Morgunblaðið - 03.10.1989, Side 56
XJöföar til
i i fólks í öllum
starfsgreinum!
mmmm,
INÚNUSU
IsK/PADEILD
\SAMBANDS/NS
SÍMI 91-698300
ÞRIÐJUDAGUR 3. OKTÓBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Utlendingur
í gæsluvarð-
haldi grunað-
ur um fjársvik
ERLENDUR maður hefiir setið í
gæsluvarðhaldi hér í 10 daga
vegna gruns um allumfangsmikil
Qársvik.
Aðallega er um að ræða tékka-
svik en í fórum mannsins hafa fund-
ist ýmsir aðrir pappírar sem talið
er að hann hafi komist yfir með
vafasömum hætti. Gæsluvarðhalds-
úrskurðurinn rennur út í dag. Hjá
RLR fengust ekki upplýsingar um
umfang málsins né um hvort kraf-
ist yrði framlengingar á varðhald-
*
Arabátur
á flugi
^ Grímsey.
ÁRABATUR á flugi er sjón sem
vart getur talist algeng, en í
hvassviðrinu sem gekk yfir Norð-
urland á laugardaginn mátti sjá
r slíka sjón í Grímsey.
Festar lítils árabáts, sem bundinn
var á landi, losnuðu með þeim af-
leiðingum að báturinn tókst á loft
og fauk um 30 metra. í lending-
unni klofnaði báturinn í tvennt og
er ónýtur eftir flugferðina. Báturinn
fauk yfir götu og var mesta mildi
að hann hafnaði ekki á húsi, sem
er skammt frá þeim stað þar sem
báturinn lenti.
Flugvél frá Flugfélagi Norður-
lands lenti á flugvellinum í Grímsey
á laugardaginn og komst hún ekki
upp á fastalandið fyrr en í gærdag.
Veija þurfti vélina og var m.a. vöru-
bíll fenginn til þess verks.
Tveir bátar voru á sjó er hvass-
viðrið hófst og komst annar í höfn
fljótlega, en hinn sem var um 5
mílur frá eynni var um tvo tíma
að berjastgegn vindinum að landi.
Bára
Morgunblaðið/Áki H. Guðmundsson
Brimið gengur yfir gömlu höfnina á Bakkafirði og útgerðarmennirnir bjarga bátum sínum á örugg-
ari stað.
Bátum
bjargað
ískjól
Bakkafirði.
NÚ fer að líða að því að ný höfn
verði tekin í notkun á Bakkafirði.
Höfiiin er við Krummanef, um einn
kílómetra innan við þorpið. Þrír
bátar hafa eyðilagst á Bakkafirði
á undanförnum árum vegna lé-
legrar hafnaraðstöðu og tveir til
viðbótar farið upp en bjargast lítið
skemmdir. Þegar spáð hefúr illa
hafa smábátaeigendur þurft að
flylja trillurnar af gömlu bryggj-
unni á öruggari stað á landi og
einn veturinn var jarðýta í fostum
ferðum með bátana fram og til
baka.
I sumar er stórgrýti raðað utan á
hafnargarðinn og smíðaður viðlegu-
kantur. Unnið er fyrir 26 milljónir
kr. Skipatrygging Austíjarða lánar
sveitarfélaginu fyrir hlutdeild þess í
kostnaði viff framkvæmdina en mörg
tjón hafa fallið á tryggingafélagið
vegna lélegrar hafnaraðstöðu á
Bakkafirði. Vonast er til að fram-
kvæmdum ljúki um miðjan mánuð-
inn. Verður þá hægt að flytja ein-
hveija báta þangað og minnka tilfær-
ingar í gömlu höfninni.
ÁHG
Fiskverð hækkar um 3,8%:
500 milljóna útgjalda-
aukning vinnslunnar
VERÐ á bolfiski til vinnslu hækk-
aði síðastliðinn sunnudag um
3,8% samkvæmt ákvörðun frá
fyrsta júní. Þá hækkaði verðið
um 4,2%. Þessi verðhækkun eyk-
ur útgjöld fiskvinnslunnar um
500 til 600 milljónir miðað við
rekstur í eitt ár. Verðbætur á
frystar afúrðir lækkuðu um fjórð-
ung frá og með nýliðnum mán-
aðamótum og telja forystumenn
fiskvinnslunnar hana nú rekna
með um 4% tapi af tekjum. Því
hljóti gengi að halda áfram að
síga á haustmánuðum til að rétta
hag vinnslunnar samkvæmt lof-
orði ríkisstjórnarinnar um viðun-
andi rekstur á gildistíma núver-
andi kjarasamninga.
Arnar Sigurmundsson, formaður
Ofbeldishneigð vanda-
mál meðal unglinga
Ráðist á tvo pilta í Árbæ, annar sleginn og hinn brenndur
OFBELDISHNEIGÐ meðal unglinga er áhyggjuefni forráðamanna
félagsmiðstöðva, grunnskóla og annarra sem meðal unglinga starfa.
í flestum hverfúm borgarinnar og nágrannasveitarfélaga heldur
saman lítill hópur unglinga sem beitir barsmíðum eða hótunum um
barsmíðar og hefndaraðgerðir við jafnaldra sína, skólafélaga og
nágranna. í síðustu viku var ráðist á tvo unglingsdrengi í Árbæjar-
hverfi, annar sleginn og hinn brenndur á handlegg. Þar voru að
verki drengir sem á síðasta ári gerðu myndbönd af því er þeir
hrelldu aðra unglinga. „Þessir drengir halda unglingum í hverfínu
í heljargreipum,“ sagði móðir í Árbænum í samtali við Morgunblaðið.
„Þeir eru oftast þrír saman og
15 ára sonur minn varð fyrir barð-
inu á þeim á miðvikudag í síðustu
viku. Þá réðust þeir að honum og
vini hans í anddyri félagsmið-
stöðvarinnar Ársels, slógu vininn
í magann, héldu syni mínum og
drápu í sígarettu eða eldspýtu á
handlegg hans. Hann fékk djúpt
sár á handlegginn, sem blæddi
mikið úr. Þessi árásvar algjörlega
að tilefnislausu." Önnur móðir í
Árbænum sagði að þessir piltar
hefðu ógnað syni hennar með
hníf fyrir nokkrum mánuðum.
Að sögn Viktors Guðlaugsson-
ar, skólastjóra í Árbæjarskóla,
hefur skólinn þegar gripið til
þeirra takmörkuðu úrræða sem
eru á valdi hans vegna þessara
pilta. Hann taldi að bömum í
hverfmu stafaði ekki ógn af þeim
í skólanum; það væri utan skóla-
tímans sem atvik eins og þau sem
fyrr voru rakin ættu sér stað.
Annaðkvöld munu forsvars-
menn félagsmiðstöðva og skóla
ásamt fólki úr ýmsum öðrum hóp-
um hittast til að undirbúa sér-
staka herferð gegn ofbeldi sem
ætlunin er að efna til í félagsmið-
stöðvum og grunnskólum í nóv-
ember. Forsvarsmenn félagsmið-
stöðva sem Morgunblaðið ræddi
við eru sammála um að þótt þau
dæmi sem hér eru rakin hafi átt
sér stað í Árbæjarhverfi eigi þau
sér hliðstæður í flestum hverfum
á höfuðborgarsvæðinu.
Forstöðumaður félagsmið-
stöðvar í öðrum borgarhluta sagði
að algjört ábyrgðarleysi einkenndi
hinn hlutfallslega fámenna hóp
ofbeldisseggja. „Þeim virðist vera
sama um allt, það er ekki hægt
að höfða til eins eða neins í fari
þeirra. Þeir beita ógnunum og
hótunum. Hvorki foreldrar né
krakkar þora að kæra eða ræða
við foreldra þessara unglinga af
ótta við hefndaraðgerðir."
stjórnar Samtaka fiskvinnslu-
stöðva, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að verðhækkunin væri sam-
kvæmt ákvörðun frá því í júníbyijun
og gilti nýja verðið til loka næsta
janúarmánaðar. Jafnframt hefðu
stjómvöld ákveðið að lækka verð-
bætur úr frystideild Verðjöfnunar-
sjóðs fiskiðnaðarins úr 4% í 3%. Sú
lækkun hefði reyndar að miklu leyti
verið komin til framkvæmda í sept-
ember. Þessi ákvörðun íýrði tekjur
frystingarinnar um 0,7% og fisk-
verðhækkunin yki útgjöldin um tæp
2%. Fyrir viku hefði vinnslan verið
talin rekin með 1,5% tapi og því
væri tapið nú orðið um 4% af tekj-
um. Þá mætti ekki gleyma því að
laun hækkuðu eftir mánuð og um
áramót væri ætlunin að fella alveg
niður verðbætur á frystan fisk.
Arnar sagðist halda að mat Þjóð-
hagsstofnunar á rekstrarafkomu
vinnslunnar væri það, að hún væri
við núllið margfræga. Það þýddi
að fiskverðhækkunin og minni verð-
jöfnun færðu rekstur vinnslunnar
niður fyrir núllið samkvæmt út-
reikningum stofnunarinnar. Ríkis-
stjórnin hefði lofað því við gerð
kjarasamninga síðastliðinn vetur að
rekstur fiskvinnslunnar yrði viðun-
andi, að ekki yrði um taprekstur
að ræða miðað við útreikninga Þjóð-
hagsstofnunar. Því hlytu stjórnvöld
að beita sér áfram fyrir frekara
gengissigi á haustmánuðum.
„Það, sem nú er að gerast, hefur
verið vitað lengi. Fiskverðhækkunin
var ákveðin í vor, launahækkanirn-
ar síðastliðinn vetur og minnkandi
verðjöfnun sömuleiðis. Því er ekkert
í þessu sem ætti að koma stjórn-
völdum á óvart og því hljóta þau
að vera tilbúin með aðgerðir, sem
bæta stöðu vinnslunnar,“ sagði
Arnar Sigurmundsson.
Rúnar Kristinsson.
Rúnar til
Liverpool
RÚNARI Kristinssyni, landsliðs-
manni í knattspyrnu úr KR, hefúr
verið boðið að æfa með enska
liðinu Liverpool í þrjár til fjórar
vikur.
Forráðamenn Liverpool hafa vit-
að af Rúnari um nokkurt skeið og
þegar þeir fréttu að önnur lið hefðu
sýnt honum áhuga vildu þeir fá
hann til sín til æfinga. Rúnar leikur
með íslenska landsliðinu skipuðu
leikmönnum 21 árs og yngri gegn
Hollendingum ytra 10. október og
strax eftir þann leik fer hann til
Liverpool.
Sjá nánar / B1
Harpa varð
vör við loðnu
HARPA RE frá Eskillrði varð vör
við loðnu út af Melrakkasléttu í
gærkvöldi en lítil sem engin
loðnuveiði hefur verið að undan-
fiirnu.
Skarðsvík SH var að leita að
loðnu út af Grímsey í gær. Hilmir
SU var hins vegar í höfn á Siglu-
firði í gærkvöldi en skipið hefur
leitað víða að loðnu að undanförnu.