Morgunblaðið - 12.07.1989, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ 1989
27
Minning:
Þorbjörn Jóhannes-
son, kaupmaður í Borg
Fæddur 10. mars 1912
Dáinn4. júlí 1989
Föðurbróðir minn, Þorbjörn Jó-
hannesson kaupmaður í Kjötbúðinni
Borg, er sigldur yfir á Paradísarsvið-
ið. Frá augum hans sindraði líf, sem
bar greinilegan vott um dugnað,
framsýni, framtakssemi, höfðings-
skap og mikinn manndóm, hann bar
höfuð og herðar yfir íjöldann. Hann
hjálpaði mörgum með góðum ráðum,
og gaf mörgum. Það var Þorbirni
nautn að láta gott af sér ieiða.
Þorbjörn var fæddur 10. marz
1912 á Bergstaðastræti 26 hér í
borg. Voru foreldrar hans hjónin
Jóhannes Jónsson trésmiður í Kveld-
úlfi og Helga Vigfúsdóttir, húsfreyja.
Systkinin voru 8, 7 komust til fullorð-
insára og er Þorbjörn næstyngstur
íjögurra bræðra, en 3 systur eldri,
en yngsta systkinið, Elín, dó barn
að aldri. Síðar bættust í systkinahóp-
inn tvíburar samfeðra, drengir.
Þorbjörn var af bændafólki kom-
inn í allar kynkvíslir langt fram í
ættir. Forfeðurnir höfðu átt sér
byggðir og bú í Vestur-Skaftafells-
sýslu, Borgarfjarðarsýslu, Húna-
vatnssýslu, margir mikilsvirðir bú-
þegnar og prestar í áðurnefndum
sýslum, farið með hreppstjórn og
dannebrogstign. Rekja má ættir Þor-
bjarnar til ýmissa nafnkenndra
manna, séra Björns í Bólstaðarhlíð,
séra Högna Sigurðssonar prests og
staðarhaldara á Breiðabólsstað í
Fljótshlíð (Presta-Högna), Jons Þor-
valdssonar í Deildartungu, Böðvars
Sigurðssonar í Skáney, séra Þórðar
Brynjólfssonar prófasts á Felli í
Mýrdal. Víða er auðrakið til land-
námsmanna og Noregskonunga.
Þorbjöm fékk hið bezta uppeldi,
en ský dró fyrir sólu í lífi fjölskyld-
unnar 15. nóvember 1918, er hús-
móðirin féll frá.
Sennilega hefir engin byggð heill-
að Þorbjöm meir en Borgarijarðar-
hérað. Sem ungur piltur var Þorbjörn
í Dalsmynni hjá mannkostahjónunum
Sesselju Jónsdóttur og Jóni Vigfús-
syni. Minntist Þorbjörn þeirra hjóna
ávallt með mikilli góðvild og hlýju.
Landlagsfegurð sem brosir við í Dals-
mynni er mikil þegar jörð er í blóma
og heiður himinn.
Þorbjöm var maður sjálfmenntað-
ur, því skólaganga var einvörðungu
barnaskólinn, en dijúgum bætti hann
sér það upp með lestri góðra bóka,
blaða og tímarita og með þeim hætti
aflaði sér þekkingar á mönnum og
málefnum.
Þorbjörn var vel metinn, hafði
góðan skilning og dómgreind, rétt-
sýni og sanngirni, tillögugóður og
rökfastur. Hann var kröfuharður við
sjálfan sig og aðra og gat verið
umvöndunarsamur ef honum þótti-
einhver sýna skeytingarleysi. Hann
gat verið þungorður og napur í að-
finnslum sínum. Trassaskap lét Þor-
björn ekki viðgangast.
Þorbjörn var ljúfur maður sem
fólk virti og margir elskuðu sökum
mannkosta hans. Hann var einlægur
trúmaður og Háteigssöfnuður naut
þess, því Þorbjörn fékk náinn vin
sinn og frænda, Halldór H. Jónsson
arkitekt, til þess að teikna Háteigs-
kirkju, sem er eitt glæsilegasta guðs-
hús landsins. Þorbjörn var formaður
sóknarnefndar frá upphafi til 1985.
Þorbjörn var höfðingi í sjón og
höfðingi í lund og hann hefir runnið
skeið lífsins með hreysti og hetjuhug
og það sem enn meira er um vert,
hann hafði háð það kapphlaup með
drengilegum góðhug.
Samband Þorbjarnar við elzta
bróður sinn, föður minn, var einstak-
lega ástúðlegt og ljúft, fyrirmynd að
ljúfleik milli bræðra og Þorbjörn lét
sér afar vænt um föður minn, þeir
voru einlægir samverkamenn. Virð-
ing föður míns fyrir Þorbirni var lotn-
ingarfull og sönn, þeir voru sannir
og einlægir vinir.
Sigríður H. Einarsdóttir lifir mann
sinn, hún er af þróttmikilli og ágætri
ætt komin úr Arnessýslu. Sigríður
ber með sér í hugsun og framkomu
mörg einkenni ættar sinnar, hún er
sjálfstæð og þróttmikil í hugsun og
störfum. Sigríður ber ótvírætt aðals-
merki góðrar konu og húsfreyju á
glæsilegu heimili.
Við frændur hans og hans nán-
ustu ástvinir eigum margs að minn-
ast. Margs sem við nú viljum þakka
af heitu hjarta og hrærðum hug.
Við viljum þakka Guði fyrir Þor-
björn Jóhannesson. Ég votta mína
einlægustu samúð frú Sigríði, Einari
og Elínu, barnabörnum og tengda-
börnum.
Helgi Vigfusson
Kveðja frá Félagi kjötverslana
Þorbjörn andaðist að kveldi 4. júlí
eftir langan og viðburðaríkan ævi-
dag.
Athafnasemin var honum í blóð
borin. Hann var afar litríkur persónu-
leiki sem mótaði umhverfi sitt á
margan hátt.
Undirritaður man marga félags-
fundi í Félagi kjötverslana, þar sem
geislaði af Þorbirni áhugi hans og
dugnaður ásamt ósérhlífni þegar
hann talaði fyrir hagsmunum og
velferð stéttar sinnar. Fáir voru
mælskari eða atkvæðameiri á þess-
um fundum. Þorbjörn stofnaði kjöt-
verslunina Borg árið 1931 og rak
hana alla tíð síðan með dugnaði og
sóma.
Hann var framsýnn kunnáttumað-
ur sem hélt uppi merki einkaverslun-
arinnar svo eftir var tekið.
Hann var einn af stofnendum Fé-
iags kjötverslana hinn 15. febrúar
1934 og dyggur stuðningsmaður
þess um áratugi. Haustið 1934 var
hann kosinn í eina af fyrstu starfs-
nefndum þess félags til þess að huga
að samræmingu vöruverðs.
Þetta var upphafið að margháttuð-
um stjórnar- og trúnaðarstörfúm,
sem að honum hlóðust fyrir verslun-
ina.
Þorbjörn var kosinn í varastjórn
hins unga félags strax árið 1936, í
aðalstjórn árið 1938 og formaður
félagsins var hann 1950-1954 og
aftur 1959-1963 og ennáný 1966.
Að honum söfnuðust virðingar- og
trúnaðarstörf fyrir aðra félagshópa
sem og opinbera aðila, þeirra mun
væntanlega verða getið af öðrum.
Þegar Kaupmannasamtök íslands
urðu 20 ára haustið 1970 notuðu þau
tækifærið og heiðruðu nokkra valin-
kunna sæmdarmenn. Við þetta tæki-
færi var Þorbirni veitt gullmerki
Kaupmannasamtakanna fyrir langt
og óeigingjarnt starf unnið í þágu
samtakanna og verslunarstéttarinn-
ar í heild. Á þessum tímamótum rifj-
um við þetta upp um leið og við
þökkum samfylgdina.
Með Þorbirni er genginn mikill
athafna- og framtaksmaður. Hann
bar gæfu til að setja jákvæðan svip
á umhverfi sitt og athöfn. Hann var
brautryðjandi um margt, um ára-
tugaskeið. Blessuð sé minning um
mætan mann.
Ég votta virðingu mína og félaga
minna í Félagi kjötverslana og sendi
ástvinum hans dýpstu samúðarkveðj-
ur.
Jón Júlíusson
formaður Félags
kjötverslana.
Bjarni G.S. Svavars-
son - Minningarorð
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem)
í dag kveðjum við Bjarna Garðar
Skagfjörð Svavarsson, er lést á heim-
ili sínu að morgni 4. júlí síðastliðins.
Bjarni afi, eins og hann var kallaður
á mínu heimili af 4ra ára nafna
sínum, Bjarna Rúnari, var giftur
Ingu Bergdísi Bjarnadóttur, en hún
lést 8. mars 1988. Eftir að Bjarni
missti konu sína, virtist hann adrei
samur maður. Samband þeirra hjóna
var svo kært, að það var eins og að
horfa á hluta af honum deyja þegar
Inga lést. Bjarni og Inga hafa búið
í Keflavík alla tíð frá því að ég kynnt-
ist þeim fyrir 19 árum. Þá byrjaði ég
í skóla og varð Inga Anna, dóttur-
dóttir þeirra, ein af bekkjarsystrum
mínum og góð vinkona. Móðir henn-
ar, Valgerður, sem er jafnframt eina
barn þeirra Ingu og Bjarna, flutti
búferlum til útlanda er Inga Anna
var barn, en þau hjónin tóku hana
að sér og ólu upp sem væri hún dótt-
ir þeirra. Valgerður á tvö önnur böm,
þau Love Marie og Richard, og varð
Bjarni langafi 2. júní síðastliðinn er
Love eignaðist dóttur. Valgerður og
börn hennar búa öll erlendis og einn-
ig Inga Anna sem flutti til Þýska-
lands fyrir um 9 árum. En þau hjón
voru þó ekki ein í heimli, því fyrir
15 árum fengu þau sér hund, Dúllu,
sem hefur verið þeim og öðrum góð-
ur félagi í gegn um árin. Dúlla lifir
báða húsbændur sína og er auðséð
að hún. saknar þeirra sárt þótt göm-
ul sé.
Bjarna og Dúllu var vel fagnað á
mínu heimili þegar þau tóku sér rúnt
til Grindavíkur, og alltaf kom hann
með eitthvað í poka fyrir nafna sinn,
Bjarna litla. Það fór alltaf mjög vel
á með þeim, og gat Bjarni Rúnar
sonur minn oftast fengið hann til að
slá á létta strengi, þó að Bjarni hafi
verið hægur að eðlisfari. Hafði ég
orð á því við Bjarna seinast þegar
hann kom í heimsókn til Grindavík-
ur, að það fyndist ekki öllum jafn-
stutt að keyra þennan spotta, því
fáir væru jafnduglegir að koma og
hann. Lýsir þetta Bjarna vel, því sem
unglingur kynntist ég þessu vel er
hann keyrði okku Ingu Önnu á hvert
skólaballið af öðru og sótti okkur
eftir ball ef við óskuðum þess.
Bjama er nú sárt saknað á mínu
heimili og bágast á nafni hans litli
að skilja að afi, sem var einn af þess-
um föstu punktum í tilverunni sem
mátti treysta á,_ skuli nú vera horfinn
sjónum hans. Ég og mín fjölskylda
vottum ástvinum hans okkar dýpstu
samúð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Sigrún
Okkar ástkæri afi, Þorbjörn Jó-
hannesson, fæddist 10. mars 1912 í
Reykjavík. Forelðrar hans vom Jó-
hannes Jónsson, trésmiður, frá
Narfastöðum í Melasveit, og Helga
Vigfúsdóttir, Ytri-Sólheimum í
Mýrdal. Þau áttu átta böm.
Móður sína missti afi aðeins sex
ára gamall og fluttist þá til Guðrún-
ar Eymundsdóttur og Halldórs Sig-
urðssonar, úrsmiðs, og síðan að
Brúnum undir Eyjafjöllum til Sigríð-
ar Tómasdóttur og Haraldar Jóns-
sonar og var þar samfleytt í tvö ár.
Þá var hann nokkur sumur-í- Dals-
mynni í Norðurárdal hjá Sesselju
Jónsdóttur og Jóni Vigfússyni.
Árið 1925 hóf afi störf hjá Kaup-
félagi Borgfirðinga, á Laugavegi 20,
og vann þar til ársins 1931, en réð
sig þá í vinnu hjá Kveldúlfi. Það ár,
2. október, stofnsetti afi Kjötbúðina
Borg, aðeins 19 ára gamall.
Af mikilli atorku dafnaði fyrirtæk-
ið jafnt og þétt og hlutdeild hans í
öðrum fyrirtækjum jókst jöfnum
höndum. Nú hin síðari ár færði hann
aukna ábyrgð í hendur afkomenda
sinna, en var með yfirstjórn til dauða-
dags.
Afi sinnti jafnframt margvíslegum
trúnaðarstörfum út á við. Hann var
m.a. í stjórn Eimskipafélags íslands,
Islenskra Aðalverktaka, Innkaupa-
stofnunar Reykjavíkurborgar, stjórn-
arformaður í Byggingarfélaginu Brú
hf. og formaður Sambands dýra-
verndunarfélaga íslands.
Hann var fyrsti formaður sóknar-
nefndar Háteigssóknar og var það
samfellt í 35 ár. Þá sinnti hann einn-
ig ýmsum trúnaðarstörfum fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, var m.a. um
skeið í bæjarstjórn Reykjavíkurborg-
ar.
Afi giftist 7. desember 1933
Sigríði Huldu Einarsdóttur, fæddri
22. desember 1913 í Reykjavík, dótt-
ir Einars Þórðarsonar, verslunar-
manns, frá Efra-Seli, Stokkseyrar-
hreppi, og Guðríðar Eiríksdóttur, frá
Miðbýli, Skeiðahreppi. Amma reynd-
ist afa ákaflega mikill styrkur og
hélt honum einstaklega gott heimili.
Þau eignuðust þrjú börn:
Elín, fædd 23. apríl 1934, gift
Othari B. Hanson fiskiðnaðarfræð-
ingi og eru þau búsett í Bandaríkjun-
um. Börn þeirra eru: Pétur Óli, Þor-
björn, Hans Bernhard og Othar. Þau
eignuðust einnig dóttur er dó við
fæðingu.
Svanhildur, fædd 2. apríl 1935,.
lést árið 1975. Hún var gift Guð-
mundir Jóhanni Friðrikssyni bifreið-
arstjóra er lést 1986. Börn þeirra
eru: Þorbjörn, Friðrik, Elías, Jóhann
og Sigurður.
Einar, byggingarverkfræðingur,
fæddur 7. júlí 1938, giftur Astrid
B. Kofoed Hansen. Börn þeirra eru:
Agnar Már, Þorbjörn Jóhannes, Axel
Kristján og Einar Eiríkur.
Fyrstu hjúskaparár ömmu og afa
bjuggu þau í risi Kjötbúðarinnar
Borg, þar á eftir á Guðrúnargötu 9
og síðan á Flókagötu 59.
Á Flókagötunni bjuggum við
bræðurnir og foreldrar okkar fyrstu
árin og nutum þar góðrar umönnun-
ar, sem ætíð, enda voru amma og
afi einstaklega samrýnd og hjálpsöm.
Ungir að árum fórum við bræðurnir
að vinna í Kjötbúðinni Borg og það
reyndist okkur góður skóli.
í reynd var afi meiri vinur en
vinnuveitandi. Hann lagði mikið upp
úr því að menn stæðu á eigin fótum,
en var alltaf tilbúinn að veita aðstoð
og miðla af þekkingu sinni, ef með
þurfti.
Afi gerði miklar kröfur til sjálfs
sín, sem annarra og hann þoldi afar
illa að vera öðrum háður. Hann var
harðger, vinnusamur, ósérhlífinn,
áreiðanlegur og hreinskilinn í sam-
skiptum við aðra og stóð við það sem
hann sagði.
Ef mönnum hefur þótt afi hijúfur,
þá var hann í reynd hið mesta ljúf-
menni og var einstaklega hjálpsamur
þeim sem minna máttu sín, en það
fór hljótt. Vinnudagurinn hjá afa var
oftast languf og erilsamur og gaf
hann sér alltof sjaldan tíma til að
taka sér frí. Fyrirtækið og fjölskyld-
an voru honum allt.
Nú hefur stórt skarð verið höggv-
ið við fráfall afa okkar, sem verður
vandfyllt.
Við biðjum Guð að styrkja ömmu
okkar, sem á nú um sárt að binda,
og vottum henni okkar dýpstu samúð.
Blessuð sé minning afa okkar,
Þorbjarnar Jóhannessonar.
Þorbjörn, Friðrik, Elías,
Jóliann og Sigurður.
Síðasta tala
númersins segir
til um
skoðunarmánuðinn.
' Láttu skoða í tíma
- öryggisins vegna!
BIFREIÐASKOÐUN
ÍSLANDS HF.
Hægt er að panta skoðunartíma
pöntunarsími í Reykjavík
er 672811
YDDA Y8. 19/SÍA