Morgunblaðið - 12.07.1989, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JULI 1989
17
Sovéskir dagar MÍR 1989:
Óperusöngvarar og hljómsveit
frá Moldavíu til Islands í ágúst
ÁRLEGIR Sovéskir dagar MÍR
verða haldnir í lok ágústmánaðar
nk. og helgaðir sérstaklega
kynningu á þjóðlífí og þjóðmenn-
ingu í Sovétlýðveldinu Moldavíu.
Meðal gesta sem koma þaðan til
Islands af þessu tilefni og til þátt-
töku í einstökum dagskráratrið-
um er hópur hljóðfæraleikara og
tveir fremstu óperusöngvarar
lýðveldisins.
Söngvararnir eru María Bieshu
sópran og Mikhaíl Múntjan tenór,
sem bæði eru víðkunn um öll Sov-
étríkin og víðar og hafa hlotið æðstu
viðurkenningu sovéskra lista-
manna.
Hljóðfæraleikararnir eru allir fé-
lagar í Kammersveit Ríkisútvarps-
ins í Moldavíu. Stjórnandi hennar
er Aleksandr Amúile, sem jafnframt
er listrænn stjórnandi og aðalhljóm-
sveitarstjóri Ríkisóperu- og ballett-
leikhússins í Kishinjov, höfuðborg
Moldavíu.
Sýning á myndverkum, olíumál-
verkum, grafík og listmunum frá
Moldavíu verður sett upp í Hafnar-
borg, lista- og menningarmiðstöð
Hafnaríjarðar, í tilefni Sovésku
daganna og þar verða dagarnir
formlega settir með tónleikum
mánudagskvöldið 21. ágúst. Sýn-
ingin verður þó opnuð fyrr, væntan-
lega helgina 12.—13. ágúst, og
síðan opin út mánuðinn, en í sept-
ember verður sýningin sett upp í
húsakynnum MÍR, Menningar-
tengsla íslands og Ráðstjórnarríkj-
anna, Vatnsstíg 10, Reykjavík.
Auk tónleikanna í Hafnarfirði
verða hljómleikar haidnir í Hvera-
gerðiskirkju þriðjudaginn 22. ágúst,
Neskaupstað 23. ágúst, Eskifirði
24. ágúst, Egilsstöðum 25. ágúst
og í Reykjavík sunnudaginn 27.
ágúst. Efnisskrá tónleikanna er
fjölbreytt: hljómsveitarverk, óperu-
aríur og sönglög eftir Hándel, Moz-
art, Schubert, Bach, Gounod og
Sviridov, auk verka eftir moldavísk
tónskáld og þjóðlaga úr ýmsum
áttum.
(Frcttatilkynning)
... á við bestu galdraþulu!
Ef þér finnst eitthvað vanta upp á bragðið af
súpunni, pottréttinum, heitu sósunni, salatsósunni
eða ídýfunni skaltu einfaldlega bæta við
MS sýrðum rjóma, 18%. Það er allur galdurinn.
Hitaeiningar MS sýrður rjómi Majónsósa
18% (Mayonnaise)
1 tsk (5 g) 9.7 37
1 msk (15 g) 29 112
100 g 193 753
Búnaðarfélag Kirkju-
bæjarhrepps 100 ára
Kirkjubæjarklaustri.
Búnaðarfélag Kirkjubæjar-
hrepps hélt upp á aldarafmæli
sitt laugardaginn 1. júlí sl. I til-
efíii þess var öllum bændum
hreppsins, ásamt nokkrum gest-
um, boðið til kvöldverðar í félags-
heimilinu Kirkjuhvoli.
Hófið hófst með því að formaður
félagsins, Lárus Valdimarsson, bauð
gesti velkomna en síðan tók Siggeir
Björnsson við veislustjórn. Jón
Helgason alþingismaður rakti sögu
félagsins frá upphafi, kveðjur voru
fluttar, gjafir bárust félaginu og auk
þess var slegið á léttari strengi með
gamanmáli og fjöldasöng. Að borð-
haldi loknu var síðan dansað við
undirleik harmoniku.
Ekki var að sjá eða heyra nokk-
urn bilbug á bændum þótt ekki blási
byrlega fyrir stéttinni á tímum sam-
dráttar í hefðbundnum greinum
landbúnaðar og sumarið sé fremur
seint á ferðinni. Þess má til gamans
geta að meðalaldur bænda í hreppn-
um er ekki nema rétt rúmlega 40
ár sem væntanlega er ekki hátt
miðað við víða annars staðar.
- HSH
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖDINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁDHÚSTORGI
'\\ *|onu
Inmhald: 200 g
AUK hf k3d-76-728
KJiRABÓT (KREPPU!
Það er
Sumarmarkaóur fjolskyldunnar
í Faxafeni 14 (fyrir ofan Bónus).
Opið yirka daga frá kl. 12—19 - Laugardaga ffá
kl. 10-16.
Ótrúlegt vöruúrval
«3
Nytt
korta-
tlmabil
Láttu sjá þi£ -
það borgar sig!