Morgunblaðið - 16.12.1989, Blaðsíða 16
Tl
16
e8ei flaaMaaaa .ar AUOAaflAOUAJ QiQAiaauoflOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 1989
Heilsárs hús
Hef til sölu ein vönduðustu og fallegustu
heilsárs hús, ásamt kjarri vöxnu landi, á
einum besta stað á Suðurlandi.
Stærð 48 m2 + 26 m2 stofa á efri hæð.
Upplýsingar gefur
Heimir Guðmundsson, byggingameislari,
í síma 98-33893 eftir kl. 19.00.
Að skattleggja
erfíðleika fólks
eftir Birgi ísleif
Gunnarsson
Vorið 1988 var samþykkt á Al-
þingi að breyta úr sðluskatti yfir í
virðisaukaskatt og var þá sam-
þykktur allmikill lagabálkur um það
m ál á Alþingi. Upphaflega átti
skattheimta samkvæmt þessu nýja
frumvarpi að koma til framkvæmda
1. júlí 1989, en var síðan frestað
til 1. janúar 1990.
Þrátt fyrir þennan lagabálk var
ljóst að um allmörg atriði þyrfti að
fjalla nánar og að Alþingi þyrfti
að setja ítarlegri lög um virðisauka-
skatt. Voru í nefndarálitum til-
greind mjög mörg atriði sem fjalla
skyldi nánar um og leggja fyrir
Alþingi að nýju. Var fyrirhugað að
sérstök nefnd skipuð fulltrúum allra
stjórnmálaflokka tæki til umfjöllun-
ar þau áhorfsmál sem fjalla þyrfti
um og fylgdist að öðru leyti með
undirbúningi.
Margt fer úrskeiðis
Núverandi ríkisstjóm hefur lítið
viljað sinna slíku samstarfi oer um-
KORÐMAM8
Norðmannsþinur er jóla-
tréö sem ekki fellir barrið.
ÞEYIR
Landsbyggðaþjónusta
Sendum jólatré hvert á
land sem er.
Jólatrén okkar eru
óvenjufalleg í ár.
Komiö í jólaskóginn og
veljiö jólatré viö bestu
aöstæöur.
Sjón er sögu ríkari. Ævintýraheimur fyrir börn á öllum aldri,
Opió frá kl. 9-22 til jola
Birgir ísleifúr Gunnarsson
„Niðurstaðan verður
afar ósanngjörn. Ein-
staklingar í erfiðleikum
verða aðalgreiðendur
þessa skatts, en fyrir-
tækin fá skattinn end-
urgreiddan.“
rædd nefnd því lítið starfað. Það er
í raun mikil ógæfa í þessu máli að
það skuli hafa komið í hlut þessar-
ar skattóðu ríkisstjórnar og þessa
skattgráðuga fjármálaráðherra,
sem nú situr, að hrinda virðisauka-
löggjöfinni í framkvæmd. Það er
þegar ljóst að margt mun fara úr-
skeiðis í þeim efnum.
Eitt atriði vil ég gera sértaklega
að umtalsefni hér, en það er að
leggja skuli fullan virðisaukaskatt
(24,5%) á lögfræðiþjónustu. í ýms-
um löndum í kringum okkur, sem
tekið hafa upp virðisaukaskatt, er
slík þjónusta undanþegin virðis-
aukasaktti. Rök gegn skattlagn-
ingu þessarar þjónustu er í megin-
atriðum eftirfarandi:
Lögfræðiþjónusta
ísland á að heita réttarríki. Fólk
leitar til lögmanna vegna þess að
það þarf að leita réttar síns eða
veija rétt sinn. Oft tekst að leysa
slík mál án atbeina dómstóla. Mörg
mál þurfa þó að fara fyrir dóm.
Það er mjög óeðlilegt að leggja
sérstakan skatt á þá viðleitni fólks
að leita réttar síns. Það stríðir gegn
hugmyndum okkar um réttarríkið.
I annan stað má benda á að
skattur þessi yrði að mestu leyti
greiddur af einstaklingum sem að
einhveiju leyti eru í vandræðum og
því líklegt að hafi minna bolmagn
en aðrir til að standa undir slíkum
skatti. Fólk í hjónaskilnaði, menn í
fjárhagsvandræðum sem fá á sig
fjárkröfur af því þeir geta ekki stað-
ið í skilum og erfingjar látinna eru
dæmi um hópa sem þurfa að greiða
þennan skatt.
Fyrirtækin sleppa
í þriðja lagi má benda á að það
eru fyrst og fremst einstaklingar
sem þurfa að bera þennan skatt.
Stór hluti af viðskiptavinum lög-
manna eru fyrirtæki af ýmsu tagi.
Þau fá skattinn endurgreiddan
samkvæmt reglum um skattupp-
gjör. Fyrirtækin fá e'ndurgreiddan
svonefndan innskatt, það er virðis-
aúkaskatt m.a. af aðkeyptri þjón-
ustu, en lögfræðikostnaður heyrir
þar undir. Einstaklingarnir eru hins
vegar síðasti hlekkur í þessari við-
skiptakeðju og verða því sjálfir að
bera sinn skatt.
Niðurstaðan verður afar ósann-
gjörn. Einstaklingar í erfiðleikum
verða aðalgreiðendur þessa skatts,
en fyrirtækin fá skattinn endur-
greiddan. Auðvitað er þetta eitt
málið af mörgum sem nauðsynlegt
hefði verið að taka til yfirvegaðrar
athugunar, eins og ætlast var til.
Því hefur núverandi fjármálaráð-
herra með öllu hafnað.
ílöfumliw er einn af
alþingismönnum Sjálfslæöisflokks
fyrir Reykjavíkurkjördæmi.
s
1
\
-I