Morgunblaðið - 12.07.1989, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 12.07.1989, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1989 Eru þeir að fá 'ann ■ Leiðrétting í FRÉTT um andlát Ólafs M. Ólafs- sonar, fyrrverandi menntaskóla- kennara, sem birtist í biaðinu í gær, misritaðist nafn konu hans. Hún heitir Anna Christiane Hansen. Þá láðist að geta sonar þeirra, Ól- afs Magnúsar. Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. Búháttabreytmgar á Fljótsdalshéraði: Úr sauðflárrækt í nytja- skógrækt á 25 árum Kostnaður á þess Geitagerði. AÐALFUNDUR Félags skógar- bænda é Fljótsdalshéraði var haldinn mánudaginn 12. júní sl. Hátt í 100 manns sótti fundinn en í félaginu eru skráðir um 60 félagar og undirstrikar það hinn mikla áhuga sem hér virðist vera fyrir skógræktinni. Þá var mætt- ur á fundinn skógræktarsljóri, Sigurður Blöndal. Fyrsta sljórn félagsins sem var kjörin á stoíii- fundinum fyrir ári var öll endur-. kjörin en í henni eiga sæti Edda Björnsdóttir, Miðhúsum, formað- ur, Bragi Gunnlaugsson, Set- bergi, Guttormur V. Þormar, Geitagerði, Magnús Sigurðsson, Ulfsstöðum, og Víkingur Gísla- son, Fellabæ. Auk venjulegra aðalfundarstarfa kynnti svokölluð verkefnisstjórn til- lögur sínar i skógræktarmálum, sem samþykktar hafa verið í ríkis- stjórn. Verkefnisstjórnin er þannig skipuð: Edda Bjömsdóttir, formað- ur, frá Félagi skógarbænda á Fljótsdalshéraði, Álfhildur Ólafs- dóttir, aðstoðarmaður landbúnaðar- ráðherra, Páll Sigbjörnsson frá Búnaðarsambandi Austurlands, Kristófer Óliversson frá Byggða- stofnun og Jón Loftsson skógar- vörður á Hallormsstað. Tillögur verkefnisstjórnar eru eftirfarandi: 1. Héraðsskógar verði sjálfstætt verkefni með þriggja manna stjórn, sem skipuð verði frá landbúnaðar- ráðuneyti, Skógrækt ríkisins og ,skógarbændum og ráði hún verk- efnisstjóra. Á þeim jörðum, þar sem skógrækt verður búgrein, verði kostnaður við skógrækt greiddur að fullu skv. sérstöku mati. Á öðmm jörðum verði allt að 90% kostnaðar greidd. 2. Verkefnisstjóri hafi umsjón með ráðningu fólks til verkefnisins og þeir sem leggja jarðir sínar til skógræktar hafi forgang að vinnu á þeim. Til annarrar vinnu hafi for- gang þeir bændur, sem hafa lagt af sauðfjárbúskap. 3. Skógrækt ríkisins sjái um námskeiðahald fyrir það fólk, sem vinna á við verkefnið, svo tryggt verði, að starfsmenn hafi undir- stöðuþekkingu í skógrækt. Athug- aðir verði möguleikar á að koma á ári 15 milljónir fót skógræktarbraut við Mennta- skólann á Egilsstöðum. Sumarið 1989: 4. Verkéfnisstjóri ráðinn. Kostn- aður 750 þúsund krónur. 5. Lokið verði gerð grunnkorta og gróðurkorta. Kostnaður við að ljúka gerð grunnkorta er áætlaður 3 m.kr. sem reiknað er með að greiðist af ýmsum samstarfsaðilum. Kostnaður við gróðurkort er áætl- aður 2 m.kr. 6. Hafin gerð ræktunaráætlunar fyrir einstakar jarðir og svæðið í heild. Kostnaður greiddur af Skóg- rækt ríkisins. 7. Byggt gróðurhús og plöntu- framleiðsla hafin. Athugaðir verði möguleikar á stofnun hlutafélags þar um. Kostnaður (lán eða hluta- fé) 1.750.000 krónur. 8. Vinna við grisjun heijist í haust, sem gæti haft mikil áhrif á trú bænda á verkefnið og minnkað hættu á að sauðijárbúskapur verði tekinn upp að nýju. Kostnaður: 6 milljónir (40 mannmánuðir með tækjabúnaði). 9. Flutningur aðalstöðva Skóg- ræktar ríkisins í Egilsstaði hefjist. Kostnaður: 1.500.000 krónur. Samtals er kostnaður á þessu ári því áætlaður 15 milljónir. Þá kynnti Bragi Gunnlaugsson tillögur í 9 liðum að samningum við bændur á Fljótsdalshéraði um búháttabreytingu (byltingu) úr sauðfjárrækt í nytjaskógrækt. Þar er meðal annars lagt til að samn- ingstímabilið verði 25 ár. Að grund- völlur búháttabreytingarinnar verði skiptiréttur jarða úr sauðijárrétti í nytjaskógarrétt, það er að árleg framlög til jarða til nytjaskógrækt- ar miðist við skiptan framleiðslurétt (fullvirðisrétt) úr sauðfé í nytja- skógarrétt á byggðum jörðum, þ.e. sauðfjárærgildi verði skógarær- gildi, einnig að óbyggðum jörðum, sem hafa engan fullvirðisrétt í sauð- fé, verði veittur nytjaskógarréttur að ákveðnu marki. Segja má að næsta skrefið í þess- um málum séu einmitt samninga- gerðir. Þá hefur að sjálfsögðu mik- ið verið rætt um plöntuuppeldisstöð, bæði innan stjórnar og á aðalfund- inum en ný og afkastamikil uppeld- isstöð er forsenda þess að þessi umfangsmiklu skógræktaráform verði að veruieika. Rætt var um stöð, sem framleiddi 2,5 til 3 millj- ónir plantna. Aðaltijátegund mun verða lerki enda góð reynsla af því á þessum slóðum. Ösp og vissar grenitijátegundir koma líka til greina. Þess má geta að hreppsnefnd Fellahrepps hefur boðið Félagi skógarbænda á Héraði samkomu- staðinn Rauðalæk fyrir plöntuupp- eldisstöð leigulaust í a.m.k. 20 ár. Engin ákvörðun hefur verið tekin í því máli. Jafnframt hefur verið sam- þykkt í þeirri sveit að friða allt land „neðan vegar“ hreppamarka á milli, það er að segja milli þjóðvegar og Lagarfljóts. - G.V.Þ. Leiðrétting í grein s.l. laugardag um gerð jólamyndar sjónvarpsins, Stein- barns, var rangt farið með nafn eins leikaranna. Sigurþór Albert Heimisson var í greininni ranglega nefndur Sigurþór Heimir Alberts- son. Hlutaðeigandi er beðinn vel- virðingar á þessu. leigutakinn Bolli Kristinsson tók hann sjálfur, 19 punda fisk. Borg-arQörðurinn misjafii. Grímsá hefur verið nokkuð lífleg, einkum frá Laxfossi og nið- urúr. Þokkalegar göngur hafa skilað sér í ána í júlí. Sama má segja um Þverá/Kjarrá sem hefur verið í mikilli sókn og fréttir af góðri veiði á vatnamótum hennar og Hvítár síðustu daga gefa góð fyrirheit um framhaldið. Síðustu fregnir hermdu að nærri 600 lax- ar væru komnir á land, allt að 20 punda og var skiptingin milli árhlutanna, Þverár og Kjarrár nokkuð jöfn. Daufust er Norðurá, en um 380 til 390 laxar. munu komnir úr henni. Þar hafa engar kröftugar göngur verið, heldur hefur verið að reytast lax í ána og mikið af honum tekið jafn óð- Laxi Iandað í Lambaklettsfljóti í um. Þá hefur ’áin nær allt veið- itímabilið verið afar mikil og köld og naumast hægt að tala um sum- arvatn í henni jafnvel fram á þennan dag. Fylgiá Norðurár, Gljúfurá, hefur einnig verið slök, fyrir fáum dögum höfðu einungis 6 laxar komið þar á land, megnið af þeim veiddir í ósnum, lygnum og djúpum hyl rétt fyrir ofan ár- mót ánna tveggja. Fyrir norðan....... Víðidalsá hefur gefið tæplega 200 laxa og veiðin þar verið skrykkjótt, góð einn daginn en Morgunblaðið/Árni Sæberg Grimsa. engin þann næsta. Vatnsdalsá er komin á annan hundraðið sem er auðvitað til stórra bóta, en byijun- in i báðum ám er slæm miðað við oft áður. Miðfjarðará er búin að skila um 300 fiskum og þar hefur veiðin verið dræm þar til allra síðustu daga að eitthvað hefur rofað til á ný. Léleg veiði hefur verið í Laxá í Aðaldal, aðeins hálft þriðja hundrað laxa hefur veiðst og um 150 laxar hafa kom- ið úr Laxá á Ásum sem er miklu minni veiði heldur en á sama tíma í fyrra og reiknað hafði verið með í ár. Reykjavíkurhöfn: Metár í útflutningi Hrota í Kjósinni VEIÐIN tók mikinn kipp í Laxá í Kjós í kjölfarið á helgaróveðrinu, áin skolaðist, en er hún tók aftur sinn tæra -lit smátt og smátt, reyndist hafa komið stór ganga eins og títt er þegar slíkar aðstæð- ur verða. Þannig veiddust 70 lax- ar á sunnudaginn og hátt í það sama á mánudaginn. Nú eru komnir um 600 laxar á land óg útlitið ágætt. Trúlega hefur Laxá nú nauma forystu yfir Þverá/ Kjarrá, en þar munar litlu þó og þær hafa skipst á um toppsætið síðustu daga. Laxá stendur þó að því leyti betur að vígi, að það á eftir að veiða tíu dögum lengur í henni. Svo byijaði Borgarfjarðar- áin svo illa að með ólíkindum mátti heita, fyrsti laxinn veiddist á fjórtánda veiðidegi. Stærsti lax- inn í Kjósinni veiddist nýverið, ÁRIÐ 1988 var metár hvað varð- ar útflutning um Reykjavíkur- höfii. Á hinn bóginn dróst inn- flutningur saman en skipakomur voru svipaðar og undanfarin ár. Athygli vekur, að þrátt fyrir svip- aðan fjölda skipakoma hefur brúttórúmlestatala skipa aukist um 21,2%. Rekstrartekjur hafnarsjóðs námu árið 385,9 milljónum króna í fyrra, en heildareign hafnarinnar nam samkvæmt efnahagsreikningi 5.071 milljón. Heildarflutningar um höfnina þegar allt er meðtalið juk- ust um 37 þúsund tonn milli áranna 1987 og 1988. í frétt frá Reykjavíkurhöfn segir, að miklar framkvæmdir og endur- bætur hafi farið fram á hafnar- svæðinu á síðastliðnu ári, og hafi helsta framkvæmdin verið lenging Kleppsbakka við farmstöð Eim- skipafélags íslands hf. Alls var var- ið 112,5 milljónum til þessa verks á árinu 1988, og er lengd bakkans nú 318 metrar. í fréttinni segir ennfremur að uppi séu áform um að stækka verulega hafnarsvæðið við Kleppsvík. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Selfossbændur, Gunnar Gunnarsson og Bjarni Sigurgeirsson, með sýnishorn af afla dagsins. Selfoss: Vaxandi veiði í Ölfiisá með breyttu rennsli Selfossi. ÖLFUSÁ er orðin mun gjöfúlli við veiðimenn en hún var í byrjun veiðitímans. Lax virðist nú ganga af nokkrum krafti í ána enda hefúr lækkað í henni og rennslið orðið eðlilegt. Vatnið hefúr einn- ig hitnað um rúmar þijár gráður og er ekki eins litað. Það var allt annað hljóð í stang- veiðimönnum við ána eftir að laxinn fór að taka. Sama er að segja um bændurna á Selfossbæjunum, Gunnar Gunnarsson og Bjarna Sig- urgeirsson. Þeir höfðu ekki tök á því að setja niður alla kláfa í ána í byijun veiðitímans vegna þess hversu mikið var í ánni. En kláfun- um var komið fyrir við fyrsta tæki- færi eftir að lækkaði í ánni. Veiðistaðirnir þrír á Selfossi, ut- an árinnar, og netalögnin í Kötlu, neðan Ölfusárbrúar, gegna svipuðu hlutverki og bryggjurnar í sjávar- plássunum. Fólk kemur við á þess- um stöðum til að spjalla við veiði- mennina og fylgjast með. Fyrir kemur að menn fá að taka í stöng svona til að hvíla þann sem er í ánni. Þá er það vinsælt af yngri kynslóðinni að koma við á þessum veiðistöðum og fylgjast með meist- urunum. Daginn sem áin breytti um svip og laxinn fór að gefa sig bar upp Friðrik Larsen gamalreyndur veiðimaður í Ölfúsá með einn 12 punda lax. á sama tíma og gengið var frá sam- komulagi um nýjan meirihluta í bæjarstjórn. Ekki vildu menn á veiðisvæðunum leiða getum að því að þarna væri samhengi á milli en vonuðu í glettnum orðaskiptum að nýi meirihlutinn yrði jafn farsæll og breytingin á rennsli árinnar. - Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.