Morgunblaðið - 09.11.1989, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1989
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
KATRÍN MAGNÚSDÓTTIR,
áðurtil heimilis Auðarstræti 13, Reykjavík,
lést á Sólvangi Hafnarfirði 1. nóvember sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Bestu þakkir fyrir auðsýnda samúð.
Valgerður J. Andrésdóttir,
Magnús T. Andrésson, Jensína Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn,
PÁLL FRIÐBERTSSON
frá Súgandafirði,
lést 5. nóvember 1989.
Hann verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju föstudaginn 10. nóvember kl.
13.30.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en
þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Suðureyrarkirkju.
Svanhvi't Ólafsdóttir.
t
ÖGN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Öldugötu 3a,
Hafnarfirði,
lést á Sólvangi 6. nóvember sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Helgi Eysteinsson, Áslaug Guðjónsdóttir,
Magnús Randrup, Auður Guðmundsdóttir,
Ágústa Randrup, Georg Ormsson,
Hulda Randrup,
Emma Walker,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn,
KAREL EINARSSON,
verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju föstudaginn 10. nóvember
kl. 14.00.
Guðný Halldórsdóttir.
t
Bróðir minn og mágur,
SVAVAR SIGURÐSSON,
sem lést 4. nóvember verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 10. nóvember kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Skúli Sigurðsson, Anna Dýrfjörð.
t
Eiginkona min og móðir,
WENCHE FJELDSTAD INGVARSSON,
sem lést 1. nóvember sl. verður jarðsungin frá Lágafellskirkju
föstudaginn 10. nóvember kl. 13.30.
Magnús Ingvarsson, /
Monica og Ingvar.
t
Faðir ókkar, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR LÁRUSSON,
Skarði við Sauðárkrók,
lést á dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki miðvikudaginn 1. nóv-
ember.
Útförin ferfram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 11. nóvember
kl. 15.30.
Torfi Ólafsson,
Guðbjörg Hefgadóttir,
Ólafur Torfason,
Helgi Torfason,
Hallveig Njarðvík,
Páll Pétursson,
Tinna Pálsdóttir,
Heba Pálsdóttir.
Katrín Magnús-
dóttir - Minning
Fædd 3. júní 1900
Dáin 1. nóvember 1989
Þann 1. nóvember sl. andaðist á
Sólvangi Hafnarfirði tengdamóðir
mín Katrín Magnúsdóttir. Hún
fæddist á Kolbeinsstöðum í Kol-
beinsstaðahreppi 3. júní árið 1900.
Foreldrar hennar voru hjónin Sal-
magnea Hansdóttir og Magnús
Móberg. Þeim hjónum fæddust 10
börn og komust 5 til fullorðinsára.
Allt er þetta fólk nú látið og varð
Katrín þeirra síðust að kveðja þessa
jörð. Seinna fluttust þau hjón að
Akurholti í sömu sveit þar sem
Magnús starfaði sem póstaf-
greiðslumaður jafnhliða búskapn-
um.
Ung að árum fór Katrín til
Reykjavíkur þar sem hún kynntist
mannsefni sínu Andrési Jónssyni
kaupmanni frá Eyrarbakka og
gengu þau í hjónaband árið 1918.
Andrés rak þá umfangsmikla versl-
un á Eyrarbakka og stofnuðu þau
heimili sitt þar. Á þessum árum var
Eyrarbakki aðal verslunarstaður
©
Minningarkort
Blindrafélagsins,
Hamratilíð 17,
sími 687333.
Suðurlands og var mikið annríki í
sambandi við verslunina og rnjög
gestkvæmt á heimili þeirra hjóna,
en unga húsmóðirin var vandanum
vaxin og mjög myndarleg í allri
matargerð og húshaldi og svo var
íslenska gestrisnin ætíð eins og hún
gat best verið hjá þeim hjónum.
Þau eignuðust 2 börn, Valgerði
Jónu og Magnús Truman. Vegna
sjúkleika Andrésar fluttist fjöl-
skyldan til Reykjavíkur árið 1928
og andaðist hann árið eftir aðeins
44 ára gamall.
Katrín var sérstaklega listræn
og lagin við allan saumaskap og
handavinnu og vann hún fyrir sér
og börnunum með saumaskap þar
til hún giftist aftur árið 1932 Jóni
Helgasyni húsgagnasmið, sem vann
lengst af hjá Kristjáni Siggeirssyni,
Laugavegi 13. Þau keyptu sér fljót-
lega íbúð á Auðarstræti 13 og stofn-
uðu þar sitt framtíðarheimili. Þau
bjuggu saman í farsælu hjónabandi
þar til hann lést um aldur fram
1959. Þeim varð ekki barna auðið.
Jón reyndist stjúpbörnum sínum
mjög vel og var þeini sem besti
faðir. Eftir lát Jóns vann Katrín við
iðnað með Magnúsi syni sínum um
margra ára skeið.
Barnabörn Katrínar eru 4 og
barnabarnabörn 10 talsins.
Hún var einstaklega barngóð
manneskja og börnum okkar þótti
mjög vænt um ömmu sína. Á með-
an börnin voru ung fórum við oft-
ast til hennar í kaffi á sunnudögum
og alltaf var tilhlökkunarefni að
fara til ömmu á Auðarstræti. Þar
voru alltaf miklar og góðar veiting-
ar á borðum og hugsað mikið um
að allir fengju nóg. Börnin dvöldu
oft um stundarsakir hjá ömmu sinni
og þá dekraði hún við þau, sagði
þeim sögur og ævintýri og kenndi
þeim bænir og brýndi ætíð fyrir
þeim að muna nú eftir að fara með
bænirnar sínar áður en þau færu
að sofa.
Katrín var falleg og glæsileg
kona og virðuleg í allri framgöngu.
Hún var skapstór að eðlisfari og
fylgdist vel með öllum þjóðmálum
og sagði sínar skoðanir af einurð
og festu. Hún hafði sterka réttlætis-
kennd og var heiðarleg og hrein-
skiptin í samskiptum við aðra og
hafði ríka samúð með þeim, sem
minna máttu sín í þjóðfélaginu.
Katrín og Valgerður dóttir henn-
ar voru ávallt mjög samrýndar og
eftir að Valgerður missti mann sinn
Gunnlaug Ásgeirsson kaupmann
árið 1975, var hún mikið hjá henni,
en bjó samt í sinni íbúð á Auðar-
stræti þar til fyrir fárum árum að
hún fluttist alfarið til hennar. Val-
gerður annaðist móður sína af alúð
og umhyggju þar tii Katrín fór á
St. Jósepsspítala í Hafnarfírði í
mars á þessu ári og hlaut hún góða
umönnun þar. Hún var nýlega kom-
in á Sólvang þegar kallið kom. Ég
á góðar minningar um tengdamóður
mína og kveð hana með þakklæti.
Hún reyndist mér og okkur öllum
ætíð vel.
Blessuð sé minning hennar.
Jensína Guðmundsdóttir
t
GUÐRÚN ÞJÓÐBJÖRG JÓHANNSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Kotstrandarkirkju laugardaginn 11. nóvem-
ber kl.14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóhann Ragnarsson.
i
Eiginkona mín, móðir, fósturmóðir, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG SVEINSDÓTTIR
frá Flóðatanga,
verður jarðsungin frá Stafholtskirkju laugardaginn 11. nóvember
kl. 14.00.
Jóhannes Jónsson,
Jón Jóhannesson,
Helga Jóhannesdóttir,
Guðrún Jóhannesdóttir,
Sveinn Jóhannesson,
Ólafur Jóhannesson,
Eysteinn Jóhannesson,
Auður Jóhannesdóttir,
Marteinn Valdimarsson,
og barnabörn.
Steingrímur Ingólfsson,
Þorbjörg Valdimarsdóttir,
Gerða Ásrún Jónsdóttir,
Gfsli S. GÚðjónsson,
María Eyþórsdóttir
i
Bálför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
EMMU RAGNHEIÐAR HALLDÓRSDÓTTUR,
Fellsmúla 5,
áður Minni-Bakka v/Nesveg,
sem lést í Landspítalanum 13. október, hefur farið fram.
Viggó Guðjónsson,
Hafdís Jónsdóttir, Marinó Sigurpálsson,
Sævar Jónsson,
Jón Bóasson, Sigrún Karlsdóttir,
Sædís Jónsdóttir, Magnús Guðmundsson,
Hafþór Jónsson,
Sæþór Jónsson, Halla Hallgrímsdóttir,
Ingibjörg Ólafsdóttir, Höskuldur Bjarnason,
barnabörn og barnabarnabörn.