Morgunblaðið - 10.12.1989, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.12.1989, Blaðsíða 25
 24 C rrrmmmrnmrnrmTmmTn rnTnTnxni mnTTfi mn ri iTrnrrmi MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1989 TinTmTmTffriTrnTmrri MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAG INNUDAGUR 10. DESEMBER' 1989 EYJÓLFUR | AA JÓNASSON 1 UU ÁRA Eyjólfur Jónasson fæddist á Gillastöðum í Laxárdal, Dalasýslu, 15. mars árið 1889. Foreldrar hans voru Jónas Guðbrandsson í Sólheimum og kona hans Ingi- gerður Sigtryggsdóttir. Hann stundaði skólanám í Búðardal og Hjarðarholti. Eyjólfur bjó fyrst á Svalhöfða, en fluttist að Sólheim- um 1919, þar sem hann síðan bjó allan sinn búskap. Hann hefur síðan í sumar dvalið á sjúkrahús- inu á Akranesi. Fyrri eiginkona Eyjólfs var Sigríður Ólafsdóttir, ættuð úr Lundarreykjadal í Borg- arfirði. Börn þeirra urðu fjögur, þar af er eitt látið. Eyjólfur missti konu sína árið 1925, og var hún þá aðeins 29 ára gömul. Hann giftist aftur Ingiríði Guðmunds- dóttur frá Leiðólfsstöðum í Lax- árdal og átti tvö börn með henni. Þau skildu. Eyjólfur Jónasson er landskunnur hagyrðingur og hestamaður. HANSÍNA | Ari GUOMUNDSDÓTTIR 1 Uv3 ÁRA Hansína Guðmundsdóttir fædd- ist á Hnausum í Þingi í Húna- vatnssýslu 9. desember árið 1886. Þar voru foreldrar hennar í vinnu- mennsku.Hansína giftist Erlendi Hallgrímssyni, en hann lést árið 1943, rúmlega fimmtugur að aldri upp úr mislingaveiki. Erlendur og Hansína bjuggu í Tungunesi í Húnavatnssýslu og eftir andlát hans tók einkasonur þeirra hjóna, Þorvaldur, við búinu. Hann bjó í Tungunesi ásamt móður sinni til ársins 1955, en þá fluttu þau mæðginin til Sauðárkróks þar sem þau hafa búið síðan. Þorvaldur annaðist um móður sína þar til fyrir fimm mánuðum að hún fór á ellideild sjúkrahússins á Sauðár- króki. MAR6RÉT 4 AA RÖGNVALDSDÓTTIR 1UU ÁRA Margrét Rögnvaldsdóttir fædd- ist í Réttarholti í Blönduhlíð í Skagafirði 8. október árið 1889. Foreldrar hennar voru Rögnvaldur Bjömsson og Freyja Norðmann. Börn þeirra voru sjö talsins. Mar- grét giftist Þorsteini Björnssyni frá Miklabæ í Skagafirði 11. júní árið 1912. Hann var sonur séra Björns prófasts þar og Guðfinnu Jensdóttur. Margrét og Þorsteinn settust að á Hrólfsstöðum í Skaga- firði og eignuðust þijár dætur. Vegna fötlunar Þorsteins hættu þau búskap upp úr 1940 og gerð- ust brúarverðir við Austurvatna- brú í Skagafirði. Brúarverðir voru þau hjón í 24 ár eða þar til þau voru um áttrætt. Þá fóru þau Margrét og Þorsteinn á Hrafnistu í Reykjavík, en Þorsteinn lést árið 1980. Margrét býr nú á Hrafnistu í Hafnarfirði. ANTON ÞORVARÐARSON 100 ÁRA Anton Þorvarðarson fæddist á Vestri-Klasbarða í Vestur-Lan- deyjum 26. september árið 1889. Foreldrar hans voru Þorvarður Sigurðsson og Margrét Magnús- dóttir. Árið 1903 fluttist fjölskyld- an að Klauf í sömu sveit. Arið 1922,33 ára að aldri, giftist An- ton Guðrúnu Guðmundsdóttur frá Glæsistöðum i Vestur-Landeyjum og hófu þau þar búskap. Þau Anton og Guðrún eignuðust fjóra' syni. Þeir eru allir ógiftir og bú- settir á Glæsistöðum þar sem þeir búa með kýr, kindur og hross. Guðrún lést á heimili sínu 20. jan- úar árið 1980. Anton býr enn á Glæsistöðum ásamt sonum sínum. Hann hefur fulla fótavist, en hefur skerta heyrn og skerta sjón. GUÐRÚN f A | HALLVARÐSDÓTTIR 1 U 1 ÁRS Guðrún Hallvarðsdóttir fæddist á Eystri-Sólheimum í Mýrdal 17. október árið 1888. Foreldrar henn- ar voru Þórunn Sigurðardóttir frá Raufarfelli og Hallvarður Ketils- son frá Bólstað í Mýrdal. Fljótlega eftir að Guðrún fæddist urðu for- eldrar hennar að fara af jörðinni og létu þau Guðrúnu þá frá sér aðeins nokkurra vikna gamla, en Guðrún var fjórða barn þeirra hjóna. Alls urðu systkinin tíu. Guðrún ólst upp á Brekkum í Mýrdal til fermingaraldurs, en þá fór hún til Guðmundar Þorbjarnar- sonar, bónda á Stóra-Hofi á R tng- árvöllum. Þar var hún fram yfir tvítugsaldurinn. Guðrún hélt til Reykjavíkur þar sem hún réð sig sem vinnukonu á heimili. Eftir tveggja vetra dvöl í Reykjavík hélt hún til Vestmannaeyja þar sem hún kynntist mannsefni sínu, Jóni Valtýssyni frá Önundarhorni undir Eyj'afjöllum. Hann stundaði þar sjóinn og síðar ýmsa verka- mannavinnu í landi. Þau hjónin bjuggu ætíð í Eyjum og eignuðust fjögur börn, þar af dó eitt ungt. Fjölskyldan stundaði einnig bú- skap á Kirkjubæ í Vestmannaeyj- um, en í eldgosinu 1973 fór jörðin undir ösku. Guðrún flutti ásamt uppkomnum bömum sínum til Reykjavíkur, en siðan aftur til Eyja eftir að sonur hennar hafði fest kaup á húsi þar. Eiginmaður Guðrúnar lést árið 1958, en Guð- rún hefur verið á sjúkrahúsinu í Vestmannaeyjum síðan í apríl á síðasta ári. VAL6ERÐURSTEINUNNJ AA FRIÐRIKSDÓTTIR 1UU ÁRA Valgerður Steinunn Friðriks- dóttir fæddist á Hánefsstöðum í Svarfaðardal 3. maí árið 1889. Foreldrar hennar voru Guðrún Friðrika Jóhannsdóttir og Friðrik Friðriksson, sem bjuggu á hálfum Hánefsstöðum frá 1885 til 1909. Tvær systur eldri átti Valgerður, Önnu Friðriku óg Elínu. Báðar eru þær dánar og náðu háum aldri. Yngri bróðir þeirra systra lést ungur. Valgerður fékk góða barna- og unglingafræðslu í Svarf- aðardal. Hún fór í vist til Sigríðar og Siguijóns Jónssonar, læknis- hjónanna á Grenivík, og var þar í tvö ár. Tvítug að aldri fór Val- gerður til Akureyrar og réðst sem vinnukona hjá Þórönnu og Pétri Péturssyni, kaupmanni í Gránu, í eitt ár og var svo vinnukona í þijú ár hjá Önnu og Hendrik Schi- öth, bankagjaldkera. Hún fór sumarið 1913 í verbúðarvinnu í Þorgeirsfjörð, sem er miðja vegu milli Flateyjar á Skjálfanda og Gjögra við Eyjafjörð. Þar kynntist hún Jónasi Franklín frá Syðra- Kálfskinni sem varð eiginmaður hennar síðar það ár. Þau hófu búskap á Ákureyri, bjuggu á Aðal- stræti 20 og síðar á Aðalstræti 5. Jónas var lengst af sjómaður og Valgerður vann almenn störf tengd sjávarútvegi. Hún tók virk- an þátt í starfi slysavarnafélags- ins, kvenfélaga og góðtemplara- reglunnar á Akureyri. V algerður og Jónas eignuðust tvö börn, Jó- hann Friðrik og Þóni Rósu, sem bæði létust á sjötugsaldri, en eiga afkomendur. Valgerður hefur búið á elliheimilinu Hlíð á Ákureyri undanfarin.sautján ár. eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur „ÖLDUNGUR“ ÞÝÐIR „gamall maður“ samkvæmt íslenskri orðabók Menningarsjóðs. Það hlýtur þó að vera einstaklingsbundíð hvenær talið er að menn séu orðnir gamlir og sú skilgreining breytist gjarnan eftir því hvað við eldumst sjálf. Fimm ára gömlu barni kann að fínnast maður um fertugt gamall þó sá fertugi hafi allt aðra skoðun á því máli. Löggilt gamalmenni verða menn 67 ára og samkvæmt lagabókstafnum eiga menn þá rétt á ellistyrk. EINARSDÖTTIR 105 ÁRA Aldís Ejnarsdóttir er elst kvenna á íslandi, 105 ára. Hún fæddist á Núpufelli í Saurbæjar- hreppi 4. nóvember árið 1884, en fluttist á næsta bæ þriggja ára. Þremur árum síðar fluttist fjöl- skyldan svo að Stokkahlöðum i Eyjafirði þar sem Aldís átti eftir að ala manninn í tæpa öld. Aldís kvæntist aldrei og eignaðist engin börn. Hún bjó á Stokkahlöðum til ársins 1985 og helgaði sig bústörf- um. Fyrir aðeins fjórum árum fluttist Aldís á Kristnesspítala'í Eyjafirði, þá að verða 101 árs, en síðustu tuttugu árin á Stokkahlöð- um bjó hún ein. Aldís tók við bú- skapnum á Stokkahlöðum ásamt systkinum sínum Rósu og Bjarna þegar foreldrarnir fóru að reskj- ast. Aldís fór á kvennaskóla, en áhugi hennar beindist snemma að ræktun hvers konar. Hún stakk sjálf upp sína kartöflu- og kál- garða og var mikið fyrir tijárækt. Aldís er sögð við góða heilsu og vel ern. Hún fylgist með fréttum með lestri dagblaða, hefur fótavist og pijónar mikið af sokkum og vettlingum. Foreldrar Aldísar voru Einar Sigfússon og Guðríður Brynjólfsdóttir. Þeim varð fjög- urra barna auðið. Eitt þeirra, Brynjólfur, dó aðeins níu ára, en hin þijú systkinin unnu saman að bústöffum á Stokkahlöðum. STEINUNN 4AA GUÐMUNDSDÓTTIR 1UU ÁRA Steinunn Guðmundsdóttir, fyrr- um ljósmóðir og húsfreyja á Skrið- insenni í Bitru, fæddist á Dröngum í Árneshreppi í Strandasýslu 4. nóvember árið 1889. Foreldrar hennar voru Guðmundur Péturs- son bóndi og kona hans, Anna Jakobína Eiríksdóttir, og var hún elst fjögurra barna þeirra. Sextán ára gömul fór Steinunn í Kvenna- skólann á Blönduósi veturlangt. Eftir þann tíma vann hún heima í foreldrahúsum til rúmlega tvítugsaldurs. Þá fór hún í vist til Reykjavíkur, sótti saumanám- skeið, matreiðslunámskeið, dön- skutíma og söngtíma, en lærði síðan til Ijósmóður, sem varð henn- ar ævistarf frá 1914 til 1956. Steinunn kvæntist Jóni Lýðssyni, bónda á Skriðinsenni, árið 1923. Börn þeirra hjónapru fimm, Anna Jakobína, Lýður, Ólafía, Lilja og Anna Guðrún. Hjá þeim ólst einn- ig upp Guðlaug Guðmundsdóttir sem nú er látin. Steinunn og Jón bjuggu á Skriðinsenni til ársins 1958. Þá fluttu þau til Reykjavík- ur um skeið, en svo aftur að Enni ásamt dótturinni Lilju og tengda- syni, Hákoni Ormssyni. Jón Lýðs- son lést árið 1969,82ja ára að aldri. Steinunn hefur að undanf- ömu búið á elliheimilinu í Hólmavík. TRYGGVI 4 A4 KRISTJÁNSSON I U 1 ÁRS Tryggvi Kristjánsson fæddist á Meyjarhóli á Svalbarðsströnd í Suður-Þingeyjarsýslu 22. desem- ber árið 1888. Foreldrar hans voru Kristján Guðmundsson, bóndi á Meyjarhóli, og Friðrika Kristjáns- dóttir, ættuð úr Fnjóskadal. Hún hafði verið gift áður. Fyrri eigin- maður hennar drukknaði í Eyja- firði, en saman áttu þau einn dreng, Kristján að nafni. Með Kristjáni, seinni manni sínum, átti hún þijú börn, þeirra elst var Kristján, síðan Bernólína og yngstur var Ferdinand. Tryggvi missti föður sinn á fermingar- aldri, en hann hélt áfram búskap með móður sinni á Meyjarhóli. Skólaganga hans var nánast eng- in. Hann gifti sig árið 1910, Jó- hönnu V aldimarsdóttur frá Leifs- húsum á Svalbarðsströnd. Á Meyj- arhóli bjuggu þau til ársins 1944, en fluttust þá til Akureyrar. Jó- hanna lést árið 1965, en þau hjón- in áttu fjögur börn. Tryggvi var lengst af pakkhúsmaður hjá heild- verslun Valgarðs Stefánssonar eftir að hann fluttist til Akur- eyrar. Síðustu starfsárin vann hann hjá syni sínum í burstagerð og springdýnuframleiðslu. Árið 1982 fór Tryggvi á elliheimilið Skjaldarvík og fimm árum síðar fór hann á sjúkradeild elliheimilis- ins Hlíðar. JÓHANNA JÓNSDÓTTIR 100 Jóhanna Jónsdóttir fæddist 6. júlí árið 1889 á Bakka í Svarfaða- dal þar sem foreldrar hennar, Svanhildur Björnsdóttir frá Syðra-Garðshorni og Jón Sofaní- asson frá Bakka, bjuggu. Jóhanna flutti með foreldrum sínum ferm- ingarvorið sitt 1904 yfir Heljar- dalsheiði í Skagafjörð, að Neðra- Ási í Hjaltadal, en þá jörð hafði fjölskyldan keypt árinu áður. Jó- hanna dvaldi að mestu á heima- slóðum fram að tvítugsaldri en hleypir þá heimdraganum og fer allvíða, meðal annars í kaupavinnu í Deildartungu í Borgarfirði, Sand- læk í Árnessýslu og víðar. Hún fór einnig til Reykjavíkur og vann á saumaverkstæðum og var í vist, m.a. hjá Jóni Þorlákssyni verk- fræðingi og alþingismanni. Róm- aði hún mjög veru sína á því heim- ili og taldi sig hafa lært þar margt. Árið 1923 eignaðist Jó- hanna dóttur með Sigurði Sigurðs- syni, fyrrum búnaðarmálastjóra. Hún var skírð Birna, er hjúkrunar- kona og búsett á ísafirði. Árið 1934 giftist Jóhanna Sigurbirni B. Hólm frá Narfastöðum í Viðvík- ursveit, fæddum 1903. Þau bjuggu á Freyjugötu 32 á Sauðárkróki. Sigurbjörn stundaði bifreiðaakstur og rak síðan bifreiða- og hjól- barðaverkstæði. Hann lést árið 1984. Þau eignuðust engin börn. Saumaskapur var aðalstarf Jó- hönnu á seinni starfsárum hennar. Hún hafði ekki verið í eiginlegu námi þar að lútandi, en tileinkaði sér margt með vinnu á saumaverk- stæðum, einnig segist hún hafa lært mikið af eldri systur sinni sem verið hafði á kvennaskóla. Hún þótti fjölhæf og smekkleg í sauma- skapnum og enn hefur hún næma tilfinningu fyrir fallegum fötum. Jóhanna hefur dvalið um tíu ára skeið á öldrunardeild sjúkrahúss Skagfirðinga á Sauðárkróki. IEiginleg merking orðsins „öldungur“ er maður, sem lifað hefur mjög langa ævi, en aldursmörk öldungs eru þó ekki tilgreind. Átján íslendingar eru nú á lífi sem komnir eru yfir hundrað ára aldurinn, samkvæmt upplýsingum firá Hagstofú íslands, og má að minnsta kosti með sanni segja að þeir séu öldungar íslands. Þess má geta að meðalævilengd íslenskra karla 1987-1988 var 74,5 ár og meðalævilengd kvenna á sama tímabili var 79,7 ár. SIGURÐUR 4AP ÞORVALDSSON lUj ÁRA Sigurður Þorvaldsson er elsti núlifandi íslendingurinn, fæddur 23. janúar árið 1884 í Miðhúsum í Álftaneshreppi í Mýrasýslu og 'fluttist síðan með foreldrum sínum í Álftaneskot. Foreldrar hans voru Þorvaldur Sigurðsson og Valgerð- ur Jónsdóttir. Sigurður lauk kenn- arapróf i frá Flensborgarskóla í Hafnarfirði og að því búnu hélt hann í danskan lýðháskóla. Eftir heimkomuna gerðist hann kennari við lýðháskólann á Hvítárbökkum í Borgarfirði og þar kynntist hann konuefni sínu, Guðrúnu Sigurðar- dótur frá Víðivöllum í Skagafirði, sem þar var við nám. Ungu hjónin héldu til ísafjarðar þar sem Sig- urður starfaði sem kennari við barnaskólann í nokkra vetur og árið 1914 keyptu þaujörðina Sleitustaði í Skagafirði þar sem þau hófu búskap og bjuggu alla sína tíð eftir það. Sigurður starf- aði við kennslu á veturna með bústörfum. Þau Guðrún og Sigurð- ur eignuðust tólf börn. Átta kom- usttil fullorðinsára, en séx þeirra eru nú á lífi. Aldárgamall fluttist Sigurður frá Sleitustöðum og á ellideild sjúkrahúss Sauðárkróks þar sem hann nú er. Tveir synir Sigurðar búa nú á Sleitustöðum. Titongs- Maótom svonalengi Morgunblaðið/Árni Sæberg GUÐBJÖRG 4 AA GUÐDRANDSDÖTTIR1 UU ÁRA „MÉR fínnst tilgangslaust að tóra svona lengi. Mér líður vel hér á Grund og dagarnir líða hjá hver aföðrum. Maður hetur bara ekkert með það að gera að verða svona gam- all. Það er bara della,“ segir Guðbjörg Guðbrandsdóttir, sem fyllti öldina á heimili dóttur sinnar þann 27. júlí síðastliðinn. Guðbjörg fluttist á elliheimil- ið Grund 89 ára að aldri og hefur dvalið þar í ellefu ár. Hún segist heyrá vel. Hún hlusti mikið á fréttir og annað efni í útvarpi og sjónvarpi, en sjónin sé farin að bila aðeins. Hún segist auðvitað hafa orðið vör við miklar þjóðfélagsbreytingar í gegnum árin, sumar hveijar mjög til hins betra. Unga fólkið sé sérstaklega jákvætt og gott. Að minnsta kosti hafí hún ekki haft nein óþægindi af ungdómn- um, síður en svo. Guðbjörg er fædd að Brúna- stöðum í Hraungerðishreppi í Árnessýslu. Foreldrar hennar voru Guðbrandur Guðbrandsson og Katrín Jónsdóttir. Guðbjörg hefur hvorki gifst né átt börn, en vann lengst af við saumaskap og bjó hjá ættmennum sínum í Reykjavík. „Ég var á Brúna- stöðum bara eins og hver annar krakki og fór þaðan ung, níu ára að niig minnir. Foreldrar mínir hættu búskap nokkuð snemma og fluttumst við á Eyr- arbakka, þar sem við bjuggum í nokkur ár. Síðan flutti fjöl- skyldan til Reykjavíkur og þá hef ég verið unglingsstelpa. Skólagangan var lítil. Ég fór reyndar í barnaskóla og á hús stjórnarskóla, en að öðru leyti get ég ekki státað af mikilli menntun," segir Guðbjörg. Hún dvaldi um nokkurra ára skeið á Meðalfelli í Kjós, ,já, eitthvað fram á þrítugsaldurinn hjá þeim hjónum Elínu og Eg- gerti. Fyrst fór ég þangað ungl- ingsstelpan og svo ílengdist ég þar. Svo skrapp ég til Reykjavíkur til að læra að sauma og búa til mat svo ég gæti orðið meira að liði á heimil- inu,“ segir Guðbjörg Guð- brandsdóttir, 100 ára og elstur íbúa á elliheimilinu Grund í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.