Morgunblaðið - 12.10.1989, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 12.10.1989, Qupperneq 51
08CI HaaÖTHO ,S1 MORGUNBLAÐIÐ lWÓTÍ7Í?flMMTOtóÍc 12. OKTÓBKR 19^9- ■:5T HANDKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ 1. DEILD Morgunblaöið/Jútius Tákræn mynd....Sigurður Bjarnason stekkur vel upp fyrir Erling Kristjánsson, þjálfara KA, og skorar eitt af níu mörkum sínum. Erlingur og lærisveinar hans réðu ekkert við Stjörnumenn. Banni Óskars af létt Fær leyfi til að jeika með Puerto Gagnito á Spáni. Dagur í sex mánaða bann - Dómstóll HSÍ hefur aflétt eins árs leikbanni Óskar Helgasonar sem leikur með spænska liðinu Puerto Gagnito. Óskar fékk eins árs bann því félagaskipti hans uppfylitu ekki kröfur HSÍ. Málið var tekið fyrir hjá dómstól HSÍ og þar var ákveðið að aflétta banninu. Þar var einnig tekið fyrir mái Dags Jónassonar en hann fór úr Fram í Víking. Hann var fékk sjálfkrafa sex mánaða bann þar sem Fram neitaði að samþykkja félagaskiptin. Víkingar skutu málinu til dóm- stóls HKRR og þar var bannið staðfest. Víkingar áfrýjuðu til dóm-( stóls HSÍ sem komst að sömu niðurstöðu og HKRR. Dagur Jónasson vei-ður því ekki löglegur með Vikingi fyn- en í mars á næsta ári. Sigurður átti Stjörnuleik - skoraði níu mörk er Garðbæingar burstuðu KA-menn 23:14 SIGURÐUR Bjarnason átti stór- leik fyrir Stjörnuna er liðið burstaði KA, 23:14, íGarðabæ í gærkvöldi. KA-menn héldu í við Garðbæinga fram að leik- hléi er staðan var 8:6, eftir það voru þeim allar bjargir bannað- ar. Jafnræði var á með liðunum í byrjun, eða þar til staðan var 4:4. Þá mistu KA-menn leikmenn útaf og Garðbæingar færðu sér það ■■■ í nyt og skorðu fjög- Höröur ur mörk í röð og Magnússon breyttu stöðunni í skrifar 8:4. KA náði aðeins að klóra í bakkann með því að skora tvö síðustu mörk- in fyrir hlé. í upphafi síðari hálfleiks mistu KA-menn leikmenn útaf -og var refsað fyrir það með fimm mörkum. Munurinn jókst síðan jafnt og þétt til leiksloka og var níu mörk er upp var staðið. Fyrri hálfleikur var slakur og einkenndist af mistökum á báða bóga. Til marks um það misnotaði Skúla Gunnsteinsson þrjú hraða- upphlaup með stuttu millibili. Síðari hálfleikur var góður hjá Garðbæ- ingum, en mótstaðan/var lítil þar sem KA-menn virtust hafa játað sig sigraða full snemma. Sigurður Bjarnason var í miklu stuði hjá Stjörnunni og gerði níu mörk. Brynjar Kvaran iék einnig vel í markinu. Stjarnan á þó að geta leikið betur en í gærkvöldi. Axel Björnsson, markvörður, var langbesti leikmaður KA og Guð- mundur Guðmundsson var eini úti- ieikmaðurinn sem stóð fyrir sínu. Sóknir KA voru mjög fálmkenndar og það er greinilegt að liðið á erfið- an vetur fyrir höndum. HANDKNATTLEIKUR / SVÍÞJÓÐ Þorbergur með f imm orbergur Aðalsteinsson og félagar í Saab sigruðu Katra- inaholm í fyrsta leik sínum í sænsku úrvalsdeildinni í hand- knattleik, 23:20. Þorbergur gerði fimm mörk, öll í fyrri hálfleik. í síðari hálfleik var hann hinsvegar tekinn úr umferð. „Ég skil ekki hvernig þeir nenna að elta mig, gamla manninn, út um allt,“ sagði Þor- bergur og hló. Saab var hafði sex marka for- skot í leikhléi, 14:8, en gekk illa í upphafi síðari hálfleiks. „Það fór allt í baklás enda alltaf mikil spenna í fyrsta leiknum. En þetta slapp og ég held að við getum verið bjartsýnir. Ef við vinnum heimaleikina og stöndum okkur þokkalega á útivelli ættum við að ná í úrslitakeppnina,“ sagði Þor- bergur. Ólrúlegar sveiflur „FYRRI hálfleikur er það alslak- asta sem lið hefur sýnt undir minni stjórn í 14 ár,“ sagði Jó- hanni Ingi Gunnarsson, þjálfari KR-inga, eftir að Víkingar höfðu níu marka forskot í leikhléi, 15:6. En þetta átti heldur betur eftir að breytast því KR-ingum tókst það sem engan hefði ór- að fyrir í leikhléi, að vinna upp þennan mun og einu marki betur og stóðu uppi sem sigur- vegarar, 21:22. Víkingar fóru á kostum í fyrri hálfleik með Hrafn Margéirs- son í .markinu sem besta mann. Hann varði eins og berserkur m.a. þrjú vítaköst. KR- ValurB. ingar skoruðu- að- Jónatansson eins tvö mörk á sknfar móti 13 mörkum Víkinga á fyrstu 22 mínútunum sem sýnir best yfirburð- ina. Það gekk bókstaflega allt upp hjá Víkingum en að sama skapi gekk allt á afturfótunum hjá KR- ingum. Síðari hálfleikur var öfug endur- tekning á fyrri hálfleik þar sem KR-ingar voru í aðalhlutverki. Víkingar skoruðu sitt fyrsta mark í síðari hálfleik eftir 11 mínútur en á sama tíma höfðu Vesturbæingar gert fimm mörk. Þegar fjórar mínútur voru til leiksloka var stað- an 21:18 fyrir Víking. Þá var kom- ið að kafla Konráð Olavsonar sem gerði síðustu fjögur mörkin og tryggði KR-ingum sigur, 21:22. Leikurinn verður minnistæður fyrir þær ótrúlegu sveiflur sem í honum voru. Víkingar geta nagað sig í handabakið fyrir að klúðra unnum leik. Þeir léku síðari hálf- leikinn afspyrnu illa. Lið sem hefur níu marka forskot í hálfleik á ekki að geta tapað því niður. Það var fyrst og fremst sóknarleikurnn sem brást hjá Víkingum í síðari hálfleik. Sóknir þeirra voru stuttar og þeir skutu nánast úr vonlausum færum eftir aðeins 10 til 15 sekúndur. Viturlegra hefði verið að hanga á boltanum og láta tímann vinna með liðinu. Hrafn var frábær í markinu í fyrri hálfleik, en datt niður í þeim seinni eins og félagar hans. Ingi- mundur Helgason, ungur nýliði, vakti athygli fyrir góðan leik. KR-ingar eiga hrós skilið fyrir að missa ekki móðinn. Þeir komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og ótrúlegt til þess að vita að sömu leikmenn hafi leikið fyrri hálfleik- inn. Gísli Felix stóð sig vel í mark- inu eftir að hann kom inná fyrir Leif Dagfinnsson íTok fyrri hálf- leiks. Konráð fór á kostum á loka- mínútunum og eins léku þeir Páll, Þorsteinn og Sigurður vel. En KR- ingar verða að æfa vítaköstin því þeir klúðruðu sjö vítaköstum og þar af sex í fyrri hálfleik. „Ég sagði við leikmennina í hálf- leik að við yrðum að komast frá þessum leik með reisn og sýna kar- akter því nú væru aðeins áhangemK' ur Víkings eftir í húsínu. Við breytt- um varnarleiknum og tókum Árna Friðleifsson úr mjiferð og við það riðlaðist sóknarleikur Víkings. Með gífurlegri baráttu tókst þetta, en hver hefði trúað því í hálfleik. Ég vona samt að ég eigi ekki eftir að upplifa annan eins leik því þá leggst ég inn á sjúkrahús," sagði Jóhann Ingi glaður í bragði eftir sigurinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.