Morgunblaðið - 03.10.1989, Page 2
ifcfrj stíi'dovAQ i y.Wótxi'svuwA Gia/jia'/uDfloií
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1989
Erlend tónlist allt að
85,5% á útvarpsstöðvum
ERLEND tónlist er mun meira leikin í útvarpsstöðvum hériendis
en íslensk, samkvæmt könnun sem Félagsvísindastofnun háskól-
ans gerði fyrir Félag tónskálda og textahölúnda í júnímánuði. Á
Sljörnunni var hlutur erlendrar tónlistar 85,5% af útsending-
artíma tónlistar en innlendrar 14,5%. Minnstu munaði á rásum
Ríkisútvarpsins.
Innlend tónlist var leikin 26,6%
tímans á Rás 1 en 25,6% á Rás 2.
Hlutur innlendrar tónlistar var
16,4% á Bylgjunni og 16,6% á RÓt.
Ef Rás 1 er undanskilin er hlutur
popptónlistar langmestur á öllum
útvarpsstöðvum. 93,7% tónlistar á
Stjömunni var popptónlist, 3,6%
þungarokk, 1,3% eldri dægurlög.
86% var popptónlist á Bylgjunni og
77% á Rás 2. Popptónlist var 9,5%
á Rás 1, klassísk tónlist 45,2% og
léttklassísk tónlist 12,5%.
Könnunin var gerð 10., 13. og
15. júní. Á Rás 2 var tónlist leikin
46,4%-53,2% útsendingartímans, á
Rás 1 28%-36,5% útsendingartím-
ans. Á Stjömunni var tónlist leikin
72,4%-80,8% alls útsendingartíma,
64,6%-70% útsendingartíma var
leikin tónlist á Bylgjunni og hlutur
tónlistar var 60,1%-71,4% á Rót.
Metsala hjá togaranum
Ogra í Bremerhaven
Fékk 127 krónur fyrir karfakílóið
Skuttogarinn Ögri RE fékk
127,83 krónur að meðaltali fyrir
karfakílóið í Bremerhaven í
Mál Magnúsar
Thoroddsen:
Þingfesting
og frestun í
Hæstarétti
MÁL ríkisvaldsins gegn
Magnúsi Thoroddsen, fyrr-
um forseta Hæstaréttar, var
þingfest í Hæstarétti i gær.
Lögmönnum aðila var veittur
frestur til 1. nóvember til að
leggja fram greinargerðir.
Við lok þess frests er gert
ráð fyrír að nýr frestur verði
veittur uns málið verður tekið
til flutnings. Ekki er ljóst hve-
nær dómarar Hæstaréttar úr-
skurða um eigið hæfi til að
fara með málið.
Þýzkalandi í gær eða um 4 mörk.
Samkvæmt upplýsingum Ögur-
víkur hf., er þetta hæsta verð,
sem fengist hefur á þessum
markaði í krónum talið, en næst-
hæsta talið í mörkurn. Skipstjóri
á Ögra er Snæbjörn Össurarson
og á bæði þetta met og hið eldra
á þessum markaði.
Ögri seldi alls 150,4 tonn, nær
allt karfa, fyrir 19,2 milljónir króna,
592.000 mörk. Meðalverð í krónum
talið var 127,83, en í mörkum 3,94.
Síðastliðinn vetur seldu Snæbjöm
og áhöfn hans á Ögra 298 tonn á
sama markaði. Heildarverð þá var
36,3 milljónir króna og meðalverð
121,52 krónur, en 4,32 mörk.
Lækkun gengis krónunnar gagn-
vart markinu ræður því að mun
fleiri krónur fást nú, þrátt fyrir
færri mörk.
Hætt hefur verið við fyrirhugaða
sölu Birtings NK í Cuxhaven síðar
í þessum mánuði. Ari Halldórsson,
umboðsmaður hjá Lubbert í Brem-
erhaven, sagðist í samtali við Morg-
unblaðið ekki vilja tjá sig um
ástæðu þessarar ákvörðunar. Birt-
ingur selur því í Bremerhaven.
Morgunblaðið/Kári
Framkvæmdir við smíði brúarinnar yfir Dýrafjörð eru í
fullum gangi.Á innfelldu myndinni er starfsmaður við brú-
arsmíðina við fallhamar sem notaður er til að reka steypt-
ar súlur niður á 25 m dýpi.
Hafín smíði brúar yfír Dýrafjörð
Dýrafírði.
NÝLEGA hófúst framkvæmdir við smíði brúar yfir Dýrafjörð á
móts við Lambadalsodda og Ketilseyri, en Qörðurinn er 400-500
metra breiður þar. Gert er ráð fyrir að verkinu í heild verði lokið
á árinu 1992, en áætlaður kostnaður við það er 230 milljónir króna.
Rekið hefur verið niður stálþil metra dýpi, en brúarstöplamir
í kringum einn af brúarstöplunum verða síðan steyptir ofan á þeim.
sem alls verða þrír talsins. Steypt- Stefnt er að því að steypa alla
ar súlur verða reknar niður á 25 stöplana nú í haust ef veður leyf-
ir, en á næsta ári verður sjálf
brúin smíðuð. Uppfyllingunni sem
liggja á að brúnni beggja vegna
frá verður síðan komið fýrir árið
1991, en gert er ráð fyrir að geng-
ið verði frá sjálfum veginum með
bundnu slitlagi árið 1992.
K.J.
Gjaldfelling lánsins á Sigurey:
Ákveðið að leita leiða
til iákvæðrar Iausnar
ÞINGMENN Reykjaneskjör-
dæmis fúnduðu í gær með sijórn
Byggðastofnunar vegna þeirrar
ákvörðunar stofnunarinnar að
Jóhannes Nordal, bankastjóri Seðlabankans:
Fimdur með einkabönk-
unum síðar í vikunni
JÓHANNES Nordal, bankasljóri
Seðlabanka íslands, segir að
fúndur verði með talsmönnum
einkabankanna síðar í vikunni
Lést af slysförum
EINAR Einarsson, 26 ára gam-
all háseti á Laxfossi, lést á
sjúkrahúsi í Grimsby í Englandi
síðdegis á sunnudag af áverk-
um sem hann hlaut við slys um
borð í skipinu.
Einar var að opna hurð á síðu
skipsins til að hleypa hafnsögu-
manni frá borði þegar slysið varð.
Engir sjónarvottar voru að því.
Þyrla sótti Einar heitinn um borð
og var hann kominn á sjúkrahús
um klukkustund eftir slysið. Þar
lést hann skömmu síðar af sárum
sínum.
Einar Einarsson var búsettur í
Hamraborg 16 í Kópavogi. Hann
fæddist 30. september 1963.
Hann lætur eftir sig foreldra,
systkini og unnustu.
um vaxtahækkanir þeirra um
mánaðamótin. Ekki sé búið að
tímasetja fúndinn nánar. Seðla-
bankinn hafi ekki tekið neina
afstöðu til beitingar 9. greinar
laga um Seðlabanka íslands og
ekki komi til greina að það verði
gert nema að undangengnum
viðræðum við bankana.
Lögum um Seðlabanka íslands
var breytt á síðasta þingi meðal
annars annarri málsgrein 9. grein-
ar, sem er svohljóðandi: „Seðla-
bankinn getur að fengnu samþykki
ráðherra bundið vaxtaákvarðanir
innlánsstofnana takmörkunum til
að tryggja að raunvextir útlána
innlánsstofnana verði hóflegir og
eigi hærri en þeir eru að jafnaði í
helstu viðskiptalöndum íslendinga,
svo og til að draga úr óhæfilegum
vaxtamun milli inn- og útlána að
teknu tilliti til annarra tekna inn-
lánsstofnana."
Sjá samtal við Ásmund Stef-
ánsson forseta ASÍ og formann
bankaráða Alþýðubanka og
Útvegsbanka á bls. 55.
gjaldfella 40 milljóna króna lán
er hvílir á togaranum Sigurey frá
Patreksfirði. Útgerðin Stálskip í
Halúarfirði keypti skipið á upp-
boði fyrir skömmu og hafði
Byggðastofúun ákveðið að gjald-
fella lánið, færi skipið frá Pat-
reksfirði. Á fúndinum samþykkti
sfjórn stofnunarinnar hins vegar
að leita leiða til jákvæðrar lausn-
ar fyrir Stálskip í samráði við
stjórnvöld.
Matthías Á. Mathiesen, fyrsti
þingmaður Reykjaneskjördæmis,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að á fundi þingmanna með
stjóm Byggðastofnunar á föstudag,
hefði stjóm stofnunarinnar verið
gerð grein fyrir óánægju þingmann-
anna, sem teldu að með gjaldfell-
ingu lánsins væri verið að mismuna
byggðum landsins verulega. Jafn-
framt gæti þessi ákvörðun verið
alvarlegt fordæmi. Þingmennirnir
hefðu bent á að sjávarútvegur í
Reykjaneskjördæmi ætti ekki síður
undir högg að sækja en annars stað-
ar og yrðu menn þar að fá að sitja
við sama borð og útgerðarmenn í
öðmm kjördæmum.
Matthías sagði að þessi afstaða
hefði verið ítrekuð á fundinum í gær
og niðurstaðan hefði orðið sú, að
stjórn Byggðastofnunar hefði
ákveðið að leita leiða til jákvæðrar
lausnar þessa máls fyrir kaupendur
Sigureyjar og yrði það gert í sam-
ráði við stjórnvöid. Ekki hefðu kom-
ið fram ákveðnar hugmyndir um
það með hvaða hætti það yrði hugs-
anlega gert.
Yfirskoðunarmenn ríkisreiknings:
Ekki ástæða til
frekari afskipta
Yfírskoðunarmenn ríkisreiknings fyrir síðasta ár telja ekki
ástæðu til frekari afskipta sinna vegna áfengisúttektar Jóns Bald-
vins Hannibalssonar, þáverandi Qármálaráðherra.
Yfirskoðunarmenn segja, að þar
sem áfengi þetta hafi nú verið end-
urgreitt á fullu útsöluverði og ráð-
herra hafi beðizt velvirðingar á
mistökum sínum, sé staðfest að
ekki hafi verið um opinbera risnu
að ræða í umræddu tilviki.
Þessi afstaða kemur fram í yfir-
lýsingu frá yfirskoðunarmönnum
að loknum fundi þeirra í gær. Þar
segir ennfremur, að yfirskoðunar-
menn hafi sérstaklega óskað eftir
því við ríkisendurskoðun, að gagn-
skoðað verði hvort áfengiskaupa-
heimildir hafi verið misnotaðar í
fleiri tilvikum á síðasta ári.
Sjá nánar yfirlýsingu yfirskoð-
unarmanna ríkisreiknings á
bls. 55.