Morgunblaðið - 03.10.1989, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTOBER 1989
su ' ótvíræða skylda, ' sem hvílir á
ráðamönnum þjóðfélagsins. Eftir-
leikurinn er síðan á valdi einstakl-
ingsins og þess, sem gerist við
dýpstu rætur mannlegs eðlis og eng-
inn annar getur haft áhrif á. En góð
og skynsamleg fræðsla mun skila
sér sem jákvæð áhrif á þá ákvarð-
anatöku, þegar á reynir. En til þess
að allir njóti þessara vitrænu forrétt-
inda, verður að upplýsa unglinga í
grunnskólum og framhaldsskólum
landsins um hættuna frá öllum sjón-
arhornum. Þarna liggur vandinn og
hann verður að leysa sem fyrst.
A síðustu árum hefur tekist að
finna nýjar aðferðir til þess að hjálpa
þeim, sem hafa ánetjast fíkniefnum,
aftur til lífsins, en eftir sem áður
eni batahorfur mjög einstaklings-
bundnar. En hvort sem leiðin liggur
aftur til lífsins eða hætta er á að
hún liggi til fíkniefnaneyslu má ætla,
að ráðleggingar þær, sem vísinda-
maðurinn dr. Peelee hefur svo snilid-
arlega lýst, komi ávallt að góðu
gagni. Hann segir: „Besta móteitrið
gegn fíkn er gleði og hæfni, gleði
sem hæfileiki til þess að njóta
ánægju af samvistum við fólk, störf-
um, sem við leysum af hendi og
annars, sem okkur býðst; hæfni sem
geta til þess að ná tökum á um-
hverfi okkar og fultvissa um, að
verk okkar skipti máli fyrir okkur
sjálf og aðra.“
llöfundur er prófessor í
lyQaefnufræði við Háskóia íslands.
gefið að borða. Að kvöldi var hún
háttuð og lögð aftur í rúmið. Það
er ómögulegt að vita hversu oft þess-
ar óvenjulegu athafnir hefðu verið
endurteknar, ef við hefðum ekki
gripið í taumana. Nákvæm rannsókn
á báðum sjúklingum leiddi í ljós ein-
kenni Parkinsons-sjúkdóms á háu
stigi. Hreyfingartregða þeirra ásamt
tannhjólastífleikanum hafði þegar
vakið grun minn, en það virtist þá
ósennileg sjúkdómsgreining. Parkin-
sons-sjúkdómur kemur venjulega í
ljós eftir sextugsaldurinn og næstum
aldrei fyrir fimmtugsaldurinn. Auk
þess byrjar sjúkdómurinn hægt og
bítándi, er næstum ómerkjanlegur.
Þessir sjúklingar voru ungir og ein-
kenni höfðu komið í ljós svo að segja
á einni nóttu.“
Að lifa lífinu
Sú saga, sem sögð er aðeins að
hluta til hér að framan því að henni
þarf ekki að ljúka fyrr en eftir
nokkra áratugi, er hrópandi and-
hverfa sögunnar um Peter Hofmann.
Hann fæddist í Þýskalandi í lok
síðari heimsstyrjaldar eða nánar til-
tekið árið 1944. Hann var mjög
duglegur unglingur, sem aldrei unni
sér hvíldar frá áhugamálum sínum
og naut lífsins út í æsar. Hann var
svo áhugasamur um íþróttir, að for-
eldrar, kennarar og vinir spáðu hon-
um olympískum frama. Peter náði
snemma að hlaupa 100 metra á
10,6 sekúndum, gerði stangarstökk
að sérgrein sinni í fijálsum íþróttum
og varð tvisvar sinnum unglinga-
meistari Hessen í tugþraut. Einnig
stundaði hann knattspyrnu, en þegar
hann komst að raun um, að sumir
íþróttafélagar hans misnotuðu „ana-
ból stera“ sagði hann skiiið við
íþróttir. í skóla var hann áhugasam-
ur meðlimur í rokkhljómsveit og
þegar hann lauk námi 18 ára gam-
all fór hann í herþjónustu í 8 ár. í
hernum var hann í fallhlífarsveitum
og varð brátt þekktur undir gælu-
nafninu „syngjandi hermaðurinn“.
Eins og títt er þótti Peter Hofmann
gott að syngja í sturtubaði og að
loknum vinnudegi hraðaði hann sér
í óperuna til þess að hlusta á og
læra af uppáhaldssöngvurunum.
Þegar hann losnaði úr herþjónustu
hóf hann söngnám af alvöru og er
í dag og hefur verið frá því tæplega
þrítugur að aldri einn dáðasti óperu-
söngvari, sem nú er uppi. Einnig
bregður hann fyrir sig að syngja
djass með miklum tilþrifum. Ekki
er þessi saga sögð til þess að reyna
að leiða líkur að því, að Peter Hof-
mann hafi haft meiri andlega og
líkamlega hæfileika en gerist og
gengur. Reyndar má fuilyrða, að
sumir unglingar séu hliðstæðum
kostum búnir. Það sem er athyglis-
verðast er ef til vill það, sem ekki
kemur fram í frásögninni nema
óbeint, að ungur að árum, þegar
hann stúndar íþróttir af kappi hefur
hann þroskað með sér siðgæði og
viljastyrk, sem gerir honum kleift
að hafna óleyfilegum hjálparmeðul-
um og snúa sér frá hættunni að
öðrum áhugamálum. Að því leyti er
hann fyrirmynd, sem gott og gagn-
legt er að muna.
Hver ber ábyrgð?
Svo er Guði fyrir að þakka, að
ábyrgðarskiptingin fór ekki á milli
mála í brúnni forðum. En allan þann
tíma, sem rætt hefur verið um fíkni-
efni hér á landi, er eins og enginn
sé tilbúin að axla ábyrgð, ekki einu
sinni landsfeðurnir, sem þó eiga „að
sjá allt, vita allt og geta allt“. A
þeim hlýtur mikil ábyrgð að hvíla.
Ekki virðist ég vera einn um þá
skoðun, að betur megi ef duga skal
í þessum efnum því að æ oftar hafa
ungir menn bent á hættuna með
samþykktum og ábendingum frá
félagasamtökum og lofar það góðu.
Þó finnst mér eins og slíkar sam-
þykktir hafi ekki skort og vísast er
að nauðsynlegt sé að fylgja þeim
eftir. Ég get þó ekki látið hjá líða
að lýsa yfir eindregnum stuðningi
mínum við samþykkt ungra sjálf-
stæðismanna í Kópavogi fyrir
nokkru og læt í ljósi þá von, að þeim
takist að tendra skilningsljós í hug-
skoti eldri félaga sinna og fylgi sam-
þykktinni eftir því hún er traustur
og góður grunnur og stefnumörkun.
Hún bendir einnig á, að samstarf
margra er nauðsynlegt eigi árangur
nást. Þar sem ég óttast, að sam-
þykktin hafi ekki náð augum allra
þeirra, sem hún á skilið, leyfi ég
mér að vitna orðréttí hana: „Ungu
fólki stafar sífellt meiri hætta af
fíkniefnum og hefur neysla þeirra
aukist til muna. Of seint er í rassinn
gripið þegar einstaklingar hafa
ánetjast þeim og er því fyrirbyggj-
andi starf og fræðsla mikilvægasti
þátturinn í fíkniefnavömum. Stuðla
þarf að því að skólar og öll meirihátt-
ar félög svo sem íþróttafélög og
æskulýðshreyfingar taki þetta starf
í sínar hendur." Þarna er að mínu
mati bent á kjama málsins.
Hvaðertilráða?
Eitt af því dapurlegasta í sam-
bandi við forvarnir gegn fíkniefnum
hér á landi er, að ekki skuli vera
einhugur og samstaða um á hvern
hátt þær skuli unnar. Á allra síðustu
áram hefur verið hafin svokölluð til-
raunakennsla í sumum skólum
landsins fyrir atbeina menntamála-
ráðuneytis og engu er líkara en að
sumir haldi, að nægilegt sé að kenna
unglingum að segja nei, ef og þegar
háskinn blasir við. Væri vandinn svo
auðleysanlegur væri löngu búið leysa
hann. Það er vissulega samofið eðli
viti borins manns að segja nei eða
já eftir atvikum á ákveðnum for-
sendum, sem viðkomandi verður að
þekkja, ef þær eru þekktar á annað
borð. Nú vill svo til, að forsendur
til þess að segja nei við fíkniefnum
era fjölmargar, bæði siðferðilegar,
heilsufræðilegar og lagalegar og
þær verður að kynna öllum. Það er
^ Sálfræóistöóin
Námskeió
Sjálf sþekking - Sjálf söryggi
A námskeiöinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum
• Hvernig má greina og skilja samskipti
•Hvernig ráða má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
Leiðbeinendur
eru
sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
" Innritun og nánari upplýsingar [■■■1
I í símum Sálfræðistöðvarinnar: ! VZSA
62 30 75 og 21110 kl. 11-12.
Nýr scflw
ÁSBYRGI
HAJLiJU^
Mffllil
„ó VrUi Þorsteinséttir
rjl-sla súm « ísknskn snöi i 30 ar
„KVOLDIÐ ER FAGURT
Frumsýning 6 október
Skemmtunin „Kvöldið erfagurt" erskrifað
af Þorsteini Eggertssyni.
Auk Hauks og Erlu koma fram söngkonurn-
ar Jóhanna Linnetog Ingveldur Ólafsdóttir.
Stórhljómsveit Hauks
Morthens leikur undir.
Útsetningar og hljómsveitarstjórn:
ReynirSigurðsson.
Hljómsveitina skipa: ReynirSigurðsson,
Árni Elvar, GuðmundurSteingrímsson,
GunnarHrafnsson, RúnarGeorgsson og
Edwin Kaaber.
Komið á glæsilegan nýjan skemmtistað (sem tekur u.þ.b. 200 manns í sæti)
og sjáið þessa einstöku sýningu sem hundruðir manna hafa beðið eftir í 30 ár.
Sýnishorn af lagavali:
Ó borg mín borg
Simbi sjómaður
Stína ó Stína
Sjómaður dáðadrengur
Litla stúlkan við hliðið
Er ástin andartaks draumur?
Draumurfangans
Ég erkominn heim
(íheiðardalinn)
Lóa litla á Brú
París
Vagg og velta
Þrek og tár
og fjöldi annarra laga sem allir þekkja
ASBYR6I
Matseðill:
Forréttir að eigin vali:
Kryddjurtasoðin laxarós
Heimsins besta fiskisúpa
Kóngasveppasúpa
Ræbjur á austurlandavísu
Aðalréttur:
a) Lambahnetusteik
b) Grísabarbecucsteik
c) Grillaður lax í sólskinssósu
Eftirréttir:
Konfekttriffle
Sælkeraís
eða kaffi og koníak
4 salir - eitthvað fyrir alla.