Morgunblaðið - 12.10.1989, Síða 37

Morgunblaðið - 12.10.1989, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1989 37 Það er með söknuði í huga sem við í saumaklúbbnum kveðjum vin- konu okkar og skólasystur, Lovlsu Jónsdóttur, því að lengi erum við búnar að þekkjast og oft að hitt- ast. En allt tekur enda. Fyrst hitt- umst við allar í Húsmæðraskólanum á ísafirði veturinn 1945. Þar voruni við 19 stúlkur að búa okkur undir lífið eftir því sem við best gátum. Allar vorum við glaðar og kátar, og oft var gaman á þeim vetri. Sumar voru búnar að finna sér lífsförunaut og var Lóa ein af þeim. Hún var heitbundin Jóni Pétri Jóns- Lovísa Jóns- dóttir - Minning Fædd 25. febrúar 1926 Dáin 3. október 1989 í dag er kvödd hinstu kveðju Lovísa Jónsdóttir er lést í Landa- kotsspítala þriðjudaginn 3. október sl. Hún var fædd og uppalin við Steingrímsfjörðinn, í skjóli ástríkra foreldra þeirra Önnu Guðmunds- dóttur og Jóns Atla Guðmundssonar ásamt tveim bræðrum, Guðmundi og Sigurði. Var hún yngst þeirra systkina. Við vorum 8 ára gamlar, þegar leiðir okkar lágu fyrst saman,, er við hófum skólagöngu í barnaskól- anum á Drangsnesi. Með okkur myndaðist strax vinátta, sem entist ævina alla. Minningarnar hrannast upp frá þessum bernskuárum, þeg- ar hríðin beljaði á ströndum norð- ur, var of hörð fyrir litla stúlku að ganga heim úr skólanum, sem var hálftíma gangur, þá fékk hún að gista hjá mér. Þá var mikil gleði og brugðið á leik. Okkar uppáhaldsbók var Anna í Grænuhlíð, úr henni lékum við og auðvitað var Lóa Anna sjálf, með rauða hárið sitt, freknurnar og gáf- urnar. Hún kunni alltaf lexíurnar sínar best af öllum. Svo bættist Ragna í hópinn og eftir það vorum við þijár vinkonurnar, oftast nefnd- ar í sama oi'ði, Lóa, Dilla, Ragna. Ég minnist hve gott var að koma á bernskuheimili Lóu, í litla húsið í Hamarsbæli. Mamma hennar, hún Anna, hafði alltaf tíma fyrir okkur. Hún hafði aldrei svo mikið að gera að þarfir okkar sætu ekki í fyrir- rúmi. í hennar návist vorum við svo mikilvægar og þetta var svo góð tilfinning fyrir litlar stúlkur. Æsku- árin liðu og við urðum fullorðnar og 19 ára gömul giftist Lóa bróður mínum Jóni'. Þar með vorum við einnig tengdar Ijölskylduböndum. Hún var bróður mínum góð kona og má með sanni segja, að hún stóð við hlið hans í blíðu og stríðu. En hann andaðist fyrir þrem árum. Synirnir þrír bera foreldrum sínum og uppeldi fagurt vitni. Lóa var þeim mikil og góð móðir. Mikil músik var á heimilinu, þar sem feðgarnir allir spiluðu á hljóðfæri og tók hún þátt í þeim músík- heimi, hafði bjarta og fallega söng- rödd. Það var alltaf jafn gaman að vera í návist Lóu, hún hafði svo létta lund, hafði frá mörgu að segja og _var stálminnug. Ég vil að leiðarlokum þakka henni trygga vináttu. Ég bið guð og góða engla að leiða hana á ljóss- ins vegum og blessa og styrkja fjöl- skylduna hennar. syni, en þau voru bæði frá Drangs- nesi í Strandasýslu. Um vorið skildu leiðir og allar fóru til síns heima. Lóa og Jón giftu sig, bjuggu á Drangsnesi og eignuð- ust þrjá efnilega syni. Við sem héldum hópinn eftir megni og enduðum í saumaklúbbn- um, sáum Lóu ekki aftur fyrr en árið 1958, en það ár fluttu þau hjón- in til Reykjavíkur. Eftir það var Lóa ein í hópnum, sem hafði haldið sam- an í ein ellefu ár. Lóa var glaðlynd og skemmtileg, söngelsk var hún og fjölskylda hennar öll, söng m.a. lengi með Strandakórnum. Já, þaA var oft glatt á hjalla í klúbbnum okkar, og ekki var það síst Lóa, sem lífgaði upp á samveruna. Fyrir þremur árum varð breyting á högum Lóu. Hún missti mann sinn, og var það mikið áfall fyrir hana, en ekki síst fyrir það, að hún veiktist sjálf um svipað leyti og gekk aldrei heil til skógar eftir það. En þrátt fyrir þetta hélt hún reisn sinni og góðu skapi. Aldrei var held- ur farið leynt með það, hversu syn- irnir og þeirra konur reyndust henni vel. Auðheyrt var, að henni þótti mjög vænt um börn sín, tengdadæt- ur og barnabörn. En hún var þeim líka dýrmæt. En nú er komið skarð í hópinn, og við kveðjum Lóu vinkonu okkar og þökkum henni fyrir vináttuna, hlýjuna og glaðværðina, sem hún hefur gefið okkur í öll þessi 30 ár í klúbbnum. Guð biessi hana og varðveiti um alla eilífð. Og ykkur, sonum henn- ar, tengdadætrum og barnabörnum, sendum við okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Saumaklúbburinn Vaxtarsjóðurinn hefur slitið bamsskónum Vaxtarsjóður Útvegsbanka íslands hf., sem er rúmlega ársgamall, hefur vaxið jafnt og þétt og eru nú tæpar 500 milljónir króna í sjóðnum. Síðustu þrjá mánuði hafa Vaxtar- bréfin borið 9,4% vexti umfram hækkun lánskjaravísitölu. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (V.Br.) Dýrleif Jónsdóttir Nú þegar Lovísa A. Jónsdóttir hefur kvatt þennan heim langar okkur barnabörnin hennar að kveðja hana og þakka henni alla hlýjuna og ástúðina sem hún hefur ávallt sýnt okkur öllum. Amma Lóa eins og við kölluðum hana alltaf átti til þá hjartahlýju sem við öll nutum í ríkum mæli, enda sóttumst við eftir að heim- sækja hana og eins afa Jón meðan hans naut við. Avallt lumaði amma Lóa á ein- hveiju handa okkur, ýmist ein- hveiju sem að notum mátti koma eða einhveiju góðgæti. Við viljúm öll geyma minninguna um ömmu Lóu glaðlynda og brosandi og vitum nú að þau eru aftur saman amma Lóa og afi Jón. Við biðjum góðan Guð að geyma hana og blessa minn- ingu hennar. Láttu nú ljósið þitt loga við rúraið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. Eignir sjóðsins eru bundnar í Fasteigna- 25% tryggðum , bréfum Öðrum 25% tryggum bréfum Vaxtarbréfin eru ávallt laus til innlausnar gegn 1% innlausnargjaldi. Athugið! 2. og 3. hvers mánaðar er ekkert inn- lausnargjald. Vaxtarbréfin fást á öllum afgreiðslustöðum Útvegsbankans. ^ VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÚTVEGSBANKANS SÍÐUMÚLA 23, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 68 80 30 Verðbréfum frá bönkum 50% og ríki Barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.