Morgunblaðið - 12.10.1989, Qupperneq 22
22
í»wr H:raorao .sr huoaoutwmih oiGA.iqvTJOHOM
‘MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTOBKR U>8<)
4
*
Landsfundur breska Ihaldsflokksins:
Margaret Thatcher gagn-
rýnd með óbeinum hætti
Blackpool. Reuter.
SIR Geoffrey Howe, aðstoðarforsætisráðherra Bretlands, sagði í gær
í Blackpool þar sem landsfundur íhaldsflokksins er haldinn þessa
dagana, að flokkurinn þyrfti að gefa meiri gaiim að óskum alls almenn-
ings í landinu. Skoðanakannanir að undanförnu sýna, að Verkamanna-
flokkurinn nýtur verulega meiri stuðnings en íhaldsflokkurinn.
í hádegisverðarboði og utan óhvikulir krossfarar, við verðum líka
reglulegs fundarhalds sagði Howe,
að íhaldsflokkurinn ætti erfitt verk
framundan og vék óbeint að þeirri
ímynd, sem Margaret Thatcher for-
sætisráðherra hefur í augum Breta,
að hún sé harðduglegur en ekki að
sama skapi umhyggjusamur leið-
togi. „Við megum ekki bara vera
að kunna að leggja eyrun við og
sýna fólki skilning. Við verðum að
vera í takt við þjóðarsálina hveiju
sinni,“ sagði Howe, sem verður ekki
meðal ræðumanna á landsfundinum
í fyrsta sinn í áratug. Þá gagnrýndi
hann einnig með óbeinum hætti and-
stöðu Thatchers við fulla þátttöku
PC
Byrjenda-
námskeið
Skemmtilegt og gagnlegt nám-
skeið fyrir þá sem eru að byrja
að fást viðtölvur.
Leiðbeinandi:
--- Stefán Magnússon
Tími: 17., 19., 24. og 26. okt. kl. 20-23
TÖLVUFRÆÐSLAN
Borgartúni 28, sími 687590
Við eigum fyrirliggjandi flest það efni, sem til þarf þegar
þið smíðið sjálf. Til dæmis efni í fataskápa, eldhús-
innréttingar, húsgögn, hvers konar vegghillur o.fl. Enn-
fremur loftbitaefni, viðarþiljur, límtré og spónaplötur.
Þið getið fengið að sníða niður allt plötuefni í stórri sög
hja okkur. yj^ veitum fúslega
allar nánari upplýsingar
í síma 621566.
Breta í Evrópubandalaginu. Ágrein-
ingur um þau mál er talinn hafa
valdið mestu um, að Howe lét af
embætti utanríkisráðherra í júlí sl.
Á landsfundinum verða efnahags-
málin fyrirferðarmest en í síðustu
viku hækkaði Nigel Lawson vextina
í 15% til að koma í veg fyrir gengis-
lækkun pundsins. Þrátt fyrir það
féll það í gær niður fyrir þijú vestur-
þýsk mörk. í dag flytur Lawson
ræðu og er búist við, að þá muni
hann segjast ætla að standa og falla
með stefnu sinni í vaxtamálum.
Fundinum lýkur á morgun með ræðu
Thatcher, sem þá fyllir jafnframt
64. árið.
Smáfrumur
geta valdið
lungnaþembu
Reuter
Havel fékk ffiðarverðlaun
Tékkneski rithöfundurinn Vaclav Havel hlaut að þessu sinni friðar-
verðlaunin, sem árlega er úthlutað á Bókasýningunni í Frankfurt í
Vestur-Þýskalandi. Gestir og gangandi urðu hins vegar að láta sér
nægja mynd af honum því að yfirvöld í Tékkóslóvakíu leyfa ekki
þessum kunna andófsmanni fremur en öðrum þegnum landsins að
fara fijálsum ferða sinna.
Boston. Reuter.
LÆKNAR í Kanada hafa komist
að því að smáfrumur er nefiiast
niftsæknar frumur safhast fyrir
í lungiim reykingamanna, þar
sem þær geta smám saman eyði-
lagt líffærið.
NU
SPÖRUM VIÐ
FENINGA
Og simðum sjálf!
Þessi uppgötvun, sem kynnt er
í bandaríska tímaritinu Journal of
Medicine, gæti skýrt það hvers
vegna reykingamenn era líklegri
en aðrir til að fá lun'gnaþembu,
sjúkdóm sem getur orðið banvænn.
Þegar vindlingareykur kemst í
niftsæknu frumurnar gefa þær frá
sér ensím, eða gerhvata, sem fest-
ist við lungnavefinn og dregur
smám saman úr þanþoli lungn-
anna.
Sy ðri-Straumg örður:
Grænlendingar taki
þátt í kostnaðinum
Kaupmannahöfn. Frá N. J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
Bandaríska varnarmálaráðu-
neytið hefúr farið þess á leit við
Dani og Grænlendinga að þeir
taki þátt í að standa straum af
rekstrarkostnaði flugvallarins í
Syðra-Straumfirði eftir árið 1991.
Bandaríkjamenn hafa dregið úr
afnotum sínum af flugvellinum í
kjölfar breytinga á hlutverki ratsjár-
stöðvanna en árlegur kostnaður við
hann er nú 1,2 milljarðar ísl. kr.
Niðurskurður Bandaríkjamanna á
útgjöldum til varnarmála hefur leitt
til þessa en Jonathan Motzfeldt,
formaður landstjórnarinnar, sagði í
samtali við grænlenska útvarpið að
ekki kæmi til greina að Grænlend-
ingar gengju að þessu.
Andreas Papandreou, fyrrum forsætisráðherra Grikklands:
Lét hlera samtöl tilvon-
andi eiginkonu sinnar
Aþenu. New York Times.
Þingnefhd í Grikklandi hefúr skýrt frá því að Andreas Papandreou
hafi látið koma fyrir hlerunarbúnaði hjá nánum samstarfsmönnum
jafiit sem pólitískum andstæðingum sínum þegar hann var forsætisráð-
herra landsins. Á meðal þeirra fyrrnefúdu eru ráðherrar í sljórn hans,
forseti gríska þingsins, einkaritari hans og konan sem hann kvæntist
nýlega.
Þessar upplýsingar hafa valdið
mikilli hneykslun á meðal Grikkja,
sem þykja þó ýmsu vanir eftir hveija
fréttina af annarri á undanförnum
mánuðum um spillingu innan stjórn-
kerfisins, yfirhylmingar og Ijár-
drætti.
Vildi hafa bæði
tögl og hagldir
Dagblöð og útvörp í landinu hafa
á einhvern hátt komist yfir upptökur
á samtölum, sem Papandreou er
sagður hafa látið hlera. Þessi samtöl
hafa síðan verið birt og vakið mikla
athygli því í þeim má meðal annars
heyra samstarfsmenn Papandreous
rægja forsætisráðherrann fyrrver-
andi.
Mestu uppnámi hafa þá valdið
samtöl konunnar, er Papandreou
gekk að eiga nýlega, og stjörnuspá-
manns hennar. Þar veitir hann henni
ráðgjöf varðandi einkalífið og emb-
ættisstörf eiginmannsins tilvonandi.
Bæði stuðningsmenn og andstæð-
ingar Papandreous segja að þessar
hieranir lýsi forsætisráðherranum
vel. Á þessum tíma var hann mjög
vinsæll á meðal Grikkja, sem kunnu
veí að meta frumleika hans og íjör.
„Þetta sýnir að hann þjáist í raun
af öryggisleysi," sagði Epiminondas
Zafiropoulos, pólitískur andstæðing-
ur Papandreous og ritari nefndarinn-
ar sem rannsakar hleranirnar.
„Hann vildi hafa bæði tögl og haldir
í hveijum leik,“ bætti hann við.
Rannsóknin hefur orðið til þess
að gríska þingið hefur samþykkt að
höfða skuli mái gegn Papandreou
fyrir ólöglegar hleranir, sem bijóti
í bága við grísku stjórnarskrána.
Lögfræðingar telja að auðveldara
verði að lögsækja Papandreou vegna
þessa máls heldur en vegna meintrar
aðildar hans að bankahneyksli, sem
er mun fióknara mál. Þingið sam-
þykkti nýlega að höfða skyldi mál
gegn forsætisráðherranum fyrrver-
andi fyrir að hafa þegið mútur og
gerst sekur um trúnaðarbrot.
Papandreou, sem er sjötugur og
hefur átt við veikindi að stríða, hef-
ur visað þessum ákærum á bug,
sagt þær tilbúning pólitískra and-
stæðinga, sem vilji binda enda á
stjórnmálaferil hans.
Hlerað í átta ár
verið leyniherbergi og fundið í því
44 falin hlerunartæki. Þar hefðu
jafnvel fundist reikningar, sem
sýndu að leyniþjónustan hefði greitt
fyrir hleranirnar.
Zafiropoulos sagði að tíu menn
hefðu viðurkennt að hafa tekið upp
samtöl „í pólitísku skyni“. Sendi-
sveinar hefðu einnig skýrt frá því
að þeir hefðu flutt segulbandsspólur
frá yfirmanni leyniþjónustunnar
heim til Papandreous eða á skrif-
stofu hans og afhent einkaritara
hans þær. Yfirmaðurinn, Kostas
Tsimas, vísar því á bug að hann
hafi látið taka upp samtöl fyrir Pap-
andreou með ólöglegum hætti og
segist einungis hafa sent forsætis-
ráðherranum upplýsingar varðandi
öryggismál daglega.
Ráðherra ofsóttur
Samkvæmt þingnefndinni áttu
hleranirnar sér stað í hartnær átta
ár, eða næstum allan þann tíma sem
stjórn Sósílistaflokksins var við völd.
Vegna timaskorts ákvað nefndin þó
að einbeita sér aðeins að tímabilinu
frá 1987.
Zafiropoulos sagði að þingnendin
hefði komist að því að í gríska síma-
fyrirtækinu, sem er ríkisrekið, hefði
Gríska dagblaðið Ethnos hefur
birt útdrátt úr samtali Yannis Alevr-
as, forseta þingsins, og Apostolis
Lazaris, fyrrum ráðherra er varð
ósáttur við Papandreou og sagði sig
að lokum úr flokknum. Þar reynir
Alevras að telja ráðherrann á að
hætta við að segja sig úr flokknum. •
Lazaris segir hins vegar að það sé
of seint því Papandreou hafi sent
„Andreasar-sveit“, eða herskátt lið
flokksmanna, heim til sín. „Ég er
skelfingu iostinn yfir fasisma Andre-
asar. Þeir sátu um húsið okkar í
alla nótt og reyndu að kveikja í því.
Konan mín og dóttir okkar eru ör-
vita af hræðslu," segir ráðherrann
fyri-verandi.
Síðan heldur hann áfram: „Ég