta. Rúllubaggaheyskapur; Gerlar í heyi eru taldir hafa valdið milljónatjóni í ostagerð TALIÐ er að gerlar í heyi frá bæjum, þar sem rúllubaggaheyskap- ur er viðhafður, hafí valdið milljónatjóni á ostum síðastliðinn vet- ur, en að sögn Ólafs Oddgeirssonar, forstöðumanns Rannsóknar- stofu mjólkuriðnaðarins, þurfti þá að fleygja miklii magni af ostum í mjólkurbúum. Heyi sem unnið er með þessari aðferð er pakkað í loftþéttar plastumbúðir og sparar það bændum mikinn tíma við gerð var hér á landi síðastliðið haust á mjólk frá bæjum þar sem þessi heyvinnsluaðferð var notuð bent til þess. Júlíus sagði að um 70% af mjólk hjá Mjólkursamlagi KEA væru notuð í ostagerð, og fyrirhugað væri að rannsaka heyið sjálft í haust og næsta vetur á svæði mjólkursamlagsins. Þá yrði leitað sérstaklega eftir þessum til- teknu gerlum, sem hann sagði vera helstu skaðvalda í ostagerð. Morgunblaöið/Lárus Karl 1.000 rúmmetrar afsteypu í Bústaðavegsbrúna LOKIÐ hefur verið við að steypa brúna á Bústaða- vegi við Miklatorg og fóru um 1.000 rúmmetrar í brúargólfið. Steypa úr 200 bílum fór í brúna eða jafn mikið og í 20 einbýlishús. Að sögn Inga Ú. Magnússonar, gatnamálastjóra, hefur ekki verið steypt jafn mikið í einu lagi síðan sundlaugin í Laug- ardal var byggð. Það fóru 200 tonn af járni í brúna og kaplar, sem spenna hana, vega 40 tonn. Hæð undir þrúargólf er lægst tæpir fimm metrar og burð- argeta hennar er 420 tonn. Brúin er 25 m breið, þar af er gangstétt 3,5 m meðfram götunni öðrum megin en 1,5 m hinum megin. Brúin verður vígð 18. ágúst, á afmæli Reykjavíkur, en á næstu dögum verður ráðist í að malbika Bústaðaveginn að brúnni og áfram að gatnamótunum sem koma eiga í stað Miklatorgs. Sagði gatnamálastjóri að framkvæmdum við nýju gatnamótin yrði lokið og þau opnuð allri umferð 15. september næstkomandi. Pétur Hannesson sagði í sam- tali við Morgunblaðið að tilboð Flutningatækni sf. í sorptunnurnar hafi ekki verið hið lægsta sem barst en hefði hins vegar verið það lægsta sem uppfyllti skilyrði Brunamálastofnunar um eldþol sorptunna. Að sögn Péturs hefur verið mik- il eftirspurn eftir plasttunnum í borginni en hreinsunardeildin er hætt að dreifa stáltunnum undir sorp. Um 40 þúsund sorptunnur eru í Reykjavík, þar af 20 þúsund úr plasti. Stefnt er að því að allar heyverkun. Að sögn Ólafs er um að ræða sporamyndandi og hitaþolnar jarð- vegsbakteríur, sem ekki koma fram við venjulega flokkun á mjólk í afurðastöðvunum. Gerlarnir myndist í rúlluböggunum, og þá helst ef heyið er of blautt þegar það er baggað. „Gerlarnir myndast í súrefnissnauðu umhverfi, og þeir valda því að gas myndast í ostinum þegar hann er búinn að geijast í ákveðinn tíma í geymslu, og mynd- ast þá sprungur í honum þannig að hann skemmist. Af þessum sök- um þurfti að fleygja miklu af osti i mjólkurbúum síðastliðinn vetur, og skiptir tjónið nokkuð mörgum milljónum króna. Þetta var meira áberandi í vetur heldur en í annan tíma, en þessari heyvinnsluaðferð hefur verið rúllað yfir landbúnað- inn af meira kappi en forsjá undan- farið, og menn hafa ekki hugsað út í afleiðingarnar. Afurðastöðv- arnar verða að öllu leyti að bera tjónið sem af þessu hlýst, en mjólk- in frá bændum er eingöngu flokkuð eftir heildargerlafjölda. Þessir gerlar koma ekki fram við þá flokkun, og því teljum við ráðlegt að breyta gildandi flokkunarregi- um fyrir mjólk. Rannsóknarstofa mjólkuriðnaðarins hefur leitað eftir framlagi til Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði til rannsókna á þessu tiltekna máli, en það var hins vegar ekki talið þess virði að eyða í það miklum peningum." Júlíus Kristjánsson, mjólkur- fræðingur hjá Mjólkursamlagi KEA, sagði að athuganir erlendis hefðu leitt í ljós að mun meira væri um umrædda gerla i heyi þar sem rúlluböggun væri viðhöfð, og einnig hefði frumathugun sem Aukin heimahjúkrun get- ur hafist með haustinu Tryggingastofnun ríkisins hefur gert samkomulag við Félag háskóla- menntaðra hjúkrunarfi-æðinga og Hjúkrunarfélag íslands um fram- kvæmd lagaákvæðis frá 1986 um heimahjúkrun umfram þá sem heilsu- gæslustöðvar sjá um. Kristján Guðjónsson deildarstjóri sjúkrati-ygg- ingadeildar Tryggingastofnunarinnar sagði að Tryggingaráð hefði stað- fest samkomulagið fyrir hönd sinnar stofiiunar, en hjúkrunarfræðinga- félögin tvö ættu eftir að bera það undir atkvæði. Eftir fund með forráða- mönnum þeirra félaga í vikunni taldi hann að hin nýja heimahjúkrun gæti trúlega hafist með haustinu. Kristján sagði enn fremur, að far- ið yrði varlega í sakirnar þar sem hér væri farið út á nýja braut sem væri heimahjúkrun til handa þeim sem ættu við 'alvarleg eða langvar- andi veikindi að, stríða eða hefðu orðið fyrir slysum. Fyrst um sinn myndu tíu hjúkrunarfræðingar starfa við nokkurs konar miðstöð sem yrði stofnsett, og myndu; læknar vísa á þjónustuna, en hjúkrunar- fræðingarnir síðan meta þörfina hjá hverjum sjúklingi. Trúnaðarlæknir Tryggingastofnunarinnar myndi síðan meta í hvaða greiðsluflokk af þremur mögulegum hvert tilfelli færi og síðan yrði greitt samkvæmt gjald- skrá einu sinni í mánuði. „Ef ekki reynist forsenda fyrir þessari þjónustu, þá er í lögunum ákvæði um að endurskoða þau eftir sex mánuði," sagði Kristján Guðjóns- son. -j j,-j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.