Morgunblaðið - 10.10.1989, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 10.10.1989, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 1989 Eftiahagsvandi Sovétríkjanna: Erlendir sérfræð- ingar veita aðstoð Moskvu. Reuter. ALAN Greenspan, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, ræddi í gær við sovéska embættismenn í Moskvu en ráðamenn eystra hafa óskað eftir aðstoð hans við að leita lausna á efhahagsvanda Sov- étríkjanna. Greenspan ræddi við banka- stjóra og sovéska skipulagsfröm- uði en í dag, þriðjudag, mun hann eiga fund með Leoníd Abalkín, helsta efnahagsráðgjafa Míkhaíls S. Gorbatsjovs, leiðtoga sovéska kommúnistaflokksins. Abalkín fal- aðist eftir aðstoð bankastjórans bandaríska fyrr á þessu ári og bauð honum þá að koma tii Mosvku. Sovésku embættismennirnir munu einkum vilja ræða fjárlaga- hallann í Sovétríkjunum, semy sí fellt fer vaxandi, auk þess sem þeir binda vonir við að Greenspan lumi á einhveijum ráðum sem duga megi til að draga ur lándlæg- um skorti á matvælum og neyslu- varningi. Greenspan kom til Moskvu á sunnudagskvöld en með honum í för eru Robert Zoellick, helsti ráð- gjafi James Bakers, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, og einn virt- asti sérfræðingur Alþjóðadeildar bandaríska' seðlabankans, Edwin Truman. __ Wzmt M * Js Reuter Nóbelsverðlaun í læknisft*æði: Bandarískir lækn- Vilja vernda fílinn í gær bófst í Lausanne í Sviss fundur samtaka sem Ijalla um ólöglega verslun dýra í útrýming- arhættu. Af því tilefni efndu borgarbörn til mót- mæla og hvöttu til þess að komið yrði í veg fyr- ir útrýmingu afríska filsins. Á fundinuin hugð- ust fuíltrúar Kenýu og Tanzaníu fá fílinn skráð- an sem dýr í útrýmingarhættu en það mundi torvelda verslun með fílabein. ar hljóta verðlaunin Rannsóknir þeirra veita innsýn í þró- un krabbameins Stokk4iólmi. Reuter. Bandaríkjamennirnir J. Michael Bishop og Harold E. Varmus hlutu Nóbelsverðlaunin í læknisfræði í ár íyrir rann- sóknir sínar á krabbameins- vexti. „Rannsóknir þeirra hafa skýrt hvernig krabbameins- myndandi gen verka,“ sagði Peter Reichard, sem á sæti í Nóbelsverðlaunaneíudinni í Stokkhólmi. „Þegar við vitum hvernig krabbamein brýst út verður auðveldara íyrir okkur að lækna sjúkdóminn eða að koma í veg fyrir hann.“ Nóbelsverðlaunahafarnir starfa báðir við örveru- og ónæmisfræði- deild Kaliforníu-háskóla í San Franeisco. Þeir hófu að vinna sam- an árið 1970 til að sannreyna kenningu um að frumurnar sjálfar veldu krabbameini. í yfirlýsingu verðlaunanefndarinnar segir að rannsóknir þeirra hafi leitt í ljós að til er stór genafjölskylda, sem stjórnar eðlilegum vexti og skipt- ingu fruma. „Röskun í einu eða nokkrum af þessum genum getur valdið æxli í eðlilegri frumu og krabbameini," segir í yfirlýsing- unni. „Rannsóknir þeirra hafa enn sem komið er lítil áhrif haft á krabbameinslækningar en mikil- vægi þeirra felst í því að þær hafa veitt okkur nýja innsýn í það hvernig krabbamein þróast. Þegar til lengri tíma er litið getum við ekki vonast til þess að geta lækn- að alla krabbameinssjúklinga heldur komið i veg fyrir að krabba- mein bijótist út,“ sagði Reichard. Bishop er 53 ára að aldri en Varmus 49 ára. Þeir kváðust báð- ir hissa á því að hafa orðið fyrir valinu sem Nóbelsverðlaunahafar í læknisfræði. Bishop kvaðst vona að rannsóknir þeirra við Kalifor- níu-H'áskóla yrðu til þess að hægt yrði að finna sjúkdómsmeðferð gegn krabbameini. „Það tekur hins vegar mjög langan tíma,“ sagði hann. „Við vitum ekki nógu mikið um sjúkdóminn í smáatrið- um til að geta bent á réttu sjúk- dómsmeðferðina.“ Bretland: Uggur um samdrátt vegnavaxtahækkana St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. MARGIR fíármálasérfræðingar hér í landi óttast nú samdrátt í brezku efnahagslífi í kjölfar vaxtahækkunar í sl. viku. Ágreiningur er á milli ráðgjafa Thatcher og Nigels Lawsons, fíármálaráðherra. Talið er að ársfúndur íhaldsflokksins, sem hefst í dag, (þriðjudag) geti orðið sá afdrifaríkasti í stjórnartíð Thatcher. Grunnvextir eru nú 15% og hafa ekki verið hærri í átta ár. Búizt er við 1-1,5% hækkun á vöxtum á húsnæðislánum um næstu mánaða- mót. Menn óttast nú að framundan sé samdráttarskeið í efnahagslífinu og það takist ekki að draga úr verð- bólgu án þess. Markmið ríkisstjórn- arinnar hafði verið að ná verðbólgu niður án samdráttar. Búist er við að verðbólga lækki ekki það sem eftir lifir ársins, en hún er nú 7,3% og atvinnuleysi taki jafnvel að auk- ast á ný. Félag brezkra iðnrekenda varaði við því í síðustu viku að þessi hækk- un vaxta myndi setja allmörg fyrir- tæki á hausinn og ylli samdrætti hjá öðrum. Samdráttar hefur þegar orðð vart hjá heildsölum og smásöl- um og óttast er að hann aukist og dragi úr verzlun fyrir jólin. Efnahagsráðgjafi Thatcher, Sir Alan Waltes, telur að vaxtahækk- unin í síðustu viku hafi ekki verið nauðsynleg og réttara hefði verið að láta pundið lækka í verði á al- þjóðamörkuðum. Thatcher taldi óhjákvæmilegt annað en fylgja ráð- um fjármálaráðherrans nú, þótt Englandsbanki hafi nú þegar notað yfir 2 milljarða sterlingspunda til að halda gengi þess stöðugu. Lawson svarar gagnrýni á þann veg að hefðu vextir ekki verið hækkaðir, hefðu fjármálamenn ekki trúað ásetningi stjórnarinnar um að.ná niður verðbólgu.oHann segir einnig að atvinnurekendur verði að nota þau tækifæri, sem bjóðist, og halda niður kostnaði; efnahagslíf landsins sé í betra ásigkomulagi en nokkru sinni áður á valdatíma stjórnarinnar til að taka svona áföll- um. Búist er við harkalegri gagnrýni á stefnu stjórnarinnar á ársfundi íhaldsflokksins, sem hefst í dag, sérstaklega á fjármálaráðherrann. Ársfundur Verkamannaflokksins, sem var í síðustu viku, þótti takast betur en í að minnsta kosti sl. 25 ár. Thatcher á erfitt verk fyrir höndum að sannfæra flokk sinn um ágæti verka stjórnarinnar. Margir telja þennan ársfund þann mikil- vægasta á tíu ára valdaferli stjórn- arinnar. Graham Mitchell, sendiherra Kanada: Gætuð náð betri fótfestu á N orður- Ameríkumarkaði EFNT var til ráðstefnu um milliríkjaviðskipti og kanadískrar fyrir- tækjakynningar á Hótel Sögu í gær. Sendiherra Kanada, Graham Mitehell, ávarpaði ráðstefnuna en hann hefúr aðsetur í Osló. Mitc- hell kom hingað til lands í stutta heimsókn í tilefni kynningar- herferðarinnar „Kanadadaga." Morgunblaðið náði tali af honum og spurði fyrst hvar hann teldi helst að vænlegir möguleikar væru til aukinnna viðskipta Kanadamanna og íslendinga. „Fyrst og fremst er nauðsynlegt að fyrirtæki beggja vegna Norður- Atlantshafs efii kynni sín á milli, auka tengslin með ýmsum hætti. Þetta er fyrsta skrefið fram á við. Þótt viðskipti íslendinga og Kanad- amanna hafi vissulega aukist nokk- uð á vissum sviðum tel ég að það sé fyrst og fremst gagnkvæm þekking sem þurfi að aukast, þess vegna efnum við tii kynningarinn- ar. Mér virðist þið opnir fyrir nýjum hugmyndum og þið þurfið að flytja inn margvíslegar vörur og þjón- ustu sem kanadísk fyrirtæki geta í mörgum tilvikum selt ykkur. Við erum sannfærðir um að við erum samkeppnishæfir í verði og gæð- um, allt frá almennum neysluvör- um yfir í flókinn hugbúnað fyrir tölvur, t.d. í stýritækni af ýmsu tagi. Ég vil vekja sérstaka athygli á möguleikum sem gætu opnast á hvers kyns samvinnuverkefnum við kanadísk fyrirtæki, einkum held ég að íslensk fyrirtæki gætu hugað að slíkum verkefnum á austur- strönd Kanada í sambandi við fisk- iðnað, þar sem þið eruð í fremstu röð. Það er sömuleiðis brýnt að stuðla að bættum og reglulegum samgöngum milli landanna og ég veit að nokkuð hefur áunnist í þeim efnum síðustu árin.“ Sendiherrann var spurður um fríverslunarsamning Kanada- manna og Bandaríkjamanna, er tók gildi í ársbyijun, og hvaða mögu- leika hann teldi á að íslendingar gætu tengst þessu svæði ef þeir æsktu þess. Hann sagði það að sjálfsögðu mái íslenskra stjórn- valda hvaða leið þau færu í þessum málum. Hann gæti aðeins bent á að samningurinn gerði viðskipti milli Bandaríkjanna og Kanada mun auðveldari og það hlyti að auka áhuga annarra þjóða á fjár- festingum í Kanada og viðskiptum við kanadískan markað sem væri í reynd orðinn hluti af miklu stærri markaði, með samanlagt um 290 milljónir manna. Fjárfestingar Breta hefðu m.a. aukist um 27% Graham Mitchell milli áranna 1987 og'1988. Með sam- vinnuverkefnum í Kanada gætu ís- lendingar því náð fótfestu á norður- amerískum markaði. Sendiherrann var spurður hvaða áhrif innganga Breta í Evrópubanda- lagið hefði haft á viðskipti landanna. Hann sagði ljóst að Kanadamenn hefðu glatað mörkuðum, ekki síst á sviði matvæla, en eftri sem áður væru viðskipti þeirra við Breta meiri en við nokkra aðra aðiidarþjóð band- alagsins. Lán til Ungverja og Pólverja: EB gengur í ábyrgð Lúxemborg. Reuter. FJÁRMÁLARÁÐHERRAR Evr- ópubandalagsríkjanna (EB) sam- þykktu í gær að ábyrgjast lán Evrópska fíárfestingarbankans, EIB, til ríkisstjórna Póllands og Ungveijalands. Með samkomulag- inu eiga pólsk og ungversk stjórn- völd nú kost á cinum miljarði ECU, um 66 miljörðum ísl. króna, að láni frá EIB á næstu þremur árum. Samkomulag um þetta náðist á fundi utanríkisráðherra Evrópu- bandalagsríkjanna í síðustu viku en tók ekki gildi fyrr en í gær er fjár- málaráðherrar ríkjanna samþykktu það fyrir sitt leyti. Auk þess sem EB hefur ábyrgst lán Evrópska fjárfestingarbankans hefur bandalagið heitið pólskum og ungverskum stjórnvöldum rúmum 19 miljörðum ísl. króna í fjárhagsað- stoð.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.