Morgunblaðið - 03.10.1989, Síða 27

Morgunblaðið - 03.10.1989, Síða 27
MORGUNIÍÍiAöíi) ;i>KU)JJUai)AGUR. 3.( OJiTORJíH d3W/ m Reuter Robert Runcie, erkibiskup af Kantaraborg og yfirmaður Ensku bisk- upakirkjunnar og Jóhannes Páll páfi II undirrita sameiginlega yfirlýs- ingu við lok viðræðna þeirra í gær. Sameiginleg yfirlýsing páfa og yfir- manns Ensku biskupakirkjunnar: Unnið verði að samein- ingu kirkjudeildanna St. Andrew’s. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Páfa- garði, Róm, Lundúnum. Reuter, The Daily Telegraph. JÓHANNES Páll páfi II og Robert Runcie, erkibiskup af Kantaraborg, hafa heitið því að vinna að sameiningu katólsku kirkjunnar og Ensku biskupakirkjunnar. Kemur þetta fram í sameiginlegri yfirlýsingu þeirra sem birt var í gær er Rómarfor Runcie lauk. Viðræður Runcie og páfa hafa vakið takmarkaða hrifningu á Bretlandi. Yfirlýsingar erkibis- kupsins þess efnis að kristnum mönnum beri að líta á hans heilagleika biskupinn í Róm sem trúarleiðtoga sinn hafa sömuleiðis fallið í grýttan jarðveg. Þá má gera ráð fyrir því að ummæli sem höfð eru efltir Ro- bert Runcie í viðtali sem birtist um helgina eigi efltir að leiða til átaka milli hans og bresku ríkisstjórnarinnar. í yfirlýsingunni segir að báðir geri kirkjuleiðtogarnir sér öldungis ljóst að vinna þurfi að lausn fjöl- margra ágreiningsefna en í henni er hverki vikið beint beint að andiegu valdi páfa. Það var einmitt hið óskor- aða vald páfa sem leiddi til klofnings- ins árið 1534 er Hinrik VHI neitaði að hlýða lengur boðum hans. Umræðurnar snerust einkum um þetta atriði og kom fram í máli Jó- hannesar Páls páfa að leiðtogahlut- verk páfans mætti ekki einungis verða táknrænt, tækist að sameina kirkjudeildimar. Fyrir Rómarförina hafði Robert Runcie lýst yfir því að stöðugt fleiri fylgismenn Ensku bisk- upakirkjunnar gætu fellt sig við að viðurkenna páfann í Róm sem helsta yfirvald í andlegum efnum hér á jörðu. Það vald þyrfti hins vegar að skilgreina á ný er kirkjudeildirnar hefðu verið sameinaðar. Þessi yfir- lýsing varð m.a. til þess að efnt var til mótmæla á Heathrow-flugvelli í Lundúnum á föstudag er Runcie hélt suður í álfu og skoðanakannanir sem birtar voru í dagblöðum gáfu til kynna að erkibiskupinn gæti tæp- ast rökstutt þessa fullyrðingu sína. í einni könnuninni kváðust aðeins um 20 prósent aðspurða geta tekið undir þetta sjónarmið en allir sem þátt tóku heyrðu Ensku biskupa- kirkjunni til. Runcie ítrekaði yfirlýsingu þessa á sunnudag eftir að hafa átt bæna- stund með hinum smurða frá Kraká. Varpaði hann fram þeirri spurningu hvort allir kristnir menn gætu ekki viðurkennt hlutverk páfans á sama hátt og sérstakt vald biskupsins í Róm hefði verið viðurkennt á dögum frumkirkjunnar. Undirsátar erkibis- kupsins hafa ítrekað bent á að hug- mynd hans sé sú að páfinn í Róm , verði e.k. sameiningartákn kristinna raanna, ekki sé í ráði að gera hann að beinum yfirmanni Ensku biskupa- kirkjunnar líkt og anstæðingar Run- cie hafa sakað hann um. Ummæli Jóhannesar Páls páfa II voru á hinn bóginn túlkuð á þann veg að hann hafnaði e.k. táknrænu forystuhlut- verki. Séra Ian Paisley, þingmaður frá Norður-írlandi, hélt til Rómar og mótmælti fundi páfa og erkibisk- upsins. Paisley lýsti m.a. þeirri skoð- un sinni að Runcie væri svikari en þremur fylgismönnum þingmannsins var vikið úr messu í Rómarborg eft- ir ítrekaðar truflanir. í viðtali sem birtist um helgina í tímaritinu Director varar Robert Runcie við að breskt sámfélag verði samfélag Farísea, sem byggist á eig- ingirni og þröngsýni. Kristur hafi ekki gagnrýnt Faríseana fyrir lífemi þeirra heldur dómhörku og hræsni „Eg á við þá afstöðu að atvinnulaus- ir geri of lítið til að hjálpa sér sjálfir og að hafi menn aðeins vilja komist þeir áfram,“ segir Runcie m.a. en tímaritið er gefið út af sambandi atvinnurekenda. Erkibiskupinn segir og að eigingirni og einkahagsmunir séu ekki eina aflið í samfélaginu og að sjálfkrafa samhengi sé ekki á milli auðsköpunar og hamingju. Þótt Robert Runcie nefni Margaret Thatc- her, forsætisráðherra Bretlands, hvergi á nafn þykir enginn vafi leika á því að gagnrýninni sé beint að ríkis- stjórn hennar. Alltjent sögðu ónafn- greindir þingmenn íhaldsflokksins að þetta væri „illa dulbúin" árás á breska forsætisráðherrann en Runcie og handhöfum ríkisvaldsins hefur áður lent harkalega saman á vald- atima Margaret Thatcher. Einn þing- maður flokksins sagði að hefði kristi- legu verðmætamati hnignað hefði kirkjan aðeins við sjálfa sig að sak- ast. SUPERAPEXGJÖLD Bókist með U daga fyrirvara Glasgow..............18.680,- Amsterdam............24.580,- Hamborg..............24.630,- London...............25.640,- Osló.................25.760,- Luxemborg............26.060,- Frankfurt............26.060,- París................26.060,- Kaupmannahöfn........26.840,- Gautaborg............26.840,- Stokkhólmur..........31.530,- Helsinki.............34.240,- NewYork**............36.170,- Orlando**............47.360,- pexfmgjOld til evrópu Köln....................26.860,- Hannover................26.860,- Dusseldorf..............26.860,- Vestur-Berlín...........27.480,- Stuttgart...............28.740,- Munchen.................30.050,- Brussel.................33.300,- Genf....................38.230,- Vín.....................39.270,- Búdapest................40.700,- Varsjá..................40.750,- Prag....................41.530,- Malaga..................43.660,- Lissabon................44.510,- Aþena...................56.530,- NÝTT - SÉRFM6JÖLD TIL ÍTILÍU Bjóðum með góðu úrval hótela: Mílanó 45.900,- Feneyjar 49.150,- Róm 49.210,- Pisa/Fiórens 51.370,- Napólí 54.940,- SÉRSTÖK JÓLAFARGJÖLD Brottför 1/12 - 23/12 Osló 24.150,- Kaupmannahöfn 25.160,- Gautaborg 25.160,- Stokkhólmur 29.560,- HOPPFARGJÖLD - önnur leið Fyrir yngri en 25 óra Glasgow ..9.350,- Frankfurt 1 1.370,- Amsterdam 12.260,- London 12.820,- Luxemborg 13.000,- París 13.020,- Kaupmannahöfn 13.410,- Gautaborg 13.410,- Sérfargjöld til Asíu með SAS Bangkok..................70.570,- Singapore................76.370,- Tókíó....................82.920,- Peking...................82.920,- Sérfargjöld til S-Ameríku með SAS Ríó......................82.920,- Sao Paulo................85.339,- Montevideo...............89.320,- Buenos Aires.............89.320,- Satiago/Chile............95.730,- *í gildi eftir 15/10. Pr. gengi 1/9 ’89. Einfaldlega betra greiðslukort. FERDASKRIFSTOFAN sacp J Suðurgött u 7, sími 624040. Reynsla okkar og trausl rióskiptasambönd koma farþegum okkar til góóa Við höfum á að skipa sérþjálfuðu starfsfólki, sem fylgist vel með þeim breytingum er verða í fargjaldaheiminum. Þannig tryggjum við ávallt hagstæðasta verðið fyrir viðskiptavini okk- ar hverju sinni. Viljir þú panta gistingu, bílaleigubíl eða skoðun- arferðir, þá sjá traustir umboðsmenn okkar víðs vegar um heim um að þú fáir örugga fyrsta flokks þjónustu alla leið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.