Morgunblaðið - 12.10.1989, Qupperneq 52
WNCHBSTER t
r
BYSSUR OG SKOTFÆRI
Heildsöludreifing:
I.Guðmundsson, sími:24020
SAGA CLASS
Fyrir þá sem eru aðeins
á undan
FLUGLEIDIR
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Frystitogar-
arnir moka
upp físki í
Skerjadýpi
Taka 40 til 60 tonn
af karfa á sólarhring
NOKKRIR frystitogarar mok-
fiska nú í úthafskarfatrollin í
Skei'jadýpi. Þeir hafa verið að
taka 40 til 60 tonn af karfa á
sólarhring, en það svarar nokk-
urn veginn til frystigetu skip-
anna. Hafnarfj arðartogarar ni r
Haraldur, Sjóli og Venus eru
þarna úti og hafa þeir verið að
taka upp í 30 tonn í holi, en al-
gengast er að þeir fái 15 til 20
tonn.
^ Helgi Kristjánsson, útgerðar-
stjóri Sjólastöðvarinnar, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að stói'u
úthafskarfatrollin gerðu gæfumun-
inn. Einhveijir hefðu reynt fyrir sér
þarna með minni troll en fiskað
mun minna í þau. Hann sagði að
þessi afli svaraði nokkurn veginn
til vinnslugetunnar, en karfinn er
hausskorinn og slógdreginn og heil-
frystur fyrir Japansmarkaðinn.
„Utgerðin hefur gengið vel í ár, en
Jtað saxast töluvert á kvótann. Har-
aldur og Sjóli eru báðir á sóknar-
marki og því er ekki hægt að kaupa
á þá kvóta. Það er hámark á þorsk,
karfa og grálúðu auk takmarkaðrar
sóknar. Við eigum eftir dagafjölda
í um það bil tvo túra til áramóta
og vonumst til að geta verið eitt-
hvað á ufsa og ýsu þá,“ sagði Helgi.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Hvassafellið kom til Vestmannaeyja í gær hlaðið síldartunnum. Alls var skipið með um 15 þúsund
tunnur. Saltað var hjá Fiskiðjunni á mánudag og saltað verður aftur í dag.
Saltað á 13 plönum í gær
ttWKMHWat* | ’
UMSVIFIN kringum síldina eru
farin að aukast. I gær var salt-
að á 13 plönum, reyndar lítið á
flestum, enda eru. menn að
prufukeyra vélar og mannskap.
Bátunum fjölgar á miðunum og
Ingvi Rafn er búinn að landa
þrisvar.
í gær var saltað á 13 plönum
á svæðinu frá Eskifirði að Vogum
á Vatnsleysuströnd. Áætluð sölt-
un eftir daginn var um 3.000
tunnur og veldur því bæði söltun-
arhámark á hvert plan, 300 tunn-
ur, og hitt að menn eru að byija
að þreifa sig áfram með vinnsl-
una, stilla vélar og þjálfa mann-
skap.
Valdimar Sveinsson var vænt-
anlegur til Eyja í gærkvöldi með
100 tonn og Ingvi Rafn á Guð-
mundi Kristni landaði á Fáskrúðs-
firði í þriðja sinn á vertíðinni, 60
tonnum að þessu sinni. Morgun-
blaðið náði tali af Ingva þar sem
hann var staddur austur af Hvals-
nesinu, en þar fékk hann aflann
í fyrri nótt. Hann sagði, að síldin
væri byijuð að færast að landi
og líklega færi veiðin að aukast.-
Þó hefði það verið svo í fyrri nótt
að lítið hefði verið um að vera
eftir miðnættið, lítið fundizt og
það staðið djúpt.
Fjárlagafrumvarp 1990 lagt fram á Alþingi í gær:
Tekjuskattshlutfall hækk-
að og sérstakt hátekjuþrep
Persónuafsláttur hækkaður og raunvaxtatekjur skattlagðar
TEKJUSKATTAR á fólk með háar tekjur hækka með því að hækka
tekjuskattshlutfall og persónuafslátt, sérstakt skattþrep kemur á háar
tekjur, barnabætur verða í ríkari mæli tekju- og eignatengdar og fjár-
magnstekjur verða skattlagðar samhliða lækkun eignaskatta. Þetta
er boðað í frumvarpi til fjárlaga ársins 1990, sem lagt var fram á
Alþingi í gær. Frumvarpið gerir ráð íyrir tæplega þriggja milljarða
króna halla á ríkisbúskapnum sem verði fjármagnaður með lántökum
innanlands. Tekjur ríkissjóðs eiga að verða rúmir 90,3 milljarðar sem
er um 17% hækkun frá fjárlagafrumvarpi þessa árs, gjöld eiga að
verða 93,2 milljarðar sem er 22,5% hækkun frá frumvarpi þessa árs.
að raungildi.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
inálaráðherra segir frumvarpið vera
mikilvægan áfanga að nýjum grund-
velli í efnahagsmálum og að það
skapi almenn skiíyrði fyrir rekstur,
tími millifærslna til bjargar atvinnu-
lífi sé liðinn.
Pálmi Jónsson þingmaður Sjálf-
stæðisflokks segir að máiflutningur
íjármálaráðherra einkennist af vill-
andi samanburði og feluleik sem
felist meðal annars í að frumvarpið
byggi á 16% hækkun verðlags á
næsta ári. „En ekki er gert ráð fyr-
ir neinum launahækkunum og svari
nú hver fyrir sig að það sé trúlegt
að laun standi óbreytt í 16% verð-
bólgu.“
Sjá nánar á bls. 4 og 5.
Akureyri:
Híbýli óska
eftir gjald-
þrotaskiptum
40 manns vinna
hjá fyrirtækinu
HIBYLI hf. sendu síðdegis í gær
inn beiðni til bæjarfógetans á
Akureyri um að fyrirtækið verði
úrskurðað gjaldþrota.
Elías I. Elíasson bæjarfógeti
sagði að stjórn fyrirtækisins hefði
farið fram á það að fyrirtækið yrði
úrskurðað gjaldþrota, en þar sem
beiðnin hefði komið seint fram hefði
ekki gefist tóm til að skoða hana.
Fjallað yrði um málið í skiptarétti
í dag.
Híbýli hf. er stærsta bygginga-
fyrirtækið á Akureyri og þar starfa
nú um 40 manns. Forráðamenn
fyrirtækisins vildu í gærkvöldi ekk-
ert tjá sig um málið.
Veiðitímabilið að
heijast:
Rjúpu fer
fækkandi
RJÚPNAVEIÐI má hefjast á
sunnudag, 15. október. Fækkað
hefur í rjúpnastofiiinum undan-
farin ár og útlit er fyrir að svo
verði næstu ár.
Ævar Petersen, fuglafræðingur,
sagði að nokkrar sveiflur væru í
ijúpnastofninum og næði hann
hámarki á um tíu ára fresti. „Síðast
var siíkt hámark 1986-1987, þó
að þá þætti ekki mikið um íjúpu
miðað við það sem best gerðist
fyrr á öldinni," sagði hann. „Þó
var ástandið miklu betra en til
dæmis árið 1975, sem var lélegt.
Þetta gengur alltaf í sveiflum og
það er ekkert sem bendir til ann-
ars en að stofninn dali áfram í ár.“
í frétt frá Skotveiðifélaginu,
sem birtist í Morgunblaðinu í gær,
voru veiðimenn hvattir til að sýna
öðrum veiðimönnum og vegfarend-
um fyllstu tillitssemi og gæta ör-
yggis í hvívetna.
Rafíðnaðarmenn funduðu fram á nótt:
Miklar truflanir á síma-
sambandinu við útlönd
RAFIÐNAÐARMENN sátu enn á fundi með viðsemjendum sínuin
síðast þegar Morgunblaðið leitaði frétta eftir miðnætti í nótt, en þá
voru liðnar tvær vikur írá því verkfall rafíðnaðarmanna hjá ríkinu
hófst. Aðilar vörðust lirétta af gangi viðræðnanna. í gærkvöldi voru
afturkallaðar undanþágur hljóðvarps og sjónvarps ríkisins til að
senda út auglýsingar. Stafræn símstöð, sem sér um símasamband
við útlönd, liætti að.afgreiða símtöl í gær og var þá ekki hægt að
hringja beint héðan til Bretlands og um helmingur lína til Banda-
ríkjanna datt út, auk nokkurra lína til ýmissa Evrópulanda.
„Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
endurskoða tekjuskattskerfið á
næstunni í því skyni að það stuðli
að meiri jöfnuði með því að létta
skattbyrði af lágtekjufólki en auka
hana á hátekjufólki," segir í greinar-
Ölvaðir öku-
menn fleiri
en í fyrra
FLEIRI ökumenn voru kærðir
"^Tyrir ölvun við akstur í Reykjavík
fyrstu níu mánuði þessa árs en á
sama tíma í fyrra. Jafnmargir
ökumenn lentu ölvaðir í umferð-
aróhöppum bæði tímabilin.
911 ökumenn voru grunaðir um
ölvun við akstur fyrstu þijá fjórð-
unga þessa árs en þeir voru 844 á
sama tima í fyrra. Hvort árið áttu
114 ölvaðir ökumenn aðild að um-
ferðaróhöppum.
gerð í frumvarpinu.
Tekjuskattar af raunvaxtatekjum
einstaklinga hafa verið í undirbún-
ingi og miða að því að „. .. afnema
þau skattalegu forréttindi sem fjár-
magnstekjur hafa notið umfram at-
vinnutekjur, um leið og stefnt er að
samræmingu í skattalegri meðferð
mismunandi forma fjármagns-
tekna," segir í frumvarpinu. Sam-
hliða skattlagningu fjármagnstekna
á að lækka eignarskatta, þó á eign-
arskattsauki að hækka umfram
verðlagshækkanir sem frumvarpið
er byggt á.
26% virðisaukaskattur er meðal
forsendna frumvarpsins og á að end-
urgreiða hann að hluta af nokkrum
tegundum matvæia, þannig að
mjólk, dilkakjöt, innlent grænmeti
og/iskur beri ígildi 13% skatts.
Ýmis fleiri gjöld eru til athugun-
ar, þar á meðal að hækka ýmis leyf-
is- og afgreiðslugjöld til að þau
standi undir auknum kostnaðarhlut
viðkomandi stofnana, svonefnt „kíló-
gjald“ af bílum hækkar um 2-3 krón-
ur á kíló en bensíngjald á að lækka
Hægt er að hringja frá þessum
löndum hingað. Þá bilaði símstöðin
í Mosfellsbæ í gær og var lengi
dags mjög erfitt að ná sambandi
þangað og þaðan á mestu álagstím-
um. Einnig var erfitt að ná sam-
bandi innanbæjar. Sótt var um und-
anþágu frá verkfalli Rafiðnaðar-
sambandsins til viðgerða, en svar
hafði ekki bórist í gærkvöldi.
Póstur og sími sótti um undan-
þágu frá verkfalli Rafiðnaðarsam-
bandsins til viðgerða en undanþága
fékkst ekki í gær.
Að sögn Jóhanns Hjálmarssonar,
blaðafulltrúa Pósts og síma, er einn-
ig bilun í Múlastöð. Póstur og sími
fékk ekki undanþágu til að gera
við 128 símanúmer í stöðinni, sem
hafa verið biluð frá því á laugardag-
inn fyrir rúmri viku. 20 þeirra eru
í leiguíbúðum aldraðra við Furu-
gerði.
í Þorlákshöfn hefur ekki verið
unnt að ná sambandi innanbæjar.
Mjólkárvirkjun er sambandslaus og
ekki hefur fengist undanþága til
að gera við þá bilun. Undanþága
fékkst til að gera við bilanir í staf-
ræna kerfinu í Skagafirði.