Morgunblaðið - 03.01.1990, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANUAR 1990
33% fækkun farþega 1
N or ður- Ameríkuflugi
FARÞEGUM með Flugleiðum,
sem hafa átt viðkomu á Keflavík-
urflugvelli í ferðum á milli Evr-
ópu og Bandaríkjanna, hefiir
fækkað um 33% fá árinu 1988.
135.938 þúsund farþegar komu
við á Keflavíkurflugvelli 1989,
en 1988 áttu 203.867 farþegar
viðkomu þar. Þetta kemur fram
í árssamantekt Péturs Guð-
Kjartan P.
Kjartansson
hættur hjá SÍS
Sambandssljórn ræðir
tilboð Landsbanka á
föstudaginn
STJÓRN Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga kemur saman til fund-
ar á föstudaginn og tekur afstöðu
til tilboðs Landsbankans í 52%
hlut Sambandsins í Samvinnu-
bankanum. Morgunblaðið hefur
upplýsingar um að næsta öruggt
er talið að stjórn Sambandsins
taki tilboðinu, sem hljóðar upp á
605 milljónir króna.
Kjartan P. Kjartansson, fjármála-
stjóri Sambandsins, sagði upp starfi
sínu nú um áramótin. Hann mun
hafa reiðst mjög fyrirhugaðri sölu á
hlut Sambandsins í Samvinnubank-
anum og því verði sem Landsbankinn
býður í bréfin en fleiri ágreinings-
efni munu hafa verið til staðar.
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sam-
bandsins, staðfesti í samtali við
Morgunblaðið í gær að Kjartan P.
Kjartansson hafi sagt upp starfi sínu
um áramótin, og hafi hann þegar
hætt störfum. Annað vildi Guðjón
ekki um málið segja. Ekki tókst að
ná sambandi við Kjartan P. Kjartans-
son í gær.
49 Islending-
ar létust af
slysförum
árið 1989
49 ÍSLENDINGAR létust af
slysförum árið 1989, þar af 3
erlendis, en 62 íslendingar
létust af slysförum árið 1988,
þar af 8 erlendis, samkvæmt
upplýsingum frá Slysavarna-
félagi íslands.
Þijátíu íslendingar létust í
umferðarslysum árið 1989, þar
af 2 erlendis, en 33 árið 1988,
þar af 5 erlendis. Sjö drukknuðu
eða biðu bana í sjóslysum árið
1989 en 11 árið áður og einn
lést í flugslysi 1989 eri enginn
1988. Dauðsföll vegna annarra
slysa voru 11 árið 1989, þar
af eitt erlendis, en 18 árið 1988,
þar af 3 erlendis.
mundssonar, flugvallarstjóra á
Keflavíkurflugvelli, yfir árið
1989.
„Þessi fækkun farþega er eðlileg.
Það hefur orðið samdráttur hjá
okkur í Norður-Ameríkufluginu. Þó
svo að við förum að fljúga til Wash-
ington í vor, er ekki reiknað með
mikilli fjölgun farþega. Við höfum
boðið upp á lág fargjöld á þessari
leið. Það hefur aukist að farþegar
ferðast á Saga Cláss á leiðinni, en
við reiknum jneð að 90% farþeg-
anna ferðist áfram á lægri fargjöld-
unum,“ sagði Einar Sigurðsson,
blaðafulltrúi Flugleiða.
Pétur Guðmundsson, flugvallar-
stjóri á Keflavíkurflugvelli, sagði í
samtali við Morgunblaðið að 5.908
farþegaflugvélar hafi lent á
Keflavíkurflugvelli árið 1989 og
það hafi verið 3,3% aukning frá
árinu 1988, en þá lentu 5.717 far-
þegaflugvélar á vellinum.
658.119 farþegar komu um
Keflavíkurflugvöll, en það eru
10,6% færri farþegar en árið 1988,
en þá áttu rúmlega 736 þúsund
farþegar leið um völlinn.
Farþegum sem komu inn í landið
og fóru úr landi fækkaði einnig.
262.651 fórú úr landi 1989 á móti
266.264 farþegum 1988. Það er
1,3% fækkun. Farþegar sem komu
inn í landið voru 259.530 á móti
266.077 farþegum 1988, en það er
2,4% fækkun.
Alþjóðaflugmálastofnunin spáir
því í langtímaspá að 6% fjölgun
farþega verði á Norður-Atlants-
hafssvæðinu.
Morgunblaðið/Ingvar
Lögreglumenn handtaka mann sem reynt hafði innbrot á þaki
húss við Laugaveg á nýársnótt.
Erilsamt hjá lögregl-
unni en stórslysalaust
Lögreglumönnum í Reykjavík þótti áramótahelgin í ár með
rólegra móti þrátt fyrir nokkurn eril. Starfsbræður þeirra úti
um landið sem Morgunblaðið hafði tal af líktu áramótunum við
venjulega en fremur annasama helgi, Engum var kunnugt um
að alvarleg slys hefðu orðið.
Færri gistu fangageymslur lög-
reglunnar í Reykjavík en oftast
áður um áramót þrátt fyrir að
lögreglan hefði þurft að sinna
rúmlega 40 útköllum vegna ölvun-
arástands, auk fjölmargs annars
sem upp á kom. Níu líkamsárásir
voru kærðar á gamlársdag og
nýársdag en engar þeirra voru
taldar alvarlegar og oftast-hafði
verið um slagsmál að ræða. Hins
vegar var mikið um rúðubrot og
hvers konar skemmdarverk. Alls
hafði 41 tilkynning um slíkt bor-
ist lögreglunni fyrstu tvo daga
ársins, þar á meðal skemmdarverk
sem unnin voru á 51 bíl í Norður-
mýrinni á nýársnótt. Bílarnir
stóðu við Auðarstræti, Snorra-
braut, Mánagötu og Skarphéðins-
götu. Gengið hafði verið á milli
þeirra, rúðuþurrkur, loftnets-
stangir og hliðarspeglar brotnir.
Ekki er vitað hveijir voru að verki
en lögreglan biður þá sem gætu
gefið upplýsingar að hafa við sig
samband.
Rannsóknarlögreglu ríkisins
var tilkynnt um 11 innbrot í ýmis
fyrirtæki um áramótahelgina.
Póstur og sími;
61 símsmiður
aflaunaskrá
SEXTÍU og einn símsmiður hvarf
út aflaunaskrá nú um mánaðamót-
in hjá Pósti og síma, samkvæmt
upplýsingum starfsmannadeildar
stofnunarinnar. Mennimir hafa
sto&iað sitt eigið verkalýðsfélag
og sagt sig úr Félagi íslenskra
símamanna. Félagið hefur fengið
aðild að Rafiðnaðarsambandinu
og og er það vijji félagsmanna að
það geri kjarasamninga fyrir þá,
en á það hefur ríkisvaldið ekki
geta fallist.
Ágúst Geirsson, símstjóri í
Reykjavík, en á símstöðinni starfar
um helmingur þeirra sem hætt hafa,
sagði að hægt hefði verið að sinna
því sem upp hefði komið í gær. Menn
hefðu verið færðir til í störfum og
yfirmenn hefðu einnig hlaupið í
skarðið. Hann sagði að símsmiðirnir
hefðu einkum starfað á þremur deild-
um, jarðsímadeild, bilanadeild og við
uppsetningu á nýjum símum. Þetta
hefði gengið áfallalaust fyrir sig,
enda um helmingur símsmiða enn
eftir hjá símstöðinni í Reykjavík.
Ágúst sagði að sér sýndist þessi
deila í sjálfheldu og engin lausn í
sjónmáli. Auðvitað væri best að
símsmiðirnir gætu snúið aftur til
fyrri starfa. Þetta væru starfsmenn
með mikla reynslu margir hveijir og
slæmt að missa þá. Á næstu dögum
ætti að koma í ljós hvort um varan-
legt ástand væri að ræða eða hvort
einhver möguleiki væri á að starfs-
mennirnir sneru aftur til fyrri starfa.
Það yrði að gerast fyrr en seinna.
Annars yrði að grípa til að fá menn
í nám.
Verslunarbankimi eign-
ast meirihlutann í Stöð 2
EIGNARHALDSFÉLAG Verslunarbankans hf. eignaðist á gamlársdag
meirihluta í Stöð 2. Jafiiframt var hlutafé fyrirtækisins aukið úr 5,5
milljónum í 405,5 milijónir. Af því leggur eignarhaldsfélagið fram 250
milljónir en þrír fyrri aðaleigendur Stöðvar 2 leggja fram 150 milljón-
ir. Þessir aðilar keyptu jafiiframt hlut Páls Jónssonar forstjóra sem
átti 10% hlutafjár. Með þessu telur Verslunarbankinn sig hafa tryggt
stöðu sína í íslandsbanka hf. sem tók til starfa um áramótin. Viðskipti
Stöðvar 2 munu nú færast til íslandsbanka.
Eignarhaldsfélag Verslunarbank-
ans hf. var stofnað um áramótin um
eignir Verslunarbankans þegar
rekstur bankans var afhentur ís-
landsbanka. Félagið sér um skuld-
bindingar vegna kaupa Verslunar-
banka á hiutabréfum í Utvegsbank-
anum. Bankaráð Verslunarbankans
hf. myndar stjóm eignarhaidsfélags-
ins og Höskuldur Ólafsson, áður
bankastjóri Verslunarbanka, er
starfsmaður þess.
Höskuldur sagði við Morgunblað-
ið, að með samningunum á gamlárs-
dag hefði verið eytt þeirri óvissu sem
var í kringum málefni Stöðvar 2 og
teknar ákvarðanir um endurskipu-
lagningu á rekstrinum. í þvi fælist
að aflað hefði verið viðbótarhlutafjár
til að mæta eðlilegum þörfum fyrir-
tækis af þessari stærð og einnig lögð
áhersla á að efla stjörnunarþætti
Stöðvar 2 til að ná þeim árangri sem
stefnt væri að.
Samningar voru gerðir um að
eignarhaldsfélagið keypti eða seldi
250 milljóna króna hlutafé. Stjórn
félagsins samþykkti einnig heimild
til að auka 100 milljónum við hluta-
féð ef þörf kræfi. Höskuldur sagði
að ekki hefði verið ákveðið hvort
allt hlutaféð yrði selt eða hvort félag-
250 Kópavogsbúar á Vatnsenda
Reykjavíkurborg býður 162 milljónir í landið
KÓPAVOGSBÆR hefiir forkaupsrétt að Vatnsendalandi, sem
Reykjavíkurborg hefiir gert kauptilboð í. Verði af sölu landsins mun
land, sem um 250 Kópavogsbúar byggja, komast í eigu Reykjavíkur-
borgar. Tilboð Reykjavíkur er í 550 hektara af landi Vatnsenda og
hljóðar upp á 162 milljónir kr. Tilboðið gerir ráð fyrir 12 milljóna
króna útborgun og að eftirstöðvar greiðist á 15 árum.
Heimir Pálsson, formaður bæjar-
ráðs Kópavogs, segir það með öllu
óviðunandi að sveitarfélag kaupi
byggingarland annars sveitarfé-
lags en ef svo fari muni Kópavogs-
bær eftir sem áður sjá um að skipu-
ieggja byggðina og þá jafnframt
ráða hvenær það verði byggingar-
hæft.
„Við bíðum átekta þar til ijóst
er um hvað er verið að ræða. Það
eru svo óljósar og misvísandi upp-
lýsingar meðal annars um land-
stærð og svæði, sem við fáum eft-
ir því við hvorn aðila málsins við
ræðum, eiganda landsins eða borg-
arstjóra," sagði Heimir. „Þessar
viðræður hafa staðið lengi yfir og
Kópavogi hefur verið boðið landið
til kaups en ef af þessum samningi
verður munum við grípa til okkar
ráða. Við munum ekki una því að
byggingarland okkar sé keypt und-
an okkur né undan þessum 250
Kópavogsbúum sem þarna búa.
Þetta land er innan Kópavogs og
lögsögu þess verður ekki breytt
nema með samþykki beggja aðila.“
Að sögn Davíðs Oddssonar,
borgarstjóra, er jörðin í heild um
700 hektarar. Að frádregnum þeim
skikum sem þegar hafa verið seld-
ir úr landinu til Kópavogs og
Reykjavíkur og þeim hluta lands-
ins, sem seljandinn óskar að halda
eftir auk um 80 hektara af vatn-
inu, standa eftir um 550 hektarar
samkvæmt mælingu starfsmanna
borgarinnar. Tilboðið er gert með
fyrirvara um samþykki borgarráðs,
en þar hefur það tvisvar verið rætt
óformlega. Þá er fyrirvari um að
Kópavogsbær neyti ekki forkaups-
réttar auk fyrirvara um að sölu-
heimildir séu fyrir hendi.
Tilboðið stendur til 5. janúar.
ið héidi einhveiju eftir.
Fyrri aðaleigendur, þeir Jón Óttar
Ragnarsson, Hans Kristján Ámason
og Óiafur H. Jónsson, lögðu fram
150 milljón króna hlutafé sem tryggt
er með með veði í Vatnsendalandi.
Höskuldur sagði aðspurður að það
hlutafé sem kæmi inn á þennan hátt
myndi tryggja skuldir og styrkja
fjárhagsstöðuna. Þetta létti fjár-
magnskostnaðinn og það hefði lengi
verið lögð áhersla á það, af hálfu
Verslunarbankans, að dregið yrði úr
skuldsetningu félagsins og komið á
eðlilegu hlutfalli milli hlutafjár og
lánsfjár.
Ný stjórn íslenska sjónvarpsfé-
lagsins var kosin á gamlársdag í
samræmi við breytta hlutafjáreign.
í stjóminni eru Jónas Aðalsteinsson
lögmaður sem er formaður, Þorvarð-
ur Elíasson skólastjóri varaformaður,
Hans Kristján Árnason ritari, Þor-
valdur Guðmundsson forstjóri og
Orri Vigfússon forstjóri.
Stjórnin hefur ákveðið að sameina
sjónvarpsfélagið og Islenska mynd-
verið. Jón Sigurðsson verður áfram
framkvæmdastjóri Stöðvar 2 og hef-
ur jafnframt æðsta vald í öllum
málum fyrirtækisins. Þá hafa verið
gerðir gert sérstakir starfssamningar
við þijá fyrri aðaleigendur stöðvar-
innar. Jón Óttar Ragnarsson verður
forstjóri og hefur umsjón með mark-
aðs- og dagskrármálum. Ólafur H.
Jónsson er aðstoðarforstjóri en Hans
Kristján Árnason, sem var stjórnar-
formaður Stöðvar 2, er ritari stjórn-
ar. í framkvæmdaráði sitja Jónas
Aðalsteinsson, Jón Sigurðsson og Jón
Óttar Ragnarsson.
Jón Sigurðsson sagði við Morgun-
blaðið, að rekstraráætlun fyrir fyrir-
tækið myndi liggja fyrir í næstu viku.
Stefnt væri að mun meira aðhaldi í
rekstrinum en verið hefði þótt ekki
yrði um byltingu-að ræða. Aðspurður
hvort um frekari uppsagnir starfs-
fólks yrði að ræða sagði hanh að
engin ákvörðun hefði verið tekin um
slíkt.
Jón sagði síðan að Stöð 2 væri
mjög sterkt fyrirtæki, sem almenn-
ingur hefði mikla trú á. Það sæist
af því að 2.800 nýir áskrifendur
hefðu bæst við á síðustu 10 dögum
ársins. Og af um 45.000 áskrifendum
Stöðvar 2 hefðu 95,29% greitt
áskriftargjöld í desember. Þetta
sýndi að bæði nýir áskrifendur og
gamlir hefðu mikla tiltrú á stöðinni
þrátt fyrir þann úifaþyt sem verið
hefði í kringum hana síðustu vikur.
Jón sagði ennfremur að bráða-
birgðatölur sýndu að hagnaður hefði
verið á rekstri stöðvarinnar á síðasta
ári, þrátt fyrir gífurlegan fjármagns-
kostnað. Þetta væri árangur af að-
haldsaðgerðum á árinu en árið 1988
hefði tap á reksti verið á annað
hundrað milljónir króna.
Bankaráð Verslunarbankans sat á
fundi nær allan laugardag og að-
faranótt gamlársdags vegna málefna
Stöðvar 2, en áhersla var lögð á að
ljúka málinu fyrir áramót. Daginn
áður hafði ríkisstjórnin lýst sig reiðu-
búna að leggja fram lagafrumvarp á
Alþingi um ríkisábyrgð handa Stöð
2 á erlent lán. Ríkisstjórnin hafnaði
síðan kröfu Verslunarbanka að setja
bráðabirgðalög um ríkisábyrgðina.
Ríkisstjómin leitaði þó áfram leiða
tii að koma Stöð 2 til aðstoðar.
Embættismenn skoðuðu ýmsa mögu-
leika í því sambandi.^ M.a. var rætt
um að Þróunarfélag íslands gengist
í ábyrgð fyrir skuidum Stöðvarinnar.
Þá var einnig kannað hvort Búnaðar-
bankinn gæti tekið yfir skuldbinding-
ar Stöðvar 2. Hann treysti sér ekki
til að taka þá ákvörðun með svo
stuttum fyrirvara, og vildi að nýtt
bankaráð, sem tók við um áramót,
fjallaði um málið áður.
Aðfaranótt sunnudags var samið
við fyrrverandi aðaleigendur Stöðvar
2 um þá niðurstöðu sem varð. Á
gamlársdag hélt bankaráð Verslun-
arbankans fund með þeim fimm aðil-
um sem verið höfðu í viðræðum um
að kaupa hlut í Stöð 2. Höskuldur
Ólafsson sagði að þeir væru enn inni
í myndinni varðandi kaup á því hlut-
afé sem eignarhaldsfyrirtækið ætlar
að selja. Einnig hefðu fleiri aðilar
lýst yfir áhuga á að kaupa hlutafé.