Morgunblaðið - 12.07.1989, Síða 9
MORGUNJBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JUU 1989
Frá Tennissambandi
íslands
Tennisskólinn:
Námskeið í Tennisskólanum fyrir börn og unglinga:
17. júlí - 28. júlí frá kl. 9.00-12.00.
14. ágúst - 25. ágúst frá kl. 9.00-12.00.
Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að halda
framhaldssnámskeið fyrir þá, sem hafa áður verið í
Tennisskólanum dagana 31. júlí - 11. ágúst.
Tennisnámskeið:
Hin vinsælu 4 tíma hálfsmánaðar námskeið fyrir alla
aldurshópa hefjast aftur 11. júlí frá kl. 17.30, 18.30
o.s.frv.
Innritun hjá ÍSÍ í síma 83377.
TSÍ hvetur alla til að notfæra sér þetta sérstaka tæki-
færi til þess að kynnast tennisíþróttinni hjá hinum
reynda tennisþjálfara, Einari Sigurgeirssyni, sem lærði
sjálfur hjá heimsfrægum þjálfurum.
CLASSICA gróðurhúsin
fyrir íslenska veðróttu
Nokkur hús fyrirliggjandi.
Heildverzl. SMIÐSHÚS - E. Sigurjónsdóttir,
Smiðshús, 225 Bessastaðahreppi,
sími 51800.
GORI88
Einstakt litaúrval!
GORI 88
• er olíuleysanleg viðarvörn.
• Lekur ekki, slettist ekki og er auóveld í meóförum.
• Auðveldar viðhald, því hún gefur jafna yfirborðs-
á ferð og jafnt slit.
• Hrindir frá sér vætu/er vatrisfælin.
Strandlitir
cru þekjandi litir,
sem fcla æðamynstr-
ið en yfirborðsaferð-
in helst.
Jarðlitir
eru hálfþekjandi,
varðveita æða-
mynstur ogyfir-
borðsáferð viðarins.
Viðarlitir
eru gegnsæir, skerpa
fínlegt æóamynstur
og yfirborósáferó
viðarins.
e/GORI
/viðarvörn
BYGGINGAVÖRUVERSLUNIN
KRÚKHALSI 7 - SIMI 82033
$
Virðing Alþingis
Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs
þings, ræðir um stöðu Alþingis í Morgun-
þlaðinu á sunnudag. Við þá grein er staldr-
að í Staksteinum í dag en töluverða athygli
hlýtur að vekja, að aðeins 6% aðspurðra
íslendinga telja Alþingi gegna hlutverki sínu
vel.
Hugarleti
Guðrún Helgadóttir,
forseti sameinaðs þings,
tekur upp hanskaiu fyrir
stjórnmálameiui í grein í
síðasta sunnudagsblaði
Morgunblaðsins. Telur
hún að almenningur van-
meti störf þeirra sem að
stjóm- og félagsmálum
hafa unnið. Og segir:
„Oll síbylja um að
þetta fólk siiji aðgerða-
laust ber einungis vitni
hættulcgum skorti á
sjálfstæðri hugsun og
lágmarksþekkingu á
starfsháttum þessa fólks.
Það hefúr aldrei verið
einfalt að stjóma löndum
og þjóðum og vitanlega
greinir menn á um
hvemig að því skuli stað-
ið og að hvaða marki
skuli stefiit. Mönnum ber
að hafa skoðun á því og
láta þær í Jjós. Þann lýð-
ræðislega rétt hafa allir
íslendingar. En þeir hafa
engan rétt til að hætta
að hugsa og afgreiða
störf okkar með
heimskulegum yfirlýs-
ingum um að Alþingi og
stjómmálamenn séu
afætur á þjóðfélaginu og
engum til gagns eða
góðs.“
Og forseti samein-
aðs þings heldur áfram:
„Nýleg skoðanakönn-
un um gagnsemi nokk-
urra stofhana ber merki
þessarar þjóðhættulegu
hugarleti, þar sem þátt-
takendur töldu Alþingi
íslendinga gagnslausasta
umræddra stofiiana.
Mcnn virðast ekki vita
að almenningur í landinu
hefúr gífúrleg áhrif á all-
an gang þingmála og
ræður almenningsálitið
oft úrslitum um haim.
Sérhvert þingmál er sent
til umsagnar fjölmargra
cinstaklinga, félagasam-
taka og stofnana sem
málin snerta sérstaklega
og umsagnir þcssara að-
ila ráða miklu um hvort
þau ná firam að ganga.
Alþingi er því á engan
hátt einangruð valda-
stofiiun sem þjóðin á eng-
an aðgang að. Og sé þjóð-
in blcssuð ósátt við þingið
eins og það er skipað
hveiju sinni, er leikur
einn að skipa það á annan
veg í næstu kosningum.
En það kostar nokkra
starfeemi hugans og
nenni meim ekki að
leggja hana á sig, geta
þeir sjálfúm sér um
kennt. En það er með
öllu óþolandi og ósæm-
andi þjóð sem þykist. vera
merkisberi lýðræðis
meðal þjóða heims að
fírra sig þátttöku í
rekstri þjóðfélagsins og
grípa til þess í vanmætti
sinum að litilsvirða þjóð-
þing sitt.“
Lítilsvirðing
í þessum orðum Guð-
rúnar Helgadóttur, for-
seta sameinaðs þings
gætir lítilsvirðingar í
garð alþýðu manna, sem
er sökuð um liugarleti
og heimar vegna ncnni
menn ekki að hugsa á
þann veg, að virðing Al-
þingis aukist. I öðru lagi
hlýtur það að koma þeim
spánskt fyrir sjónir sem
fá málefhi fiá þingmönn-
um til umsagnar, að þeir
séu dregnir í sama dilk
og þingmenn, þegar lítil
virðing þingsins er tíl
umræðu af forseta þess.
Loks er fráleitt að líta
þannig á, að fólk sé að
firra sig þátttöku í eigin
þjóðfélagi með þvi að
segja álit sitt á Alþingi.
Firringin er í orðum og
rökscmdafærslu þingfor-
setans, sem sýnist ekki
átta sig á því, að í skoðun-
um fólksins felast áliyggj-
ur yfir því, liversu
landinu er illa stjómað
og — einmitt! — hve erf-
itt virðist fyrir almemiing
að ráða þar bót á eins
og einatt hefúr komið í
yós. Prófkjörin hafa
t.a.m. síður en svo orðið
til að efla virðingn og
styrk stjórnmálaflokka —
og er þad heldur dapur-
leg staðreynd í lýðræðis-
landi. Virðingarleysið
fyrir þinginu og ráðu-
neytum og stjómsýslu
almennt [aðeins 7% töldu
hana veita góða þjón-
ustu] ber að skoða i ljósi
þess að aðeins um 25%
landsmaima styðja nú-
verandi ríkisstjóm. Hið
sérkennilegasta við
raunarollu og skammir
forseta sameinaðs þings
er, að hún telur alveg
fráleitt að fólkið kumii
að hafii rétt fyrir sér.
Engin ástæða er til að
tiunda ávirðingar ein-
stakra alþingisma»na
eða Alþingis. Fólk metur
þingið eftir því hvemig
þingmenn og störf þeirra
koma því fyrir sjónir;
hvemig þeir viðra
hugmydnir sínar, en það
hefúr einatt öfug áhrif
en til er ætlast.
Hitt er svo annað mál
að það hefúr verið land-
lægt hér lijá okkur alla
tíð frá því að þing var
cndurreist um miðja
síðustu öld að gagnrýna
þingmenn og fínna þing-
inu allt til foráttu. Kepp-
ast þingmenn þar við
veðurguðina.
Á síðasta þingi komu
upp nokkur mál, þar sem
reyndi á forseta samein-
aðs þings og hæfileika
hennar til að bæta stöðu
þingsins í málum, sem
öllum em auðskijjanleg
eins og sérréttindi þing-
forseta og ráðherra til
að nota bílastæði eða
hugmyndir um að kaupa
Hótel Borg fyrir Alþingi.
Það skal fullyrt, að á
hvomgu ntálinu hafi ver-
ið tekið með þeim hætti
að virðing Alþingis hafi
aukist við málsmeðferð-
ina.
Forsjárhyggjufólk eins
og forsetí sameinaðs
þings áttar sig loks ekki
á því, að almenningur
telur að afekiptí þing-
manna og ríkisvaldsins,
flármálavafetur þessara
aðila, séu komin út fyrir
öll hófleg mörk. I gagn-
rýnni afetöðu alþýðu
manna felst ósk um minni
opinbera forsjá, minna
vafstur með opinbert fé
og fyrirgreiðslur, minni
opinberan hroka og að
stjóramálamenn tali tíl
þjóðarinnar með það í
huga, hveijir em um-
bjóðendur þeirra.
GARÐÚÐARAR
ÚÐUNARKÚTAR
SLÖNGUSTATÍV
SLÖNGUTENGI
GARÐVERKFÆRAÚRVAL
HEKKKLIPPUR
GREINAKLIPPUR
GRASKLIPPUR
SLÁTTUORF
SMÁVERKFÆRI
# BLAGKSlDECKERtm
RAFMAGNSSLÁTTUVÉLAR
VERÐ FRÁ KR. 7.950
ÞÚR^
ÁRMÚLA11
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moggans!
Sportblússur
Buxur - skyrtur - peysur
Aldrei meira úrval
GEYSiBI