Morgunblaðið - 12.07.1989, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1989
43
htím
F01_K
■ JOHN Jacobs, golfkennari,
verður með sýnikennslu hjá GR í
Grafarholti í kvöld kl. 19.
H FRANSKA félagið Marseille,
sem keypti Chris Waddle frá Tott-
enham fyrir helgina, hefur boðið
Luton eina millj. sterlingspunda
fyrir Mick Harford
Frá Bob markaskorara.
Hennessy Tapi, eigandi Mar-
i Englandi seille, segir að Har-
ford sé rétti maður-
inn við hliðina á franska landsliðs-
manninum Papin. Luton er ekki
tilbúið að selja Harford fyrir eina
millj. punda, þannig að Marseille
verður að hækka boð sitt ef það á
að fá Harford til lið við sig.
H ÞESS má geta að Marseille
bauð í David Rocastle hjá Arsenal,
en Lundúnafélagið sagði að hann
væri ekki til sölu.
H TOTTENHAM og Coventry
hafa náð samkomulagi um kaup
Tottenham á Steve Sedgley, mið-
vallarspilara. Kaupverð er 850 þús.
pund. Coventry fær 750 þús. pund
strax, en 100 þús. pund ef Sedgley
nær að leika landsleik fyrir Eng-
land. Hann hefur nú þegar leikið
með enska 21 árs landsliðinu.
Sedgley á aðeins eftir að ákveða
hvort að hann viiji fara til Totten-
ham.
■ NEWCASTLE hefur fengið
góðan liðsauka. Jim Smith, fram-
kvæmdastjóri félagsins, keypti í
gær Mark McGhee frá Celtic á
200 þús. pund og Mick Quinn frá
Portsmouth á 800 þús. pund.
I SPÆNSKA félagið Espanol
lét Alan Harris fara frá félaginu
í gær, aðeins þremur dögum eftir
að Harris hélt fund með spænsk-
um blaðamönnum - um undirbún-
ing Espanol fyrir næsta keppn-
istímabil. Stjórnarskipti urðu hjá
félaginu og þar sem fyrri stjórn,
sem réði Harris til félagsins, var
ekki búin að ganga frá samningum
við hann, sá nýja stjórnin sér leik
á borði - og lét Harris fafa.
Bentite Joanet, fyrrum þjálfari
Tenerife, hefur yerið ráðinn þjálf-
ari Espanol.
■ HARRIS, sem hefur verið að-
stoðarmaður Terry Venables í
þrettán ár - hjá Crystal Palace,
QPR, Barcelona og Tottenham,
er nú aftur á leið til Englands.
■ PETER Shreeve, fyrrum
framkvæmdastjóri Tottenham, var
látinn hætta sem þjálfari QPR í
gær.
■ PORTSMOUTH keypti í gær
Gary Shaw frá Stoke á 70 þús.
pund.
I STOKE keypti aftur á móti
lan Scott frá Manchester City á
175 þús. pund.
■ PLYMOUTH keypti Andy
Thomas frá Bradford á 80 þús.
pund.
■ VINCE Hilaire hjá Leeds er
kominn á sölulista, en það er ár
síðan hann var keyptur frá
Portsmouth á 200 þús. pund.
■ PAUL Wilkinson, fyrrum
leikmaður Everton og Notting-
ham Forest, hefur óskað eftir að
fá að fara frá Watford. Kona hans
kann ekki við sig í Suður-Englandi
og vill fara heim til Nottingham.
■ KEVIN McDonald, sem
Liverpool keypti frá Leicester á
400 þús. pund fyrir íjórum árum,
hefur fengið frjálsa sölu til
Coventry.
■ ÚLFARNIR hafa keypt Tony
Lange, markvörð Aldershot á 100
þús. pund.
■ CHELSEA hefur boðið Leeds
600 þús. pund fyrir írska landsliðs-
manninn John Sheridan. Howard
Wilkinson, framkvæmdastjóri
Leeds, er tilbúinn að selja hann.
Þess má geta að Wilkinson hefur
keypt þrettán leikmenn frá því að
hann tók við á Elland Rood 10.
október 1988 - fyrir þrjár millj.
sterlingspunda.
KNATTSPYRNA / ENGLAND
/
Sigurður á að fylla skarð
Neil Webb hjjá Forest
ENSKU blöðin Todayog Daily
Mirror slógu því upp ígær
að Nottingham Forest hafi
unnið Arsenal t kapphlaupinu
um íslendinginn Sigurð Jóns-
son og mátti sjá fyrirsögnina
„Forest fær Sigurð".
Sagt er frá því að íslendingur-
inn hjá Sheffield Wednesday
eigi að fylla það skarð hjá Forest
sem enski landsliðsmaðurinn Neil
■■■■■■ Webb skyldi eftir,
FráBob en hann er farinn
Hennessey til Manchester
i Englandi United. Blöðin
segja að Brian
Clough, framkvæmdastjóri For-
est, sem lengi hefur haft augastað
á Sigurði, gangi frá kaupunum
nú í vikunni. Ekki er gefið upp
kaupverð, en rætt er um upphæð-
ina 400 þús. sterlingspund, sem
er 37,2 millj. ísl. króna. Sagt er
að sérstakur dómstóll komi saman
til að ákveða endalegt verð.
Neil Webb
„Spennandi að leika
með Forest"
- sagði SigurðurJónsson. Samningaviðræður í gangi
„NOTTINGHAM Forest ræddi
við Sheffield Wednesday í gær
með kaup á mér í huga. Félög-
in eru að reyna að semja um
kaupverðið, en það er ekkert
komið á hreint í þessu máli,“
sagði Sigurður Jónsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu, við
Morgunblaðið í gær aðspurður
um fréttir í enskum blöðum
þess efnis að hann væri á leið
til Forest.
Eins og greint hefur verið frá
hér í blaðinu hafa mörg félög
spurst fyrir um Sigurð. Celtic bauð
750.000 pund, Atkinson, stjóri
Sheffield, sagði Arsenal að Islend-
ingurinn kostaði milijón pund,
Chelsea hefur sýnt áhuga en ekki
gert formlegt tilboð og síðan er það
Forest svo nokkur séu nefnd.
SigurðurJónsson
Komi félögin sér ekki saman um
kaupverðið kemur til kasta sérstaks
dómsstóls og er þar m.a. farið eftir
aldri leikmannsins og leikjafjölda.
Líst vel á Forest
„Það væri vissulega mest spenn-
andi að leika með Nottingham For-
est og ég verð að segja að ég er
spenntastur fyrir því að fara til
félagsins. Mér líst vel á liðið og það
yrði auðveldara fyrir mig að kom-
ast í byrjunarlið þar en hjá Arse-
nal,“ sagði Sigurður. „En enn getur
allt gerst,“ bætti hann við.
Brian Clough, stjóri Forest, hefur
lengi haft augastað á Sigurði og
reyndi fyrr í vetur að fá hann til
liðs við félagið. Þá vildi Sigurður
ljúka tímabilinu með Sheffield Wed-
nesday, hjálpa liðinu að halda sæt-
inu í 1. deild, og sjá síðan til.
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI FELAGSLIÐA
Fær ÍA Juventus?
Skagamenn þegar dregnir í átta liða riðil
í GÆRKVÖLDI voru liðin í
Evrópukeppni félagsliða í
knattspyrnu dregin saman í
riðla, en í dag verða liðin inn-
an riðlanna dregin saman.
Akranes er í riðli með sjö öðr-
um liðum; Juventus frá
Ítalíu, HSV frá Vestur-Þýska-
landi, Videoton frá Ungveijal-
andi, Lierse frá Belgíu, Hibernian
frá Skotlandi, Garnia Zagreb frá
Júgóslavíu og Örgi-yte frá Svíþjóð.
Skagamenn lenda á móti ein-
hveiju ofantalinna liða og komist
þeir áfram í 2. umferð dragast
þeir aftur gegn liði innan sama
riðils.
Skagamenn hafa leikið 30 leiki
í Evrópumótunum, en ekki dregist
gegn nefndum liðum. Ef að líkum
lætur vilja margir helst dragast
gegn Juventus, sem er óneitan-
lega þekktasta liðið er þeir geta
fengið að þessu sinni, en fyrir
hádegi liggur málið fyrir.
Á sama tíma verður dregið í
Evrópukeppni meistaraliða og
Evrópukeppni bikarhafa, en Fram
og Valur eru þar á meðal.
Fulltrúar íslensku liðanna eru
{ Ziirich í Sviss og verða viðstadd-
ir athöfnina í dag.
GOLF
Einar Long reyndi sig í
undankeppni British Open
FYRSTI íslenski golfleikarinn,
sem reynt hefur að vinna sér
keppnisrétt í Opna breska
mneistaramótinu, sem hefst
innan skamms, keppti á móti
í London á sunnudag og
mánudag. Það var Einar Long
úr Golfklúbbi Reykjavíkur.
ndankeppnin fór fram á
Langley Park golfvellinum.
Einari gekk mjög vel fyrri daginn
og lék þá á 72 höggum eða einu
yfir pari. Vegna misskilnings hóf
Einar Long
Einar keppni nánast óundirbúinn
seinni daginn. Hann lenti í vand-
ræðum strax á 1. braut og var
lengi að ná sér á strik. Einar lék
hringinn á 84 höggum og komst
ekki áfram í keppninni.
Opna breska meistaramótið er
sem kunnugt er eitt frægasta
golfmót sem fram fer ár hvert.
Nokkrir áhugamenn vinna sér
rétt til að keppa við atvinnumenn-
ina og verða þeir að vinna sér
keppnisrétt í undanúrslitamótum.
ÍÞR&mR
FOLK
■ TVEIR ungir körfuknatt-
leiksmenn úr Val eru á leið til
Bandaríkjanna á námskeið hjá Pat
Riley þjálfara Los Angeles La-
kers. Guðmundur Guðjónsson og
Hjálmar Jens Sigurðsson, sem
báðir leika með 9. flokki Vals næsta
ár, verða lærlingar Rileys í eina
viku.
■ VÉSTEINN Hafsteinsson
hefur ákveðið að taka sér frí frá
keppni í kringlukasti um tíma. Vé-
steinn keppti ekki á sigamótinu í
Nice, eins og ákveðið var og hann
mun heldur ekki keppa á stigamóti
í London á föstudaginn kemur, þar
sem Einar Vilhjálmsson mun
keppa í spjótkasti. Vésteinn, sem
er nú í Svíþjóð, er ekki ánægður
með kastárangur sinn að undan-
förnu.
H SIGURÐÚR Einarsson,
s_pjótkastari, missti vallarmet sitt í
Árósum í Danmörku um sl. helgi.
Bandaríkjamaðurinn Mike Bar-
nett kastaði 78,42 m, en gamla
metið hans Sigurðar, sem hann
setti 1987, var 76,60 m.
H GUÐMUNDUR Albertsson,
handknattleiksmaður úr KR, mun
leika með ÍBV næsta vetur undir
stjórn Hilmars Sigurgíslasonar.
Guðinundur mun jafnframt því
þjálfa meistaraflokk kvenna sem
féll niður í 2. deild á síðasta keppn-
istimabili.
H GUNNAR Ragnars, nýkjör-
inn formaður íþróttabandalags
Akureyrar, var sagður Ragnars-
son í blaðinu í gær. Það leiðréttist
hér með og er beðist velvirðingar á
mistökunum.
ÚRSLIT
3. deild A
Reynir—ÍK...........................1:0
Antony Stissy
Hveragerði—Grindavík................1:2
Ólafur Jósefsson — Hjálmar Hallgrímsson,
Guðlaugur Jónsson
Þróttur—Leiknir.....................1:2
Sigurður Hallvarðsson — Jóhann Viðarsson,
Ragnar Baldursson,
Aíturelding — Víkverji..............1:3
Samúel Grytvik — Finnur Thorlacius, Albert
Jónsson, Jón Örn Guðbjartsson
BÍ—Grótta...........................1:1
Haukur Benediktsson — Kristján V. Björgvins-
son
3. deild B
Valur R.—Magni......................2:2
Óli Sigmarsson, Agnar Amþórsson — Helgi
Helgason, sjálfsmark
KS—Þróttur..........................3:1
Óli Agnarsson 2, Baldur Benonýson — Þorlák-
ur Árnason
Reynir—Dal vík......................1:1
Haraldur Haraldsson — Sigfús Kárason
Ikvöld
Einn leikur verður leikinn í
1. deildarkeppninni í knatt-
spyrnu í kvöld. Fylkir leikur
gegn FH á Fylkisvelli kl. 20.
Léttir og Ármann mætast
á gervigrasvellinum í Laug-
ardal í 4. deild kl. 20.