Morgunblaðið - 12.10.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐin FIMMTUDÁGUR 12. OKTÖBKR 1!)89
Sl
Morgunblaðið/Bjarni
Guðrún Helgadóttur tekur við forsetastörfum af Stefáni Valgeirs-
syni. Málmfríður Sigurðardóttir skrifari er einnig á myndinni. A
innfelldu myndinni er Arni Gunnarsson í forsetastóli Neðri deildar.
Alþingi:
Árni Gunnarsson tekur við
forsetastöðu í neðri deild
Fyrsti fundur sameinaðs Alþingis var haldinn í gær og stýrði honum
aldursforsetinn, Stefán Valgeirsson. Fjárlagafrumvarpi ríkissljórnarinn-
ar liafði verið dreift en á dagskrá var kjör forseta, varaforseta og skrif-
ara í samcinuðu þingi og báðum þingdeildum. Þrír þingmenn, þau Guð-
rún Agnarsdóttir, Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra höfðu beðið um fjarvistarleyfi.
Guðrún Helgadóttir var endurkjör-
in forseti sameinaðs þings með 42
atkvæðum. Stefán Valgeirsson fékk
eitt atkvæði og Hjörleifur Guttorms-
son sömuleiðis eitt atkvæði, 15 seðlar
voru auðir. Guðrún þakkaði þorra
þingmayma fyrir að sýna sér þetta
traust að nýju og vænti þess að sam-
vinna við stjórnarsinna og stjómar-
andstöðu yrði góð og drengileg. Fyrri
varaforseti var kjörinn Salóme Þor-
kelsdóttir og hlaut hún 45 atkvæði,
Stefán Valgeirsson fékk eitt atkvæði
og Ragnhildur Helgadóttir einnig eitt
atkvæði, auðir seðlar voru 12. Guðni
Ágústsson var kosinn síðari varafor-
seti, hlaut 45 atkvæði, en Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir fékk tvö atkvæði,
Guðmundur Ágústsson og Páll Pét-
ursson eitt atkvæði hvor, auðir seðlar
voru 10. Skrifarar sameinaðs þings
voru kosnir Jóhann Einvarðsson og
Anna Ólafsdóttir Bjömsson.
Forseti efri deildar Alþingis var
endurkjörinn Jón Helgason, hlaut 19
atkvæði, Skúli Alexandersson fékk
eitt atkvæði. Guðrún Agnarsdóttir var
kosin fyrri varaforseti með 20 at-
kvæðum en Karl Steinar Guðnason
síðari varaforseti með 18 atkvæðum,
Halldór Blöndal hlaut eitt atkvæði og
einn seðill var auður. Skrifarar vom
kosnir Valgerður Sverrisdóttir og
Egill Jónsson.
Kjartan Jóhannsson gegndi áður
embætti forseta neðri deildar Al-
þingis en þefur nú látið af þing-
mennsku. í hans stað var kjörinn
Árni Gunnarsson og fékk hann_ 33
atkvæði, auðir seðlar vom fimm. Árni
þakkaði þingmönnum traustið og
sagðist vonast til að eiga góða sam-
vinnu við þingmenn, stjómarsinna
jafnt sem stjórnarandstæðinga. Hann
sagði Alþingi hafa orðið fyrir nokkm
aðkasti að undanförnu og benti á
nauðsyn þess að stofnunin legði
áherslu á sjálfstæði sitt gagnvart
framkvæmdavaldinu og glöggan að-
skilnað valdþáttanna þriggja; löggjaf-
arvalds,_ framkvæmdavalds og dóms-
valds. Árni hvatti þingmenn til að
snúast til vamar fyrir stofnunina.
Fyrri varaforseti deildarinnar var kos-
inn Geir H. Haarde, hann hlaut 35
atkvæði, Stefán Valgeirsson eitt at-
kvæði, auðir seðlar vom tveir. Hjör-
leifur Guttormsson fékk 33 atkvæði
í kjöri síðari varaforseta, Sighvatur
Björgvinsson tvö atkvæði og Stefán
Valgeirsson eitt atkvæði, auðir seðlar
vom þrír. Nefndakjör fer fram á Al-
þingi í dag, fimmtudag.
AIÞIflCI
Benedikts Bogason-
ar minnst á Alþingi
Við setningu Alþingis sl.
þriðjudag flutti Stefán Valgeirs-
son aldursforseti þingsins eftir-
farandi minningarorð um Bene-
dikt Bogason alþingismann:
í dag minnumst við og söknum
Benedikts Bogasonar, verkfræðings
og alþingismanns, sem kvaddi okk-
ur hér í vor eftir skamma setu á
Alþingi. Hann andaðist 30. júní,
hálfsextugur að aldri.
Benedikt Bogason var fæddur
17. september 1933 að Laugardæl-
um í Hraungerðishreppi í Árnes-
sýslu. Foreldrar hans voru hjónin
Bogi bóndi þar, síðar verkstjóri í
Reykjavík, Eggertsson bónda og
alþingismanns í Laugardælum
Benediktssonar og Hólmfríður Guð-
mundsdóttir bónda á Læk i Hraun-
gerðishreppi Snorrasonar.
Benedikt lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík vorið
1953, stundaði verkfræðinám einn
vetur í Háskóla íslands, en fór síðan
til náms í Finnlandi og lauk prófi
í byggingarverkfræði frá Tæknihá-
skólanum í Helsingfors árið 1961.
Að námi loknu var hann fram-
kvæmdastjóri Flóaáveitunnar og
Ræktunarsambands Flóa- og
Skeiðaveitna 1961-1964. Jafnframt
var hann ráðgjafi Ölfusveitunnar
og stundaði almenn verkfræðistörf
á Selfossi. Á árinu 1964 fluttist
hann til Reykjavíkur og var verk-
fræðingur við gatna- og holræsa-
deild borgai-verkfræðings 1964-
1971, en rak síðan eigin verkfræði-
stofu í Reykjavík. Árið 1980 varð
hann verkfræðilegur ráðunautur
Framkvæmdastofnunar ríkisins,
þar til hún var lögð niður og full-
trúi forstjóra Byggðastofnunar var
hann frá 1985.
Benedikt Bogason sinnti ýmsum
félagsmálum og vann aukastörf
jafnframt aðalstarfi. Hann var einn
stofnenda og fyrsti formaður Félags
íslenskra stúdenta í Finnlandi, og
hann var formaður Sambands
íslenskra stúdenta erlendis 1962-
1963. Gjaldkeri í stjórn Suomi-
félagsins í Reykjavík var hann
1969-1980. Hann var stundakenn-
ari við Miðskóla Selfoss, Iðnskóla
Selfoss og Garðyrkjuskóla ríkisins
að Reykjum í Ölfusi á árunum
1961-1963 og kennari við Tækni-
skóla íslands 1970-1973. Hann var
í hreppsnefnd og byggingarnefnd
Selfoss 1962-1964 og í byggingar-
nefnd Ríkisútvarpsins frá' 1981.
Formaður Framfarafélags Seláss-
og Árbæjarhverfis var hann frá
Benedikt Bogason
1983. Hann tók þátt í stofnun Borg-
araflokksins vorið 1987 og var þá
kosinn varaþingmaður flokksins í
Reykjavík. Hann sat á Alþingi rúm-
ar tvær vikur í nóvember og desem-
ber 1987. Við þingmennskuafsal
Alberts Guðmundssonar í byrjun
aprílmánaðar í vor tók Benedikt
Bogason fast sæti á Alþingi.
Benedikt Bogason hlaut góða
menntun til undirbúnings störfum
sínum síðar á ævinni. Verkfræði-
kunnáttu hans og forsjár og ráð-
gjafar í verklegum efnum sér víða
stað, en þó mest sunnanlands. Þar
neytti hann fyrst hæfileika sinna
og menntunar við fjölbreytt verk-
efni. Síðar náði starfssvið hans vítt
um landið. Á vegum Framkvæmda-
stofnunar og Byggðastofnunar kom
í hans hlut að hafa afskipti af at-
hafnalífi landsmanna til sjávar og
sveita. Hann leiðbeindi sveitar-
stjórnum, gegndi nefndarstörfum
og sat í stjórnum félaga af hálfu
stofnananna og fékkst við torleyst
mál sem komu til þeirra kasta.
Að dómi þeirra, sem störfuðu
með Benedikt Bogasyni og þekktu
hann best, var hann gæddur mikl-
um skipulagshæfileikum, var holl-
ráður, afkastamikill og ósérhlífinn.
Hann átti slíkan starfsferil að baki
að binda mátti miklar vonir við störf
hans á Alþingi. En þegar hingað
kom voru honum búin þau örlög
að sitja hér aðeins nokkrar vikur.
Ég við biðja þingheim að minn-
ast Benedikts Bogasonar með því
að rísa úr sætum.
Sextán nýir forstöðumenn
ráðnir til Islandsbanka
BANKASTJÓRN íslandsbanka
hefúr ráðið 13 forstöðumenn
stoðdeilda bankans frá og með
1. janúar. Umsækjendur voru
alls 43 talsins en umsóknarfrest-
ur um stöður deildarstjóra, sér-
fræðinga og fúlltrúa rennur út
á morgun.
Undir markaðssvið Stöðvar 2
heyrir öll sala á auglýsingum, auglýs-
ingagerð og þjónusta við áskrifendur
gegnum áskriftardeild. Ennfremur
fellur undir markaðssvið kynningar-
deild sem annast útgáfu á Sjón-
Brynja Halldórsdóttir var ráðin
forstöðumaður útibúatengsla en
hún gengnir nú starfi fram-
kvæmdastjóra fjármálasviðs Versl-
unarbankans.
Friðrik Haildórsson, forstöðu-
maður Verðbréfamarkaðar Út-
vegsbankans verður forstöðumað-
vaipsvísi svo og kynning á dagskrá
stöðvarinnar í öðrum fjölmiðlum.
Sighvatur Blöndal, sem gegndi
stöðu framkvæmdastjóra márkaðs-
sviðs, sagði upp störfum.
ur áætlanadeildar.
Guðmundur Eiríksson, forstöðu-
maður starfsmannahalds Útvegs-
bankans, verður forstöðumaður
starfsmannahalds íslandsbanka.
Guðmundur Gíslason, forstöðu-
maður erlendra viðskipta í Útvegs-
bankanum mun veita deild sem
fjallar um erlend samskipti for-
stöðu í íslandsbanka.
Þá verður Guðrún Gunnarsdóttir
á markaðssviði Verslunarbankans
ráðin til að gegna forstöðu í deild
um gæðastjórn.
Halldór S. Magnússon sem nú
gegnir stöðu forstöðumanns er-
lendra viðskipta í Iðnaðarbanka
verður forstöðumaður yfir gjald-
eyrisdeild.
Haukur Oddsson, forstöðumað-
ur tæknideildar Iðnaðarbanka
verður einnig forstöðumaður tæk-
nideildar íslandsbanka.
Kristín Guðmundsdóttir, for-
stöðumaður fjármálasviðs Iðnaðar-
bankans verður forstöðumaður
reikningshalds.
Kristín Steinsen sem nú er að-
stoðarbankastjóri Útvegsbankans
verður forstöðumaður þjónustu-
deildar.
Kristján Þorbergsson, lögfræð-
ingur úr Útvegsbankanum verður
forstöðumaður lögfræðideildar.
Auk þess var Randver C. Flec-
kenstein, kennslustjóri Iðnaðar-
bankans ráðinn sem forstöðumað-
ur fræðsludeildar.
Sveinn H. Skúlason, forstöðu-
maður rekstrarsviðs Iðnaðarbank-
ans verður yfir rekstrardeild ís-
landsbanka og loks var Þórður
Sverrisson, framkvæmdastjóri
markaðssviðs Verslunarbankans,
ráðinn forstöðumaður markaðs-
deildár.
Siglugörður:
Þorskur að
ganga inn á
Sporðagrunn
SigluGrði.
TÖLUVERT af þorski virðisl nú
vera að ganga inn á Sporðagrun-
nið. Stiikvíkin er þar ásamt fleiri
togurum og lielúr verið að fá upp
í 9 tonn í hali i botntrollið. Mikið
rækjuveiði heftir verið á þessum
slóðnm að undanfórnu.
Fleir togarar eru á þessum slóðum
og fiska þeir nokkuð vel. Smábátarn-
ir héðan hafa verið að gera það gott.
Þeir hafa fengið mikið af ufsa og
steinbít og slíku góðgæti. Það senda
þeir súður til sölu á fiskmörkuðunum
í Reykjavík og Hafnarfirði.
- Matthías
Nýr íi'ainkvæ m d aslj ór i
marka,ðssviðs Stöðvar 2
BIRNA Einarsdóttir hefúr verið ráðin framkvæmdastjóri markaðssviðs
Stöðvar 2. Hún liefur gegnt starfi forstöðumanns markaðssviðs Iðnaðar-
bankans frá árinu 1987 en var áður framkvæmdastjóri íslenskra get-
rauna frá 1985 þegar hún lauk námi frá viðskiptadeild Háskóla íslands.