Morgunblaðið - 12.07.1989, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JULI 1989
Útsölukjötið;
Erum mótfallin
neyslustýringu
- segir formaður Neytendasamtakanna
JÓHANNES Gunnarsson, for-
maöur Neytendasamtakanna,
segir samtökin andvíg þeirri að-
gerð stjómvalda, að greiða niður
verð á einni kjöttegund, eins og
Borgarráð;
Heimild til 260
milljóna króna
lántöku
BORGARRÁÐ hefiir heimilað
Sorpeyðingum höfuðborgar-
svæðisins fyrir hönd Reykjavík-
urborgar að taka 260 milljón
króna lán vegna fyrirhugaðra
framkvæmda.
Það er Norræni f|árfestinga-
bankinn, sem veitir iánið og er það
háð samþykki allra sveitarfélaga,
sem standa að fyrirtækinu.
verið sé að gera með útsölu á
lambakjöti, á sama tíma og skatt-
ur sé lagður á aðrar tegundir.
Samtökin séu andvíg allri neyslu-
stýringu.
Ríkisstjórnin hefur nú nýverið
beitt sér fyrir sérstakri verðlækkun
á lambakjöti og ákveðið hefur verið
að veija alls 600 milljónum króna
til slíkra niðurgreiðslna í ár umfram
það sem gert var ráð fyrir í fjárlög-
um. Johannes Gunnarsson segir að
með lambakjötsútsölunni sé verið
að láta neytendur leysa þann vanda,
sem skapast hafi vegna stefnu
stjórnvalda í landbúnaðarmálum.
Það sé auk þess fráleit stefna, að
greiða niður kindakjötið en ekki
samkeppnisvörur, svo sem svínalq'öt
og nautakjöt. Afstaða neytenda-
samtakanna til kjötútsölunnar væri
hins vegar allt önnur ef stjórnvöld
hefðu beitt sér fyrir verðlækkun á
öllum tegundum kjöts og fisks.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dannebrog í Reykjavíkurhöfh
Dannebrog, skip Margrétar Danadrottningar, hef-
ur legið við Faxagarð í Reykjavíkurhöfn í 3 daga.
Skipið sigldi áleiðis til Danmerkur í morgun en hing-
að kom það frá Grænlandi. Þar var skipið í tilefni
10 ára afmælis grænlensku heimastjómarinnar.
Margrét Danadrottning gisti ásamt fjölskyldu sinni
í skipinu er hún sótti Grænlendinga heim í tilefni
afmælisins. Danska drottningin flaug frá Græniandi
til Danmerkur að hátíðarhöldum loknum. Hér tók
áhöfn Dannebrog vatn, olíu og vistir.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 13. JÚLÍ
YFIRLIT í GÆR: Vestan eða norðvestan kaldi á sunnanverðu
iandinu, en hæg breytileg átt víðast annarsstaðar. Lítilsháttar súld
var við suöur- og vesturströndina en úrkomulaust og sumstaðar
léttskýjað í öðrum landshlutum. Hiti var yfirleitt á bilinu 9-13 stig,-
SPÁ: Fremur hæg vestlæg átt og þurrt. Léttskýjað um allt austan-
vert landið en skýjað vestanlands. Hiti allt að 18° suðaustanlands
en yfirleitt um 10o á Vesturlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR A FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Vestlægar áttir. Þurrt
um norðan- og áustanvert landið og viða léttskýjað en dumbungur
í öðrum landshlutum. Hlýnandi veður einkum norðan- og austan-
lands.
TÁKN:
Heiðskírt
x Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
Alskýjað
* * *
* * * * Snjókoma
*. .*..........
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , 5 Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að fsl. tima hiti veður Akureyri 10 hálfskýjað Reykjavik 9 súld
Bergen 13 alskýjað
Helsinki 16 þrumuveður
Kaupmannah. 21 léttskýjað
Narssarssuaq 8 skúrir
Nuuk 4 rigning
Ósló 23 hálfskýjað
Stokkhólmur 21 léttskýjað
Þórshöfn 11 súld.
Algarve 29 heiðskírt
Amsterdam 20 skýjað
Barcelona 27 léttskýjað
Berlin 20 léttskýjað
Chicago 24 skýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 20 hálfskýjað
Giasgow 19 háifskýjað
Hamborg 19 skýjað
Las Palmas 25 léttskýjað
London 23 skýjað
Los Angeles 20 alskýjað
Lúxemborg 19 hálfskýjað
Madrid 30 mistur
Malaga 27 mistur
Mallorca 28 hálfskýjað
Montreal 20 léttskýjað
New York 24 heiðskírt
Orlando 25 léttskýjað
Paris 23 skýjað
Róm 21 rigning
Vín 24 skýjað
Washington 28 mistur
Winnipeg vantar
Stólar í viðbyggingu Háskólabíós;
Samninga leitað við
þýskt fyrirtæki
HÁSKÓLABÍÓ stendur nú í
samningsumleitunum við þýska
stólaframleiðandann Kamphön-
er, en fyrirtækið átti næstlægsta
tilboðið i smiði stóla i viðbygg-
ingu bíósins. Að sögn Friðberts
Pálssonar framkvæmdastjóra
Háskólabíós uppfyllti það tilboð
sem lægst var ekki kröfur bíós-
ins, en það kom frá bandarísku
fyrirtæki. Um 800 stólar verða í
viðbyggingunni.
Friðbert sagði, að enn væri óljóst
hvort Kamphöner uppfyllti þær
kröfur sem Háskólabíó setti. Nýi
salurinn mun verða búinn hvers
kyns fyrirlestrar- og ráðstefnutækj-
um. Eitt íslenskt tilboð barst í út-
boði Háskólabíós, og var það að
sögn Friðberts töluvert hærra en
tilboð Kamphöner.
Heilbrigðisráðherrar N orðurlandanna;
Reykingar takmark-
aðar í áætlunarflugi
Reykingabann í ferðum er taka 100
mínútur eða minna
HEILBRIGÐIS- og félagsmálaráðherrar Norðurlanda samþykktu á
fimdi sínum í Bergen í Noregi dagana 27. og 28. júní, að fara þess á
leit við flugfélög sem fljúga milli landanna, að reykingar verði bann-
aðar í flugferðum er taka 100 mínútur eða skemmri tíma. Breyting-
in taki gildi um næstu áramót. Þessi samþykkt var gerð í samræmi
við þá ákvörðun ráðherranna frá því í fyrra, að kannaðir yrðu mögu-
leikar á að gera áætlunarferðir innan Norðurlandanna reyklausar.
A fundinum samþykktu ráðherr-
arnir einnig Norræna fram-
kvæmdaáætlun um krabbameins-
varnir sem gilda á til 1992. Þar er
gert ráð fyrir fyrirbyggjandi starfi,
eins tímanlegri greiningu og við
verður komið, eins tímanlegri grein-
ingu og við verður komið, meðferð
og stuðningi við sjúka, menntun,
rannsóknum og upplýsingaflæði og
upplýsingaskiptum milli Norður-
landanna á þessu sviði.
Ráðherrarnir ræddu enn fremur
eiturlyfjavandamálið. Var ákveðið
að halda sameiginlega fund heil-
brigðis-, félagsmála- og dómsmála-
ráðherra Norðurlanda í október um
það efni. Rætt var um sameiginleg-
an vinnumarkað heilbrigðisstétt-
anna og gerðu Noregur, Svíþjóð,
Finnland og Danmörk með sér
samning um að hjúkrunarfræðingar
gætu unnið í hveiju landanna án
sérstakra starfsleyfa. íslendingar
geta orðið aðilar að þessu sam-
komulagi ef þeir óska eftir því skrif-
lega. Þá fjölluðu ráðherrarnir um
takmarkanir á innflutningi og notk-
un lyfja innan Norðurlandanna og
ítrekuðu fulltrúar íslands og Noregs
þá stefnu sína, að skrá ekki nema
fá lyf með sömu verkunum.'
Af íslands hálfu sótti fundinn
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis-
og fyyggingaráðherra, ásamt þeim
Páli Sigurðssyni, ráðuneytisstjóra.
og Ingimari Sigurðssyni, skrifstofu-
stjóra.
Matareitrun
í Norrænu
ósönnuð
DÖNSK heilbrigðisyfirvöld hafa
undanfarið rannsakað hvort hugs-
anlega megi rekja veikindi
islensku skólabarnanna sem
veiktust eftir ferð með Norrænu
til Færeyja fyrr í sumar til þess,
að þau hafi orðið fyrir matareitr-
un um borð í feijunni. Rannsókn-
irnar hafa hingað til ekki leitt
neitt í ljós um ástæður veikind-
anna.
Að því er fram kemur í frétt fær-
eyska blaðsins Dimmalætting hafa
í kjölfar veikindanna verið gerðar
gagngerar endurbætur á heilbrigði-
seftirliti um borð í ferjunni.