Morgunblaðið - 03.10.1989, Qupperneq 34
34
MORGL'NBIlAÐIÐ I>RIÐ.)UI)AGUR 3. OKTÓBER 1989
Húsnæðisstofiiun og Akureyrarbær:
Upplýsingar og þjónusta
varðandi húsnæðismál
verði undir sama þaki
SIGURÐUR Guðmundsson framkvæmdastjóri Húsnæðisstofhunar
ríkisins mun eiga fúnd með bæjarráði Akureyrar í næstu viku þar
sem rætt verður samþykkt húsnæðismálastjórnar um uppbyggingn
umboðsmannakerfis stofiiunarinnar í dreifbýlinu, en gert er ráð fyr-
ir að sérstakur starfsmaður verði ráðinn á Akureyri til að sinna
málefhum Húsnæðisstofnunar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Skemmdir urðu á þremur flugvélum á Akureyrarvelli í miklu hvassviðri sem gekk yfir undir kvöld á
laugardag og aðfaranótt sunnudags. Þá fauk uppsláttur sem tveir menn voru að vinna við og varð
annar þeirra undir veggnum og ökklabrotnaði.
Mikið hvassviðri:
Þijár flugvélar skemmdust
og veggur fauk yfir mann
Bílar, hjólhýsi og trillur fiiku
MIKLAR annir voru hjá lögreglumönnum á Akureyri á laugardags-
kvöld og aðfaranótt sunnudags, en mikið hvassviðri gekk þá yfir.
Um kvöldmat á laugardag var vindurinn um 66 hnútar eða yfir 12
vindstig. Skömmu eftir miðnættið bætti í vindinn og mældist hann
á tímabili um 70 hnútar, eða allt upp í 14 vindstig.
I samþykktinni segir að Hús-
næðismálastjórn samþykki að heíja
undirbúning að stofnsetningu um-
boðsmannakerfis í dreifbýli með því
að fela framkvæmdastjóra að leita
eftir samningum við bæjarstjórn
Séra Torfi K. Stefánsson
Hjaltalín.
Möðruvallaklaust-
ursprestakall;
Séra Torfi
settur í
embætti
SÉRA Torfi K. Stefánsson
Hjaltalín hefur verið settur
inn í embætti sóknarprests að
Möðruvöllum í Hörgárdag.
Prófastur Eyfirðinga, séra
Birgir Snæbjörnsson, setti
séra Torfa inn i embætti.
Viðstaddir athöfnina voru
auk fjölda sóknarbarna tveir
þeirra presta sem áður höfðu
þjónað prestakallinu, séra Þór-
hallur Höskuldsson, en hann
var prestur á Möðruvöllum á
árunum 1968 til 1982 og séra
Pétur Þórarinsson frá 1982, en
þeir eru nú báðir þjónandi
prestar á Akureyri.
Séra Torfi gegndi starfi
æskulýðsfulltrúa þjóðkirkjunn-
ar sl. ár og síðustu mánuðina
var hann deildarstjóri fræðslu-
deildar á Biskupsstofu. Hann
vígðist árið 1981 til Þingeyrar-
prestakalls í Dýrafirði en fór
til framhaldsnáms í Lundi í
Svíþjóð árið 1984. Séra Torfí
er kvæntur Kristínu Magnús-
dóttur kennara og eiga þau
fjögur börn.
I Möðruvallaklausturspre-
stakalli eru fjórar kirkjur,
Möðruvalla-, Giæsibæjar-,
Bægisár-, og Bakkakirkja í
Öxnadal, en auk þess hefur
presturinn með höndum þjón-
ustu á Dvalarheimilinu Skjald-
arvík.
Akureyrar um þjónustu- og upplýs-
ingastarf fyrir Húsnæðismálastjórn
í þágu almennings. „Skal stefnt að
því, ef samningar takast, að starf-
semi þessi geti hafist svo fljótt sem
auðið er. Að fenginni reynslu verði
síðan, í kjölfar þessa, undirbúnar
tillögur um næstu skref á þessu
sviði,“ segir í samþykkt Húsnæðis-
málastjórnar.
Sigurður J. Sigurðsson forseti
bæjarstjórnar Akureyrar sagði í
samtali við Morgunblaðið að bæjar-
ráð myndi halda fund með Sigurði
Guðmundssyni framkvæmdastjóra
Húsnæðisstofnunar þar sem reynt
yrði að komast að samkomulagi
sem hagkvæmt yrði fyrir alla aðila,
þ.e. Húsnæðisstofnun, stjórn verka-
mannabústaða og Akureyrarbæ.
„Hugmyndin er sú að koma þessu
fyrir á einum stað þar sem almenn-
ingur gæti átt aðgang að greiðum
upplýsingum tengdum húsnæðis-
málum. En með því væri að ein-
hveiju marki hægt að samnýta að-
stöðu og starfsfólk," sagði Sigurð-
ur.
Gert er ráð fyrir að sérstakur
starfsmaður verði ráðinn til að
sinna þessum málaflokki, en ýmis
verkefni yrðu sameiginleg eins og
rekstur skrifstofu og fleira. „Það
sem mestu máli skiptir í þessu sam-
bandi er að þeir sem þurfa á þjón-
ustu að halda þurfi ekki að hlaupa
á marga staði til að leita sér upplýs-
inga,“ sagði Sigurður.
Sigurður sagði hugmyndir
manna þær að væntanlegur starfs-
maður Húsnæðisstofnunar myndi
þjóna víðara svæði en einungis
Akureyri.
Að sögn Úlfars Hreiðarssonar
húsvarðar er búist við að smiðir
ljúki frágangi um miðjan mánuðinn.
Þá eigi eftir að setja upp mörk,
körfur og önnur tæki en búist sé
við að það takist í mánuðinum þann-
Þijár flugvélar á Akureyrarflug-
velli skemmdust og varð tjónið
mest á Frú Ómars Ragnarssonar,
sem fauk upp í einni vindhviðunni
og skemmdist skrokkur vélarinnar
og hægra hjól hennar fór undan.
Vængendar og stél á annarri vél í
eigu nokkurra einstaklinga á Akur-
eyri skemmdust og þá urðu einnig
lítilsháttar skemmdir á annarri vél
í eigu Omars Ragnarssonar, en við
þær var gert í gær.
Rétt fyrir kl. 14 á laugardag
fauk uppsláttur sem tveir menn
ig að hægt verði að vígja húsið
fyrir mánaðamót.
Að byggingu íþróttahússins
standa fjögur sveitarfélög, þau
sömu og standa að Hrafnagiisskóla:
Hrafnagilshreppur, Saurbæjar-
höfðu verið að vinna við í Litluhlíð
og varð annar mannanna undir
veggnum. Maðurinn var fluttur á
slysadeild og reyndist vera ökkla-
brotinn.
Síðar um daginn var tilkynnt um
skemmdir á bifreið við Leirunesti,
en gámur hafði fokið á hana og
skemmt talsvert. Um kvöldmatar-
leytið komst vindurinn í um 12 vind-
stig og höfðu lögreglumenn þá vart
undan að sinna útköllum vegna
ýmiss konar hluta sem hófust á loft
í rokinu, uppsláttur, byggingarefni,
hreppur, Öngulsstaðahreppur og
Svalbarðsstrandarhreppur. Það er
fyrst og fremst íþróttahús fyrir
skólann en verður leigt öðrum eftir
klukkan 17 á daginn. Nú þegar
liggja fyrir margar tímapantanir,
aðallega frá íþróttafélögum, fyrir-
tækjum og einstaklingum á Akur-
eyri. Þá er búist við að félög og
einstaklingar í hreppunum fjórum
verði með æfingar í húsinu.
Benjamín
járn- og þakplötur og vinnuskúrar
svo eitthvað sé nefnt.
Þá fauk lítill sendibíll á hliðina,
en hann stóð við verksmiðjuna
Sjöfn. Rúður brotnuðu ogyfirbygg-
ing bílsins skemmdist. Hjólhýsi við
Tjarnarlund fauk á hliðina og var
tjóðrað niður. Trilla sem var við
bryggju við Slippstöðina fór upp og
fleiri trillur voru við það að fara
þar sem festar héldu ekki. Þá fuku
hurðir upp á nokkrum stöðum og
eitthvað var um að rúður brotnuðu.
Þak á skemmu í eigu ístess fauk,
en þar var um að ræða dúk strengd-
an yfir stálgrind.
„Það voru miklar annir í kjölfar
þessa hvassviðris og ýmislegt fór
úrskeiðis en tjón held ég hafi ekki
verið umtalsvert. Það fór betur en
á horfðist," sagði Gunnar Rand-
versson varðstjóri lögreglunnar.
Hlíðarfiall:
Ný skíðalyfta
sett upp
Heildarkostnaður
um 6,2 milljónir
BÆJARRÁÐ hefur heimilað
íþróttafulltrúa að panta skíða-
lyftu af gerðinni Doppelmayr OE
181 og jafnlramt að láta undirbúa
og hefja framkvæmdir við undir-
stöður og uppsetningu lyftunnar.
Skíðalyftan verður í Hólabraut í
Hlíðarfjalli og er einkum ætluð
börnum og byijendum.
í greinargerð bæjarverkfræðings
vegna lyftukaupanna kemur fram
að leitað hafi verið óformlegra til-
boða í skíðalyftu frá fjórum fyrir-
tækjum, sem helst þóttu koma til
greina. Fyrirtækin sem leitað var
til eru Leitner á Ítalíu, GMD Mull-
er-Lift í Sviss, Bohrer Lift í Aust-
urríki og Doppelmayr einnig í Aust-
urríki. Aðeins eitt þessara fyrir-
tækja, Doppelmayr, var tilbúið að
bjóða í skíðalyftu af þeirri gerð sem
óskað var eftir og hefur bæjarverk-
fræðingur lagt til að því tilboði verði
tekið.
Áætlaður kostnaður við lyftuna
uppkomna er tæplega 6,2 milljónir
króna. Lyftan sem er svokölluð
diskalyfta eykur mjög öryggi barna
og þeirra sem hana nota. Sú lyfta
sem fyrir var verður tekin niður,
en hún þótti mikil slysagildra.
Unnið að lokaft-ágangi íþróttahúss Hrafiiagilsskóla:
Akureyringar sækja um kvöldtímana
Ytri-Tjörnum.
UNNIÐ er að lokafrágangi Iþróttahúss Hrafnagilsskóla og er stefht
að því að taka það í notkun síðar í mánuðinum. Margir hafa sýnt
áhuga á að fá æfuigatíma í húsinu á kvöldin, meðal annars hafa
margar pantanir komið frá félögum og hópum á Akureyri.