Morgunblaðið - 10.12.1989, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.12.1989, Blaðsíða 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1989 -V eftir Urði Gunnarsdóttur/ mynd: Sverrir Vilhelmsson. í inntökupróSnu í Leiklistarskóla íslands var hún sannfærð um að hún næði því ekki. Hún var að taka það í annað sinn og fannst sér ekki takast vel upp. Ætti hún að læra sálfræði, gullsmíði, leikmynda- gerð? Eða snúa sér að myndlistinni? En lánið var með Ólafiu Hrönn Jónsdóttur. Hún náði prófinu og fjórum árum síðar langþráðum áfanga. Hún hefiir hvað eftir annað fangað athygli leikhúsgesta, nú síðast í Borgarleikhúsinu, þar sem hún fer með hlutverk Magnínu í Ljósi heimsins. Og gagnrýnendur hafa ekki verið sparir á stóru orðin í umsögnum sínum um hana. „Ólafia Hrönn vekur að vanda athygli...makalaust sönnskynjun á persónunni með þumbaralegum leikmáta og djúpum harmi sem þessi unga leikkona tjáir fádæma vel,“ sagði t.d. Páll B. Baldvinsson I leikdómi í Þjóðviljanum í október. Frá því hún útskrifaðist úr Leiklistarskóla ís- lands fyrir tveimur árum hafa henni boð- ist næg verkefni, auk þess sem hún hefur skapað sér þau sjáif. Ótti hennar við að verða ung atvinnu laus leikkona hefur því reynst óþarfur þó að hún segi að það sé reyndar betra að gera sér ekki of miklar vonir; þá verði maður ekki fyrir vonbrigðum. En hvað þykir henni um umsagnir annarra, lifír hún sig svo algjörlega inn í hlutverkin? „Það vona ég, og reyni. Mér líður vel í því hlutverki sem ég held að ég geri vel og stund- um finnst mér athygli áhorfenda sogast að mér, þeir bíði spenntir eft- ir því hvað gerist næst. Eg hef líka upplifað það að finnast ég ekki ná persónunni sem ég leik, finna allan tímann að ég er að leika og það er mjög óþægilegt. En ég er ekki dóm- bær á hversu vel mér tekst til á leik- sviðinu; þó finnst mér ég vera að fá meiri og meiri tilfinningu fyrir því með aukinni reynslu. Eg er alltaf spennt að heyra hvað öðrum, t.d. gagnrýnendum, fínnst þó í því felist enginn stóridómur." Nei, þú ert eins og svín Á árunum tveimur sem liðin eru frá því Ólafía útskrifaðist, hefur hún leikið Jöklu í Síldin kemur og sfldin fer, Ruby í Maraþondansi, Fíu í Djöflaeyjunni, í forföllum Margrétar Ákadóttur, og Magnínu í Ljósi heims- ins hjá LR. Hún er einnig í leik- hópnum Þíbylju og lék Fjólu í Gulum og rauðum og móðurina í Smúrtsin- um - Að byggja sér veldi. Hjá Al- þýðuleikhúsinu lék hún í ísuðum gellum og nú leikur hún í einþátt- ungi eftir Hlín Agnarsdóttur, Karlar óskast í kór, sem Menningar- og fræðslusamband alþýðu, óskaði eftir að yrði settur upp. Þá hefur Ólafía leikið töluvert fyr- ir börn; í Karíusi og Baktusi, Regn- bogastráknum og Mér er alveg sama þó einhver sé að hlægja að mér. „Það er yndislegt að leika fyrir börn, þau eru einlæg og óvægnir dómarar. Það sem þau sjá hefur bein og aug- sýnileg áhrif á þau. í barnaleikritinu Mér er alveg sama þó að einhver sé að hlægja að mér lék ég tröllastelpu. Leikritið hefur að geyma þennan sígilda og góða boðskap um það hvað það getur verið erfitt að vera öðru í ísuðum gellum með Halldóri Björnssyni: “Ólafía lék af mestu fjöri og öryggi“ — Gunnar Stef- ánsson í Tímanum. Með Þór Túlin- íus í Smúrtsin- um: “Ólafía var móðirin og dró upp listilega mynd af henni, fáránlega og átakanlega í senn...“ — Jóhanna Kris- tjónsdóttir í Morg- unblaðinu. vísi og skera sig úr fjöldanum. í einu atriðinu setur tröllastelpan blóm í hárið, snýr sér að bömunum og spyn Er ég ekki sæt? Þá gerðist það á einni sýningunni að lítill strákur varð fyrstur til og svaraði af hjartans ein- lægni; „Nei, þú ert eins og svín!“ En hvað um hlutverk í sjónvarpi og útvarpi? „Ég hef leikið í tveimur stuttmyndum og í nokkrum útvarps- leikritum, í sjónvarpsmyndinni Djáknanum og er núna að vinna í áramótaskaupinu. Öll verkefnin sem ég hef fengið hingað til hafa verið spennandi, enda hef ég komist hjá auglýsingunum, þeim hef ég tak- markaðan áhuga á. Hlutverkin hafa verið ólík og mér fínnst ég hafa þroskast mikið á þessum tveimur árum. Ég hef verið að finna sjálfa mig, ég veit að minnsta kosti hvað ég er ekki og sætti mig nokkum veginn við það.“ Reyni að halda aftur af gamninu Ólafía segir ekki hafa farið hjá því að hún hafi verið vonlítil um at- vinnuhorfur þegar hún .var í skólan- um. En hún hafi svo gert sér grein fyrir því að þrátt fyrir að vinna sé ekki alltaf fyrir hendi, farist heimur- inn ekki. „Þó má ekki gleyma því ég hef ekki gengið í gegnum löng óvissutímabil. Við sem útskrifumst úr Leiklistarskólanum hér höfum það framyfir krakkana sem læra erlend- is, að leikstjórarnir þekkja okkur flestir." En þekkir fólkið á götunni þig núorðið? „Varla enn, og þó, sumir horfa þannig á mig að mér finnst eins og ég eigi að þekkja þá en ég verð ekki fyrir neinni áreitni sem betur fer.“ Mörg hlutverka Ólafíu hafa verið á léttari nótunum, og hún hefur þótt komast listavel hjá því að leiðast út í afkárahátt eða ofleik. Sjálf setur hún upp ósvikinn undmnarsvip þegar þetta ber á góma. „Gamanleikkona? Ég hef aldrei Iitið á mig sem slíka. Oft reyni ég að halda aftur af gamn- inu, t.d. í hlutverki Magnínu í Ljósi heimsins, þar hafði ég að leiðarljósi að ég mætti alls ekki reyna að vera fyndin því það væri allra síst það sem þessi manneskja gerði. Magnína er svo grátbrosleg í eðli sínu. Hlátur og vorkunnsemi eiga oft samleið og hlutverk sem vekur báðar þessar til- finningar í brjóstum áhorfenda nær Erfitt að vera leikari og móðir Ólafía segist snemma hafa fundið hjá sér þörf fyrir að leika. „Það gaf mér mjög mikið af fá að leika, þegar á unga aldri. Sæi ég sérkennilegt fólk, varð ég að prófa hvemig væri að vera eins og það, að finna hvern- ig því liði. Þegar ég æfði, var ég og er, altekin af leiklistinni. Áhuginn datt að vísu niður hjá mér á tímabili í skólanum, því þá var ég að gera skyldu, vinna skólalærdóm. Þetta er galli margra, — ef þeir eiga að gera eitthvað er það ekki eins gaman. En þetta var einungis ákveðið tímabil hjá mér, svona svipað og í mennta- skóla þar sem við voram látin lesa margar góðar bækur sem við nutum ekki af því að þær vora skyldulesn- ing.“ Hvemig fellur þér leikarastarf- ið? „Það hentar mér mjög vel, ég er skorpumanneskja og vil takast á við nýja og nýja hluti. Stundum á ég frí á daginn svo vikum skiptir en síðan getur tekið við erfið skorpa eins og stendur núna yfir. Svo gerir það mér ekki auðveldara fyrir að vera með bam,“ segir hún. „Ég átti Magga þegar ég var á þriðja ári í Leiklistarskólanum. Ég fékk frí í hálfan mánuð til að eiga og þetta var því erfiður vetur. A þeim tíma var ég í sambúð með bamsföðurnum og með hjálp hans og ættingja bjarg- aðist þetta og gerir enn. Stundum get ég átt mikinn tíma með Magga en svo koma tímabil þegar ég sé hann lítið en þá hugsa ég bara til rólegu tímabilanna sem eru þá á næsta leiti.“ miklu frekar að lýsa mannlegri skap- gerð og eiginleikum en hlutverk sem eingöngu vekur hlátur." OLAIIA IIKOW I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.