Morgunblaðið - 09.11.1989, Blaðsíða 43
esei flaaMavóM .e auoAauTMKH öiöaisví'jííjiom
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1989 43
Minning:
Gísli Halldórs-
son verkamaður
Fæddur 22. desember 1921
Dáinn 31. október 1989
Góður frændi og vinur hefur lok-
ið sinni lífsgöngu og í dag er hann
kvaddur hinstu kveðju.
Gísli Valdimar Halldórsson, eða
Gilli eins og hann var alltaf kallað-
ur fæddist á Norðfirði 22. desember
1921. Hann var næst yngsta barn
hjónanna Halldórs Ásmundssonar
og Guðríðar Hjálmarsdóttur frá
Vindheimi, en alls eignuðust þau
hjón níu börn en sjö þeirra komust
til fullorðinsára. Þijú eru nú látin
Guðný, Þórunn og Gísli en eftir lifa
Lára og Stefán búsett í Neskaup-
stað, Rúna búsett á Seltjarnarnesi
og Svanbjörg búsett í Sandgerði.
Fjöldskyldan í Vindheimi var stór
og þar var oft þröngt setinn bekkur-
inn en hlýjan og gleðin sem ríkti á
heimilinu þjappaði fólkinu saman
og styrkti flölskylduböndin og búum
við afkomendur að því í dag. Eins
og hjá þorra þeirra sem ólust upp
á fyrri hluta aldarinnar var skóla-
gangan ekki löng og snemma farið
að vinna. 16 ára fór Gilli á sína
fyrstu vertíð en lengstan hluta
starfsævi sinnar eða í 30 ár starf-
aði hann á Netaverkstæði Friðriks
Vilhjálmssonar í Neskaupstað.
Líkaði honum vel þar og víst er að
Netagerðin hafði þar mjög góðan
starfsmann sem mjög var annt um
velgengni fyrirtækisins.
Stangveiði var aðaláhugamál
Gilla og stundaði hann siliing og lax
mikið á fyrri ánim. Snemma var
farið að fara með honum inn í á í
silung og sumarið 1977 fór ég í
mína fyrstu laxveiði með Gilla í
Vesturdalsá í Vopnafirði. í góðri
veiði inn við Foss kviknaði veiði-
bakterían í mér og er ég þakklátur
frænda mínum fyrir.
Gilli stofnaði ekki eigin Ijölskyldu
en inn á heimili foreldra minna kom
hann árið 1951 og var síðan einn
Sveina Sveinbjöms-
dóttir — Minning
Fædd 18. apríl 1952
Dáin 10. október 1989
Mig langar til að fara hér örfáum
orðum um Sólveigu Sveinu Svein-
björnsdóttur eða Sveinu eins og hún
var oftast kölluð. Þessi orð mín eru
til þess eins rituð að lýsa hvernig
Sveina orkaði á mig sem einstakl-
ingur og til þess að sýna þakklæti
fyrir það að hafa fengið að kynnast
henni. Ég bjó hjá Sveinu og fjöl-
skyldu hennar tvö sumur, það fyrra
sumarið 1984. Ég var í fyrsta skipt-
ið að fara að heiman til að sækja
vinnu og ég var því eins og hvert
annað ungviði sem fannst hlutirnir
stundum geta verið stórir og oft
erfiðir. Ég man hversu Sveina tók
mér afskaplega vel og hversu hún
studdi oft við mig með því að sýna
skilning og hvetja mig reynslulitla.
Ég mun seint geta fullþakkað
Sveinu þetta, því hún var mér afar
góð og mér leið vel hjá henni. Ég
man að mér fannst, þegar ég kynnt-
ist Sveinu fyrst, hún geta verið
mjög ákveðin, snögg í tilsvörum og
stundum dálítið hvöss, þannig að
ég gat hrokkið við en við frekari
viðkynningu fann ég að hún var
afar traust og að hún lét sig mikið
varða um annað fólk en hún gerði
það alltaf á þann eina hátt sem
henni var lagið — án allrar tilgerð-
ar og óheilinda. Það var einmitt
þessi eiginleiki hennar, að vera allt-
af falslaus, sem gerir minninguna
um hana svo sterka.
Sveina átti dásamlegt bros því
það var afar geislandi og kraftmik-
ið. Ég á þá ósk eina til handa ástvin-
um Sveinu að minningin um sterka
brosið hennar hjálpi þeim til að
finna birtu og von á þessum erfiðu
stundum lífsins. Ég votta aðstand-
endum Sveinu öllum dýpstu hlut-
tekningu, móður hennar og föður,
tengdamóður. Jóhannesi eigin-
manni hennar og litlu börnunum
þeirra. Ég bið að allir góðir vættir
megi vera með ykkur. Huggunarorð
á ég engin en mér finnst sem ég
geti e.t.v. frekast sýnt samúð með
því að segja að þetta ljóð Jakobínu
Sigurðardóttur komist næst því að
segja í orðum hvernig mér er innan-
bijósts á þessum haustdögum.
Hægt nálgast haustið.
Af hvítum skýjum
rökkurþunguðum
rósir drjúpa.
Hvítar rósir
af hljóðum skýjum
hníga' í húmi
á haustbleika jörð.
Ég þakka forsjóninni fyrir að ég
skyldi hafa fengið að kynnast
Sveinu.
Laufey Ólafsdóttir
af fjölskyldunni. Vegna húsnæðis-
þrengsla leigði Gilli sér herbergi
annars staðar uns hann flutti í eig-
in íbúð árið 1981. Lengst af eða i
25 ár leigði hann hjá þeim heiðurs-
hjónum Guðrúnu Guðmundsdóttur
og Guðjóni Marteinssyni á Hlíðar-
götu 18. Guðjón vininn kvöddum
við fyrir tæpum hálfum mánuði.
Gilli var ákaflega barngóður og
nutum við þess ríkulega systkina-
börn hans og síðar börn okkar.
Margar góðar minningar geymum
við um góðan frænda.
Eins og áður er komið fram þá
kom Gilli inn á heimili foreldra
minna fyrir tæpum fjórum áratug-
um. Þar átti hann ætíð gott at-
hvarf. Ég veit að hann var ævinlega
mjög þakklátur foreldrum mínum
fyrir það atlæti sem honum var
sýnt á heimili þeirra.
Nú síðustu árin fór heilsan hjá
Gilla nokkuð að láta sig. Hann fór
í aðgerð á Landspítalanum seinni
hluta októbermánaðar og þar lést
hann eftir stutta legu.
Með Gísla Halldórssyni er geng-
inn góður drengur. Ég er þakklátur
fyrir þau góðu kynni sem við höfð-
um.
Guðmundur Bjarnason
Á fyrstu æviárum leitandi barns-
sálar er hún umvafin föstum punkt-
um sem staðsetja hana og veita
skjól í breytilegu þjóðfélagi hvers
tíma. Þegar barnið eldist og þrosk-
ast breytast punktarnir, nýir koma
til sögunnar og þeir eldri hverfa
smátt og smátt. Þrátt fyrir alla
tæknivæðinguna getum við ekki
breytt lífsins gangi, nýir punktar
koma, gamlir punktar fara.
Þrátt fyrir aldursmun og búsetu
í.sitt hvorum landshluta var Gilli
frændi einn af föstu punktunum í
tilveru minni. Ég man þegar ég kom
sjö ára gamall í heimsókn til skyld-
menna minna á Neskaupstað. Auð-
vitað þurfti ég að prófa að veiða á
bryggjunni eins og aðrir strákar á
mínu reki. Gilli frændi var ekki
seinn á sér og lánaði mér vandaða
veiðistöng en varla var fyrsti f'iskur-
inn kominn í land þegar veiði-
mennskan var komin í hnút og ég
hágrátandi á bryggjunni, sannfærð-
ur um að ég væri búinn að eyði-
leggja þetta fína verkfæri. Gilli
strauk tárin úr augum mínum og
sagði svo á sinn hægláta hátt: „Þú
flæktir nú bara iínuna gæskur. Það
gera allir veiðimenn éinhverntím-
ann.“
Seinna þegar ég gisti í tæpan
vikutíma á heimili hans ásamt konu
minni og þremur litlum strákum
virtist honum þykja þessi innrás
sjálfsögð, útvegaði matföng og
myndbönd af myndugleik og sýndi
okkur norðfirsku sveitina, æsku-
stöðvarnar og aðra staði sem heill-
uðu hann.
Gilli frændi átti alltaf samastað
og skjól í hjörtum systkina sinna
og öllum vinum og ættingjum þótti
sérstaklega vænt um hann. Ekki
er erfitt að átta síg á þessari vel-
vild sem ríkti í garð Gilla því að
Gilla prýddu mannkostir sem m.a.
fólust í hlédrægni, varkárni í skoð-
unum og þeirri lífsstefnu að lifa í
sátt við Guð og menn.
_ Gilli frændi er nú farinn. Auðvit-
að brýst fram söknuður yfir því að
missa góðan frænda, frænda sem
við reiknuðum með að yrði hjá okk-
ur eitthvað áfram. Eins og áður var
sagt breytum við ekki gangi lífsins.
En minningarnar tekur enginn frá
okkur og góðar minningar um Gilla
frænda munu lifa í hjörtum okkar
um ókomin ár.
Halldór GIsli Bjarnason
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓHANNES JÓNSSON
vélstjóri,
Gunnarsbraut 28,
verður jarðsunginn frá Dómkirkiunni í Reykjavík föstudaginn 10.
nóvember kl. 15.00.
Guðbjörg K. Arndal,
Kristín Jóhannesdóttir, Magnús Guðmundsson,
Guðrún Jóhannesdóttir, Magnús Benediktsson,
Oktavía Jóhannesdóttir, Karl Gunnlaugsson,
Reynir Reynisson
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR H. PROPPÉ,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 9. nóv-
ember, kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar er bent á styrktarsjóð Sólheima
í Grímsnesi.
Ástráður J. Proppé,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Bróðir okkar,
KARL HALLDÓRSSON,
Lokastíg 8,
verður jarðsunginn frá Hallgrimskirkju fimmtudaginn 9. nóvember
kl. 13.30.
Guðriður Halldórsdóttir,
Jósep Halldórsson
og aðrir aðstandendur.
t
Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu samúð, vináttu og virð-
ingu við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
RAGNHEIÐAR TÓMASDÓTTUR
frá Bjólu.
Einar Stefánsson,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem auðsýnduð okkur samúð og
vinarhug vegna andláts
HERDÍSAR B. ÞORVALDSDÓTTUR.
Hjördís Oddgeirsdóttir,
Gerður G. Þorvaldsdóttir,
Eva G. Þorvaldsdóttir,
Óskar Már Þorvaldsson.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur vinarhug og
samúð við fráfall móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ÓLAFAR EGILSDÓTTUR
frá ísafirði.
Sigurður Georgsson, Anna Sigurðardóttir,
Róshildur Georgsdóttir, Ólafur Finnbogason,
Þuríður Georgsdóttir,
Jóna M. Georgsdóttir, Kristinn Magnússon,
Hafdís Hallgrímsdóttir, Tony Sanders,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð við
andlát vinar míns og bróður okkar,
ÞÓRÐAR KRISTINSSONAR,
Faxabraut 6,
Keflavfk,
Clara O. Árnadóttir
og systkini hins iátna.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, sonar, bróður og mágs,
JÚLÍUSAR B. SKÚLASONAR,
Borgarheiði 22,
Hveragerði.
Ásdís Hallgrfmsdóttir,
Harpa Júlfusdóttir,
Dögg Júlfusdóttir,
Skúli Júlíusson,
Skúli Júlíusson,
Guðjón Skúlason,
Kristinn Skúlason,
Skúli Skúlason,
Helgi Skúlason,
Þráinn Skúlason,
Stefán Skúlason,
Helga Kristinsdóttir,
Hallbera Gunnarsdóttir,
Rósa Bjarnadóttir,
Margrét Einarsdóttir,
Kristfn Benediktsdóttir,
Herdís Þórisdóttir.