Morgunblaðið - 12.10.1989, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 12.10.1989, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1989 25 Panamastjoni setur neyðarlög í landinu Panamaborg. Reuter. STJÓRNIN í Panama tilkynnti á þriðjudagskvöld að sett hefðu ver- ið neyðarlög i landinu. Fyrr um daginn var höfuðsmaður í pa- namiska hernum, Nicasio Lorenzo, sem var handtekinn eftir mis- heppnaða tilraun til að steypa Manuel Antonio Noriega, einræðis- herra landsins, borinn til grafar. Ekki hafa fengist viðhlítandi skýr- ingar á andláti hans í fangelsinu, að sögn ættingja hans. Samkvæmt neyðarlögunum verð- ur félagafrelsi takmarkað, auk þess sem launahækkanir ríkisstarfs- manna verða bannaðar og heimilt verður að segja opinberum starfs- mönnum upp störfum vegna andófs gegn stjórnvöldum. í yfirlýsingu frá stjórninni segir að nauðsynlegt hafi verið að grípa til þessara aðgerða vegna árásarstefnu Bandaríkja- stjórnar. Ættingjar Lorenzos kváðust ekki hafa fengið neinar upplýsingar um dauða hans frá yfirvöldum. Þeir sögðu að í dánarskýrslunni væri því haldið fram að Lorenzo hefði kafn- að af súrefnisskorti. Orðrómur hef- ur verið á kreiki um að hann hefði hengt sig en því vísuðu ættingjar hans algjörlega á bug. Lorenzo var einn af 37 herfor- ingjum sem handteknir voru eftir tilraunina til að steypa Noriega í liðinni viku. Bandaríkin: Bush hélt að Leifiir heppni væri norskur St. Cloud. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. DAGS Leifs Eiríkssonar var minnst með viðhöfti á minnsta kosti tveimur stöðum í Bandaríkjunum síðastliðinn þriðjudag. Um 120 manns söfnuðust saman við styttu Þorfinns karlefhis í Fíladelfiu. Þar fluttu Ingvi S. Ingvarsson sendiherra og Goode borgarstjóri Fíladelfíu ræður. Goode borgarstjóri undirritaði sérstakt skjal þar sem lýst er afreki Leifs heppna þá er hann sigldi til Ameríku. í Fíladelfíu starfar félagið „Leif Eiríksson Society". Stofnandi þess og helsta driffjöður er Norðmaður- inn Ivar Christiensen, sem kynnt hefur afrek Leifs heppna öðrum fremur. Christiensen fékk skeyti frá George Bush Bandaríkjaforseta í gær þar sem m.a. var harmað að Leifur skyldi eftir fund Ameríku hafa haldið aftur til heimalands síns, Noregs. Christiensen svaraði að bragði og leiðrétti að Leifur heppni hefði verið íslenskur en ekki norskur. Kína: Kína slítur stjónunála- sambandi við Líberíu Peking. Reuter. KÍNVERSK stjórnvöld hafa slitið stjórnmálasambandi við Líberíu. Ákvörðunin var tekin á þriðjudag, á þjóðhátíðardegi Tævanbúa, en Líberíustjórn hafði nýlega tekið upp stjórnmálasamband við Tævan. Þá fordæmdu kínverskir ráðamenn veitingu friðarverðlauna Nóbels til andlegs leiðtoga Tíbeta, Dalai Lama. Sögðu stjórnvöld að verð- launaveitingin væri liður í samsæri vestrænna þjóða sem ætluðu að kljúfa kínverska ríkið og koma að nýju á lénskipulagi í Tíbet. Hin opinbera fréttastofa Nýja Kína hafði eftir talsmanni kínverska utanríkisráðuneytisins að Christopher Ricks, sendiherra Vest- ur-Afríkuríkisins Líberíu í Kína, hefði verið kvaddur í ráðuneytið og honum skýrt frá því að stjórn- málasambandi þjóðanna hefði verið slitið. Líberísk stjórnvöld tóku upp stjórnmálasamband við stjórnvöld þjóðernissinna í Tævan á mánudag, en samskipti þjóðanna höfðu legið niðri í tólf ár. 1 yfirlýsingu kínverska utanríkis- ráðuneytisins sagði að ákvörðun ríkisstjórnar Líberíu um að taka á ný upp stjórnmálasamskipti við Tævan gengi í berhögg við skuld- bindingu þeirra um að viðurkenna stjórnvöld í Peking sem einu rétt- mætu stjórn hinnar kínversku þjóð- ar. Kínverskir valdhafar slitu stjórn- málasambandi við Grenada þegar stjórnvöld á Karíbaeynni viður- kenndu ríkisstjórnina í Tævan í ágúst síðastliðnum. WordPerfect 4.2 Hnitmiðað og vandað námskeið í notkun ritvinnsluforritsins WordPerfect (orðsnilld). Leiðbeinandi: Örn Guðmundsson viðskipta- og kerfisfræðingur. Tími: 17., 19., 24. og 26. okt. kl. 19-23. LMTölvufræðslan Borgartúni 28 sími 687590 J Electrolux '/4 K Seljum útlitsgallaða kæli- og frystiskápa með verulegum afslætti! 1^1 Vörumarkaðurinn EINDAGINN ER 15. HVERS MÁNAÐAR — W»e«3 9'!en<W'9' M‘feW ve9n®L----- , c*a\'nna ' V*ss\°ös * Samtali Launagreiðendum ber að skila afdreg- inni staðgreiðslu af launum og reikn- uðu endurgjaldi mánaðarlega. Skilin skulu gerð eigi síðar en 15.. hvers mán- aðar. Ekki skiptir máli í þessu sambandi hversu oft í mánuði laun eru greidd né hvort þau eru greidd fyrirfram eða eftirá. Með skilunum skal fylgja greinar- gerð á sérstökum eyðublöðum, „skila- greinum", blátt eyðublað fyrir greidd laun og rautt fyrir reiknað endurgjald. Skilagrein ber ávallt að skila einnig þó svo að engin staðgreiðsla hafi verið dregin af í mánuðinum. Allar fjárhæðir skulu vera í heil- um krónum. Gerið skil tfmanlega RSK RlKISSKATTSTJÓRI Áskriftarsíminn er 83033 J j GEB AUGtýSINGAÞJÓNUSTAN / SiA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.