Morgunblaðið - 09.11.1989, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.11.1989, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1989 Greiðslustöðvun Dags framlengd ÞRIGGJA mánaða greiðslustöðvun fyrirtækjanna Dags og Dags- prents rann út í gær. Greiðslustöðvunin var framlengd um tvo mán- uði og rennur hún þvi út í upphafi næsta árs. Hús fyrirtækjanna við Strandgötu er til sölu og hafa Dagsmenn boðið Byggðastofhun það til kaups, en svar þar um hefur ekki borist. Arnar Sigfússon fulltrúi hjá bæj- arfógetaembættinu á Akureyri sagði að í beiðni um áframhaldandi greiðslustöðvun hefði komið fram að greiðslustöðvunin hefði skilað vissum árangri og sýnt hefði verið fram á í beiðni fyrirtækjanna að verið væri að vinna að ákveðnum ráðstöfunum til að rétta fjárhaginn við. „Það þótti rétt að gefa fyrir- tækjunum tækifæri á að reyna til þrautar að vinna að sínum málum Sálin hans Jóns míns leikur í Dynheimum í kvöld. Sálin hans Jóns míns í Dynheimum Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns heldur tónleika i kvöld í félagsmiðstöðinni Dynheimum. Sveitin mun á næstu dögum senda frá sér nýja breiðskífu sem inniheldur ellefu lög. Á tónleikunum verður boðið upp á lög af nýju plöt- unni í bland við eldra efni sveitar- innar. Á föstudagskvöld leikur hljóm- sveitin á Sauðárkróki og á laugar- dagskvöld á Dalvík. Tónleikarnir hefjast kl. 22.00. og því var framlengingin veitt,“ sagði Arnar. Hörður Blöndal framkvæmda- stjóri Dags og Dagsprents sagði að með framlengingu greiðslustöðvun- arinnar væri verið að vinna tíma til að komast út úr fjárhagsvandræð- um sem fyrirtækin ættu í. Hús þeirra væri til sölu, en á sínum tíma var Byggðastofnun boðið það til kaups. Svar hefði hins vegar ekki borist um hvort af kaupunum yrði. Hvað varðar sameiningu Dags og Dagsprents annars vegar og Prent- verks Odds Björnssonar hins vegar, sagði Hörður að strandaði á sölu eigna. „Vilji beggja er fyrir hendi, menn vilja að sameiningin verði að veruleika, en á meðan ekki tekst að selja eignir er sameining og sá kostnaður 'sem henni fylgir ekki raunhæf," sagði Hörður. Morgunblaðið/Rúnar Þór Mikill fjörkippur færðist I sölu íbúða sem í byggingu eru fyrir aldraða við Víðilund og á síðustu dögum hefur verið gengið frá samningum um sölu sex íbúða í húsinu. Einungis er þá eftir þrjár óseldar íbúðir í húsinu. Ibúðirnar verða afhentar fúllfrágengnar 15. júlí á næsta ári. Mikill Qörkippur í sölu íbúða fyrir aldraða við Víðilund Sex íbúðir 1 fjölbýlishúsi og tvær í raðhúsum seldar á síðustu dögum FJÖRKIPPUR kom í sölu íbúða sem í byggingu er fyrir aldraða við Víðilund á Akureyri. í síðustu viku og upphafí þessarar hefur verið gengið frá samningum á sölu sex íbúða í Qölbýlishúsi og tvemur íbúðum í raðhúsum sem standa þar austan við. Einungis eru því eftir þijár óseldar íbúðir í fjölbýlishúsinu og ein í rað- húsunum. Verkinu miðar vel og er byggingin nokkuð á undan áætlun. Dagvistar- gjöld hækka um 10% VISTGJÖLD dagvista Akur- eyrarbæjar hækkuðu um 10% um siðustu mánaðamót. Bæjarstjórn samþykkti hækkunina á fúndi sínum á þriðjudag, en tveir full- trúar Alþýðubandalagsins voru á móti. Leikskólapláss í fjóra tíma kostar nú 5.700 krónur, og 7.000 krónur fyrir fímm tíma. Hádegispláss á leikskóla kostar 8.600 krónur. Ein- stæðir foreldrar greiða nú 9.000 krónur fyrir dagheimilispláss, en aðrir 13.200 krónur. Á fundi Félagsmálaráðs þar sem fjallað var um hækkun vistgjalda á dagvistum óskaði Sigríður Stefáns- dóttir bókað að hún væri þessari hugmynd mótfallin, enda hafi mót- mæli fulltrúa Alþýðubandalagsins komið fram við gerð fjárhagsáætl- unar þegar ljóst var hversu fyrir- hugaðar hækkanir á dagvistar- gjöldum voru /niklar. Sigurður Ringsted formaður Framkvæmdanefndar um íbúða- byggingar fyrir aldraða við Víðilund sagði það mikil gleðitíðindi hve vel hefði gengið á síðustu dögum að selja íbúðirnar, en menn hefðu ver- ið orðnir nokkuð svartsýnir á tíma- bili í haust þar sem töluvert hefði verið um að samningar hefðu geng- ið til baka. „Fólk var hrætt vegna þess mismunar sem gerður er varð- andi lán til þeirra sem kaupa íbúð í seinna fjölbýlishúsinu," sagði Sig- urður. Framkvæmdanefnd um íbúðar- byggingar aldraða við Víðilund hef- ur staðið fyrir byggingu tveggja fjölbýlishúsa, sem hvort um sig er með þrjátíu íbúðum og var fyrra húsið afhent síðasta sumar. Þeir aðilar sem þar keyptu íbúðir fengu fullt lán hjá Húsnæðisstofnun vegna kaupanna, en um mitt síðasta ári var gefin út reglugerð þar sem segir að íbúðakaupendur njóta að- eins lána að mismuni á söluverði þeirrar íbúðar sem menn selja og þeirrar sem keypt er. Sigurður sagði að mismunun á lánveitingum þeirra sem keyptu íbúðir í fyrra húsinu og svo aftur þeirra sem kaupa í því síðara væri tilkomin vegna þess að ekki hefði verið búið að sækja um byggingu síðara fjölbýlishússins er reglugerðin var gefin út. I haust var talsvert um að samn- ingar um kaup á íbúðum í húsinu gengu til baka, en á síðustu dögum færðist mikill fjörkippur í söluna og gerðir hafa verið samningar um kaup á sex íbúðum. Af þeim þijátíu íbúðum sem í húsinu er kaupir Akureyrarbær þijár sem leiguíbúðir og væntanlega verður gengið frá samningum um kaup Verkamanna- bústaða á þremur íbúðum í þessari viku. Ekki hafa verið gerðir samn- ingar um kaup á þremur íbúðum í húsinu, en Sigurður kvaðst ekki óttast að þær myndu ekki seljast. Verktaki að byggingunni eru Fjölnismenn hf. og hefur verkinu miðað vel undanfarið og er nokkuð á undan áætlun. Verið er að vinna við þak hússins, sem er fimm hæð- ir, þá er einnig verið að setja gler í glugga og leggja miðstöð og vinna við múrverk er hafin. Samkvæmt samningum við verktaka á að af- henda íbúðirnar fullfrágengnar 15. júlí á næsta ári. „Ég er mjög bjart- sýnn á að verkið verði á áætlun," sagðl Sigurður. Auk fjölbýlishússins stendur Framkvæmdanefndin einnig að byggingu þrettán íbúða í raðhúsum og er aðeins ein íbúð eftir óseld þar, en Sigurður sagðist vita um aðila sem áhuga hefðu á kaupunum. Eyjagarðarsvæðið: Heildarfiillvirðisrétt- ur ekki að frtllu nýttur RUMLEGA 30 tonn vantar upp á að -sauðfjárbændur á Eyjafjarðar- svæðinu hafi náð að nýta heilarfullvirðisrétt svæðisins. Virkur réttur bændii á svæðinu er alls 646,7 lonn af kindakjöti, en að lokinni slát- urtíð er frámleiðsla svæðisins uin 615 tonn. Meðalfallþungi var nokk- uð hærri nú en á síðasta ári, eða 15,8 kíló sem er um 600 grömmum meira en var i fyrra. Þar sem fé kom óvenju vænt af fjalli í haust var jafnvel talið að svæðið færi yfir heildarfullvirðisréttinn. Ólafur Vagnsson ráðunautur hjá Búnaðarfélagi Eyjafjarðar sagði að bændur muni fá greitt fyrir allveru- legt magn af ónotuðum fullvirðis- rétti, en rúmlega 30 tonn hafi vant- að upp á að bændur nýttu réttinn til fulls. Aukaslátrun verður hjá Sláturhúsi Kaupfélags Eyfirðinga í næstu viku og bætist þá væntan- lega nokkuð við þau 615 tonn sem bændur hafa lagt inn af kjöti eftir að aðalslátrun lauk. Enn er því ekki ljóst hver staðan endanlega verður fyrir svæðið í heild. „Eitthvað af þeim ónýtta fullvirð- isrétti sem til staðar er í héraðinu mun nýtast þeim bændum sem far- ið hafa yfir sinn eigin fullvirðis- rétt,“ sagði Ólafur. Hann sagði ákveðnar reglur gilda um hvort bændur fái greitt fyrir ónotaðan rétt, m.a. er gert ráð fyrir ákveðnu innleggi og áframhaldandi búskap. Ekki er búið að gera upp hversu margir bændur fóru yfir eigin full- virðisrétt, en Ólafur segir þá vera þó nokkuð márga. Sjallinn: Komdu í kvöld sýnt út nóvember Dægurlagahátíðin Komdu í kvöld verður sýnd í Sjallanum öll laugardagskvöld í nóvember, en frumsýning var síðastliðið laugardagskvöld og komust þá færri að en vildu. Komdu í kvöld er dagskrá sem flutt var fyrir fullu húsi í Broadway í haust, en þama er um að ræða lög við texta Jóns Sigurðssonar bankamanns. Fjölmargir söngvarar koma fram í sýningunni og má þar m.a. nefna þau Ellý Vilhjálms og Þorvald Halldórsson. Sýningin fékk mjög góðar við- tökur er hún var sýnd fyrsta sinni og því var ákveðið að efna til fleiri sýninga, enda komust færri að á frumsýninguna en vildu. Næsta sýning á dagskránni verður næst- komandi laugardagskvöld, 11. nóv- ember, og síðan verða tvær sýning- ar til viðbótar, 18. og 25. nóvember. VERSLUNIN ÞORPIÐ Móasíðu 1 Opið alla daga kl. 8-23.30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.