Morgunblaðið - 16.12.1989, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 16.12.1989, Qupperneq 37
e 1MORGCNÐLAÐIÐ; IAUGARD AGUR '1B;.DESEMBER,1989 37 Áætlun um að opna lofthelgi ríkja NATO og Varsjárbandalagsins: Vilja tryggja eft- irlit o g stuðla að slökun á spennu Á FUNDI utanríkisráðherra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO), sem lauk í Brussel í gær, var samþykkt áætlun sem George Bush Bandaríkjaforseti kynnti í maímánuði á þessu ári og fjallar um opnun lofthelgi ríkja NATO og Varsjárbandalagsins til að unnt verði að halda uppi eftirliti með hernaðarumsvifum i aðildarríkjunum 23. Áætlunin, sem er mjög ítarleg, er birt sem sérstakur viðauki við lokaá- lyktun ráðherrafundarins. Boðað hefur verið til ráðstefiiu um opnun lofthelgi í febrúarmánuði í Ottawa í Kanada með fulltrúum rilqa NATO og Varsjárbandalagsins. Almennur tilgangur áætlunarinn- ar um að opna lofthelgi er sá að tryggja að unnt verði að halda uppi eftirliti með hernaðarumsvifum á landsvæði allra ríkja bandalaganna tveggja m.a. til að sannreyna að afvopnunarsáttmálar séu haldnir í heiðri og til að stuðla að auknu trausti og slökun á spennu í sam- skiptum austurs og vesturs. Gert er ráð fyrir að settur verði áveðinn „kvóti“ fyrir hvert ríki er kveði á um hámarksfjölda slíkra eftirlitsferða á hvetjum ársfjórð- ungi. Áætlunin tekur til allra land- svæða ríkja NATO og Varsjárbanda- lagsins í Evrópu, Asíu og Norður- Ameríku og mun þannig einnig taka til íslands. Tekið er fram að áætlun- in geti komið að miklum notum við framkvæmd eftirlits t.a.m. eftir að samið hefur verið um niðurskurð herafla og vígtóla í Evrópu (CFE- viðræðumar), fækkun langdrægra kjamorkuvopna (START-viðræðum- ar) og um eyðingu efnavopna. Um STA.RT- og CFE-viðræðurnar gildir að risaveldin stefna að því að ljúka gerð þeirra sáttmála á næsta ári og fögnuðu utanríkisráðherrar NATO- ríkjanna því sérstaklega í lokaálykt- un fundarins. í þeim lið áætlunarinnar sem fjall- ar um framkvæmd hennar segir að hvert aðildarríki geti ýmist annast slík eftirlitsflug upp á eigin spýtur eða í samstarfi við önnur ríki þess bandalags er það tilheyrir. Sem fyrr segir er gert ráð fyrir að ákvarðaðir verði „kvótar“ fyrir hvert ríki, sem kveði á um hámarksfjölda slíkra eftirlitsferða og munu þeir fara eftir stærð viðkomandi ríkis. Stefnt skuli að því að heildarfjöldi eftirlitsferða á vegum bandalaganna tveggja verði nokkum veginn sá sami. Hvert ríki skuldbindi sig til að heimila að minnsta kosti eitt slíkt flug ársfjórð- ungslega en tekið er fram að smærri ríki geti tekið sig saman um að heim- ila slík eftirlitsflug og jafnframt staðið að þeim í sameiningu. Tekið er fram að eftirlitsflugvélamar verði að vera óvopnaðar og að óheimilt verði að hafa hlerunarbúnað um borð er numið geti dulmálssending- ar. í áætluninni er gert ráð fyrir því að tilkynnt verði um slíkt eftirlitsflug með 16 klukkustunda fyrirvara. Fljúgi eftirlitsflugvélarnar ekki yfir landsvæði er tilheyrir viðkomandi ríki á leið til áfangastaðarins verður fyrirvarinn styttri. Mun þetta ákvæði þannnig samkvæmt þessu taka til strandríkja. 24 klukkustundir mun á hinn bóginn líða frá því eftirlits- menn em komnir á staðinn og þar til þeir taka til starfa og er þá m.a. gert ráð fyrir að lögð verði fram flugáætlun auk þess sem búnaður flugvélanna verður skoðaður. Reuter Hans-Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Vestur-Þýskalands (t.v.), ásamt Roland Dumas, utanríkisráðherra Frakklands. Tékkóslóvakía; Rífíi girðingar meðfram v-þýsku landamænmum Prag. Reuter. MIROSLAV Vacek, varnarmálaráðherra Tékkóslóvakíu, sagði í gær að landamæragirðingar meðfi:am vestur-þýsku landamærunum yrðu rifin á næstunni, herskylda yrði stytt og bundinn yrði endi á ítök kommúnistaflokksins í hemum. Vacek sagði að landamæragirð- ingar meðfram vestur-þýsku landamærunum hefðu ekki lengur neina hernaðarlega þýðingu og því yrðu þær rifnar. Sl. mánudag hófu Tékkar að rífa girðingar meðfram austurrísku landamærunum af sömu ástæðu. Ennfremur sagði Vacek að hann hefði náð samkomulagi við Jiri Dienstbier, utanríkisráðherra, um að nær 5.000 sovéskir hermenn, sem verið hefðu í landinu frá því í innrás Varsjárbandalagshetjanna í Tékkóslóvakíu 1968, yrðu sendir heim. Að sögn Vaceks hefur verið ákveðið að stytta herskyldu úr tveimur árum í eitt og hálft frá næstu áramótum. Verulega verður dregið úr æfingum hers- og vara- liðs, sem fyrirhugaðar voru á næsta ári og peningar, sem við það sparast, notaðirtil umhverfismála. • 4 4*. tj," „ ,, cfnitvS Skáldsögurnar Fyrirheitna landið og,Náttvíg hafa hlotið stórkostlegar viðtökur: Báðar eru þær tilnefndar til Islensku bókmenntaverðlaunanna og blaðadómar hafa verið lofsamlegir: FYRIRHEITNA LANDIÐ EFTIR EINAR KÁRASON: „Óneitanlega smitar hún lesandann, krækir í hann. Sagt er frá mörgu fáránlegu þannig að sá sem hér ritar varð að taka sér pásur til að hlæja upphátt." (Ingi BogiBogason, Morgunblaðinu.) „..bæði er hún bráðskemmtileg aflestrar í stöðugum skopstælingum á hverskyns sýndarmennsku, og höfðarjafnframt djúpttil lesenda, vekur þátil umhugsunar. Þetta er vönduð bók og margbrotin saga.“ (Örn Ólafsson, DV.) NÁTTVÍG EFTIR THOR VILHJÁLMSSON: „Kannski er kjarni málsins og styrkur bókarinnar að sagan heldur áfram. Inn í vitundina og vex þar. (Jóhanna Kristjónsdóttir, Morgunblaðinu) „Þetta er í stuttu máli mögnuð saga og skemmtileg aflestrar." (Örn Ólafsson, DV.) MallMlog menning ■ ■ I ÞJÓÐBRAUT HEIMSBÓKMENNTANNA Síðumúla 7-9. Sími 688577. Laugavegi 18. Sími 15199-24240. VIII MAJMSNt >N
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.