Morgunblaðið - 12.07.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1989
5
Jökull kaup-
ir eikarbát
Jökull hf. á Raufarhöfii hefiir
keypt 36 tonna eikarbát frá
Reykjavík, Jóhönnu Magnús-
dóttur RE 70. Afhending báts-
ins fer fram um mánaðarmótin
ágúst/september, en óvíst er
hvort báturinn verður gerður
út frá Raufarhöfii. Að sögn
Hólmsteins Björnssonar, fram-
kvæmdastjóra Jökuls hf., er fyr-
irtækið með kaupunum fyrst
og fremst að tryggja sér aukinn
kvóta. Bátnum fylgir 300 tonna.
þorskkvóti.
Jökull hf. hefur undanfarin ár
gert Rauðanúp ÞH út frá Raufar-
höfn, en hann er 460 tonna ísfisk-
togari. Hann stundar nú veiðar á
sóknarmarki, en gróflega má
áætla að aflamark hans nemi um
það bil 2.000 tonna kvóta, að sögn
Hólmsteins.
Jóhanna Magnúsdóttir RE var
smíðuð Kjá Landsmiðjunni í
Reykjavík fyrir 33 árum, en end-
urnýjun hefur verið allmikil á hon-
um síðan þá. Fyrri eigandi bátsins
var Gísli Guðmundsson.
INNLENT
FARKORT
FERÐASKRIFSTOFAN URVAL
- fólk sem kann sitt fag!
Pósthússtrœli 13 - Sími 26900.
FLUGLEIÐIR
Morgunblaðið/Jóhann F. Guðmundsson
Matartími í Grímsnesi
Þessir þrastarungar, sem kúrðu í hreiðri í Grímsnesinu, biðu
óþreyjufullir eftir einhveiju í gogginn, þegar ljósmyndarann bar
að. Þeir hafa því líklegast orðið fyrir vonbrigðum, þegar aðeins
var smellt af þeim mynd, en vonandi hafa þeir fengið góðan bita
síðar.
SUUARHUSIÞ YSKAIANDI
DAUN £m/BIERSDORF
\LAHNSWN
x að býður enginn betri möguleika til gistingar í Þýskalandi
en Ferðaskrifstofan Úrval, hvort sem flogið er til Frankfurt eða Luxembourg.
Liggi leiðin til Frankfurt, þá gefst farþegum okkar kostur á þægilegum íbúðum
í Ferienpark Rhein-Lahn í bænum Lahnstein, sem er í um 120 km fjarlægð frá
miðborg Frankfurt og eyða 1 -2 vikum við góðar aðstæður í Lahnstein og fara í
skoðunarferðir um Rínardalinn og önnur fögur héruð Þýskalands.
Langflestir þeirra sem fara um Luxembourg þekkja Daun Eifel og Biersdorf.
Engin önnur sumarhúsasvæði í Þýskalandi hafa náð öðrum eins vinsældum hjá
landanum. Úrval býður upp á dvöl á þessum svæðum í samvinnu við hótel- og
sumarhúsafyrirtækið DORINT, en þar er allt til þess að fríið heppnist fullkomlega,
fallegt umhverfi, glæsileg aðstaða og góð stemmning.
Farastjóri Úrvals tekur á móti öllum farþegum, sem þar ætla að dvelja,
aðstoðar þá við að fá bílaleigubílinn afhentan og leiðbeinir við val á akstursleið
til Daun Eifel og Biersdorf. Til Daun Eifel er um 1 V2 klst. aksturfrá Luxembourg
og 1 klst. til Biersdorf.
í tengslum við ferðir til Frankfurt og Luxembourg er einnig völ góðra hótela
íbáðumborgunum.
Frankfurt — flug og bíll: Verð frá kr. 24.338,- á mann
(Verð miðað við 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára í bíl í c flokki í 1 viku)
íbúð íviku/Rhein-Lahn: Verð frá kr. 14.100,- (2farþegar)
Luxembourg - flug og bíll: Verð frá kr. 20.793
(Verð miðað við 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára í bíl í B flokki í 1 viku)
íbúð í viku/Daun Eifel: Verð frá kr. 17.800,- (2 farþegar). íbúð í viku/Biersdorf: Verð frá kr. 23.800,
Öll verð eru miðuð við staðgreiðslu.
(2-4 farþegar)
Neytendasamtökin;
Ferðalangar hvattir til
að gera verðsamanburð
NEYTENDASAMTÖKIN fara
þess nú á leit við þá Islendinga
sem eru á forum til útlanda, að
þeir kanni verð á ýmsum algeng-
um neysluvörum þar og beri sam-
an við verð á sambærilegum vör-
um hér á landi. Jóhannes Gunnars-
son, formaður Neytendasamta-
kanna, segir að samtökin telji verð
á nauðsynjavöru alltof hátt hér
og með þessu séu samtökin að
fara þess á leit við neytendur, að
þeir aðstoði samtökin við að lækka
vöruverð.
Á ferðaskrifstofum, söluskrifstof-
um Flugleiða og Arnarflugs og í flug-
stöð Leifs Eiríkssonar, eru til dreif-
ingar miðar frá samtökunum, þar
sem gefið er upp verð á nokkrum
vörum hér á landi. Þar eru síðan
auðir reitir, þar sem fólk getur skrif-
að verð varanna erlendis. Þessar
vörutegundir eru: Mjólk, smjör, ost-
ur, kjúklingar, egg, svínakótilettur,
kartöflur, heilhveitibrauð, appelsínu-
safi, kóka kóla og bjór. Samtökin
óska svo eftir því að fólk sendi þeim
miðana þegar það kemur aftur til
landsins og er hægt að setja þá ófr-
ímerkta í póst.
Á blaðamannafundi sem samtökin
efndu til vegna þessa máls voru einn-
ig kynntar niðurstöður verðsaman-
burðar milli stórmarkaðarins Storkob
í 0rbæk í Danmörku og fjögurra
stórmarkaða á höfuðborgarsvæðinu.
Kom þar meðal annars í ljós að
munurinn á verði algengra neyslu-
Þjónustubygging við Fjölbrautaskóla Vesturlands:
Næst lægsta tilboðinu tekið
Framkvæmdanefiid um byggingu
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi hefúr tekið tilboði Tré-
verks sf. vegna þjónustubygging-
ar við skólann. Tréverk sf. átti
næst lægsta boðið, 39.947.000
krónur.
Alls bárust fjögur tilboð í verkið,
öll frá heimaaðilum á Akranesi.
Lægsta tilboðið átti Trésmiðja Guð-
mundar Magnússonar, 38.530 þús-
und. Því næst kom tilboð Tréverks.
Tilboð frá Trésmiðjunni Jaðri hf.
hljóðaði upp á 41.431 þúsund kr. og
hæsta tilboðið kom frá Arnarfelli
sf., 43.082 þúsund krónur.
Þrír aðilar sitja í framkvæmda-
nefnd, en aðeins tveir nefndarmanna,
þeir Ingólfur Hrólfsson formaður og
Sigurður Guðni Sigurðsson, vildu
taka tilboði Tréverks. Sá þriðji, Óli
Jón Gunnarsson, vildi taka lægsta
tilboðinu. Sigurður sagði í samtali
við Morgunblaðið að framkvæmda-
nefndin hefði áskilið sér rétt til að
taka hvaða tilboði sem væri og að
margathuguðu máli hefði meirihluti
nefndarinnar viljað taka tilboði Tré-
verks.
Þjónustubygginginni er ætlað að
hýsa mötuneyti, skrifstofur, kenn-
arastofur. Auk þess verður tengi-
bygging yfir í eldri hluta skólans.
Verktaka er ætlað að skila verkinu
þann 1. júní á næsta ári, uppsteyptu,
frágengnu að utan og með gleri í
gluggum. Gert er ráð fyrir að taka
búsið í notkun haustið 1991.
vara eins og til dæmis kjúklinga var
allt upp í 439%. Mikill munur var á
verði á pylsum, 85 til 209%, munur-
inn á verði grænna bauna og gulróta
var 319 til 386%, bacon var 145 til
252% dýrara hér en í 0rbæk,
smjörlíki 133 til 167% dýrara, svepp-
ir 171 til 272% og svínarif 'voru 94
til 101% dýrari.
Telja talsmenn neytendasamtak-
anna að þessi samanburður gefi til
kynna mikinn verðmun á nauðsynja-
vörum hér á landi og í nágrannalönd-
unum, jafnvel þótt um tilboðsverð
hafi verið að ræða [ dönsku verslun-
inni, enda sé verðlag hærra í Dan-
mörku en í mörgum öðrum löndum,
svo sem Hollandi og Þýskalandi.