Morgunblaðið - 03.10.1989, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUUAGUR 3. OKTÓBER 1989
21
mættu alveg hugleiða það fjár-
hagslega tap og þann áfellisdóm
sem í þessum orðum felst. íslensku
vorgotssíldinni var þá nánast út-
rýmt svo hún hefur aldrei borið sitt
barr. Það er ekki gefið hvort eða
hvenær tekst að byggja upp hrun-
inn stofn. Allt fram til ársins 1971
var viðhaldið meira en fimmföld
kjörsókn í síldarstofnana. Það
síðasta ár voru 3 af hveiju 4 eftirlif-
andi síldum eldri en þriggja ára á
öllum íslandsmiðum tíndar upp. En
eftirtekjan var komin úr 600 þús.
niður fyrir 12 þús. tonn, og þá
gafst flotinn loksins upp. Síldin fékk
að vera alveg í friði næstu ár. Það
var einstakt glópalán, hvernig
síðustu leyfum stofnsins tókst að
standa fyrir góðri meðalhrygningu
1972 eftir að klak hafði mistekist
árum saman. Annars ættum við
enga sumargotssíld, fremur en
norsk-íslenska eða vorgotssíld.
15. Höfum við efiii á þessu?
Sleppum nú alveg ástandi fiski-
stofnanna, og hvað það kostar okk-
ur. í grein Björns var aðeins rætt
um flotastækkunina, hvað kostar
hún okkur? Ætli það sé fjarri lagi
að 5000 nímlesta árleg flotastækk-
un kosti 5 milljarða? Ofveiði eykur
yfirleitt ekki magnið sem til skipt-
anna er. Það þýðir að þessi flota-
stækkun veiðir í raun minna en
ekki neitt. Öll er þessi ijárfesting
því þjóðinni í heild sinni minna en
einskis virði. Samt lána sameigin-
legir sjóðir landsmanna til hennar.
Hún er að mestu ógreidd. Sjávarút-
vegur skuldaði 30 milljarða í júli í
fyrra en skuldar nú 60 milljarða,
og það á ránvöxtum. Hann græðir
ekkert, og getur ekkert borgað. Við
skulduðum erlendis 91,5 milljarða
í mars í fyrra og 150 milljarða nú.
Atvinnuvegirnir eru á heíjarþröm-
inni, máttarstólparnir fúnir og þjóð-
félagið riðar til falls. Við getum
heldur ekkert greitt. Ellilífeyris-
þegum íjölgar, en börnum okkar
fer fækkandi. Geta þau greitt þenn-
an óþarfa flota? Erfa þau auðlind
eða ördeyðu? Þessi árlega ijárhæð
jafngildir útflutningsverðmæti um
70.000 þorsktonna, þ.e. talsvert
meira en það magn sem fiskifræð-
ingar leggja til að þorskaflinn verði
minnkaður um á næsta ári. Hún
jafngildir 100 þús. króna skatti á
hverja 5 manna fjölskyldu og fyrir
hana mætti t.d. greiða laun 500
vísinda-, fræði- eða listamanna, svo
ég sé nú sjálfum mér næstur. Þá
er ekkert farið að reikna reksturs-
kostnaðinn á þessari óþarfa flota-
stækkun. Hann er e.t.v. hálfur ann-
ar milljarður, en safnast upp. í ár
þarf ekki aðeins að reka þann flota
sem keyptur er í ár héldur einnig
þær 5000 rúmlestir sem keyptar
voru í fyrra, og hitteðfyrra . . .
Þetta er tugmilljarða dæmi þessi
vitleysisstefna, og flotastækkunin
er alls ekki eini gallinn á kvótakerf-
inu.
16. Á að halda þessu
lengi áfram?
um að fara að þeirra tillögum. Ég
mælist til þess að formaður mál-
efnanefndar Sjálfstæðisflokksins
um sjávarútvegsmál íhugi betur af
hveiju flotinn minnkar ekki og leið-
rétti nú rökvillurnar. Legg til að
hann viðurkenni að stjórnun fisk-
veiða hafi mistekist, striki yfir alla
þessa vitleysisstefnu, snúi við blað-
inu og skrifi í staðinn, áður en það
verður um seinan:
Stefna Sjálfstæðisflokksins er að
horfið verði frá núverandi kvóta-,
hafta-, miðstýringar- og skömmt-
unarstefnu í sjávarútvegi og tekin
upp ný stefna byggð á jafnrétti og
fijálsum viðskiptum með tímabund-
in fiskveiðileyfi.
Er það nokkuð til of mikils
mælst?
Heimildir: Siglingamálastofnunin:
Skrá yfir íslensk skip 1989.
Hafrannsóknastofnunin: Nytjastofnar sjáv-
ar og umhverfisþættir, ág. 1989.
Seðlabanki íslands: Hagtölur mánaðarins
ág. 88 og ág. 1989.
Upplýsingar úr Mbl. 29. ágúst og frá fjár-
hæðanefnd fiskiskipa.
Hiifundur er eðlisfræðingur.
MORSE CONTROL
Stjórntæki fyrir vélar og gíra, spil o.fl. Mikiö úrval fyrirliggjandi. Flestar lengdir og
sverleikar af börkum. Stýrisvélar og stýri fyrir allar vélategundir og bátagerðir.
—
Hagstætt verð -
leitið upplýsinga.
VELASALAN H.F.
ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122
HORKUGOÐAR
LÍMTRÉ SPLÖTUR
*
I sólbekki.á borðið.í stigaþrep
Junckers
Það þýðir ekkert að stinga ráð-
villtir höfðinu í sandinn og þykjast
ekki sjá í hvert óefni stefnir. Hjálp-
ar ekkert að kyija rökvilltir ráð-
herrakórinn, þennan þjóðhættulega
og sefjandi söng áratugarins að nú
leyfi efnahagsástandið ekki upp-
byggingu fiskistofnanna. Að fiski-
fræði sé ung vísindagrein og fiski-
fræðingar viti ekki allt. Að hugsa
þurfi um fólkið í landinu og ekki
bara fiskinn o.s.frv. Ekki er enda-
laust hægt að ýta vandanum yfir
til næstu ríkisstjórnar. Hann stækk-
ar og stækkar. Hefði ekki verið nær
að byggja upp fiskistofnana heldur
en flota sem veiðir í raun minna
en ekki neitt? Hvernig í ósköpunum
ætti þessi öfugþróun að geta bætt
hag útgerðarinnar, eða landsbyggð-
arinnar? Hveijum er hún eiginlega
í hag?
17. Hvað er til ráða?
Umræðan í þjóðfélaginu hefur
hingað til ekki snúist mikið um það
hvort minnka ætti flotann heldur
hvort nokkuð ætti að taka mark á
mælingum og tillögum fiskifræð-
inganna. Mál er að koma henni á
það plan að við spyijum ekki hvort
eða hvenær heldur hvernig við ætl-
Rustik-borðplöturnar eru framleiddar úr beyki
og eik. Þetta eru þær viðartegundir sem best
henta í borðplötur vegna hörku og útlits og stafa-
mynstrið gefur plötunum sérstæða og fallega
áferð. Beykið er einnig fáanlegt í hvítu.
Plöturnar eru 27 mm þykkar og því nær óslítan-
legar - komi t.d. fram rispur á yfirborði plötunnar
vegna sérlega grófrar meðhöndlunar er auðvelt
að gera við skemmdina. Platan verður þá sem ný.
Rustik-plötur; nánast í hvað sem er: sólbekki,
tröppur, stigaþrep, handrið, bókahillur o.s.frv.
Komdu og fáöu bækling
um Junckers-
límtrésplöturnar.
ÁRMÚLÁ 8,108 REYKJAVÍK, SÍMI 82111